Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Síða 20
20
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
Iþróttir
Hughes var
hetja N-íra
- sem voru heppnir í
Tyrklandi
Phil Hughes, markvörður Bury,
sem tók stöðu Pat Jennings í marki
N-írlands, var hetja N-lra þegar
þeir máttu hrósa happi að ná jafn-
tefli, 0 0, við baráttuglaða Tyrki í
Evrópukeppni landsliða í gær-
kvöldi. Hughes varði hvað eftir
annað stórkostlega á Ataturk-
leikvellinum I Izmir þar sem
íslendingar unnu sigur, 3-1, yfir
Tyrkjum um árið.
Tyrkir sóttu nær látlaust að
marki N-íra en klaufaskapur
þeirra og góð markvarsla Hughes
kom í veg fyrir að þeir skoruðu.
Aðeins klukkutíma fy-rir leikinn
sagði Caskun Ozari, þjálfari
Tyrkja, upp starfi sínu þannig að
Tvrkir mættu þjálfaralausir í Ieik-
inn. Ozari lenti í rimmu við
formann tvrkneska knattspymu-
sambandsias.
Tyrkir byrjuðu leikinn af mikl-
um krafti og eflir aðeins eina mín.
skall knötturinn á stönginni á
marki N-íra eftir þrumuskot frá
Demiral. Billy Bingham, þjálfari
N-frlands, sem er valtur í sessi,
virtist ánægður eftir leikinn. „Við
lékum sterka vörn á útivelli og
náðum stigi,“ sagði Bingham.
-sos
Fyrstu stig
Grikklands
Grikkir náðu sér í sín fyrstu stig
í 5. riðli Evrópukeppni landsliða í
knattspymu í gær er þeir sigmóu
Ungverja á heimavelli sínum með
tveimur mörkum gegn einu. Stað-
an í leikhléi var 1 -0 Grikklandi í
vil.
Tasos Mitropoulosskoraði fyrsta
mark leiksins á 38. mínútu en á
66. mínútu náði Nicos Anastopou-
los að auka muninn í 2-0. Imre
Boda skoraði mark Ungyerja á 73.
mínútu. Fimmtán þúsund áhorf-
endur sáu leikinn sem fram fór í
Aþenu. Staðan í 5. riðlinum er nú
þessi:
Pólland....1 1 0 0 2-1 2
Holland....1 1 0 0 10 2
Grikkland..2 I 0 1 3-3 2
Ungverjaland..2 0 0 2 1-3 0
Kýpur.....0 0 0 0 0 0 0
-SK
Stigamót í
knattborðsleik
Annað stigamót Billiardsam-
bands íslands fer fram um helgina
í knattborðsstofúnni að Klappar-
stíg 26. Keppt verður frá föstudegi
til sunnudags. Stigahæstu knatt-
borðsspilaramir eftir f'yrsta mótið
em Viðar Viðarsson, íslandsmeist-
ari frá Akureyri, og Kári Ragnars-
son, með 35,02 stig. Asgeir
Guðbjartsson og Amar Richards-
son með 24,72 stig, Hafþór Sigurðs-
son 20,30 og Ágúst Ágústsson 16,48
stig- -SOS
í kvöld:
Karate og
karfia
•Nær allir bestu karatekappar
landsins verða samankomnir í
Hagaskólanum í kvöld þar sem
shotokan-meistaramótið fer fram
kl. 20.00.
•Tveir leikir fara fram í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í kvöld.
Keflvíkingar fá KR-inga í heim-
sókn kl. 20 og á sama tíma keppa
Haukar og Njarðvík í Hafnarfirði.
• Það ríkti mikill fögnuður í búningsklefa Breiðabliks eftir sigurieikinn gegn Víkingi í gærkvöldi. Hér fagna Blikar enda höfðu þeir æma ástæðu til. Þeir em
einir taplausir í 1. deildinni og em i toppsætinu. DV-mynd Brynjar Gauti.
Breiðablik eitt taplaust í efsta sæti 1. deildar í handknattieik:
„Það rignir ekkert
upp í nefíð á okkur“
- sagði Geir Hallsteinsson, þjalfari UBK, eftir 26-21 sigur gegn Víkingi
„Vitanlega er ég mjög ánægður með
leik minna manna að þessu sinni. Að
vísu var byrjunin nokkuð slök og það
tók strákana nokkum tíma að átta sig
á því að þeir gætu sigrað Víkingana.
Okkur veitir ekkert af þessum stigum.
Það er hörð barátta framundan og
stutt í aumingjann í þessu. Það rignir
ekkert upp í nefið á okkur þrátt fyrir
þennan sigur,“ sagði Geir Hallsteins-
son, þjálfari Breiðabliks, eftir að lið
hans hafði unnið ömggan sigur á Vík-
ingi, 26 21, í Digranesi í Kópavogi í
gærkvöldi í fjörugum og skemmtileg-
um leik. Staðan í leikhléi var 11—12
Víkingi í vil. Breiðablik er nú eina
taplausa liðið í 1. deild og vermir topp-
sætið.
Leikurinn var mjög fjörugur lengst
af og undir lok leiksins hafði skapið
algerlega hlaupið með Víkinga í gönur
og um tíma vom þeir aðeins þrír inn
á. Þeir kenndu ágætum dómurum um
ófarir sínar í stað þess að líta í eigin
barm. Þeir Siggeir Magnússon og
Guðmundur Guðmundsson fengu að
sjá rauða spjaldið í lok leiksins fyrir
kjaftbrúk og vom Víkingar flestir viti
sínu fjær af vonsku. Blikamir ein-
beittu sér hins vegar að handknatt-
leiknum og unnu mjög sanngjaman
fimm marka sigur. Blikaliðið byrjaði
illa í leiknum en hresstist þegar líða
tók á leikinn. Vömin var döpur til að
byrja með og um leið og hún small
saman hrökk Guðmundur Hrafnkels-
son í gang í markinu en alls varði
hann 16 skot í leiknum og þrjú víta-
köst. Blikamir komust að vísu í 3-1
en Víkingar breyttu stöðunni í 5-8 á
skömmum tíma og höfðu eins marks
forskot í leikhléi, 11-12.
Blikar tóku öll völd
Karl Þráinsson skoraði fyrsta mark
síðari hálfleiks fyrir Víking og staðan
11-13, Blikamir jöfhuðu, 13-13, en
Víkingar komust aftur yfir, 13-14, og
var það í síðasta skipti sem Víkingur
hafði yfirhöndina, Mestur varð mun-
urinn fimm mörk í lokin, 25-20 og
26-21.
Mjög mikil harka var í leiknum og
í 34 mínútur var leikmaður úr öðm
hvom liðinu utan vallar í tvær mínút-
ur. Dómaramir Gunnar Kjartansson
og Rögnvald Erlingsson höfðu í nógu
að snúast og komust nokkuð vel frá
leiknum. Gerðu að vísu mistök eins
og gengur en þau vom þó aðeins smá-
vægileg miðað við öll mistök Víkinga
í leiknum. Leikmenn liðsins létu skap-
ið algerlega hlaupa með sig í gönur
og ffamkoma nokkurra leikmanna
liðsins í lokin var ekki til fyrirmyndar.
Það skipti miklu máli fyrir Víkinga
í þessum leik að Kristján Sigmundsson
dalaði mjög í byrjun síðari hálfleiks
eftir góðan fyrri hálfleik. Fór svo að
lokum að honum var skipt út af en
að mati margra var hann of lengi utan
vallar. Þá lék Guðmundur Guðmunds-
son meiddur á fingri og náði sér aldrei
á strik.
Hvað gera Blikar?
Lið Breiðabliks er í efsta sæti 1.
deildar sem stendur og er eina liðið
sem ekki hefur tapað leik í 1. deild.
Liðið getur gert vemlega góða hluti
ef vel verður á málum haldið. Mikil
barátta er í liðinu og er spennandi að
sjá hvað liðið gerir í næstu leikjum.
Þeir Guðmundur Hrafnkelsson mark-
vörður og Kristján Halldórsson
línumaður voru bestu menn liðsins í
gærkvöldi ásamt Svavari Magnússyni
og Jóni Þóri Jónssyni.
Mörk Breiðabliks: Jón Þórir Jónsson
8/3, Svavar Magnússon 4, Kristján
Halldórsson 4, Björn Jónsson 4/1, Áð-
alsteinn Jónsson 3, Sigþór Jóhannes-
son 2 og Elvar Erlingsson 1.
Mörk Víkings: Kari Þráinsson 7/3,
Árni Friðleifsson 4, Hilmar Sigurgísla-
son 4/1, Bjarki Bjamason 2, Siggeir
Magnússon 2, Sigurður Ragnarsson 1
og Guðmundur Guðmundsson 1.
-SK
Staðan
Staðan eftir leikina í 1. deild Is-
landsmótsins í handknattleik í
gærkvöldi er þannig:
KA-Valur.... 28-23
Ármann Fram 20-25
FH KR 22-20
UBK Víkingur... 4- 26-21
Stjarnan Haukar 28-22
Breiðablik.... ...3 3 0 0 73-61 6
Fram ...4 3 0 1 101 76 6
Víkingur ...4 3 0 1 90-85 6
FH ...4 2 0 2 99 95 4
Valur ...4 2 0 2 104 100 4
Stjarnan ...3 2 0 1 87-80 4
KA ...4 2 0 2 88 97 4
KR ...4 1 0 3 73-87 2
Haukar ...4 1 0 3 88-104 2
Ármann ...4 0 0 4 86 105 0
• Gylfi Birgisson skoraði 9 mörk fyrir Stjömu
er eitt þeirra i uppsiglingu.
I-----------------------------
| Þór missi
! enfærGuc
J - Steinar Ingimunda
| Jón G. Haukssan, DV, Akureyri
Baldvin Guðmundsson, mark-
vörður í knattspymu, sem varði mark
Þórs frá Akureyri í 1. deildinni á síð-
_ asta keppnistímabili, hefur ákveðið að
hætta að leika með liðinu. Övíst er
Ihvort Baldvin hættir alveg afskiptum
af knattspymu en svo gæti farið. Þá
Ier einnig möguleiki á að hann gangi
til liðs við FH en Baldvin er búsettur
í Hafnarfirði.
I Guðmundur í Þór
IÞórsarar fá liðsstyrk fyrir næsta
keppnistímabil. Guðmundur Valur
I Sigurðsson, sem var einn besti leik-
maður Breiðabliks á síðasta keppnis-