Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Qupperneq 22
22
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
íþróttir
Axel hefur
engu gleymt
- og Afturelding er óstöðvandi
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi;
Axel Axelsson og lærisveinar hans
hjá Aftureldingu skutu Skagamenn
niður a góðum lokaspretti hér í 2.
deildar keppninni í handknattleik í
gærkvöldi, 28-21. Staðan var 20-19
þegar sex mín. voru til leiksloka. Þá
settu Axel og félagar á fullt og gerðu
út um leikinn.
Axel hefur engu gleymt og á hann
heima í 1. deildinni, yfirvegaður og
sterkur leikmaður. Afturelding hefur
leikið fimm leiki og unnið þá alla.
Axel skoraði fimm mörk fyrir Aftur-
eldingu og það gerðu þeir Erlendur
Davíðsson og Úlfar Eggertsson einnig.
Guðmundur Sveinsson var marka-
hæstur hjá Skagamönnum með 9
mörk.
• Axel Axelsson. -SOS
Skotar
skoruðu
Þegar David Cooper skoraði
fyrsta mark Skota gegn Lúxem-
borgarmönnum á Hampden Park
í Glasgow í gærkvöldi voru sex
mánuðir liðnir síðan að skoskur
sóknarleikmaður skoraði mark.
Það tók Skota 24 mínútur að
brjóta niður tíu manna vamarmúr
Lúxemborgarmanna. Cooper skor-
aði markið úr vítaspymu og síðan
bætti hann öðru marki við. Mo
Johnstoni skoraði þriðja mark
Skota sem héldu uppi einstefnu að
marki Lúxemborg.
Paul Phillip, landsliðsþjálfari
Lúxemborg, sagði að það væri stór
munur á Belgíumönnum og Skot-
um. „Skotar eiga langt í land með
að eignast gott landslið. Belgíu-
menn hafa fimm til sex leikmenn
á heimsmælikvaróa. Besti leik-
maður Skotlands er jafnframt sá
elsti, Kenny DaJglLsh" sagði
Philip.
Belgía og Skotland eru með þrjú
stig eftir tvo leiki í sjöunda riðli
EM, írai- og Búlgarar hafa eitt stig
eftir einn leik og Lúxemborgar-
menn ekkert eftir tvo leiki.
-sos
Hugo Maradona
í landsliðið
Carlos Bilardo, landsliðsþjálfari
Argentínu, sem er byrjaður að
byggja upp nýtt landslið fyrir
HM-keppnina á ftalíu 1990, valdi
í gær Hugo Maradona, 17 ára
bróðir Diego, í landsliðshóp Arg-
entínu. Bilardo valdi 18 leikmenn
til að taka þátt í undankeppni
Pan-American leikanna, sem verða
í Chile í ágúst 1987. Meðalaldur
argentínska liðsins er aðeins 22
ára.
-SOS
Það gekk mikið á í leik FH og KR
þegar liðin mættust í Hafharfirði í
gærkvöldi. FH-ingar sigruðu með 22
mörkum gegn 20 eftir að staðan í hálf-
leik hafði verið 11-8 fyrir heimamenn.
FH-ingar söknuðu þó þjálfara síns,
Viggós Sigurðssonar, í lok leiksins en
hann var rekinn af velli í hita leiks-
ins. „Þetta var mikilvægur leikur og
við vorum undir mikilli pressu. Ég var
mjög ánægður með markvörsluna hjá
okkur en annars var leikurinn í heild
ekkert sérstakur. Framhaldið verður
erfitt þar sem við erum með mjög ungt
lið en við verðum að einbeita okkur
vel í hverjum leik,“ sagði Þorgils Ótt-
ar Mathiesen, fyrirliði FH, eftir leik-
inn.
Leikurinn var annars ekki merkileg-
• Ingemar Stenmark.
KNATTSPYRNUÞJÁLFARI ÓSKAST
Ungmennafélagið Hvöt, Blönduósi, vantar knatt-
spyrnuþjálfara næsta keppnistímabil. Upplýsingar
gefur Jón Sverrisson í síma 95-4123 og í síma
95-4595 á kvöldin til 16. nóvember.
• Héðinn Gilsson náði ekkl að skora nema tvö mörk fyrir FH.
DV-mynd Brynjar Gauti
DV
Spán-
verjar
mörðu
sigur
í Sevilla
Spánverjar rétt mörðu sigur,
1-0, yíir Búlgönim í Sevilla í
gærkvöldi. Það var Michel
Gonzalez sem skoraði sigurmark
þeirra á 57. minútu. 52 þús.
áhorfendur sáu leikinn.
Spánverjar fengu vítaspyrnu
rétt fyrir leikslok. Lung, mark-
vörður.Rúmena, gerði sér þá lítið
fyrir og varði vítaspymu frá
Butragueno.
Rúmenar og Austurríkismenn
eru með tvö stig eftir tvo leiki í
fyrsta riðli EM, Spánveijar eru
með tvö stig eftir einn leik og
Albanir ekkert eftir einn leik.
-sos
rekinn af leikvelli
þegar FH-ingar lögðu KR-inga að velli, 22-20
ur handboltalega séð en spennan var
mikil í lokin þar sem sigurinn gat lent
báðum megin. FH-ingar höfðu frum-
kvæðið allan tímann en mestur varð
munurinn fimm mörk, 9-4, í fyrri hálf-
leik. KR-ingum tókst þó að minnka
muninn í þijú mörk fyrir hlé og 11-8
var staðan í hálfleik.
Síðari hálfleikur fór vægast sagt ró-
lega af stað því liðin skoruðu aðeins
tvö mörk fyrstu 9 mínútumar og var
það mest vegna mistaka liðanna en
þó er rétt að minnast á markvörslu
þeirra Gísla Felix og Magnúsar Áma-
sonar sem stóðu sig báðir vel. FH-
ingar héldu áfram for- ystunni en hún
var aðeins eitt mark þegar 7 mín. vom
til leiksloka, 17-16. Þá dró til tíðenda
þegar dómaramir ráku Viggó til bún-
ingsherbergja fyrir kjaftbrúk en það
létu FH-ingar ekki á sig fá heldur
komust aftur tvö mörk yfir og nú var
allt á suðupunkti. Rúmlega 3 min. eft-
ir og staðan 20-18 þegar KR-ingar
misstu boltann og Þorgils Óttar skor-
aði fyrir FH. KR-ingar svömðu strax
á eftir en Guðjón Ámason gerði end-
anlega út um leikinn með 22. marki
FH. í þann mund sem dómaramir
flautuðu til leiksloka laumuðu „þeir
röndóttu" inn einu marki og lokatölur
urðu því 22-20.
FH-ingar geta leikið mun betur heldur
en í gærkvöldi en leikmenn virkuðu
taugaóstyrkir lengst af. Gunnar Bein-
teinsson átti góðan leik og var mjög
sprækur í hominu og þá átti Magnús
markvörður einnig góðan leik. Hjá
KR var fátt um fína drætti. Sóknar-
leikurinn var mjög vandræðalegur og
leikmenn gera margar vitleysur. Guð-
mundur Pálmason skaraði helst fram
úr annars slöku liði.
Dómarar vom þeir Bjöm Ámason
og Sigurður Baldursson og dæmdu
þeir nokkuð vafasamt í lokin en stóðu
sig annars sæmilega.
• Mörk FH: Þorgils Óttar 7, Gunnar
5, Guðjón 4, Pétur 2, Héðinn 2 og
Óskar 1 viti.
•Mörk KR: Guðmundur 6, Konráð
4, Jóhannes 3 (2v.), Guðmundur 3,
Pétur og Páll 1 mark hvor en Páll var
útilokaður frá leiknum eftir þrjár
brottvísanir.
-RR
Stenmark áfram í slagnum
- í alpagreinum heimsbikarsins á skíðum
„Ég ætla að keppa á fullu í vetur
og sjá svo til hvað ég geri,“ sagði
sænski skíðagarpurinn Ingemar Sten-
mark á blaðamannafundi í gær. Þar
lýsti hann því yfir að hann væri ekki
hættur keppni og myndi gera allt sem
hann gæti til að vinna sigra í vetur í
skíðabrautunum.
Stenmark, sem verður 31 árs i mars
á næsta ári, á að baki einstæðan feril
sem skíðamaður. Hann hefur borið
sigur úr býtum í 83 keppnum í heims-
bikarkeppninni frá upphafi en ekki
gengið sem best síðustu tvö árin. „Fyr-
ir tveimur árum gerði ég mjög góða
hluti á æfingum en stóð mig illa í
keppnum," sagði Stenmark en þá vann
hann ekki keppni í heimsbikamum. „
Á síðasta ári gekk þetta mun betur
og það jók áhuga minn mikið. Þegar
þér tekst að sigra aftur eftir nokkurt
hlé er það notalegri tilfinning en að
vinna hverja einustu keppni."
Keppni heimsmbikarsins í alpa-
greinum hefst í lok þessa mánaðar á
Italíu og verður fróðlegt að fylgjast
með gengi Ingemar Stenmark. -SK
Sterkur vamarleikur Tékka
- var nokkuð sem Danir réðu ekkert við í Bratislava
Danska landsliðinu í knattspymu
tókst að krækja sér í dýrmætt stig í
sjötta riðli Evrópukeppni landsliða en
liðin léku í Bratislava í gærkvöldi.
Hvomgu liðinu tókst að skora en
Tékkar vom þó mun nær sigri en
Danimir.
Þeir Preben Elkjær Larsen og Mic-
hael Laudmp komust lítt áleiðis gegn
sterkri vöm Tékkanna sem urðu fyrir
miklu áfalli er þeirra besti vamarmað-
ur, Stanislav Levy fékk gult spjald en
hafði fengið spjald áður í keppninni
og leikur því ekki með tékkneska lið-
inu gegn Wales í næsta leik Tékkanna.
Fimmtíu þúsund áhorfendur sáu leik-
inn og urðu þeir fyrir miklum von-
brigðum með markalausan leik
heimamanna. Eftir leikinn í gær-
kvöldi, sem var frekar tilþrifalítill, em
Danmörk og Tékkóslóvakía efst og
jöfn í riðlinum en staðan er annars
svona eftir leikinn í gærkvöldi:
Tékkóslóvakía... ....2 110 3-0 3
Danmörk ....2 110 1-0 3
Wales ....1 0 10 1-1 1
Finnland ....3 0 12 1-5 1
Næsti leikur í riðlinum er viðureign
Wales og Finnlands 1. apríl.
-SK