Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Page 29
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
29
Frá undirritun samninga um aöild sláturieyfishafa aö búvörudeild SIS. F.v. Hreiðar Karlsson, kaupfélagsstjóri á
Húsavik, Árni Jóhannsson, formaður Félags sláturleyfishafa, Guðjón B. Óiafsson, forstjóri SÍS, og Magnús G.
Friðgeirsson, framkvæmdastjóri búvörudeildar
Sláturleyfis-
hafar mynda
með sér félag
- og gerast aðilar að rekstri búvömdeildar SÍS að hálfu
Verulega breyting hefur átt sér
stað á búvörudeild SÍS. Sláturleyfis-
hafar innan samvinnuhreyfingar-
innar hafa myndað með sér félag og
það gerst aðili að rekstri deildarinn-
ar að hálfti á móti SÍS.
Um leið og þetta gerist hefúr verið
ákveðið að búvörudeildin skuli hafa
sjálfstæðan fjárhag og bein við-
skiptasambönd við sláturleyfishaf-
ana. Er þetta gert til að einfalda og
hraða uppgjöri.
Sunna Karlsdóttir, deildarstjóri fjár-
reiða búvörudeildar.
MT.
Sunna Karlsdóttir hefur verið ráð-
in deildarstjóri fjárreiða hjá búvöru-
deildinni í kjölfar rekstrarbreyting-
anna. Hún hefúr verið starfsmaður
búvörudeildar síðan 1981.
-S.dór.
Stefán Helgi Garðarson, 10 ára og hvergi með veikan hlekk í vetrarhjólreiðunum. Það er allt klárt.
____________________Frétdr
Höfh, Homafirði:
Byggt vid
leikskolann
Júlia Imslaivl, DV, HöEn;
Fyrirhugað er að byggja á næstunni
við leikskólann á Höfn. Brýn þörf er
á stækkun hans og að sögn Hailgríms
Guðmundssonar sveitarstjóra verður
verkinu hraðað eins og kostur er.
Nú er pláss fyrir 80 böm á leikskól-
anum og vinna tvær fóstmr við hann
svo og átta starfsstúlkur. Forstöðu-
kona er Margrét Magnúsdóttir. _
Erfitt hefur verið að fá fóstrur til
starfa, en vonandi stendur það til bóta
þar sem fóstrulaunin em hér eins og
þau gerast best á landinu og íbúðar-
húsnæði til staðar.
Húsnæðið er hið vistlegasta og ekki annað að sjá en börnunum liki þar vel.
DV-myndir Ragnar Imsland.
Bíllinn skemmdist nokkuð þegar hann valt á hliðina.
DV-mynd Emil
DV á Húsavík:
Hjólin snúast betur
með keðjur á báðum
Jón G. Hauksaan, DV, Akureyii
Stefán Helgi Garðarsson er 10 ára
Húsvíkingur og sannur DBS-eigandi.
Hann mætir vetrinum með því að setja
keðjur á dekkin. Þannig snúast hjólin
betur.
„Nei, nei, það er alls ekki vont að
hjóla með svona keðjur," sagði Stefán
og kvað málið einfalt; „Ég keypti tvær
keðjur og vafði þeim utan um dekkin.“
Tíðin fer senn að harðna, fannfergi
og frosthörkur, grýlukerti og sultar-
dropar. Það er vissara að vera ekki
eins og blikkbelja á svelli. Keðjumar
undir.
Flutningabíll
fór á hliðina
Emil Thorarensen, DV, EskjfirdL*
Það óhapp varð sl. föstudagskvöld
að flutningabíll valt í brekkunum
fyrir ofan Éskifjörð. Engin slys urðu
á mönnum en bíllinn er nokkuð
skemmdur.
Bíllinn, sem er í eigu Austmats hf.
á Reyðarfirði, var á leiðinni til Norð-
fjarðar þegar óhappið átti sér stað.
Hann var nýbúinn að aka í gegnum
Eskifjörð og þegar komið var í
brekkumar fyrir ofan kaupstaðinn
reyndust þær hálar vegna svellalaga.
Því stansaði bílstjórinn til að setja
keðjur undir bilinn. Skyndilega rann
bíllinn til og fór út af veginum með
þeim afleiðingum að hann valt. ,