Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Page 30
30
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi söluskatts fyrir októbermánuð er 15. nóv-
ember. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
10. nóvember 1986.
Fjármálaráðuneytið.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að gjald-
dagi launaskatts fyrir mánuðina september og október
er 15. nóvember nk.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Til sölu
notuð
'
skrifstofuhúsgögn:
skrifborð - stólar - fundaborð -
afgreiðsluborð, laus skilrúm og margt fleira.
I EINSTAKT
l TÆKIFÆRI
Opiðr í dag kl. 14-18,
Komið í Síðumúla 12, 2. hæð.
Dagblaðið-Vísir
„Forsætisráðherra gæti verið hver og einn sem á gott með að vinna með öðrum og kemur traustvekjandi fyrir, ég
hef alltaf álitið að Magnús Magnússon frá Vestmannaeyjum hentaði vel í það.“
Pólitík,
persónuleiki,
ætt og upprani
í þeim pólitísku hræringum sem
nú dynja yfir þjóðina hljóta flestir
að leiða hugann að því hvað sé póli-
tík og hvað ekki. Hvað er það sem
gerir það að verkum að sumir fara
og komast áfram í pólitík en aðrir
ekki? Undirritaður hefur að gamni
sínu leitt hugann að þessu og reynt
að gera sér grein fyrir því hverjir
það eru sem fara út í pólitík og hverj-
ir ekki.
Þegar farið var að hugsa málið
kom í ljós að sennilega er ekki hægt
að flokka fólk eftir persónuleika í
pólitík að öðru leyti en því að flest-
allir fara í þetta vegna þess að þeir
eru framgjamir. Eg sagði flestallir
en ég tel að það eigi ekki við um
alla. Sumir fara örugglega í þetta
vegna þess að þeir eiga leiðina visa
enda þá í flestum tilfellum arftakar
og ömgglega stundum hvattir eða
skipað það. Ef það er rétt þá hafa
erfðir haft ómæld áhrif á pólitík
þeirra. En eru þeir þá hæfari þeim
sem hafa alist upp í öðm umhverfi,
svo sem fátækt?
Er þá fátækt persónuleikaskap-
andi? Hún er það efalaust en
hvemig? Það er ábyggilega erfitt að
segja til um það en eitt er víst, hún
ætti ekki að vera þrándur í götu
neins. Þó heyrir maður að fólk, sem
hefur alist upp í fátækt, sé að setja
reglur sem hafa þau áhrif að réttur
fólks til menntunar verður mismun-
andi eftir þjóðfélagsstöðu.
Prófkjör sundra flokkum
Snúum okkur aftur að pólitíkinni.
Á hún þá ekki að fara eftir flokkum
eða ætti pólitík ef til vill að fara ein-
göngu eftir einstaklingum? Það
mundi þýða byltingu í stjómmálum,
en er það ekki það sem er að koma
upp á yfirborðið þar sem próíkjör á
prófkjör ofan sundra flokkum? Em
þá flokkar ekki búnir að ganga sér
til húðar? Ég held að svo sé og kom-
inn tími til að reyna eitthvað annað
eitt kjörtímabil. Það mundi þýða að
þeir sem fengju þá stuðningsmenn
KjaUarinn
Garðar
Alfonsson
rennismiður
sem til þyrfti gætu boðið sig fram.
Það yrði margt athyglisvert sem
kæmi út úr því en þetta væri hægt
að framkvæma og raunverulega
gaman að velta þessu fyrir sér.
Hugmynd aö ráðherralista
Ef ég legði eitthvað til málanna
mundi þetta þýða að nokkur hundr-
uð stuðningsmenn þyrfti til þess að
geta boðið sig fram. Ég set til gam-
ans fram hugmynd að ráðherrum
sem gætu komið til greina.
Fjármálar.: Vilhjálmur Egilsson.
Utanr. og viðskiptar.: Halldór Ás-
grímsson.
Sjávar- og landbúnaðarr.: Ás-
mundur Stefánsson.
Menntamálar.: Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir.
Dóms- og kirkjumálar.: Geir Gunn-
arsson.
Heilbrigðis- og tryggingar.: Ragn-
hildur Helgadóttir.
Iðnaðarr.: Víglundur Þorsteins-
son.
Þessu er ekki raðað af minni hálfu
í neina sérstaka röð. Forsætisráð-
herra gæti verið hver og einn sem á
gott með að vinna með öðrum og
kemur traustvekjandi fyrir, ég hef
alltaf álitið að Magnús Magnússon
frá Vestmannaeyjum hentaði vel í
það.
Þó ég setji þetta fram í nokkurri
skyndingu er þetta samt sem áður
fólk sem ég gæti fellt mig við í þess-
um stöðum.
Garðar Alfonsson
„...ætti pólitík ef til vill að fara eingöngu
eftir einstaklingum? Það mundi þýða bylt-
ingu í stjórnmálum, en er það ekki það sem
er að koma upp á yfírborðið þar sem próf-
kjör á prófkjör ofan sundra flokkum?“