Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
Dægradvöl__________________________________________________________________________pv
Mátfunda- og rökræðukeppni framhaldsskóla á íslandi - MORFÍS
Markmiðið að efla og
vekja málfærslulistina
Það er ýmíslegt gert til að búa menn sem best undir ræðukeppni. Ein aðferð er að láta ræðumenn standa
hvorn á móti öðrum og flytja ræður sínar samtimis blaöalaust. Þetta eru þeir Sigurður Baldvinsson og Gest-
ur Guðmundsson úr Flensborgarskóla. DV-mynd Brynjar Gauti
Fyrsta umferð rökræðukeppni
MORFÍS, sem er skammstöfun á
Málfunda- og rökræðukeppni fram-
haldsskóla á íslandi, er lokið.
Sextán framhaldsskólar taka þátt
í keppninni að þessu sinni og eru
átta þegar dottnir úr keppninni sem
er útsláttarkeppni. Þeir skólar, sem
ljóst er að komast í aðra umferð
þegar þetta er skrifað, eru Fjöl-
brautaskólinn í Garðabæ, Mennta-
skólinn við Hamrahlíð, Verslunar-
skóli Islands, Menntaskólinn við
Sund, Menntaskólinn í Reykjavík,
Fjölbrautaskóli Suðumesja og Fjöl-
brautaskólinn Sauðárkróki. Keppni
Menntaskólans á ísafirði og
Menntaskólans á Akureyri fór fram
í gærkvöldi, en henni var frestað
vegna veðurs.
Önnur umferð keppninnar fer fram
í janúar og þriðja umferð eða íjög-
urra liða úrslit fara fram í febrúar.
Lokaslagurinn verður síðan í byrjun
mars á næsta ári.
Menntaskólinn í Reykjavík vann
MORFIS-keppnina í fyrra og árið
þar áður, þannig að það er mikil
spenna nú hvort þeim tekst að vinna
bikarinn til eignar.
Reynir á mótunarhæfni
manna
„Markmið MORFÍS er að efla og
vekja málfærslulistina og það gemm
við með því að halda árlega ræðu-
keppni milli framháldsskólanna,"
sagði Ingi V. Jónasson, nemandi í
Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki,
aðspurður hvert væri markmið
MORFÍS. Ingi á sæti i framkvæmda-
stjóm MORFÍS sem var kosin á
síðasta aðalfundi síðastliðið vor.
„Það er grasrótarskipulag hjá
okkur í stjóminni og þar af leiðandi
enginn formaður," sagði Ingi þegar
blaðamaður spurði hann hvort hann
væri formaður félagsins. Að hans
sögn er þessi keppni einn stærsti
viðburðurinn í samstarfi framhalds-
skólanna í landinu og henni fylgdu
oft á tíðum ferðalög og stór hópur
stuðningsmanna fylgdi liðunum þeg-
ar þau fæm að keppa.
En er ekki erfitt fyrir fólk að lenda
kannski í því að þurfa að færa rök
fyrir einhveiju máli sem er algjör-
lega andstætt skoðunum þess? „Jú,
það getur kannski verið erfitt, en
það venst. Ég held að það reyni mjög
á mótunarhæfni manna og hvað þeir
em fljótir að temja sér að finna rök
og mótrök," sagði Ingi.
En er ekki bara verið að þjálfa
fólk í því að koma í ræðustól á þann
veg að það geti talað um nánast
hvað sem er án þess að meina nokk-
uð með því? „Nei, ég held að það sé
ekki rétt að segja það, svona ræðu-
keppni þjálfar rökhugsun að mínu
mati og fólk verður að skoða málin
frá öðm sjónarhomi en sinni per-
sónulegu skoðun. Það er hægt að
finna óteljandi rök með og á móti
öllum málum,“ sagði Ingi.
Hvers vegna heldur þú að yfirleitt
séu fleiri karlmenn en konur sem
taka þátt í ræðukeppnum? „Ég vil
alls ekki gera lítið úr kvenfólki sem
ræðumönnum og ég veit að vitan-
lega semja þær alveg jafngóðar
ræður og karlmennimir. Vandamál
þeirra er hins vegar röddin, þeim
liggur oftast hátt rómur og það kem-
ur sér oft illa í ræðustól."
Vika til undirbúnings
I keppnisliðunum, sem skólamir
senda, em fjórir einstaklingar og
hefur hver þeirra mismunandi stöðu
innan liðanna, þ.e. liðsstjóri, frum-
mælandi, meðmælandi og stuðnings-
maður.
Einni viku fyrir keppnisdag er
dregið úr tillögum að efni sem leggja
á fram í keppninni og þá er jafnframt
dregið um hvaða lið keppa saman
og hvort þeirra er á heimavelli. Það
er því ekki nema vika sem keppend-
ur fá til að undirbúa og vinna efnið
sem þeir ætla að nota í keppnina.
Hugmyndir að umræðuefhum koma
frá hverjum skóla sem tekur þátt í
keppninni og sendir fulltrúa á dóm-
aranámskeið sem er haldið á hverju
hausti. Þar leggur hver skóli til þrjú
efhi, sem síðan er valið úr til að setja
í pottinn sem dregið er úr.
Dómarar í MORFÍS-keppnum eru
þrír og það eru nemendur úr fram-
haldsskólunum sem sjá sjálfir um að
dæma. Einn oddadómari er á hverri
keppni, en það er útskrifaður nem-
andi, en oddadómarar sjá um
dómaranámskeiðin á haustin.
Hver skóli, sem sendir fulltrúa í
keppnina, þarf að greiða þátttöku-
gjald sem er 12.000 krónur, sama
hversu langt hann kemst í keppn-
inni. Það getur ýmis kostnaður fylgt
keppninni eins og ferðalög út á land
fyrir liðin og stuðningsmenn þeirra.
Við fórum og fylgdumst með
keppninni milli Fjölbrautaskóla
Suðumesja og Flenborgarskóla sem
fór fram í Félagsbíói í Keflavík síð-
asta föstudag. -SJ
„Sambandsmennirnir" af Suöurnesjum voru meö SlS-húfur og spjöld þar
sem.þeir komu skoðunum sínum á framfæri.
m *Á' IflBJp Émk
„Sambandið er eins og
gjörspilltur krakki"
- sagðí Sigurður Baldvinsson, frummælandi Flensborgarskóla
Flensborgarar voru mættir með öflugt lið stuðningsmanna og hvottu þeir sina menn óspart til dáða.