Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Qupperneq 33
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
33
Hvemig ætli menn undirbúi sig
undir ræðukeppni eins og þá sem
MORFÍS stendur fyrir, kom blaða-
manni í hug þegar fylgst var með
þessum ungu ræðuskörungum á
sviðinu í Félagsbíói í Keflavík í síð-
ustu viku. Til að leita svara við
þeirri spurningu var leitað til liðs
Flensborgarskóla sem í voru þeir
Gestur Gestsson, Jóbann Reynisson,
Jósef Halldórsson og Sigurður Bald-
vinsson.
Hvers vegna takið þið þátt í ræðu-
keppni eins og MORFÍS-keppninni,
þarf maður að vera málglaður til að
taka þátt í svona nokkm?
Þeir félagar voru sammála um að
svo væri alls ekki, sumir vildu reynd-
ar halda þvi fram að menn þyrftu
að vera egóistar til að standa í þessu.
Jóhann liðsstjóri sagðist ekki
beinlínis geta útskýrt þetta, hann
hefði bara alltaf verið þannig að ef
hann hefði eitthvað að segja þá færi
hann bara í ræðustólinn og segði
hvað sér fyndist. „Menn eru að leita
sér að einhverju til að hafa skemmt-
un af og til að yfirvinna feimni,"
sagði hann.
Emð þið þá að þjálfa ykkur í því
að setja fram skoðanir sem þið hafið
alls ekki og hvaða afleiðingar haldið
þið _að þetta hafi á ykkur sjálfa?
„Ég held að það skipti ekki máli
hvort maður er með eða móti. Þetta
er leikur og það er ekki þar með
sagt að maður skipti algjörlega um
skoðun á einhverju máli þó maður
kynni sér það og geti sett það fram
á skilmerkilegan hátt,“ svaraði
Gestur.
En emð þið tilbúnir til að fara í
ræðustól og verja eða tala gegn nán-
ast hverju sem er?
Þeir vom allir sammála um að
þeir mundu ekki þekkjast boð ein-
hvers eða einhverra úti í bæ til að
tala með eða á móti málefhi sem
þeir væm ósammála, þó svo að þeir
þyrftu kannski að gera slíkt í
MORFÍS-keppnini.
Krytur
En hvers vegna vomð þið fjórir
ræðumenn skólans en ekki einhverj-
ir aðrir innan hans?
„Þannig er að hér er starfandi fé-
lag sem heitir Krytur og erum við
Gestur i því félagi. Það stendur fyrir
ræðukeppnum innan skólans um
málefni sem em ofarlega á baugi hjá
nemendafélaginu og skólanum. Við
Dægradvö3
Spegillinn er mikilvægt hjálpartæki keppenda i ræðukeppni og hér má sjá Jósef Halldórsson i besta spegiasalnum sem hann fann i Flensborgarskóla, en
það var kvennaklósettið.
DV-mynd Brynjar Gauti
||K I ijg ' I . 1 i
■
„Skiptir ekki máli hvort
maður er með eða á móti“
- segir Gestur Gestsson, einn af ræðumönnum Flensborgarskóla
höldum ræðunámskeið og starfsemi
í kringum MORFÍS er stór þáttur í
starfinu. Út frá þessum ræðukeppn-
um veljum við síðan ræðumenn i
keppnina," sagði Sigurður.
„Eye of the Tiger“ til að ná
rétta andanum
En hvemig var undirbúningi fyrir
keppnina núna háttað?
„Við fengum að vita efnið með
viku fyrirvara og höfðum þá strax
samband við andstæðinga okkar og
fengum nöfnin á ræðumönnum
þeirra og ákváðum tíma og stað fyr-
ir keppnina. Síðan var farið í
upplýsingasöfhun og reyndum við
vitanlega að finna slæmar fréttir af
SÍS. Ræðumar skrifuðum við síðan
um helgina og samræmdum hvað
hver okkar mundi segja. Síðan var
æft á hverju kvöldi, en það er mjög
mikilvægt að menn læri ræðurnar
utan að sem fyrst og þá er farið að
æfa flutninginn," sagði Gestur.
Strákarnir í Flensborgarliðinu
sögðust alltaf spila lagið „Eye of the
Tiger" í upphafi og endi æfinga til
að ná rétta andanum í liðið.
Öm Hrafnkelsson, sem er nokkurs
konar þjálfari Flensborgarliðsins,
sagði að sér fyndist ræðukeppnin nú
vera komin meira út í það að menn
reyndu að vera fyndnir en málefna-
legir. „Það skiptir orðið minna máli
hvað þú segir, þetta er eins og verið
sé að flytja leikrit. Það er mikið um
ýkjur í ræðustól og svolítið einhæf
hegðun hjá þátttakendum," sagði
hann. -SJ
Johann Reynisson, liðsstjóri Hafnfiröinga,
leggur hér áherslu á þau oró sin að ástæðan
fyrir þvi að Suðurnesjamennirnir mæli gegn
þvi að Sambandið sé lagt niður sé einfaldlega
sú að þá skorti upplýsingar frá Stór-Hafnar-
fjarðarsvæðinu.
Böðvar Jónsson lauk ræðu sinni á tilþrifamik-
inn hátt og óskaði þess að SÍS mundi dafna
sem best á komandi árum.
Jóhann Björnsson fórnaði höndum þegar hann
varpaði fram'þeirri spurningu hvar menn héldu
að „Meðaljónarnir og Dæmigerðirnar" væru
ef Sambandið hefði ekki komið til.
Bjami Thor Kristinsson ieggur hér áherslu á
að verslun í landinu hafi verið að fara á haus-
inn þegar Samband islenskra samvinnumanna
kom til sögunnar og bjargaði málunum.
Stemmningin i Félagsbíói í Kefla-
vík væri æði sérstök nokkrum
mínútum áður en viðureign Flens-
borgarskóla og Fjölbrautaskóla
Suðumesja hófst þar sl. fóstudags-
kvöld. I einum hluta salarins, sem
var troðfullur, svo ekki sé meira
sagt, vom Flensborgarar, börðu þeir
trommur og hrópuðu hvatningar til
sinna manna, sem þó vom ekki
komnir á sviðið. Flensborgarar lýstu
að sjálfsögðu yfir stuðningi við til-
löguna sem lá fyrir og þeirra menn
mæltu með en það var að Samband
íslenskra samvinnufélaga yrði lagt
niður. Suðumesjamenn fengu það
hlutverk að mótmæla þessari tillögu
og vom nemendur skólans allflestir
með húfur með SÍS merkinu og veif-
uðu þeir spjöldum og hvöttu sína
menn til dáða.
Skömmu áður en ræðumenn komu
í salinn, birtust fjórir Suðumesja-
menn vafðir í grisjur sem þeir hafa
væntanlega fengið hjá kaupfélaginu
á staðnum. Þetta reyndust vera
„klappstýmr“ Fjölbrautaskólans á
Suðumesjum.
Fundarstjóri lagði á það mikla
áherslu við viðstadda að þeir yrðu
að sýna góða framkomu á meðan
keppnin stæði yfir ellegar gæti liði
þeirra verið vísað úr keppni. Liðin
birtust loks og ætlaði þá þakið af
og vom lúðrar þeyttir og trommur
barðar enn fastar en fyrr.
Víkjum þá að keppninni og mál-
flutningi ræðumarma.
Með eða á móti SÍS?
Frummælandi Flensborgarskóla
var Sigurður Baldvinsson og líkti
hann SÍS við ýmsa hluti eins og
vandræðagemling, gjörspilltan
krakka, ófreskju sem væri að éta
okkur. Hann sagði að þar ættu sér
stað stórfelld svik og nefndi sem
dæmi kaffibaunamálið og olíumál.
Hann sagði SÍS vera takmarkalaust
gróðafélag einstaklinga sem einskist
svífast. Hann sagði að við ættum um
tvennt að velja, annaðhvort að vera
Böðvar Jonsson, frummælandi Fjölbrautaskóla Suðurnesja, er hér í ræðu-
stól i Félagsbíói i Keflavik og mælir gegn tillögunni sem lá fyrir fundinum
um að leggja Samband islenskra samvinnufélaga niður.
DV-myndir KAE
étin af ófreskjunni SIS eða að slátra
henni.
Böðvar Jónsson var frummælandi
Fjölbrautaskóla Suðumesja. Hann
rakti upphaf þess að SÍS var stofnað
og taldi hlægilegt að leggja það til
að fyrirtækið yrði lagt niður. Hann
sagði að Sambandið hefði aukið
þjónustu í landinu, eflt sjálfstæða
íslenska verslun og stórlækkað
vöruverð. Hann sagði að SlS veitti
þjónustu sem aðrir gætu ekki og
vildu ekki veita.
Góður rómur var gerður að máli
þeirra beggja, Flensborgarar studdu
sinn mann og FS-fólkið sinn. Engin
fi'ammíköll voru né aðrar trufianir
á meðan á ræðunum stóð. Síðan
komu þeir hver af öðrum í pontu og
mæltu ýmist með að leggja niður SÍS
eða á móti eins og vera bar. Eftir
að hver þeirra hafði talað einu sinni
var gert hlé og dómarar gáfu stig
fyrir fyrstu umferð.
Endanleg útkoma þessarar keppni
varð að FS sigraði, þó svo að Flens-
borgarskóli hefði fengið fleiri stig,
þá féllu stig dómara þannig að meiri-
hluti þeirra réði og má segja að
keppnin hafi farið 2-1 fyrir Fjöl-
brautaskóla Suðumesja.
-SJ