Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Page 34
34
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
Andlát
Salmanía Jóhanna Jóhannes-
dóttir lést 4. nóvember sl. Hún
fæddist í Bolungarvík 9. mars 1917.
Foreldrar hennar voru Sigríður Auð-
unsdóttir og Jóhannes Jónsson.
Salmanía giftist Gunnari Ámasyni,
sem nú er látinn fyrir tæpum þremur
árum. Þeim hjónum varð fimm barna
auðið. Útför Salmaníu verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Ingibjörg Ó. Jóhannesdóttir,
Vesturbergi 12, Reykjavík, lést í
Borgarspítalanum þann 10. nóvemb-
er.
Jón Guðmannsson, fyrrverandi
yfirkennari, Skaftahlíð 10, lést á
heimili sínu þriðjudaginn 11. nóv-
ember.
Ölver Kristjánsson lést á heimili
sínu. Heimahvammi, Blesugróf, að-
faranótt sunnudags.
Friðfinnur Árni Kjærnested, fyrr-
verandi skipstjóri, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju föstudaginn
14. nóvember kl. 13.30.
Útför Indriða Sigurðssonar, Mela-
braut 16, Seltjarnarnesi, fer fram
föstudaginn 14. nóvember kl. 15 frá
Fossvogskirkju.
Útför Árnýjar Sigurðardóttur frá
Skuld, Vestmannaeyjum, til heimilis
í Grundargerði 35, fer fram frá Bú-
staðakirkju föstudaginn 14. nóvemb-
er kl. 13.30.
Freyja Jónsdóttir, Skúlaskeiði 14,
Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 13. nóv-
ember, kl. 15.
Útför Sigurðar Sigurgeirssonar,
deildarstjóra í Útvegsbanka íslands.
Skeiðarvogi 111, sem lést af slys-
förum 8. nóvember, fer fram frá
Dómkirkjunni föstudaginn 14. nóv-
ember kl. 15.
,Útför Matthildar Matthíasdóttur,
Kirkjuvegi 66, Vestmannaeyjum, fer
fram frá Landakirkju í Vestmanna-
evjum Iaugardaginn 15. nóvember
kl. 14.
Bækur
Ekki á morgun, ekki hinn
Ragnheiður Gestsdóttir myndlistarmaður
sendir frá sér óvenjulega bók nú fyrir jóla-
annir. Hún heitir Ekki á morgun, ekki
hinn og það er Mál og menning sem gefur
hana út. Ekki á morgun, ekki hinn... er
tuttugu og fjórar opnur, ein fyrir hvern
dag desembermánaðar fram að jólum. I
textanum segir frá tveim systkinum, Ingu
og Atla, sem bíða hátiðanna óþreyjufuli
en nota tímann til að læra eitthvað nýtt
á hverjum degi. Lesendur geta lært með
þeim að búa til alls konar jólagjafir, skraut
á tré og í glugga, jóladagatal, jólakort,
kökur, glassúr, sælgæti og margt margt
fleira. Á hverri opnu er mynd ti! skýringar
og leiðbeiningar. Þetta er bók sem styttir
biðina eftir jólunum og er ekki síður fyrir
foreldra en böm, ef fjölskyldan vill föndra
saman. Bæði texti og myndir eru eftir
Ragnheiði, sem hefur myndskreytt margar
bækur og einnig séð um barnatíma sjón-
varpsins. Bókin er unnin í prentsmiðjunni
Odda hf.
Birkir + Anna
Mál og menning gefur út norsku verð-
launabókina Birkir + Anna. Sönn ást eftir
Vigdis Hjorth. Sagan gerist í litlum bæ
áður en sjónvarp og myndbönd tóku völd
í lífi bama. Hún lýsir auðugu og skemmti-
legu lífi krakkanna í bænum sem taka sér
ótalmargt fyrir hendur, en fyrst og fremt
er hjjn þó ástarsaga. Söguhetjan er Anna,
10 ára stelpa, sú sterkasta í bekknum sem
vinnur alla strákana í sjómann, meira að
segja Ríkharð í fimmta bekk. Svo flytur
nýr strákur í Bófahúsið fræga, ljóshærður
og freknóttur strákur sem heitir Birkir,
og Iíf Önnu tekur ófyrirsjáanlegum breyt-
ingum. Sagan varð mjög vinsæl í Noregi
og gekk næst Ronju ræningjadóttur að
vinsældum á bókasöfnum þar í landi í
fyrra. Það voru Ingibjörg Hafstað og Þu-
ríður Jóhannsdóttir sem þýddu söguna.
Prentsmiðjan Oddi vann bókina, en kápu
gerði Brian Pilkington. Bókin er gefm út
með styrk úr Norræna þýðingarsjóðnum.
Tvær bækur um Stínu
Út eru komnar hjá Máli og menningu tvær
bækur um Stínu eftir fínnska rithöfundinn
og listamanninn Kristiina Louhi: Frá
morgni til kvölds með Stínu og Stína og
árstíðimar. Olga Guðrún Arnadóttir
þýddi. Þetta eru sögur fyrir yngstu hlust-
endurna með litmyndum, bæði af fólki og
atvikum, og líka hlutum, því bækurnar
eru að nokkru leyti hugsaðar sem
bendibækur. Stína brallar margt með
pabba, mömmu, Kalla stóra bróður og Óla
vini sínum sem fólk á hennar aldri kann-
ast við. Setningu og filmuvinnu annaðist
Prentsmiðjan Oddi hf. en bækurnar voru
prentaðar í Portúgal.
Tímaiit
Forsiðukeppni tímaritsins
Hárs og fegurðar
Sigurvegarinn í forsíðukeppni tímaritsins
Hárs og fegurðar var Karl K. Berndsen
og hlaut hann í verðlaun ferð til London
á World Hairdress Congress sem talin er
stærsta hárgreiðslusýning í heiminum.
Þar gefst Karli tækifæri til að hitta að
máli margt af þekktasta hárgreiðslufólki
í heiminum. Á sýningunni verður forsíða
tímaritsins Hárs og fegurðar birt ásamt
10 efstu sætunum í keppninni. Flugleiðir
og ferðaskrifstofan Úrval veita verðlaun-
unum stuðning en ferðaskrifstofan Úrval
mun standa fyrir hópferð á sýninguna.
Basarar
Kvenfélag Hreyfils
efnir til basars og flóamarkaðar í Hreyfils-
húsinu sunnudaginn 16. nóvember. Konur
sem ætla að gefa á basarinn eru beðnar
að koma því í Hreyfilshúsið fimmtudags-
kvöldið 13. nóvember.
Spilakvöld
Hrjóbjargarstaðaætt
Munið spilakvöldið 13. nóvember kl. 20 í
Hótel Hofi. Bingó fyrir bömin. Fjölmen-
nið.
I gærkvöldi
Heimir Már Pétursson, námsmaður og skáld:
Leiður á brandaranum
um góðærið í landinu
íslenska fjölmiðlafárið hefur farið
fyrir ofan garð og neðan hjá mér og
ég vonaði af tómri eigingimi að eng-
in myndi nota nýju fjölmiðlalögin
þegar þau tækju gildi, sú ósk rættist
ekki. Eg er ákaflega veikur fyrir fjöl-
miðlum og hættir til að gefa þeim
of mikinn tíma. Sem betur fer sé ég
Stöð 2 mjög illa og horfi þess vegna
ekki á hana. Þó horfði ég á Spéspeg-
il í fyrrakvöld og verð að segja að
þar fengu Reagan og Tatcher um-
fjöllun að mínu skapi.
I Örlagastraumi, nýja íramhalds-
myndaflokknum í ríkissjónvarpinu,
sem ég er ansi hræddur um að frænd-
ur vorir Norðmenn hlæi yfir, er
ágætis afþreying, en betur líst mér
á Ustinov í Rússlandi. Það er fagn-
aðarefni að fá loksins sjónarhom af
Rússlandi og Sovétríkjunum sem
Heimir Már Pétursson.
ekki er mengað af svart hvítu sögu-
skoðuninni í heiminum. Fréttimar í
sjónvarpinu og útvarpinu finnst mér
orðnar leiðinlegar, leiður á brandar-
anum um góðærið í landinu.
Ég hlusta ekki mikið á útvarp, þó
hlusta ég annað slagið á allar út-
varpstöðvamar. Bylgjan finnst mér
að mörgu leyti betri en rás 2, þar er
fólk með tónlistasmekk þó innan um
séu hrafhar sem betur hefðu verið
kyrrir á rás 2 eða hætt störfum,
Reykjavík síðdegis er langbesti þátt-
ur sem ég hlusta á. Skemmtileg
blanda af fróðleik og góðri tónlist.
Það ætti að setja lög sem banna
allar sjónvarpssendingar á fimmtu-
dögum. Sjónvarpslausi dagurinn er
skemmtileg hefð, ber vott um
skemmtilega þjóðlega sérvisku.
Hlutaveltur
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur árlegan basar sinn í safnaðar-
heimili kirkjunnar laugardaginn 15.
nóvember kl. 15. Margt eigulegra muna.
Tekið verður á móti basarmunum á
fimmtudag og föstudag frá kl. 16-20 og frá
kl. 10 á laugardagsmorgun. Kökur eru
mjög vel þegnar.
Fundir
Kvenfélag Kópavogs
heldur fund í dag, fimmtudag 13. nóv., kl.
20.30. Ostakynning.
Kynningarfundur
íslandsdeildar
Norræna sumarháskólans
íslandsdeild Norræna sumarháskólans er
að hefja vetrarstarfið. Kynningarfundur
verður haldinn í Norræna húsinu nk.
fimmtudagskvöld, 13. nóvember, kl. 20. í
vetur gefst kostur á að fjalla um eftirtalin
efni: „Subjektivitet og intersubjektivitet",
náttúruvemd - umhverfi - vistfræði, þró-
unarleiðir í þriðja heiminum,- tómstundir
ferðalög - frí, framtíð Evrópu, tíðarand-
ann (modernitet), meðferð og meðferðar-
stefnur (terapi og terapeutisk kultur),
fagurfræði tónlistar, tækniþróun og fé-
lagsleg áhrif hennar, kynbundin áhrif í
fagurfræði og menningu og líf í borg
borgarfræði. Starfshópar fjalla um ofan-
greind efni i vetur, hver í sínu landi. Á
fyrrnefndum kynningarfundi kemur í ljós
hvaða hópar starfa hér en að jafnaði eru
þeir sjö til átta. Því ætti áhugafólk um
eitthvað þessara efna ekki að íáta þetta
tækifæri ganga sér úr greipum. Hóparnir
tengjast síðan á árlegum sumarmótum sem
eru haldin til skiptis á Norðurlöndunum
og næsta sumar er röðin komin að Islandi
að halda þetta fjölsótta mót. Upplýsinga-
pési um starf Norræna sumarháskólans
(N.S.U. Information) kemur út fjórum
sinnum á ári og liggur að jafnaði frammi
í Norræna húsinu. Allt starfandi N.S.H.
fólk gefur fúslega nánari upplýsingar en
stjóm Islandsdeildar skipa nú Ragnheiður
Ragnarsdóttir (s. 91-15719), Ástríður
Karlsdóttir (s. 97-2385) og Guðrún Bjama-
dóttir (s. 91-651294).
Tilkynningar
Húnvetningafélagið
í Reykjavík
efnir til kaffisölu (veisluborð) og meiri-
háttar hlutaveltu í félagsheimilinu Skeif-
unni 17 laugardaginn 15. nóv. kl. 15. Húsið
opnað kl. 14.30. Tekið verður á móti gjöf-
um (kökum og munum) fostudag kl. 18-22
og laugardag frá kl. 10.
Jóga fyrir konur
Námskeið í jóga, sem ber yfirskriftina
styrkur-þroski-sjálfsþekking, verður
haldið fimmtudaginn 20. nóvember nk.
Meðal efnis á námskeiðinu verður: leið-
sögn í hugleiðslu, jógalíkamsæfingar,
slökun, matreiðsla jurtafæðis, jógaheim-
speki og umræður. Námskeiðið verður á
ensku og er ætlað konum. Það er eitt kvöld
í viku, 4 vikur alls og hefst 20. nóvember.
Leiðbeinandi á námskeiðinu, sem skipu-
lagt er af kvennahreyfmgu Ananda
Marga, er Annalina O. Skare. Námskeiðs-
gjald er 500 krónur. Upplýsingar og
innritun er í síma 27050.
Félagsfundur Trésmiðafélags
Reykjavíkur
Eftirfarandi samþykkt var gerð á félags-
fundi Trésmiðafélags Reykjavíkur, 3.
nóvember sl. „Félagsfundur Trésmiðafé-
lags Reykjavíkur, haldinn 3. nóvember
1986 að Suðurlandsbraut 30, samþykkir
að félagið fari sjálft með samningamálin,
eða í samstarfi við aðildarfélög SBM, í
komandi samningum. Félagið leggur meg-
ináherslu á að taxtar félagsins verði færðir
sem næst greiddu kaupi og ákvæðisvinna
fái hliðstæðar leiðréttingar."
Golfskóli Þorvalds
Golfskóli Þorvalds tekur aftur til starfa
laugardaginn 15. nóvember nk. Kennslan,
sem er bæði fyrir byrjendur og lengra
komna í íþróttinni, verður í íþróttahúsinu
Ásgarði, Garðabæ, á laugardögum. Allar
nánari upplýsingar um golfskólann eru
gefnar í síma 34390.
Alþjóðleg friðarvika vísinda-
manna
I þessari viku gangast friðarsamtök vís-
indamanna víða um heim fyrir ýmiss
konar fundum og uppákomum til að vekja
athygli á málstað friðar og afvopnunar.
Meðal annars er ráðgert að halda sjón-
varpsráðstefnu vísindamanna austan hafs
og vestan þar sem rædd verða með aðstoð
gervihnatta ýmis afvopnunarmál, meðal
annars geimvarnaáætlun Bandaríkja-
manna. Þessari dagskrá verður sjónvarp-
að beint víða um lönd. 1 tilefni friðarvik-
unnar efna Samtök íslenskra eðlisfræð-
inga gegn kjarnorkuvá til almenns fundar
fimmtudaginn 13. nóvember kl. 20.30 í
stofu 158 í VRII (verkfræði og raunvís-
indadeild háskólans) við Hjarðarhaga.
Almenningur er hvattur til að mæta og
taka þátt í umræðunum. Framsöguerindi
flytja Tómas Jóhannesson: Stjornustríðsá-
ætlun. Páll Einarsson: Er hægt að fylgjast
með því hvort samkomulag um bann við
tilraunum með kjarnorkuvopn er haldið?
Pallborðsumræður verða á eftir með þátt-
Gunnar Gunnarsson, blaðamaður og
rithöfundur, er löngu kunnur saka-
málahöfundur. í dag birtist íyrsti kaíli
spennusögu eftir Gunnar í Vikunni
sem er að koma út. Sagan nefiiist Lif-
andi lík og segir frá tveimur dögum í
lifi blaðamanns sem sendur er á vett-
vang þar sem stórviðburða er að
vænta. Lifandi lík er í níu köflum og
lýkur henni um miðjan janúar. Að
sögn ritstjóra Vikunnar, Þórunnar
Gestsdóttur, samdi hún um ritun sög-
unnar við Gunnar síðastliðið sumar.
Það er nýnæmi að framhaldssaga sé
samin sérstaklega fyrir tímarit og þar
sem vinsældir spennusagna eru ótví-
ræðar verður Lifandi líki Gunnars
Gunnarssonar eflaust vel tekið af les-
endum.
töku Árna Bergmanns, Guðmundar
Magnússonar, Gunnars Gunnarssonar og
Magnúsar Torfa Ólafssonar, auk fram-
sögumanna. Umræðum stjórnar Hans Kr.
Guðmundsson.
Afrnæli
80 ára verður á morgun, föstudaginn
14. nóvember, Valdimar Þorbergs-
son frá Efri-Miðvík í Aðaldal,
Sundstræti 26, ísafirði. Kona hans
er Ingibjörg Bjarnadóttir frá Flatey
á Breiðafirði.
70 ára verður á morgun, föstudaginn
14. nóvember, Valgarður Lyngdal
Jónsson, fyrrum bóndi á Eystra-
Miðfelli á Hvalfjarðarströnd, Höfða-
grund 14, Akranesi. Hann og kona
hans, Guðný Þorvaldsdóttir, eru um
þessar mundir á Heilsuhælinu,
Hveragerði.
Lifandi lík