Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Blaðsíða 36
36
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
Viktoría
Svíaprinsessa
sást nýlega hlýða á tónleika hjá
Fíladelfíusöfnuðinum í Stokk-
hólmi. Vakti það mikla athygli
en frá höllinni berast þær fregn-
ir að Silvia drottning hafi lagt á
það áherslu að börnin hennar
fái strangkristið uppeldii Borð-
bænir eru þuldar reglubundið í
höllu konungs og kvöldbænirn-
ar eru jafnsjálfsagðar og tann-
burstunin. Sami háttur var á
hafður í föðurgarði Silviu og
sagt er að Karl Gústaf hafi mikla
velþóknun á bænahaldinu.
Zsa Zsa Gabor
siglir hraðbyri inn í áttunda
skilnaðarmálið. Hún er strax far-
in að húðskamma eiginmann-
inn áttunda - Fredrik von Anhalt
ættleiðingarprins - og hann
reyndi að svara fyrir sig ekki fyr-
ir löngu. Það er víst alveg
harðbannað. í þann mund er
Friðrik áttundi fullyrti að Zsa Zsa
hefði enga leikhæfileika og
kæmi einungis fram í þriðja
flokks myndum tók Zsa Zsa af
skarið og sagði öllum sem heyra
vildu að ekki aðeins væri prins-
inn sá allélegasti elskhugi sem
hún hefði nokkru sinni prófað
heldur hefði hann enga hæfi-
leika aðra svo vitað væri. Sá
áttundi varð ekki kátur og því
eru smávægilegir erfiðleikar í
hjónabandinu þessa dagana.
f'S SVE/WGÉ
Karl Gústaf,
konungur í Svíaríki, er líklega
einn fárra sem hefur stöðuheitið
konungur í ökuskírteininu sínu.
Hann hefur þar að auki einung-
is fornöfnin Karl og Gústaf í
fyrrnefndu skírteini því ekki er
talin þörf á frekari útskýringum.
fyrir framan er svo skammstöf-
unin H M T sem útleggst hans
konunglega tign. Það sama
gildir um Silviu drottningu og
bæði hafa hjónin sænskt nafn-
númer. Hins vegar vefst fyrir
þegnunum þörfin á þessum
ökuskírteinum því kóngaliðið
hreyfist ekki spönn frá rassi
nema lífvarðagengið fylgi í kjöl-
farið og á ökuferðum eru það
einkabílstjórarnir sem stjórna
ferðirrni.
DV-mynd JGH
Kári Elíson fagnar nýju íslandsmeti í kuldatrekki í göngugötunni á Akureyri
Kraftamenn úti í kutdanum
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri:
Kraftlyftingamenn kepptu úti í sjö
stiga frosti í göngugötunni á Akureyri
fyrir skömmu. Vanir vindi og kuldat-
rekki, kraftamennimir, frá því þeir
kepptu á Vatnajökli seint í sumar.
Kári sjálfur - það er Kári Elíson -
setti Islandsmet í bekkpressu í sjötíu
og fimm kílóa flokki með því að lyfta
hundrað sjötíu og fimm kílóum. Mótið
var fjáröflunarmót fyrir Kára en hann
er á leið til Hollands þar sem hann
keppir í heimsmeistaramótinu í kraft-
lyftingum nú um helgina. Auk Kára
kepptu þeir Flosi Jónsson og Aðal-
steinn Kjartansson í mótinu í göngu-
götunni. Kraftlyftingar eru vinsæl
grein á Akureyri og er óhætt að segja
að blási byrlega fyrir þeim köppurn^-
þessa dagana.
Án gríns er áletrun upp á grín - eða þannig.
Félagsmenn tylltu sér á biltoppana um stundarsakir. Þess skal getið að ekki aðeins skulu bilarnir númeraðir á
húddunum með tölunum frá einum og upp í ellefu heldur eru skráningarnúmer frá V- 2190 upp í V- 2197. Svo eru þrír
í Þorlákshöfn. DV-myndir Ragnar S.
í Eyjum
Félagsmenn Klakabandsins í Eyj-
um eiga eitt sameiginlegt - allir sem
einn aka þeir um á glænýjum Tra-
bantbifreiðum með bleika stuðara og
bleikar felgur. Númer á húddum og
letur á hiiðum er svo fagurrautt.
Þetta eru veiðibílar - gerðir út á
kvenfólk - og eru sagðir afla með
eindæmum vel á vertíðum. Allir eiga
þeir sitt stæði á hallærisplani Vest-
mannaeyja og farið er í sameiginleg-
ar lengri og styttri ökuferðir þar sem
ekið er í réttri númeraröð - frá einum
og upp í ellefu. Hörkustereógræjur
eru í hverju ökutæki - að verðgildi
það sama og Trabantinn sjálfur - og
það er enginn maður með mönnum
í Eyjum nema hann eigi hina einu
réttu bíltegund þessa dagana.