Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1986, Síða 37
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986.
37
Sonur
frægra
foreldra
Sagt er að hann minni um margt á föður sinn, pattinn á meðfylgjandi mynd.
Þetta er sonur hins skapstóra keppnismanns, Björns Borg, og unglingsins,
Jannike. Þau skötuhjúin njóta þess að fara í gönguferðir með afkvæmið
um stræti og torg Stokkhólms - og ekki bregst að ferðalagið endar í fangi
einhvers lúsheppins Ijósmyndara. Sá stutti lét ekki flassið trufla sykursæta
draumana en foreldrarnir ruku upp til handa og fóta þannig að Ijósmyndar-
inn átti fótum fjör að launa.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Kelly Emberg er núverandi sambýliskonan og hún verður að deila Rod
systurlega með allnokkrum fyrrverandi ástkonum.
Brigitte Nielsen
sat ellefu ára gömul í kvik-
myndahúsi og horfði bergnum-
in á Rocky - Sly Stallone - vinna
frækna sigra á hvita tjaldinu.
Hún varð yfir sig hrifin og sendi
hetjunni sinni ótal Ijósmyndir
af sjálfri sér og bréfkorn að auki.
Þegar hún var orðin stór yfirgaf
hún mann og barn og hélt til
draumaborgarinnar Hollívúdd i
þeirri von að rekast á æskuást-
ina. Brigitte fann Rocky á hóteli
utan borgarinnar, hringdi upp í
herbergið til hans og grátbað
stjörnuna um smáviðtal. Það
tókst að lokka Stallone niður í
hótelanddyrið og framhaldið
vita allir. Danskir vinir Gitte
segja hana óvenjuviljasterka
manngerð og viröast hafa sitt-
hvað til síns máls ef allt fer á
svipaðan veg og ástamálin hjá
þeirri góðu konu.
Með Alönu eignaðist hann börnin Sean og Kimberley. Með á myndinni er
sonur frúarinnar og fyrrum eiginmannsins, George Hamilton - Ashley Hamil-
ton.
Rod er orðinn stór
Diana prinsessa
fær ekki allt sem hún vill. Hún
hafði gert ráðstafanir til þess að
kaupa sumarhús á Ítalíu fyrir sig.
Kalla og börnin þegar allt heila
málið strandaði á skeri. Prins-
essan segist hafa fengið meira
en nóg af fjölskyldusamkomun-
um I Balmoralkastala og heimtar
frið fyrir slíkum ófögnuði af og
til þannig að sumarþústaður ut-
anlands var draumurinn. Pen-
ingar voru ekki vandamálið
heldur lifvarðagengið sem öllu
ræður. Þeir sögðust ekki geta
ábyrgst öryggi fjölskyldunnar á
Ítalíu þannig að hugmyndin var
jörðuð i kyrrþey. Eitthvað tistir
nú samt i Di ennþá og hefur
Karl lofað að finna sambærilegt
hæli einhvers staðar i Suður-
Frakklandi.
Janni Spies
fékk enn einu sinni ástæðu til
þess að óttast um eigið öryggi
i siðustu viku. Þá komst upp um
samsæri flokks manna sem ætl-
aði að ræna henni og halda
fanginni i raðhúsi í Charlotten-
lund sem er i útjaðri Kaup-
mannahafnar. Mannræningj-
arnir höfðu skipulagt rán á
allmörgum þekktum Dönum en
nafn Janni var efst á listanum
vegna þess að þeir bjuggust við
mestum fjárfúlgum fyrir hina
forriku ferðaekkju. Skarp-
skyggni ungrar lögreglukonu
kom í veg fyrir frekari fram-
kvæmdir flokksins og sitja nú
höfuðpaurarnir vendilega
geymdir bak við lás og slá þar
sem þeir munu varðveittir næstu
árin. Janni andar ekki léttar þvi
hún hræðist að fleiri slíkar áætl-
anir séu t undirbúningi víðs
vegar um borgina.
Popparinn með hásu röddina - Rod
Stewart - hefur vaxið og þroskast á
undanförnum árum. Þetta er haft
beint eftir kappanum sjálfum og
verður því að teljast nokkuð áreið-
anlegt. Hann segist háfa sífellt meira
gaman af börnunum sínum sem hann
átti í hjónabandinu með Alönu, fyrr-
um eiginkonu leikarans George
Hamilton.
Stóra ástin hans Rods var Britt
Ekland sem hann ætlaði að kvænast
en missti kjarkinn á síðstu stundu.
Það kostaði kappann talsverðar
fjárfúlgur því Britt fór í mál og krafð-
ist fimmtán milljóna Bandaríkjadala
fyrir heitrof. Svo bætti hún gráu ofan
á svart með því að skrifa ákaflega
berorða bók um ástarsamband
þeirra. Þar kom meðal annars fram
að þau féllu kynferðislega jafnvel
saman og flís við rass - og áttu til
að elskast hvar sem var, hvenær sem
var og svo oft sama daginn að hinir
alhörðustu á þeim vígstöðvum
misstu andann af einskærri öfund.
Næst lá fyrir að giftast og varð
Alana, fyrrum eiginkona leikarans
George Hamilton, fyrir valinu. Um
það hjónaband sagði Alana síðar að
þar hefði skrattinn hitt ömmu sína
því hún hefði áður verið með þeim
virkustu i skemmtanalifinu en Stew-
art var sýnu verri. Þannig að hún
hefði fengið smjörþefinn af því sem
Hamilton þurfti að líða þegar þau
bjuggu saman - og var lítt hrifin af
lífsreynslunni. í dag lætur svo Rod
Stewart hafa það eftir sér að hjóna-
band þeirra hefði getað gengið
ágætlega ef hann hefði einhvern tím-
ann haft vit á því að hegða sér eins
og maður.
Britt Ekland er sú kona sem Rod
sér mest eftir. Hún er ímynd hinnar
fullkomnu konu í hans augum og
allar ástkonurnar verða að sætta sig
við samanburðinn. Nýjasta vinkon-
an, Kelly Emberg, verður að deila
Rod með flokki fyrrverandi kvenna
Rods því hann heimtar að fá að halda
sambandi við þær allar. Alönu býður
Rod út reglulega - með og án barn-
anna sem hann reynir að hafa gott
samband við. Meira að segja Britt
hefur honum tekist að ná talsam-
bandi við aftur eftir málaferlin og
vinátta þeirra tveggja byggist á
nokkuð traustum grunni. Annað
hjónaband er ekki á dagskrá alveg á
næstunni en hann segist hafa meiri
áhuga á hraðskreiðum bilum og fót-
bolta. Þetta tvennt nægir þeim hása
söngvara enn um sinn.
Rod Stewart er loksins oröinn stór
að eigin áliti. Til marks um það nefn-
ir popparinn að stundum aki hann
börnum sinum í skólann.
Britt Ekland var hans draumakven-
maður og þau áttu einstaklega vel
saman kynterðislega. Þegar hann
sveik hana um hjónaband skrifaði
Ijóskan berorða bók sem fékk Rod
til þess að iðrast þess sarlega að
hafa ekki kosið giftinguna frekar.