Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987.
5
______________________ Stjómmál
Stefnir í fjárhagslegt
hrun húsnæðiskerfisins
segir Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður
„Sú staða sem blasir við núna í
húsnæðismálum er að það stefnir í
íjárhagslegt hrun húsnæðiskerfisins,"
sagði Jóhanna Sigurðardóttir alþing-
ismaður í samtali við DV.
„Miklu fleiri umsóknir hafa borist
inn heldur en menn gerðu ráð fyrir. Á
fyrstu fjórum mánuðunum, eða frá
september til ársloka, bárust fjögur
þúsund umsóknir inn.
Það eru eingöngu til ráðstöfunar
núna á þessu ári 4,3 milljarðar króna.
Til þess að fullnægja öllum umsókn-
um, sem bárust fyrir áramót, þarf um
6 milljarða króna. Þannig að það vanfi
ar, varlega áætlað, 1,5 til 1,7 milljarða
króna, til þess að hægt sé að veita
þeim lán sem sóttu um fyrir áramót.
Meðalbiðtími núna á desemberum-
sóknunum er 15 mánuðir. Og flestir
þeirra, sem sóttu um í desember, þurfa
að bíða fram til ársins 1988.
Aðgangað
upplýsing-
um rræna
þjóðaum
markaði
„Alþingi ályktar að fela utanrík-
isráðherra að leita samninga við
einhverja Norðurlandaþjóð, eina
eða fleiri, um aðgang íslenskra fyr-
irtækja að þeim flölbreyttu og
markvissu upplýsingum sem þær
bjóða fyrirtækjum landa sinna um
markaði og markaðsaðstæður í
einstökum þjóðlöndum.“
Svo hljóðar tillaga sem þing-
menn Kvennalistans hafa lagt
fram á Alþingi um upplýsingaöflun
um markaðsaðstæður erlendis.
„Þar sem íslensk utanríkis- og
viðskiptaþjónusta hefúr ekki haft
bolmagn tii að safiia og dreifa slík-
um upplýsingum hérlendis enn þá
þykir flutningsmönnum þessarar
tillögu skynsamlegt að leita stuðn-
ings hjá frændþjóðum okkar þar
til betur horfir í þessum efiium
hérlendis,“ segja Kvennalistakon-
ur í greinargerð.
-KMU
Karvel
spyr um
Landhelgis-
gæslu
Karvel Pálmason, þingmaður
Alþýðuflokksins á Vestfjörðum,
hefur lagt fram fyrirspum til dóms-
málaráðherra um starfeemi
Landhelgisgæslunnar. Fyrirspum-
in kemur í framhaldi af gagnrýni
á stofhunina eftir flugslysið í Isa-
fjarðardjúpi f janúar.
Karvel spyr hvað líði störfúm
endurskoðunamefiidar um starf-
semi Landhelgisgæslunnar, hvort
von sé á niðurstöðum af störfiim
hennar og þá hvenær.
-KMU
Ef ekkert verður að gert stefiiir í það
núna í árslok að meðalbiðtími verði
hátt í tvö ár, eða 22 mánuðir.
Það hefúr einnig gerst að það hafa
orðið miklar verðhækkanir á fast-
eignamarkaðnum. Áætlað er að frá
ágústmánuði og ffarn í janúar hafi þær
orðið um 30% hér á höfúðborgarsvæð-
inu.
Það segir okkur, svo ég taki dæmi,
að íbúð sem kostaði 2,2 milljónir króna
'í ágúst síðastliðnum kostar núna 2,8
til 2,9 milljónir króna. Hún hefur
hækkað um 600 til 700 þúsund krón-
ur, sem þýðir að þriðjungur af láni
þeirra, sem hafa forgang og eru að fá
lén í fyrsta skipti, er búinn að étast
upp í verðhækkanir.
Útborganir hafa einnig hækkað úr
71% upp í 74%, sem þýðir að íbúðar-
kaupandinn í þessu tilfelli þarf að
leggja fram 100 þúsund krónum meira
en áður,“ sagði Jóhanna.
-KMU
NISSAIM
5UNNY
SIGURHATIÐ
Sunny er glæsilegasti sigur Nissan til þessa, enda hefur Sunny
fengið stórkostlegar móttökur um allan heim.
Sunny 4ra dyra.
Sunny 5 dyra.
Sunny 3ja dyra.
BILASYMNG
laugardag og suimudag ld. 14-17 báða dagana
Reykvíkingar, komið og fáið kaffi og bragðið á Myllukökum.
Dæmi úr okkar Sunny verðlista.
NISSAN SUNNY H/B LX1.0.5 dyra. 4 gira.................................346.000,-
NISSAN SUNNY H/BIX 1.3,5 dyra, 5 gira.................................371.000,-
NISSAN SUNNY H/B SLX1.5.3 dyra, 5 gira................................402.000,-
NISSAN SUNNY H/B SLX1.5.5 dyra, 5 gira................................407.000,-
NISSAN SUNNY H/B SU1.5,3 dyra, 5 gira, m. vökvastýri..................421.000,-
NISSAN SUNNY H/BSLX1.5.5 dyra, 5 gira, m. vökvastýri..................424.000,-
NISSAN SUNNY H/B SLX1.5.5 dyra, sjálfsk...............................437.000,-
NISSAN SUNNY H/B SLX1.5,5 dyra, sjálfsk., m. vökvastýri...............452.000,-
TÖKUM FLESTA NOTAÐA BÍLA UPP í NÝJA.
NISSAN SUNNY SEDAN LX 1.3,4 dyra, 5 gíra........................................366.000,-
NISSAN SUNNY SEDAN SLX1.5,4 dyra, 5 gira........................................403.000,-
NISSAN SUNNY SEDAN SLX1.5,4 dyra, 5 gira, m. vökvastýri.........................421.000,-
NISSAN SUNNY SEDAN SLX1.5.4 dyra, sjálfskiptur..................................434.000,-
NISSAN SUNNY SEDAN SLX 1.5,4dyra, sjálfskiptur, m. vökvastýri...................448.000,-
NISSAN SUNNY WAGON LX 1.5,5 gira................................................435.000,-
NISSAN SUNNY COUPE SU1.5.5 gira.................................................476.000,-
qr
l L
INGVAR HELGASON HF
Rauðagerði, sími 33560.