Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987. Utlönd Jackson tilbúinn Nýlega birtist stór litmynd af Jesse Jackson á forsíðu dagblaðs eins í Des Moines í Iowa þar sem hann var að mjólka kú. Enn hefúr presturinn og mannréttindabaráttumaðurinn ekki verið útnefndur sem frambjóð- andi demókrata í næstu forsetakosn- ingum en hann er greinilega tilbúinn í slaginn. 1 ræðum sínum skírskotar hann til fátækra og valdalausra og til sam- visku þeirra sem einhvers mega sín. Níutíu mínútna ræðu, er hann flutti í aðalstöðvum mannréttindasamtak- anna í Chicago, var útvarpað þar í borg og einnig í Des Moines i Iowa. Mælikvarði á vinsældir Það var svo sem engin tilviljun að ræðunni skyldi útvarpað í Iowa þar sem fylkið gegnir lykilhlutverki í sambandi við forsetakosningamar. Þó það sé ár í flokksstefnu demó- krata í Iowa, sem hefur verið góður mælikvarði á vinsældir frambjóð- endaefna, er Jackson þegar lagður af stað þangað. Þar hyggst hann dvelja á bóndabæ og ætlar hann á fund umboðsmanna flokksins. Fyrir fjórum árum, þegar Jackson varð að lúta í lægra haldi fyrir Walt- er Mondale sem frambjóðandi demókrata, myndaði hann „regn- bogann". Voru það samtök svartra og hvítra stuðningsmanna hans, bæði karl- og kvenkyns. Fullyrðir Jackson að þau samtök séu enn á lífi. Árið 1984 hlaut hann 3,5 milljón- ir atkvæða í forkosningum og voru það aðallega blökkumenn sem greiddu honum atkvæði sitt. Nú þykist hann sannfærður um að at- kvæðin nægi til útnefningar. Opinberlega er Jackson ekki orð- inn frambjóðandi ennþá. Hann segist bjóða sig fram ef fjölskyldan hafi ekkert á móti því og gerir hann Jesse Jackson er snemma á fcrðinni að þessu sinni. Hann er þegar farinn að vekja á sér athygli þó svo að frambjóðandi demókrata til forsetaembættisins í Bandaríkjunum verði ekki valinn fyrr en að ári. ekki ráð fyrir því að svo verði. Kveðst Jackson munu greina frá ákvörðun sinni eftir borgarstjóra- kosningamar í Chicago í apríl. Hann hefúr beitt sér fyrir endurkjöri Har- olds Washington, fyrsta blökku- mannsins í embætti borgarstjóra í Chicago. Kynþáttaóeirðir En það fór ekki fram hjá þeim sem komu til að hlýða á ræðu Jacksons í Chicago hvaða málefni hann leggur áherslu á. Segist hann skynja hættu í landinu og átti hann þá við nýaf- staðnar kynþóttaóeirðir. í New York réðst hópur hvítra ungmenna á blökkumenn og í Georgíu var ráðist á göngumenn úr mannréttindasam- tökum. Voru þar einnig hvítir að verki. Telur Jackson að kynþóttaóeirðir þessar stafi af aukinni fátækt meðal þeirra er teljast til millistéttar: „Á sjö árum fjölgaði Reagan atvinnu- tækifærum um 10,3 milljónir. Fyrir helming þeirra eru greiddir minna en tíu þúsund dollarar á ári í laun.“ „Látið ekki staðar numið við kyn- þáttaóeirðimar. Ásakið Hvíta húsið og samsteypubtjálæðingana“, er boðskapur prédikarans. í kosningaslaginn Fianna Fail spáð sigri á S-íriandi Aðeins ári eftir stofnun hins nýja flokks framsóknar-demókrata (pro- gressiv democrats) í írska lýðveldinu á suðurhluta eyjunnar grænu stend- ur Desmond O’Malley upp úr sem vinsælasti stjómmálamaður Suður- írlands. Þykir flest benda til þess að hann og flokkur hans komist í odda- aðstöðu til stjómarmyndunar upp úr þingkosningunum núna þann 17. febrúar. Stefndu að því að komast út úr gamla farveginum Á 48 ára afinælisdegi sínum á dög- unum, sem O’Malley notaði til þess að kunngera kosningastefnu flokks síns, sagði hann meðal annars: „Eitt meginmarkmiðið með stofiiun flokksins hafði verið að brjóta upp það mót sem írsk stjómmál hafa verið steypt síðan í klofningi borg- arastríðsins. í dag er enginn í vafa um að við höfum þegar náð því.“ Gömlu flokkarnir byggja á 65 ára gömlu baráttumáli í sextíu og fimm ár hefur borið hæst í stjómmálum S-írlands tvo miðflokka sem urðu til í klofningu í afstöðunni til sjálfetæðiskilmál- anna þegar Bretar veittu S-Irlandi sjálfstæði 1922. - Land og þjóð var klofin í bitrum ágreiningi og háð var árlangt borgarastríð og er naumast yfir gróið síðan, enda blasa örin víða við. Flokksböndin em fléttuð allt aftur til þessara daga og enn er spurt í dag að því með hvorum afi þinn hafi barist í borgarastriðinu. Aðalstjómmálaflokkar írlands vom stofiiaðir upp úr þeim átökum. Hinn lýðveldissinnaðri Fianna Fail- flokkur var andsnúnari sjálfetæðis- samningnum 1922 vegna þess að hann klauf landið í tvö ríki og hélt írska fríríkinu enn undir hásæti Bretakonungs. Aftur á móti sætti Fine Gael sig vel samninginn og tók við stjóm hins nýsjálfetæða ríkis. Liðu tíu ár áður en flokkurinn tap- aði kosningu. Haughey og Fianna Fail spáö sigri Ut úr þessu pólitíska einstigi reyndi O’Malley að komast þegar hann klauf sig frá Fianna Fail- flokknum vegna ósættanlegs ágrein- ings við flokksleiðtogann, Charles Haughey. Niðurstöður allra skoðanakann- ana að undanfömu hníga að því að Fianna Fail-flokkur Haugheys verði yfirgnæfandi sigurvegari kosning- anna 17. febrúar, sem boðað var til eftir að fjórir ráðherrar verka- mannaflokksins í samsteypustjóm Garrets Fitzgeralds og Fine Gael- flokksins sögðu af sér vegna fyrir- hugaðs niðurskurðar á ríkisútgjöld- um. Þegar þing var rofið hafði Fianna Fail sjötíu þingfulltrúa, Fine Gael sjötíu og níu og verkamannaflokk- urinn fjórtán, en framsóknar-demó- kratar fimm. Óháðir höfðu fimm, verkalýðsflokkurinn fimm og eitt þingsæti var óskipað. (Alls 166 þing- fulltrúar.) O’Malley með mest persónu- fyigi Fyrstu skoðanakannanir gefa til kynna að O’Malley njóti mests per- sónufylgis og meirihluti kjósenda vilji helst sjá hann í forsætisráð- herrastólnum. Annars er mjór munur á honum og Haughey og Fitz- gerald, sem koma fast á hæla honum. - O’Malley gerir sér vonir um að Við háskóla hinnar heilögu þrenningar í Dublin, höfuðborg írska lýðveldis- ins þar sem pólitísk afstaða getur enn I dag miðast við hvorum afi þinn barðist með í borgarastríðinu 1922. flokkur hans fái fimmtán þingmenn kjöma, en eins og er hefúr hann fjóra liðhlaupa úr þingflokki Fianna Fail og einn úr Fine Gael. Verði honum að þeirri ósk sinni er líklegt að hann hnupli sigrinum frá Haughey, því að í kosningum í írska lýðveldinu þykir fjögurra þingsæta meirihluti yfirburðasigur. Fari svo er viðbúið að hrossakauj> in eftir kosningar til stjómarsam- bræðings verði jafnvel enn meira spennandi en sjálfar kosningamar. Kosningabaráttan hefur til þessa verið í daufara lagi og málflutningur beggja stærstu flokkanna sam- hljóma í því að efnahagslífið sé í ólestri og þörf sé úrbóta þar á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.