Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Blaðsíða 8
'8 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987. Utlönd Fréttin um að Terry Waite, sendimaður ensku biskupakirkjunnar, hafi verið skotinn á flótta frá mannræningjunum er sögð staöhæfulaus. Simamynd Reuter Umsjón: Guömundur Pétursson og Ingibjörg Bára Sveinsdóttir Frétt um flótta Waites sogð röng Foringi í þjóðvarðliðinu í Líbanon segir fréttina um að samningamaður- inn Terry Waite hafi særst á flótta frá mannræningjum í Beirút ekki hafa við nein rök að styðjast en hún birtist í vestur-þýsku dagblaði. Foringinn kvað einnig þann orðróm um að sést hafi til Waite fótgangandi nálægt flugvellinum í Beirút stað- hæfúlausan. Sagði hann mannræn- ingjana ekki fara með Waite í göngutúr þó veðrið væri gott. Waite væri einnig allt of skynsamur til þess að reyna að flýja og auk þess gæti hann það ekki. Nokkrir þeirra gísla sem hefur verið sleppt eftir nokkra mánuði í haldi hafa greint frá því að þeir hafi verið hafðir í litlu herbergi og aðeins verið í nærfötum. í hvert skipti sem mann- ræningjamir hafi komið inn í herberg- ið hafi verið bundið fyrir augu þeirra. Waite hvarf í vesturhiuta Beirút þann 20.janúar er hann hélt til síðasta fundar við mannræningjana, að því er hann sjálfúr hélt. Á miðvikudaginn greindi foringinn í þjóðvarðliðinu frá því að Waite hafi verið rænt af aðilum sem voru óán- ægðir með óuppfyllt loforð sem þeir héldu fram að Waite hefði gefið þeim varðandi sautján arabíska fanga í Kuwait. í gær sagði múslímskur lækn- ir, sem verið hefur milligöngumaður Waites og mannræningjanna, að hann hefði engar nýjar fréttir að færa af sendimanni ensku biskupakirkjunnar. f gær vörpuðu ísraelskar stríðsflug- vélar yfir hundrað blysum yfir hafiiar- borgina Sídon í Líbanon. Ekki var ljóst hvort þessi aðgerð var í tengslum við gíslamáhð en fréttir af henni bár- ust samtímis fregnum frá Washington um að yfir tylft bandarískra herskipa lægju fyrir utan strendur Líbanon. f Tel Aviv kvaðst vamarmálaráðherra ísraels, Yitzhak Rabin, efast um að Bandaríkin myndu gera árás til þess að frelsa gíslana þar sem ekki væri vitað hvar þeir væm. Nemendur svelta Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmaimahofn: Borgarstjóm Óðinsvéa á Fjóni hefúr séð sig tilneydda til að gefa fimm hundmð og þrjátíu nemendum ókeypis mat að borða í skólanum. Ástæðan er ekki aðeins vannæring heldur hreint og beint hungur, segir skólastjóri eins skólans í Óðinsvé- um. Nemendumir em vannærðir, fölir og með dökka bauga undir aug- unum. Það em böm hér í skólanum sem hvorki fá morgunmat né nesti í skólann né kvöldmat. Borgarráðsmeðlimir vom slegnir að.heyra skýrslu þá þar sem upplýs- ingar þessar komu fram og veittu strax 1,3 milljónir danskra króna til matargjafa. Hefst matargjöfin strax í þeim skólum þar sem ástandið er alvarlegast og er reiknað með að fleiri skólar fylgi í kjölfarið. Segir einn kennari að hungrið lýsi sér á átakanlegan hátt þegar nem- endur í matreiðslu hreinlega kasti sér yfir matinn áður en hann er fullt- ilreiddur. „Þau borða matinn hráan,“ segir kennarinn. Klappað á þingi ífyrsta skipti Gunnlaugur A J&iæon, DV, Lundú Það var söguleg stund í sænska þinginu nú á dögunum. f fyrsta skipti í sögu þingsins klöppuðu þingmenn fyrir ræðumanni. Vom það þingmenn jafiiaðar- mannaflokksins sem klöppuðu er Ingvar Carlsson forsætisráðherra sagði að borgaralegu flokkamir stæðu sig ágætlega í stjómarand- stöðu en hefðu sýnt að þeir væm óhæfir til að stjóma. Jafnaðar- mannaflokkurinn væri hins vegar ekki sérstaklega snjall í stjómar- andstöðu en góður í stjóm og nú virtist sem báðar fylkingaraar hefðu fundið sitt rétta hlutverk og þá famaðist Svíþjóð vel. Ingemund Bengtsson þingforseti skýrði nýlega frá því í blaðaviðtali að þingmönnum væri leyfilegt að klappa. Og þetta var sem sé í fyrsta skipti sem þingmenn notfærðu sér það. Síðar undir umræðunum á þingi reyndu þingmenn stjómar- andstöðunnar einnig að klappa fyrir sínum mönnum en reyndust ekki eins samtaka og þingmenn jafinaðarmanna. Flóð í Perú Úrhellisrigningar að undanfömu I Perú hafa valdið bœöi flóðum og skriðuföllum með miklum búsHjum fyrir fbúa úti á landsbyggðinni. Á myndinnl hér sjást björgunarmenn bjarga liki eins ibúa bæjarins Vella Rica, sem varð fyrir aurskriðu um mánaöamótin. Um átta þúsund misstu þar heimili sin. Hundrað lík vorn grafin upp en 150 manns var saknað Ul viðbótar. Sfmamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.