Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987.
Fréttir
Ullariðnaðurinn:
Samninga-
menn
halda
til Sovét-
Keypti verkamannabústað 1982:
Áhvílandi lán orðin
hærri en brunabótamat
ríkjanna
,3ovétmenn hafa lýst yfir áhuga
á að kaupa af okkur bæði trefla
og peysur. Þeir hafa nefiit sínar
hugmyndir um magn og verð á
treflunum og þeir hafa einnig gefið
lýsingu á því hvemig peysur þeir
vilja en ekki nefnt magn eða verð
á þeim. Þess vegna teljum við rétt
að halda austur og reyna að ná
samningum," sagði Ingjaldur
Hannibalsson, forstjóri Álafoss, í
samtali við DV.
Ingjaldur og fulltrúar fiá ullar-
iðnaðardeild SÍS munu halda í
austurveg um helgina til samn-
ingaviðrseðna. Ingjaldur sagði þá
hafa vegabréfsáritun til 2ja vikna
og vera tilbúna að dvelja svo lengi
þar eystra ef þörf krefur. Mesta
vandamálið taldi Ingjaldur vera
hrun dollarans gagnvart íslensku
krónunni og gagnvart rúblunni en
allir viðskiptasamningar milli ís-
lands og Sovétríkjanna eru gerðir
í dollurum.
-S.dór
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%> hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbund. B.WD Ab.Bb. Lb.Sb
Sparireikningar
3ja mán. uppsógn 10-15 Sb
6 mán. uppsögn 11-17.5 Vb
12mán. uppsögn 12-18,25 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 18-19.75 Bb
Avisanareikningar J-10 Ab
Hlaupareikningar 3-7 Sp
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb. Lb.Úb.Vb
6 mán. uppsögn 2.S-4 Afa.Úb
Innlán með sérkjorum 9-20
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 9-U Ab
Stcrl íngspund 9.5-10.5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab.lb
Danskar krónur 8.9-9.5 Ab.Lb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 16.5-20 Lb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kg«/21-22
Almenn skuldabréf(2) 17.5-21 Lb
Viðskiptaskuldabréf(l) kot Allir
Hlaupareikningariyfirdr.) 17.5-21 Lb
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 5.75-0,75 Lb
Til lengri tíma 6.25-6.75 Bb.Lb
Utlán til framleiðslu
isl. krónur 15-18.5 Sp
SDR 9-8.25 Lfa.Úb
Bandaríkjadalir 7.9-7,75 Sb.Sp
Sterlingspund 12.9-13 Lb.Ub.Vb
Vestur-þýsk mörk 6-6.25 tfa.Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-6.5
Dráttarvextir 27
ViSITÚLUR
Lánskjaravisitala feb. 1594 stig
Byggingavisitala 293 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 7.5% l.jan.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 113 kr.
Eimskip 300 kr.
Flugleiðir 310 kr.
Hampiðjan 140 kr.
Iðnaðarbankinn 135 kr.
Verslunarbankinn 125 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa
þó viðskiptavíxla gegn 21% ársvöxtum.
(2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs
vanskilalána er 2% bœði á verðtryggð
og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka
og Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtudög-
um.
Maður sem keypti verkamannabú-
stað árið 1982 stendur nú í þeim
sporum að áhvílandi lán á íbúðinni
eru orðin hærri en sem nemur bruna-
bótamati íbúðarinnar og munar þar
rúmum 61 þúsund krónum. Lánin sem
hér um ræðir eru húsnæðismálastofri-
unarlán og tvö lífeyrissjóðslán.
Samtals eru þau nú 2.548.834 krónur
en brunamótamatið, sem talið er ná-
lægt söluverðmæti íbúðarinnar, er nú
2.486.918 krónur.
Á þeim tíma sem liðinn er frá því
að íbúðin var keypt hefúr viðkomandi
borgað eðlilegar afborganir af þessum
lánum og nema þær rúmum 200 þús-
und krónum þannig að segja má að
hann hafi á þessu tímabili tapað tæp-
um 300 þúsund krónum á að vera
íbúðareigandi.
En það er fleira athyglisvert sem
BYGGINGaRSJ. verkamanna 1003
LANDSB.lSL.t LAUGAVEGl 77
VEÐDEILD - SIMI 621662
GREIÐSLUSEÐILL 3
SKL". ' ABRErS MED GJALDOAGA
1.FEB.1987 i
1 VAXTADAGL'R 15-02-1982 UPPMATLfj *D 491.400,00 VAX1 Ai'HCSí.N*A N>' GHfiOSLU J vt-XTlR r-L G.IALOT *GA fRA ,500 19 j 1.NOV.1986
’t j'.ND VlSITOLU -V'S.TOlUSTiG L 313- 1565 LAUNX. 5'l‘ A 326- 1465 GPL OSLUMARK AN VfHOOOIA j Ur- ‘ -ERTVwH .'O' Nt.NAO"£ KN f QH 3.403,05 42.524,55
GRE'CAND'
NACNNÚMEM | V JVUNUP V JÖENUNAMHtIKN'NGS
BAN'.AN'JMtn
1.195,70
. H jOENUNAÍIHE AN e gr
43.720,25
109 REYKJAVIK 9 1003 P "'iH
448.059,70
AEBOnGU*r AN VEHDOOTA 2.734,20 VEHC5«".n 11.995,10 TI.GHE.DS.U J SAMTAlSGHE.il I 15.292*80 *ELDRI GJALDDj
VEX" P 563,50 KCí’NAC.H Oagvexth onAUAnvExim | *•
VEDMEITI GCTlN- sta&gh oooo mmmmmmm 5001 0101 UGGn TEG VAX onvxw j SxUtO Samta.s mlo VtnOOCTUM I F FE 1 2284.018,75j
m'■ 1: 1 1» 1 JL-J■
Eins og sjá má hefur húsnæðísmálastofnunarlánið rúmlega fjórfaldast á
timanum frá 1982, eða úr 491.400 kr. og I 2.284.018 kr.
kemur í ljós þegar þetta mál er skoðað
í víðara samhengi. Á sínum tíma kost-
aði íbúðin 546 þúsund krónur og bar
honum að greiða 10% af því verði fyr-
ir afhendingu en afgangurinn var
húsnæðismálastjómarlánið. Þegar
íbúðin var keypt vann maðurinn sem
smyriari á einu Sambandsskipanna og
hafði hann í grunnlaun 7.819 krónur
á mánuði þannig að hann hefði þurft
að vinna í 5,9 ár til að borga íbúðina
upp. í dag er þessi taxti 28.759 krónur
og til að borga íbúðina upp nú þarf
hann að vinna í 7,4 ár en þama mun-
ar 24,6%.
Ef miðað er við mismun á fasteigna-
mati og áhvílandi lánum verður
munurinn enn meiri en hvað bruna-
bótamatið varðar eða 341 þúsund
krónur þar sem fasteignamatið er nú
2.207.000 krónur. -FRI
Flugstöðin á Höfn.
DV-myndlr Ragnar Imsland
Fjölgun farþega
í áætiunarflugi
Júlia bnsland, DV, Bö&r
Á síðasta ári varð nokkur fjölgun far-
þega í áætlunarflugi hjá Flugleiðum
og Flugfélagi Austurlands um Homa-
fiarðarflugvöll. 1986 vom farþegar
12.564 á móti 11.290 árið áður, sem er
11% aukning. Flutt vom 217 tonn af
frakt og 98 tonn af pósti. Lendingar
áætlunarflugvéla Flugleiða vom 221
og Flugfélags Austurlands 337.
Vignir Þorbjömsson umdæmisstjóri
sagði helstu skýringu á þessari aukn-
ingu vera bæði fjölgun erlendra
ferðamanna og svo hefðu veðurskil-
yrði verið hagstæð meirihluta ársins.
í janúar hafa veður verið mjög góð
og flug gengið vel. Hefur farþegum
fjölgað um 9% miðað við sama tíma
í fyrra.
I sumar verður bætt við ferðum hjá
Flugleiðum á mánudögum og mið-
vikudögum og hjá Flugfélagi Áustur-
lands á laugardögum. Er þá flogið til
Homafjarðar alla daga.
Gera þarf flugið mun ábyggilegra
með uppbyggingu flygvallarins og var
Vignir bjartsýnn á að það stæði allt
til bóta þar sem Matthías Bjamason
samgönguráðherra hefði nýlega lagt
fram tillögu til laga um tíu ára fram-
kvæmdaáætlun í flugmálum. Nái hún
fram að ganga verður það til mikilla
hagsbóta fyrir þá sem úti á landi búa.
■
'4 ,
.
l!
Jón Frlðrlksson, starfsmaður Ruglelöa, og Vlgnir Þorbjömsson umdæmisstjóri.
Kísiliðjan hf.
Hagnaður síðasta árs
nam 20,4 milljónum
nnrmr Balduissan, DV, Mývatnasveit
Rekstrarafkoma Kísiliðjunnar hf. var
ágæt á árinu 1986. Heildarvelta félags-
ins nam 357,6 milljónum króna.
Hagnaður ársins nam 20,4 milljónum
króna. Niðurstaðan er mjög góð í ljósi
þess mikla samdráttar sem varð á sölu-
magni, eða um 16% miðað við árið
1985.
Svo segir meðal annars í fréttatil-
kynningu sem stjóm Kísihðjunnar hf.
í Mývatnssveit hefúr sent frá sér. í
tilkynningunni segir ennfremur:
Á árinu 1985 varð metframleiðsla
hjá verksmiðjunni, 29.400 tonn, og seld
voru 27.700 tonn. Framleiðsla ársins
1986 var 22.900 tonn og sala 23.300
tonn.
Kísiliðjan hf. flytur 99,9% fram-
leiðslunnar á erlenda markaði. Á
árinu 1986 jókst mjög samkeppni á
aðalmörkuðum Kísiliðjunnar hf. í
Evrópu. Orsakir aukinnar samkeppni
eru einkum: Fall Bandaríkjadals og
afar lág flutningsgjöld frá Bandaríkj-
unum til Evrópu. Þetta hefur leitt til
betri samkeppnisaðstöðu bandarískra
kísilgúrframleiðenda í Evrópu.
Þá má nefiia aukna heimsfram-
leiðslu á kísilgúr. Á móti samdrætti í
sölu kom viðunandi söluverð og lækk-
un stórra kostnaðarliða, svo sem ohu
og rafmagns.
Á árinu 1987 var ætlunin að blása
til nýrrar sóknar á mörkuðum og auka
sölumagnið á nýjan leik. Farmanna-
deilan, sem nú stendur sem hæst, hefúr
sett strik í reikninginn. Kísilgúrinn
er notaður til iðnaðar, aðallega mat-
vælaiðnaðar. Þar þurfa framleiðendur
daglega að nota kísilgúr. Þeir treysta
á afhendingu kísilgúrsins og bregðist
hún, neyðast þeir til þess að snúa sér
annað. Hættan er sú að viðskiptavin-
urinn glatist til langframa.
Nú þegar vantar kísilgúr frá Kísiiðj-
unni hf. á helstu samkeppnismarkaði
og stefiiir í óbætanlegt tjón. Samn-
inganefrid í farmannadeilunni er ekki
að há neitt einkastríð. Sprengjunni er
varpað á útflutningsgreinar og hagur
þeirra sem að þeim starfa lagður að
veði.
Utvarpsstöð
framhaldsskóla
- tilraunasendingar hefjast á mánudag
Átta framhaldsskólar á höfúð-
borgarsvæðinu hafa sameinast um
stofnun og rekstur útvarpsstöðvar
og munu tilraunaútsendingar hefjast
úr stöðinni á mánudaginn en ætlun-
in er að hún taki svo formlega til
starfa 16. febrúar.
Guðmundur Birgisson, formaður
skólafélags Menntaskólans við
Sund, sagði í samtali við DV að þetta
hefði lengi staðið til en ekki verið
þeim kleift fyrr en nýju útvarpslögin
voru samþykkt og er undirbúningur
fyrir sendingar nú á lokastigi en
stöðin verður til húsa undir sund-
lauginni í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti.
MS mun sjá um tilraunaútsend-
ingamar sem hefjast á mánudaginn
en þær verða í tengslum við þorra-
vöku sem þar verður haldin á sama
tíma.
Guðmundur sagði að dagskrárgerð
yrði alfarið í höndum nemenda skól-
anna og reksturinn kostaður af
nemendafélögunum. Dagskráin yrði
byggð upp á tónlist og léttu efiii með
viðtölum, spumingakeppni o.fl.
Fyrir utan framangreinda skóla
standa að stöðinni Menntaskólinn í
Reykjavík, Menntaskóhnn í Hamra-
hlíð, Iðnaðarskólinn, Kvennaskól-
inn, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
og Fjölbrautaskólinn í Ármúla. Er
DV talaði við Guðmund var stöðin
ekki búin að fá útsendingartíðni en
það kemst væntanlega á hreint í dag.
-FRI