Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Blaðsíða 32
44
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987.
Sviðsljós
Ölyginn
sagði...
^ Robin Borg
er að verða búinn að sjá all-
an heiminn þótt ungur sé
að árum. Eftir áramótin var
hann í Hong Kong með for-
eldrunum Jannike Björling
og Birni Borg - og átti þar
hug og hjarta innfæddra. Sá
stutti skemmti sér konung-
lega á öllum leikjum töður-
ins og tókst að valda svo
miklum usla í áhorfenda-
stúkunum að fæstir nær-
staddra höfðu rænu á að
veita snilldartöktum föðurins
á vellinum nokkra minnstu
athygli.
Koo Stark
gerir það ekki endasleppt.
Núna segir sagan að ástar-
samband hennar við Peter
Holm hafi verið dropinn sem
fyllti mælinn hjá Joan Coll-
ins. Eftir að skilnaðarmálið
kom upp á yfirborðið missti
fraukan hins vegar endan-
lega áhuga á Peter sem situr
eftir með sárt ennið og græt-
ur kaldlyndi kvenna. Hann
fær litla samúð karlgreyið -
í það minnsta hjá eiginkon-
unni skapstóru sem vill
hvorki heyra kappann né sjá
það sem bæði eiga eftir ólif-
Don Johnson
1 v er nú manna á milli nefndur
Prima Donna Johnson.
Meðleikendur í Mæami-
lögguþáttunum eru löngu
búnir að fá yfir sig nóg af
sjálfselsku og sjálfumgleði
stjörnunnar. Johnson virðir
samstarfsmennina ekki við-
lits, talar í blaðaviðtölum um
þættina sem hans eigið verk
og einskis annars - og klikk-
ir svo endanlega út með
hreint alveg ótrúlegri skap-
vonsku á vinnustað. Prima-
"donnan hefur svo tekið þá
stefnu að forðast Ijósmynd-
ara eins og heitan eldinn -
svo sem hæfir slíkum stór-
mennum - og segja spek-
ingarnir að stjarna
sexmennisins muni því fara
hratt lækkandi í framtíðinni.
Gísli á Vatni og hjónin Guðlaug Snæfells og Jens Indriðason
Halldóra frá Mosfelli á íslenskum búningi með dalbúa sem því
miður reynist ekki unnt að nafngreina.
Sigga í Jónstótt og Erna á Grund.
Gerður frá Dalsgarði með Einari frá Laxnesi - nú á Litlalandi. Einar er elstur sveitunga
en hann nær öldinni á þessu ári.
Diddú í Túnfæti og Olafur frá Mosfelli tóku lagið við stórgóðar undirtektir
sveitunganna.
Þorrablót Dalbúa - innsveitunga í Mosfellssveit - var haldið um síðustu
helgi í Hlégarði og var mæting með afbrigðum góð á staðnum. Farið var í
leiki, allir sungu með sínu nefi og hin eina sanna sveitastemning ríkti rafta
á milli. í Mosfellssveit er sterkur stofn þeirra sem innfæddir teljast - og
kenndir eru við bæina svo sem vera ber - sem blandast síðan aðfluttum íbú-
um hins venjulega gatnakerfis. Ljósmyndari DV, Ragnar S., lét sig ekki
vanta í gleðina og sýna myndirnar að menn kunna upp á sína tíu fingur að
blóta þorrann í nágrenni höfuðborgarinnar.
Blótað
í Dalnum
Konur funda um Karítas
Spurning getur fætt af sér aðrar spurningar - Karítas Gunnarsdóttir í ræðustól
Konur funduðu á Hallveigarstöð-
um nýlega og var fundarefnið -
Hvers vegna spurði Karítas? Tilefnið
var spuming sem Karítas Gunnars-
dóttir lagði fyrir Láru V. Júlíus-
dóttur, lögfræðing ASÍ, um hversu
langur tími færi í heimilistörfin hjá
henni dag hvem. Þetta gerðist í sjón-
varpsþættinum í takt við tímann og
Lára svaraði með annarri spumingu
- hvers vegna em karlmenn aldrei
spurðir þess sama? Næsta skref var
síðan opinn fundur á Hallveigarstöð-
um þar sem konur veltu fyrir sér
upphaflegu spurningunni og öllum
hinum sem hún ýtti af stað í leið-
inni. Smáþúfurnar er víst að finna
þar sem síst skyldi.
DV-mynd Ragnar S.