Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1987, Side 36
FRETT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreiíing: Simi 27022
Sæbólsmálið
í Hæstarétt
Ógildingu héraðsdóms á samn-
ingi um innlausn erfðafestu á
Sœbólslandinu í Kópavogi verður
vísað til Hœstaréttar. Bæjarráð
Kópavogs fjallaði um málið í gær
og umsögn fyrrverandi bæjarlög-
manns, Þórólfs Kristjáns Beck.
Sjálfstæðismenn, sem eru í minni-
hluta, vísuðu málinu til bæjar-
stiómar sem tekur afstöðu til
málsmeðferðar á þriðjudaginn.
Báðir oddvitar meirihluta Al-
þýðubandalags og Alþýðuflokks,
Heimir Pálsson og Guðmundur
Oddsson, áiíta eðlilegast að feng-
inn verði dómur í Hæstarétti.
Guðmundur sagði i morgun að
fyrrverandi bæjarlögmaður teldi
málið eingöngu varða innlausn
erfðaleigu á landinu þar sem bær-
inn væri eigandi þess. Réttarstaða
lóðarhafa væri því ótvíræð og
óbreytt þrátt fyrir þennan mála-
rekstur.
Til greina kemur að leita enn
sátta um nýjan innlausnarsamn-
ing. Slíkar tilraunir hafa marg-
strandað áður og ekkert bendir til
þess að þær takist frekar nú. Auk
þess þykir málið þannig vaxið að
fá verði úrskurð í Hæstarétti.
-HERB
Vestmannaeyjar:
Loðnu-
bræðsla
í fullum
gangi
Ómar Garöaissan, DV, Vestmannaeyjum;
Loðnubræðsla er nú í fúllum gangi
í Vestmannaeyjum og sífellt berst
meiri loðna á land.
; Bátamir Bergur og Ómar komu ný-
lega inn með fúllfermi. Þá hafa
heimabátamir margir hveijir komið
inn til að skipta um nætur þar sem
loðnan stendur nú grynnra en áður.
Þeir sækja einkum út á miðin við
Papey.
Blóm
Opið frá kl. 10-19
alla daga vikunnar.
GARÐSHORNÍS
Suðurhlíð 35
sími 40500
viö Fossvogskirkjugarðinn.
■C*
LOKI
Með þessu áframhaldi
verður „steypa“ að
skammaryrði!
Farmannadeilan:
Hættir Dagsbrún við
samúðarverkfallið?
Háværar raddir eru nú uppi meðal
hafiiarverkamanna í Dagsbrún um að
hætta við boðað samúðarverkfall
vegna fannannadeilunnar. Ástæðan
er sú að farmönnum var boðin 20%
kauphækkun á 17 klukkustunda
óformlegum samningafundi sem for-
ráðamenn Dagsbrúnar sátu með
farmönnum í gær og fyrrinótt en þeir
höfnuðu. „Það er ekki hægt fyrir 350
hafnarverkamenn að fara í samúðar-
verkfall með mönnum sem hafna boði
um 20% kauphækkun," sagði hafiiar-
verkamaður i samtali við DV.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, sat samninga-
fundinn í gær og fyrrinótt. Hann sagði
í samtali við DV í morgun að eftir
þann fund væri ljóst að deilan væri
komin í óleysanlegan harðahnút.
„Þetta hvellsprakk um miðjan dag í
gær,“ sagði Guðmundur.
„Ég hef misst alla von um að hægt
sé að semja við þessa menn. Það er
alveg sama hvað við teygjum okkur
langt, þá heimta þeir bara helmingi
meira. Og sannast sagna er ég alveg
ráðalaus, ég hef aldrei lent í öðru eins
og þessu,“ sagði Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins, í morgun. Hann
sagðist ekki vera hlynntur því að leysa
deiluna með lögum vegna þess að þá
kæmi vandamálið bara aftur upp eftir
eitt ár.
Guðmundur Hallvarðsson, formaður
Loðnuveiðar eru nú i fullum gangi. Hér eru þeir Sveinn Sveinsson og Smári Guðsteinsson að búa sig i slaginn.
DV-mynd Ómar.
Veðrið á morgun:
veður
Á laugardaginn þykknar upp
með vaxandi suðaustanátt og fer
að hlýna. Rigning þegar líður á
daginn, fyrst suðvestanlands. Hiti
verður á bilinu -1 til 5 stig.
Sjómannafélags Reykjavíkur, sagði að
á meðan farmönnum væri aðeins boð-
ið jólaföstusamkomulagið væri ekki
hægt að ganga að samningum. „í ljósi
þess að við fengum á okkur lög í maí
í fyrra og þeirra launahækkana sem
aðrir launahópar hafa fengið með
vinnuhagræðingu, kaffi- og matar-
tímabreytingum og fleiru, sem þegar
er komið á hjá okkur, þá getum við
ekki gengið að þessu tilboði," sagði
Guðmundur. -S.dór
Hyggjast skrá
farskipin öll
úti á landi
Sú hugmynd hefúr komið upp
hjá íslensku skipafélögunum að
hætta að skrá skipin i Reykjavík,
sem heimahöfn, en skrá þau þess
í stað á hinar ýmsu hafiiir úti um
land. Ef þetta verður gert munu
skipafélögin semja við hin ýmsu
sjómannafélög úti um land en ekki
Sjómannafélag Reykjavíkur.
„Ég veit að þessi hugmynd hefúr
komið upp. Ef af þessu verður
myndi Sjómannafélag Reykjavík-
ur leggjast niður. Við erum innan
Sjómannasambandsins og Alþýðu-
sambands Islands og þá vaknar sú
spuming hvort þessi landssam-
bönd ætla að láta það viðgangast
að félag sé lagt niður fyrir það eitt
að krefjast betri kjara fyrir sína
félagsmenn," sagði Guðmundur
Hallvarðsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, í
morgun.
Þessa hugmynd skipafélaganna
er ekki hægt að framkvæma með-
an á verkfallinu stendur en þau
hyggjast reyna þetta þegar því er
lokið. -S.dór
Formaður fræðsluráðs:
Jákvæðari
viðbrögð
Jón G. Haukæon, DV, Akureyii
„Þetta eru jákvæðari viðbrögð en til
þessa en ég tjái mig ekkert um bréf
Sverris frekar. Það verður fundað í
fræðsluráði kl. 14 í dag og þá kemur
þetta allt í ljós,“ sagði Þráinn Þóris-
son, formaður fræðsluráðs Norður-
landsumdæmis eystra, við DV.
Heimildir DV herma að í bréfi Sverr-
is sé getið um nefiid tveggja manna
sem fara eigi í samskipti ráðuneytisins
og Sturlu. Sé annar mannanna skipað-
ur af menntamálaráðuneytinu en hinn
af fræðsluráði. Ennfremur að Sturla
fái sex mánaða biðlaun.
Þráinn vildi ekkert segja um hvort
þetta væri í bréfi Sverris. En voru við-
brögð Sverris Hermannssonar já-
kvæðari en Þráinn Þórisson átti von
á?
„Viðbrögðin eru jákvæðari en til
þessa en þau eru alls ekki jákvæðari
en ég átti von á, nei, alls ekki,“ sagði
Þráinn Þórisson.