Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987. 3 Fréttir Sikorsky „glatar sönnunargagni Málaferlin vegna þyrluslyssins í JökuHjörðum: Flak þyrlunnar TF-RÁN hítt upp úr Jökulfjöröum í nóvember árið 1983. Mikilvægt sönnunargagn í mála- ferlum íslendinga gegn Sikorsky- þyrluverksmiðjunum hefur týnst. I nýútkominni ársskýrslu flugslysa- nefndar er gefið í skyn að Sikorsky hafi viljandi „glatað" þessu gagni. Skaðabótakrafa íslenska ríkisins svo og bótakröfur ættingja þeirra fjögurra starfsmanna Landhelgis- gæslunnar, sem fórust með TF-RAN í Jökulfjörðum árið 1983, eru byggð- ar á þeirri kenningu að rennihurð þyrlunnar hafi vegna galla losnað af á flugi og lent í aðalþyrlinum. í ársskýrslu flugslysanefndar segir: „Svo sem fram kom í rannsóknar- skýrslunni, sem kom út 28. febrúar 1985, voru rannsakendur sammála um að þyrlan bæri þess merki að rennihurðin hefði losnað af henni á flugi og orðið fyrir að minnsta kosti einu blaði aðalþyrilsins, áður en þyrlan lenti á sjónum. Þessa niður- stöðu studdi einnig sérfræðingur frá flugslysanefhd Bandaríkjanna (NTSB), sem vann við rannsóknina hér og ytra.“ Rennibraut send Sikorsky í skýrslunni segir ennfremur: „Þegar hurðin losnaði af þyrlunni sat hluti tveggja rennibrauta hennar eftir á skrokk þyrlunnar, en hinn hluti brautanna fylgdi hurðinni sjálfri. Sá hluti sem skrokknum fýlgdi, var við frumrannsóknina sendur í nóvember 1983, með milli- göngu NTSB, til Sikorsky-verk- smiðjanna í Bandaríkjunum. Rennihurðin kom síðan í troll rækjubátsins „Óli ÍS-81", hinn 19. apríl 1985. Að mati nefndarinnar og þeirra sem að rannsókninni unnu, bar hurðin þess greinileg merki að hafa orðið fyrir blöðum aðalþvrils- ins, eftir að hafa af einhverjum ástæðum losnað úr neðri rennibraut sinni á flugi og staðfesti þannig nið- urstöður f\Tri rannsóknar. Eftir frumrannsókn héma var hiu-ðin send til frekari ranrisóknar hjá bresku flugslysanefndinni AIB (Accident Investigation Board) í Famborough. Sérfræðingar AIB komust að sömu niðurstöðu, það er að hurðin hafi losnað af á flugi og sveiflast upp í aðalþyrilinn." „Glatað“ innan gæsalappa „Rannsakendur vildu nú bera hluta rennibrautanna saman, en Si- korsky-verksmiðjan hafði þá „glat- að“ þeim hlutum rerinibrautanna, sem NTSB hafði falið þeim rannsókn á og gat ekki skilað þeim,“ segir í skýrslunni. Athygli vekur að orðið „glatað“ er haft innan gæsalappa. „Þeir fengu þetta sent ásamt öðr- um hlutum. Svo þegar á þurfti að halda sögðust þeir ekki finna þetta. Þeir sögðu að þetta hefði týnst af ókunnum orsökum.'1 sagði Sveinn Bjömsson, varaformaður flugslvsa- nefndar. Mikilvægt gagn „Við teljum þetta vera mikilvægt gagn. Það glatast í höndum gagnað- ila.“ sagði Haraldur Jóhannessen. lögfræðingur hjá embætti ríkislög- manns. Hann sagði að gangur málaferl- anna mvndi skýrast í haust. Unnið væri að gagnaöflun. meðal annars skýrslutöku af breskum og banda- rískum sérfræðingum. -KMU Samvinnubankinn: Klögumálin ganga á víxl Græddi en tapaði samt fé Kærur og undir- skriftir vegna ástands vega á Snæfellsnesi Tap Samvinnubanka Islands hf. vegna gjaldþrots Kaupfélags Sval- barðseyrar setti strik í reikninginn þegar afkoma bankans á síðasta ári var gerð upp. í staðinn fyrir að sýna 16,6 milljóna króna hagnað varð 8,4 milljóna króna tap niðurstaðan. Þá hafði verið gert ráð fyrir 25 milljónum til þess að mæta áfallinu vegna kaup- félagsins. Innlán í bankanum hækkuðu um 40,7% 1986 sem er vel yfir meðaltals- hækkunum hjá viðskiptabönkunum. Alls námu innlán í bankanum um ára- mót 3.628 milljónum króna. Hlutdeild bankans í hópi viðskiptabankanna var 8,5%, 0,3% hærri en ári áður. Af innl- í vor hefur mikið borið á að brotin séu öxulþungatakmörk á vegum á Snæfellsnesi. Hefur fjöldi bíla verið stöðvaður og dæmi eru um að menn hafi verið með allt að 8 tonn umfram leyfileg mörk sen nú eru 5 og 7 tonn á öxul. Að sögn Eðvarðs Ámasonar, yfirlög- regluþjóns í Ólafsvík, hafa vegimir á nesinu verið stórskemmdir af þessum orsökum og sagði hann það hryggileg- ast að það væm heimamenn sem ánunum i bankanum voru 1.167 millj- ónir eða 32,2% innstæður á hávaxtareikningum. Tekjur Samvinnubankans urðu 904 milljónir króna 1986, þar af 802 millj- ónir vaxtatekjur. Rekstrarkostnaður varð 888 milljónir króna, þar af vaxta- gjöld 565 milljónir. Hlutafé bankans í árslok var 228,7 milljónir króna. Eigið fé bankans, stofnlánadeildar og veð- deildar var 346,8 milljónir. Ákveðið var á aðalfundi nú að auka hlutaféð um tæplega 46 milljónir með útgáfu jöfhunarhlutabréfa og 200 milljónir króna með nýju hlutafjárútboði. -HERB kræfastir væra í brotum af þessu tagi. Ástæðui- þessara miklu þungaflutn- inga á Snæfellsnesi eru þær að góð aflabrögð hafa verið þar í vor. Bátar að sunnan leggja upp netaafla sinn þar og síðan er ekið með hann suður á Suðumesin. Þessir flutningar fara fram á sama tíma og vegimir era hvað viðkvæmastir fyrir umferð vegna þess að klaki er að fara úr þeim eftir vetur- inn. -FRI Um nokkurra vikna skeið hafa vegir á Snæfellsnesi verið meira og minna ófærir vegna aurbleytu. Þungatakmarkanir eru á öllum veg- um og á Fróðárheiði er aðeins leyfður tveggja tonna öxulþungi. Ástand vega á Snæfellsnesi má að hluta til rekja til þess að fyrir páska var mjög mikið um fiskflutninga frá Snæfellsnesi. Þegar mest var fóra allt að fjörutíu vörabílar með fisk á einum degi. Ástæða þessara miklu fiskflutninga er að mjög mikið var um aðkomubáta í Breiðafirði og var afla þeirra ekið burt. íbúar í byggðalögunum á utan- verðu Snæfellsnesi gengust fyTÍr undirskriftarsöfnun í síðustu viku og skrifuðu alls 800 aðilar nöfn sín undir mótmælin en þar lýsa íbúamir óánægju sinni með ústand vega og krefjast úrbóta hið bráðasta. Undir- skriftarlistamir hafa nú verið sendir samgönguráðherra, vegamálastjóra og öllum þingmönnum Vesturlands. Fvit í vikunni var sótt jai'ðýta á vegum Vegagerðarinnai' upp á Fróð- árheiði og var þessi flutningur kærður til lögreglunnar í Ólafsvík. Björn Jónsson. umdæmisverkstjóri Vegagerðai'innar í Ólafsvík. sagði að ekkert væri athugavert við þenn- an flutning þar sem jarðýtan hefði ekið utan vega á vestu köflunum. Bjöm sagði ennfremur að ekki væri hægt að vinna að vegabótum ef ekki væri hægt að koma tækjum á vett- vang. Mikið hefur verið uin að vöruflutningabílar hafi verið teknir með of mikla vigt og vildi Bjöm meina að þeir sem hæst láta ættu töluverðan hlut að því hvemig ástand veganna er nú. Vöruflutn- ingabílstjóri á Snæfellsnesi hringdi til Vegagerðar ríkisins í Reykjavík til að mótmæla því að Vegagerðin flytti þungavinnuvélar á vegunum á meðan þungatakmarkanir væra svo afgerandi. Bílstjóranum var svarað með þeim orðum að hann væri ekki marktækur innan Vegagerðar rík- isns. Við Kaldármela á Snæfellsnesi er verið að vinna að viðgerð á þjóðveg- inum. Bílstjóramir, sem við verkið starfa. kvarta sáran yfir því að sí- fellt sé verið að stöðva þá af lögreglu og vigtarmönnum og segja þeir að það sé að verða með öllu ómögulegt að halda verkinu áfram. En þeir þurfa að aka 4 km leið á vegi sem er með sjö tonna öxulþunga. Hjörleifur Ólafsson hjá Vegagerð ríkisins sagði að ógerningur væri að segja til um hvenær hægt yrði að hefja viðgerðir á Fróðárheiði þar sem enn er mikill klaki í jörðu og þess vegna þjónaði engum tilgangi að hefja viðgerðir nú. Þannig að ljóst er að þetta ástand mun vara enn um hríð. -sme Mikil brot á oxulþungatakmorkunum á Snæfellsnesi: Allt að 8 tonn umfram mörkin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.