Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 14..MAÍ 1987. Útlönd Melónu- þjófar á fúllri ferð Sjö vörubifreiðum, hlöðnum melón- um, var stolið á sama deginum frá jámbrautarstöð í Peking í síðasta mánuði. Þá voru bifreiðar bænda, sem voru að flytja um tíu þúsund kíló af melón- um á markað, stöðvaðar og þess krafist að bændumir seldu ávextina á staðn- um. Þegar þeir neituðu stálu rænin- gjamir melónunum í staðinn. Vatíkanið bannar skrif um vopnasölu Baldur Röbeilssan, DV, Genúa; Alessandro Zanotelli, prestur og framkvæmdastjóri tímaritsins Nigriz- ia, varð að hætta störfum við blaðið vegna skrifa sinna um vopnasölu ítala til þriðja heimsins. í greinum sínum nefndi hann nöfn nokkurra ítalskra stjómmálamanna sem bendlaðir em við þessa vopnasölu. Sagði Vatíkanið þetta vera stjóm- málaáróður og annaðhvort yrði blaðið að hætta þessum skrifum eða fá nýjan framkvæmdastjóra. Zanotelli valdi síðari kostinn og ákvað að helga sig eingöngu prestsstörfunum. Verður hann sendur til Nairobi í Afríku þar sem hann verður líklega ekki til vand- ræða. Þess má geta að Vatíkanið og ka- þólska kirkjan styðja kristilega demókrata en þeir sem greint var frá í tímaritinu vom meðal annars úr röð- um þess flokks. Kínverjar lumbra á skattheimtu- mönnum Baldur Róbensson, DV, Genúa; í Kína var nýlega byrjað að taka skatta af launþegum. Em þeir ekki ýkja hrifhir af því og neita flestir að borgar skattana. Hafa margir tekið rukkara og lamið svo illa að þeir hafa endað á sjúkrahúsum. Skattstofur, sem settar vom á lagg- imar af þessu tilefni, hafa flestar verið gjöreyðilagðar eða brenndar af æstum launþegum. Hauknr L. Haukssan, DV, Kaupmannahöfe Niels Michelsen, yfirlæknir hjá fé- lags- og heilbrigðismiðstöð Kaup- mannahafnar, segir að í dag megi í síauknum mæli sjá böm sem em sköd- duð vegna áfengisneyslu móðurinnar á meðgöngutímanum. Fyrir um tíu árum hafi böm með slík einkenni verið sárafá en nú megi finna þau á nær öllum vöggustofum og bamaheimilum í borginni. Böm þessi vega lítið við fæðingu og munu flest eiga í erfiðleikum með nám vegna heilaskemmda. Segir yfirlækn- irinn að mörg barnanna fái auk þess einkennilegt andlitsfall og skökk augu. Ekki er vitað um fjölda þessara barna miðað við allt landið en víst er að þeim fjölgar. Þarf aukna fræðslu og hjálp og þá sérstaklega til kvenna sem em illa staddar félagslega til að stöðva þessa óheillaþróun. Niels Michelsen er formaður vinnu- hóps sem nýlega hefur sent frá sér greinargerð um fyrirbyggjandi aðgerð- ir meðal barna og unglinga. Er greinargerðin sú fyrsta af fimm um heilbrigði bama í dag og árið 2000. Segir meðal annars í hinni nýútkomnu greinargerð að sjúkdómum eins og til dæmis mænuveiki hafi alveg verið útrýmt en um leið hafi nýir sjúkdómar komið fram og valdið áhyggjum. Em það sjúkdómar sem böm og unglingar frá illa stöddum fjölskyldum þjást oft af og em þeir eins konar svör- un við uppvaxtarskilyrðum bamanna. Spegla árásarhneigð, oflæti, hústökur, sjálfsmorðstilraunir, ofát, svelti auk áfengis- og fíkniefnaneyslu vanda þessara barna og unglinga. Samkvæmt skýrslunni eiga allt að þijátíu prósent danskra bama við heil- brigðisvandamál að stríða, þjást tíu prósent af krónískum eða viðvarandi einkennum og tiu prósent bamanna em lögð inn á sjúkrahús hvert ár. Umsjón: Halldór Valdimarsson og Ingibjörg B. Sveinsdóttir Ólafur Amarsan, DV, New York Robert McFarlane, fyrrum örygg- isráðgjafi Reagans forseta, sagði við yfirheyrslur hjá rannsóknamefnd Bandaríkjaþings í gær að hann hefði nokkrum sinnum rætt við forsetann um aðstoð við contraskæmliðana í Nicaragua. McFarlane sagði að mörg samtal- anna hefðu átt sér stað á þeim tíma er mörgum bandarískum stofnunum var meinað að veita contraskæmlið- unum aðstoð. Sagðist hann hafa álitið margar aðgerðir starfsmanna sinna ólöglegar en að forsetinn hefði álitið ramma laganna mun víðari. McFarlane tók hins vegar skýrt fram að Reagan hefði ekki vitað af því að hagnaður af vopnasölunni til Irans hefði verið notaður til að að- stoða contraskæmliðana. Sagðist McFarlane sjálfur ekki hafa frétt af því fyrr en í maí á síðasta ári er Oliver North hefði sagt honum frá því. Það var eftir leynilega ferð þeirra til írans. McFarlane sagðist gmna að Oliver North hefði átt náið samstarf við William heitinn Casey, fyrrum yfir- mann leyniþjónustunnar, og verið geti að North hafí unnið að ein- hverjum verkefnum undir beinni stjóm Caseys. McFarlane tók sérstaklega fram í vitnisburði sínum að Reagan hefði aldrei hvatt til eða lagt blessun sína yfir ólöglegar aðgerðir af neinu tagi og sagðist McFarlane hafa átt alla sök í þessu máli. Það væri hann sem ætti að ákæra og dæma í fangelsi. Búist er við að yfirheyrslum yfir McFarlane ljúki í dag. Eftir það taka við yfirheyrslur yfir svokölluðum annars flokks vitnum en það em þau vitni sem ekki áttu beint samband við forsetann. Ekki er reiknað með því að nánari niðurstaða um það hvað forsetinn vissi um aðstoðina við contraskæmliðana liggi fyrir fyrr en í næsta mánuði er John Po- indexter og Oliver North verða yfírheyrðir. Hopkins sjúkrahúsið útskýrir aðgerðina. Símamynd Reuter Hjartagjafinn enn á Irfl Læknar John Hopkins sjúkrahúss- ins í Baltimore í Bandaríkjunum skýrðu frá því í gær að þeir hefðu flutt hjarta úr lifandi hjartagjafa í annan sjúkling og væm báðir á lífi, hjarta- þeginn og hjartagjafinn. Hjartaþeginn var á sjúkrahúsinu til hjartaígræðslu en hjartagjafinn var þar til skipta á bæði hjarta og lungum. Hjartaþeginn heitir John Couch, hjartagjafinn Clinton House og er hann frá Baltimore. góðu forskoti Granar Casey um samstarf við North Robert McFarlane sýndi ánægjumerki þegar fréttamenn spurðu hann hvem- ig honum þætti hann standa sig i yfirheyrslunum. Simamynd Reuter Fyrstu skoðanakannanir á Bret- landseyjum, eftir að Thatcher, forsætisráðherra landsins, tilkynnti að gengið yrði til kosninga þar í næsta mánuði, sýna að íhaldsflokk- urinn heldur forskoti sínu og virðist ætla að halda meirihluta sínum í breska þinginu. Skoðanakönnun, sem gerð var fyr- ir breska blaðið Guardian, sýndi að flokkur forsætisráðherrans hefur Qórtán prósentustiga forystu yfir Verkamannaflokkinn. í annarri skoðanakönnun, sem gerð var fyrir Daily Telegraph, voru niðurstöður þær að íhaldsflokkurinn héldi meiri- hluta á þingi og jafhframt að Verkamannaflokkurinn, sem hefur til þessa verið helsti keppinautur íhaldsmanna, myndi lenda í þriðja sæti, því kosningabandalag frjáls- lyndra og sósíaldemókrata myndi hljóta meira fylgi í komandi kosn- ingum. íhaldsmenn búast við enn meiri fylgisaukningu næstu daga, eftir að nýjar atvinnuleysistölur verða birt- ar. Atvinnuleysi er eitt af þeim málefnum sem mest ber á í kosninga- baráttunni. Það hefur þrefaldast á Bretlandi frá þvi Thatcher tók við völdum árið 1979, en hefur farið mjög mninnkandi aftur undanfama mánuði. Skoðanakönnun sú er birtist í Guardian sýndi að íhaldsmenn myndu fá 43% atkvæða, Verka- mannaflokkur 29% og kosninga- bandalagið 25 %. Könnunin í Daily Telegraph sýndi hins vegar 39% fylgi fyrir íhalds- menn, 30 % fylgi kosningabandalags og aðeins 28% fylgi Verkamanna- flokks. Búist er við að fylgi Verkamanna- flokksins minnki enn meir vegna afsagnar eins af þingmönnum hans, James Tinn, svo og vegna yfirlýsing- ar yfirmanns herja Atlantshafs- bandalagsins, sem hefur sagt að stefha Verkamannaflokksins í vam- armálum, sem byggir á vörnum án kjamorkuvopna, myndi gefa Evrópu á vald Moskvu. Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, er komin á fulla ferð í kosningabaráttunni. Hér er hún í félagsskap fatlaðrar stúlku, en forsætis- ráðherrann afhenti i gær ýmsum góðgerðarsamtökum framlög frá golfmönnum. Símamynd Reuter Thatcher heldur Afengis- sködduðum bömum fjölgar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.