Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 14. MAl 1987. að flýta framkvæmd þeirrar áætlun- ar um endurskipulagningu í Sovét- ríkjunum sem fyrir liggur." Stjörnustríðsþvingun - Hvaða áhrif myndi áframhald stjörnustríðsáætlana Bandaríkjanna hafa á þann sparnað sem næðist með samningi um meðaldrægar eldflaug- ar? „Það myndi hafa veruleg áhrif. Það má vera hverjum manni ljóst að þótt Sovétmenn séu reiðubúnir til sveigjanleika í samningaumleitun- um komum við aldrei til með að fórna öryggi okkar. Haldi Bandaríkja- menn áfram að reyna að byggja upp geimvarnakerfi neyðumst við til þess að leita svara við því þótt það væri ef til vill ekki sams konar kerfi. Það yrði verulega kostnaðarsamt. Það má enda vera ljóst, þegar tillit er tekið til ummæla sérfræðinga og ýmissa ráðamanna á Vesturlöndum, að sumir þeirra vilja í dag auka á vígbúnaðarkapphlaupið, í stað þess að minnka það, til þess beinlínis að ganga frá efnahag Sovétríkjanna. Stjörnustríðsáætlanirnar verða vopn í baráttu þessara aðila.“ Vandamál í viðræðum - Þegar sleppt er hefðbundnum, gagnkvæmum ásökunum og fullyrð- ingum um heimsvaldastefnu og annað, hvað er það í fari viðsemjenda ykkar sem gerir ykkur erfiðast fyrir í samningum? „Auðvitað væri betra að þeir sem taka þátt í viðræðunum svöruðu þessari spurningu. Ég get þó svarað henni í víðara pólitísku samhengi og set þá fram mitt eigið sjónarmið. Erfiðleikar þeir sem koma upp í yfirstandandi viðræðum stafa meðal annars af því að bandarískir aðilar hafna þeim ákvæðum sem þegar er búið að koma sér saman um. í Reykjavík komu Gorbatsjov og Reagan sér til dæmis saman um að strategiskur vígbúnaður skyldi skor- inn niður um helming en nú eru Bandaríkjamenn aftur komnir með stig og undirstig sem hætt var við í Höfða. Þá gera Bandaríkjamenn nú ráð fyrir að framkvæmd samkomu- lags um strategískan árasarvígbúnað nái yfir sjö ára tímabil í stað fimm ára og að skuldbindingar um að segja ekki upp samningum um eldflauga- varnir gildi í sjö ár en ekki tíu. Sams konar vandamál koma upp í viðræðum um meðaldrægar eldflaug- ar. í Reykjavík var rætt um að þeim yrði algerlega útrýmt en nú liggur fyrir í Genf bandarísk tillaga að samningi þar sem leyfilegt er að breyta Pershing-2 eldflaugunum í skammdrægar eldflaugar, svo og yrði heimilt að taka stýriflaugar sem nú eru staðsettar á landi í V-Evrópu og koma þeim fyrir á hafi úti. I bandarísku tillögunum er jafn- framt gert ráð fyrir því að smíðaðar verði nýjar gerðir af meðaldrægum eldflaugum. Það er núll-lausnin í reynd.“ 11 Útlönd varp sem leysir lægra setta liðsforingja í her og lögreglu undan ábyrgð af mannréttindabrotum. Símamynd Reuter Borgarstjóri mafíuforíngi Gjörbreytingar þörf - Hafa persónur þeirra, sem sitja samningafundi og taka ákvarðanir, áhrif í þá átt að skapa vandamál? Eru önnur atriði sem þar hafa áhrif, til dæmis tíðari sveiflur í stjórn- málum Vesturlanda heldur en Sovétríkjanna? Eða liggur grund- vallarmismunur heildarstefnu stór- veldanna þarna einn að grunni? „Persónur leiðtoganna hafa auð- vitað einhver áhrif. Varðandi þá samninga sem nú standa yfir má þó benda á að Gorbatsjov sagði eftir Reykjavíkurfundinn að Reagan væri viðræðugóður maður. Sveiflur í stjórnmálum Vestur- landa geta einnig breytt stöðu mála nokkuð snögglega. Þessi atriði eru hins vegar ekki þau sem ráða ferðinni. Aðalatriðið er heildarafstaða stórveldanna til heimsmála. Sökum efnahagslegs og hernaðarlegs máttar síns hafa stór- veldin, Sovétríkin og Bandaríkin, mikil völd en bera jafnframt mikla ábyrgð. Það er mikilvægt að þau standi nú undir ábyrgð sinni í um- ræðunum um afvopnunarmál. Við verðum að gera okkur grein fyrir þvi að við getum ekki hagað okkur áfram eins og við höfum gert um margar aldir. Raunveruleiki nú- tímans krefst nýrrar afstöðu af okkur. Við verðum að ganga til samninga sem koma í veg fyrir gjör- eyðingu. Síðan verðum við að gera okkur grein fyrir því að í heiminum byggir hver á öðrum, að hvert og eitt ríki, smátt eða stórt, á að geta haft áhrif á alþjóðavettvangi. Al- þjóðastjórnmál skapast ekki bara gegnum tvíhliða samskipti Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna." Að eyða tortryggni - Nú gætir afskaplegrar tortryggni í garð ykkar Sovétmanna á Vestur- löndum. Er erfitt að starfa við þau skilyrði og hvernig gengur að reyna að eyða henni? „í fullri hreinskilni sagt er það í raun mjög erfitt að starfa þar sem þessi tortryggni ríkir. Við höfum reynt að eyða þessari tortryggni með því að sýna að það er í raun ekki ein einasta vopnagerð sem við ekki værum reiðubúnir til að semja um útrýmingu á. Og með því að sýna sveigjanleika í því að skapa skilyrði til slíkra samninga. Ég fæ raunar ekki séð hvað getur verið betur fallið til þess að eyða tortryggni en einmitt að ganga til samninga á þeim grundvelli. Þegar svo bætist við að við viljum ganga að skilyrðum um ákaflega strangt eftirlit með því að samningar séu haldnir er erfitt að sjá hvað hægt er að gera meir. Við verðum svo bara að vona að þessar tilraunir okkar fái óhlut- dræga umíjöllun meðal vestrænna þjóða. Við erum til í alla þá samn- inga sem stöðvað geta vígbúnaðar- kapphlaupið, án þess að stofna öryggi okkar í hættu.“ Leysir lægra setta undan allri ábyrgð Raúl Alfonsin, forseti Argentínu, lagði i gær fram frumvarp í argent- ínska þinginu þar sem allir lægra settir liðsforingjar í lögreglu og her landsins eru leystir undan ábyrgð á mannréttindabrotum. Forsetinn sagði í gær að frumvarp þetta myndi ekki koma í veg fyrir að liðsforingjamir yrðu saksóttir fyrir nauðganir, mannrán, bamsrán og rán. Forsetinn sagðist gera sér grein fyrir að taki frumvarp þetta gildi komi ýmsir þeir sem framið hafa mannrétt-' indabrot til með að sleppa við refsingu. Sagði hann frumvarpið hins vegar til- raun til þess að binda enda á fimmtíu ára spennu milli hers Argentínu og borgara landsins og með því tryggja áframhaldandi lýðræði í landinu. Baldur Róbertsson, DV, Genúa: Nú fara fram réttarhöld yfir Cian Cimino, fyrrverandi borgarstjóra Palermo á Sikiley, sem handtekinn var 1984 vegna tengsla við mafíuna. Hefur komið í ljós að hann á gífur- legar eignir hér á Italíu að andvirði þrjú hundruð milljóna íslenskra króna. Innstæður á bankareikning- um hans nema tvö hundruð millljón- um íslenskra króna. Er þetta talið vera innan við helm- ingur eigna hans því að hann hefur fjárfest í fasteignum og fyrirtækjum i Montreal í Kanada. Er þetta glöggt dæmi um umsvif mafiunnar um allan heim. NEW NATURAL COLOUR TOOTH EMAKEUP Þea\&ie TANNFARDI Má setja ófrimerkt i póst. ' ........,,, Pwttr Mwrf roorw EMtME V1 PEARLIE tannfarðinn fœst loksins á íslandi. Pearlie er EKKI tannkrem, heldur TANNFARÐI (TOOTH MAKE-UP). Gefur aflituðum tönnum, tann- fyllingum og gervitönnum NÁTTÚRULEGA HVÍTA áferð. Notað af fyrirsætum og sýningarfólki. Einfalt i notkun, penslað á á fáeinum augnablikum. Rannsakaö á efnafræðistofnun; skaðlaust heilsu notenda, skaðlaust tönnum. PÓSTSENDUM (póstkrafa) UM LAND ALLT OG REYKJAVÍK. Send- ið auglýsinguna i heilu lagi, útfyllta hér aö neðan: rWffipWBI VINSAMLEGA SENDID MER_ stk. PEARLIE tannfaröa. Heimili- Stöð- EÐA HRINGIÐ Í SÍMA (91)611659, símsvari allan sólarhringinn, og pantið símleiöis hvort sem þér búiö i Reykjavik eða á landsbyggöinni. SENDIST TIL: PEARLIE UMBOÐIÐ, SKÓLABRAUT 1. BOX 290, 171 -SELTJARNARNES. (91)6-11-6-59 qS SAMSUNG VERÐ FRÁ KR. 14.970 stgr. Laugavegi 63 (Vitastigsmegin) - Sími 622025 Í MIKLU ÚRVALI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.