Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987. 31 dv Sandkorn Björgum þjóðinni Tímaritiö Þjóðlíf er nú kom- ið út í nýjum búningi, svipuð- um og þekkist frá útlöndum þar sem fjöldi tímarita fjallar um heimsins gagn og nauð- synjar. Meðal efnis í þessu nýja Þjóðlífi er herhvöt form- anns íslenskra iðnrekenda, ■Víglundar Þorsteinssonar. Hann leggur allt kapp á að þjóðinni fjölgi með stórfelld- um bameignum og ráðstöfun- um til þess að ala þessi börn upp í kössum svo að foreldr- amir þurfi helst ekkert að puða við þetta umfram það að njóta ánægjunnar af öllu sam- an. Þó hefur greinilega ekki verið fundin upp aðferð til þess að,konan sleppi við með- gönguna, sem er líklega eina óleysta vandamálið, ef vilji er fyrir hendi. í sama Þjóðlífi er minnst á loðnuhrognin sem Japanir kaupa af okkur dýrum dómum og gleypa í sig til þess að örva kynhvötina. Þetta hlýtur að gefast vel því alltaf kaupa Japanir loðnuhrognin og fá aldrei nóg. Kannski væri ráð- legra að við hættum að selja þessum Japönum hrognin okkar? Stressaðir nuddarar Þau eru mörg vandamálin í þessu þjóðfélagi eins og fram kemur í Þjóðlífi. AUir vita hvað fólk yfir fermingu er stressað út af öllum sköpuðum hlutum og aldrei í rónni yfir því að komast y fir allt sem á að gera eða verður að gera. Það er því ekki nema von að hugmyndinni um meiriháttar bamaframleiðslu þurfi að fylgja margvíslegar hliðarráð- stafanir til þess að foreldrarn- ir ærist ekki endanlega. Á meðal þess sem fólk reyn- ir að nota til þess að slá á stressið og sérstaklega stífa vöðva og strekktar sinar er líkamsnudd ýmiss konar, þar á meðal partanudd eða svæða- nudd, sem raunar hefur verið stundað frá örófi alda en er nú orðið að sérstöku fagi. I framhaldi af öllu þessu er það óskiljanlegbíræfni af vissu fólki í Þjóðlífi sem talar þar fyrir því að foreldramir fari að nudda ungböm sín sem ekkert hafa til saka unnið og hafa ekki einu sinni vit á því að stressa sig. Hvar á eigin- lega að finna til þess 20 mínútur á dag, á stykkið? Ósyndur skólastjóri? Endirinn á skólahaldi í Húnavallaskóla við Svína- vatn varð skrautlegur að þessu sinni og hefur hann þó oft þótt ærið tilkomumikill. Málið er það að einhvern tíma skapaðist sú venja að nemend- ur kveddu kennara sína og skólastjórann formlega með því að henda þeim í sundlaug skólans og bleyta rækilega í þeim. Að þessu sinni átti auðvitað að fara eins að en þá brá svo við að nýr skólastjóri var hreint ekki til í að láta fara svona með sig. Varð honum ekki komið fyrir borð, hvorki með góðu né illu, og lauk svo viðureign nemenda við hann að skólastjóri og sonur yfir- kennara tókust á í einhvers konar samblandi af fom- íslenskri glímu, júdó og léttu boxi. Þessu lauk án stór- meiðsla en nú bíða menn eftir því að sýningin verði endur- tekin. Me Eins og áður hefur verið tekið mjög greinilega fram í þessu blaði tvöfaldaðist þing- mannatala Suðumesjamanna í síðustu kosningum, eiginlega Keflvíkinga. Fyrir var Karl Steinar Guðnason fyrir Al- þýðuflokkinn og nú bættist við öllum að óvörum Jóhann Einvarðsson sem annar maður Framsóknarflokksins. Hann féll sem fyrsti maður 1983, eft- ir nokkra þingsetu, en komst nú inn með formanni flokks- ins, Steingrími Hermanns- syni. Þessi velgengni sveita- mannaflokksins, eins og Víkufréttir kalla Framsókn, er auðvitað þökkuð formann- inum fyrst og fremst. Velunn- arar flokksins voru því fljótir að finna nafn á Jóhann og gengur hann nú undir nafninu Gimbill suður frá. Um hann hefur verið ort eftirfarandi: Gimbill eftir götu rann. Loksins sína móður fann og þá jarmaði hann. Hrelóar - i menningunni á Akureyri. Bræður í menningunni Fyrir nokkrum mánuðum fluttist íþróttadoktorinn Ing- imar Jónsson úr höfuðborg- inni til Dalvíkur og gerðist þar íþrótta- og æskulýðsfulltrúi. Ingimar - í menningunni á Dalvik. Þetta þótti nokkuð merkilegt þar sem Ingimar er líklega einhver menntaðasti íslenski íþróttafræðingurinn og því mætti halda að hann gagnað- istþjóðfélaginujafnvel enn betur í lykilstöðu íþróttamál- anna. En ekki þarf að öfund- ast út í Dalvíkuræskuna sem áreiðanlega hefur góð not af doktornum. Ingimar er annars Akur- eyringur, sonur Jóns Ingim- arssonar sem var formaður Iðju og bæjarfulltrúi langa lengi við sérstakar vinsældir. Þar býr bróðir Ingimars, Hreiðar, sem hefur gætt Iþróttaskemmunnar í 20 ár og verður í sumar forstöðumaður menningarviðburða í því , merka húsi sem upphaflega átti að verða birgðaskemma. Auðvitað eru þeir bræður skákrefir eins og faðir þeirra var og doktorinn er fyrrver- andi Islandsmeistari meira að segja. Þeir eru sem sagt báðir á bólakafi í menningunni fvrir norðan. Umsjón: Herbert Guðmundsson ÞARFT ÞÚ AÐ SI LIA BÍUNN ÞINN? Bílasalinn er nýtt vikublað sem kemur út á fimmtudögum og er dreift í söluturna og bensínstöðvar OLÍS. í Bílasalanum auglýsir þú bílinn þinn tii sölu og hann mun birtast augum þúsunda áhugasamra kaupenda. HVERJIR ERU KOSTIRNIR? — ENGIN ÓÞÆGINDI - ENGIN SÖLULAUN — SKJÓTSALA Við komum á staðinn og tökum mynd af bílnum og þú afhendir okkur textann. Þú hringir í símanúmer okkar 689990 eða 687053 eða kemur á skrifstofu okkar á Suðurlandsbraut 22 Ath. símaþjónusta. wimmm - BLAÐIÐ SEM SELUR BÍLINN ÞINN Suðurlandsbraut 22 108 Reykjavík símar 689990 og 687053 SJÚKRALIÐAR AÐALFUNDUR Sjúkraliðafélags íslands verður haldinn að Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni) laugar- daginn 16. maí kl. 14.00. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. T I FASTEIGNAMIDLUN SÍMI 25722_ (4 línur) !v ★ Tískuverslun ★ [Þekkt tískuvöruverslún á besta stað við Laugaveg til sölu. Verslunin er í góðu húsnæði, með öruggan leigu- samning. Góð erlend viðskiptasambönd fylgja. Greiðslukjör. Afhending samkomulag. —— Oíkar Mikaelsson. Igögiltur fasteignasali POSTHUSSTRÆTI 17 ttAÐsðiubösn, Seljið Vinnið ykkur inn vasapeninga. Komið á afgreiðsluna — Þverholti 11 um hádegi virka daga. AFGREIÐSLA SÍMI27022 AUGLÝSING um aðalskoðun bifreiða, bifhjóla og léttra bifhjóla í Seitjarnarneskaupstað og Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfellshreppum 1987 Skoðun fer fram sem hér segir: Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfellshreppar: Mánudagur 18. maí. Þriðjudagur 19. maí. Miðvikudagur 20. maí. Skoðun fer frám við Hlégarð í Mosfellshreppi. Seltjarnarnes: Mánudagur 25. maí. Þriðjudagur 26. maí. Miðvikudagur 27. maí. Skoðun fer fram við félagsheimilið á Seltjarnarnesi. Skoðað verður frá kl. 8.00-12.00 og 13.00-16.00 alla framantalda daga á báðum skoðunarstöðunum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að bifreiðagjöld séu greidd, að vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi og að bifreiðin hafi verið Ijósa- stillt eftir 1. ágúst sl. Athygli skal vakin á því að skráningarnúmer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma ökutæki sínu til skoðunar á auglýstum tíma verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og ökutækið tekið úr um- ferð hvar sem til þess næst. Þetta tilkynnist öllum þeim sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi, Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu. 12. maí 1987 Einar Ingimundarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.