Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987. 19 Meiming Hafliði Hailgrímsson tónskáld fyrir framan „hof“ lans Hamilton Finlay í Dunsyre í Lanark-sýslu. Rossi og Adrian Wiszniewski, sem allir sýndu stór fígúratrf málverk. Frægð og frami Það sem kannski var merkilegast við þessi verk var að þau sniðgengu að mestu þýska og ítalska express- jónismann en leituðu fanga í epískri mannamyndahefð, frá Delacroix til mexíkönsku veggmyndamálaranna (Oroszco, Rivera, Siqueros). Tveir þessara skosku málara, þeir Steven Campbell og Adrian Wisz- niewski, hafa síðan öðlast frægð og frama á bandarískum listaverka- markaði. Eg talaði við tvo félaga þeirra, þá Ken Currie og Peter Howson, sem leigja u.þ.b. 40-50 m2 vinnustofui- í gamalli fataverksmiðju nálægt mið- borginni. Ólíkt höfðust þeir að. Currie er hæglátur og alvarlegur ungur maður sem vill í myndum sínum stuðla að framgangi mannúðlegs sósíalisma. Þegar ég sótti hann heim var hann að ljúka við mikla myndröð um sögu og hagsmunabaráttu skoskra málm- iðnaðarmanna, sem setja á upp í verkalýðsmiðstöð Glasgowborgar, People s Palace. Stíll þessara mynda er mjög í anda mexíkönsku vegg- myndamálaranna, kannski með snert af Beckmann. Currie sagðist vinna þessar vegg- myndir af hugsjón og taka litla þóknun fyrir. Annars gæti hann reiknað með því að fá u.þ.b. 800 pund (ca 50.000 ísl. kr.) fyrir málverk sem væri 1 x 1,40 cm á stærð. Howson var léttari í lund, enda kominn á ábatasaman samning hjá Angelu Flowers galleríinu í London. Um utangarðsmenn Þar taldi hann að málverk sömu stærðar og nefnt er hér á undan mundi kosta 4000 pund (u.þ.b. 250.000 ísl. kr.). Howson er ekki eins harður í pólitískum yfirlýsingum og Currie heldur lætur verkin tala. Þau fjalla um utangarðs- og úti- gangsmenn þá sem búa í nágrenni við vinnustofuna og sýna þá sem mikilfenglegar, allt að því tragískar sögupersónur. Eins og Currie hefur Howson takmarkaðan áhuga á þýska og ítalska málverkinu en þeim mun meiri áhuga á hinni „stóru evr- ópsku tradisjón" í fígúratífu mál- verki, til að mynda Courbet, Beckmann og Lucian Freud. Hefðbundin viðhorf þessara ungu málara og velgengni þeirra á lista- verkamarkaði hafa farið mjög fyrir brjóstið á þeim ungu eldhugum sem reka The Transmission Gallery, sem er nokkurs konar Suðurgata 7 þeirra Glasgowbúa. Hafa talsmenn þeirra deilt hart á málarana fyrir vöntun á metnaði, peningagræðgi og aðrar listrænar yfirsjónir. I samtali kvaðst Howson taka þessar ávirðingar nærri sér en Currie sagði andstæðinga sina vera draumóramenn sem lokast hefðu inpi í fílabeinstumi framúrstefhu. Þegar ég var í Transmission var að hefjast samsýning tveggja lista- manna, annars vegar á glannalegum málverkum í teiknimyndastíl, hins vegar á niðursetningi (installasjón) eftir Malcolm Dickson, einn af tals- mönnum Transmission. Á atvinnuleysisbótum Samtöl við hann leiddu í ljós að Transmission er nú að ganga í gegn- um svipað skeið og Suðurgata 7 gerði meðan það var og hét. Eins og stendur er áhuginn mestur á gjömingum, niðursetningum og listblendingi ýmiss konar. Ég komst líka að því að ungir lista- menn í Glasgow þiggja atvinnuleys- isbætur frá því þeir yfirgefa listaskóla og þar til verk þeirra fara að seljast. Nokkrir listamenn, sem ég ræddi við, höfðu verið atvinnu- lausir um 4-5 ára skeið. Menn ríða ekki feitum hesti frá atvinnuleysisbótum, sem nema 30 pundum á viku fyrir einstakling. Þeir sem eru svo heppnir að fá inni i einni af þeim 100 WASP vinnu- stofum, sem reknar em af Scottish Art Council i Skotlandi, þurfa síðan að greiða 8 pund á viku fyrir ca 25 m2 stúdíókompu. En það er betra en ekki neitt. Enda er mikil samkeppni um þessa vinnuaðstöðu. Þegar ég kom í WASP stúdíóin í King Street voru menn að fagna því að einn viðstaddra hafði dottið í lukkupottinn og selt Scottish Art Council mikinn fleka fyrir 500 pund (35.000 ísl. krónur). Það var einmitt þessi samstaða ungra skoskra listamanna, svo og þrautséigja þeirra og atorka, sem hafði mest áhrif á mig í þessari Glas- gowför. Snúist ytri aðstæður þeim í hag á næstu ámm er ég viss um að ungir skoskir listamenn eiga eftir að hrista upp í okkur. -ai Peter Howson með nokkrar myndir sinar af skoskum „hvunndagshetjum' Ken Currie á vinnustofu sinni, ásamt tveimur flekum sem sýna hluta af sögu málmiðnaðarmanna í Glasgow. BLAÐAUKI ALLA LAUGARDAGA BÍLAMARKAÐUR DV er nú á fúllri ferð Nú getur þú spáð í spilin og valið þér bO í ró og næði. Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bOasölum og bOaum- boðum ásamt bOasmáauglýsingum D V býður þér ótrúlegt úrval bíla. Auglýsendur athugið! Auglýsingar í bílakálf þurfa aö berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 fimmtudaga. Smáauglýsingar í helgarblað þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga. Síminn er 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.