Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987. 13 Forðist skakkar myndir Allir kannast við það hve hvimleitt það er þegar þurrkað er af málverkum og öðrum veggmyndum að þær skekkj- asat gjaman. Til að forðast þetta er gott að festa þær með „kennara- tyggjói" jafnframt hinum hefðbundnu festingum. Þetta skorðar þær á veggn- um. Notið gömlu þvottavélarnar Ef þið ætlið að keyra gömlu þvotta- vélina á haugana þá gæti þetta verið sniðugt ráð. Takið tromluna úr vélinni og hrein- sið hana. Finnið síðan miðjuna á bakhliðinni og borið gat á hana. Setj- ið perustæði í gatið og með 60 vatta peru er komin skemmtileg ljósakróna sem varpar frá sér aragrúa af litlum ljósstjörnum Urval vid állra bœfi Neytendur | U pplýsingaseðill i til samanburðar á heimiliskostnaði i Hvað kostar heimilishaldið? i | Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- I andi í upplýsingamiðlun meðai almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar I fjölskyldu af sömu stærð og yðar. I ! Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks Kostnaður í apríl 1987: Matur og hreinlætisvörur Annað kr. kr. Alls kr. Til okkar hringdi kona sem kvart- aði sáran yfir gömlum smokkum. Hafði hún komist að raun um að til sölu væru í lyijabúðum smokkar sem væru komnir fram yfir síðasta söludag. Okkur fannst þetta hið alvarlegasta mál og fórum því í heimsókn á nokkra staði sem selja þessa vöru. Og viti menn, það fyrsta sem við sáum voru smokkar sem á var letrað eftirfarandi: MFG 1983. Við leituðum áfram og sáum nokkra pakka með útrunnum smokkum. Ekki vitum við hvað þessi áletrun þýðir, né vissi það nokkur í verslúnun- um sem selja þessa vöru. En greinilegt er að um ártal er að ræða, og það nokkuð gamalt. Jafhvel þó áletrun gefi ekki til kynna síðasta söludag, heldur framleiðsludag þá er nokkuð ljóst að viðkomandi smokkur er kominn vel til ára sinna og á hvergi heima nema á haugunum. Smokkar þoma upp með tímanum og ef þeir eru mjög gamlir þá er þeim hætt við að rifna. Ef að það geríst þá er verr af stað farið en heima setið því engin er vömin. Þetta er náttúrlega ekki vel að verki staðið. Það er eins með smokka og svo margt annað að geymsluþolið er tak- markað og neytandinn verður að gæta sin. Það sem er kannski alvarlegast er að söluaðilar eru að notfæra sér gífur- lega auglýsingaherferð landlæknis- embættisins á smokkum á þann hátt að seld er gömul vai’a. löngu útrunnin. Það er leitt til þess að vita að öll þessi auglýsing sé nýtt af óprúttnum aðilum sem vilja losna við gamlar birgðir af ónýtum smokkum og sjá sér þarna leik á borði. -PLP BÍLASALAN HOFÐI Skemmuvegi 34N, símar 74522 og 74230 Tegund Árgerð Ekinn Verð Opel Ascona 1985, sjálfsk. 470.000 Opel Kadett 1985 40.000 380.000 Peugout 505 dísil, Fam 1983 204.000 530.000 Subaru 4x4 1983 74.000 330.000 Suzuki Alto 1983 32.000 200.000 Mercedes 280 SE 1977 0 490.000 Ford Sierra 1600 1985 16.000 490.000 Jaguar4,2 1973 0 330.000 Lada Samara 1986 2.000 240.000 Land Rover 1977, m. góður 220.000 Talbot Samba 1982 180.000 Audi 100 CC 1983 60.000 650.000 AudMOO CC 1984 80.000 750.000 AudMOOCD 1985 100.000 750.000 BMW315 1982 66.000 330.000 Daihatsu bitab. m/mæli 1983 0 250.000 AUK HUNDRAÐA ANNARA BÍLA Á SKRÁ. GREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Þjóðleikhúsið auglýsir eftirtalin störf laus til umsóknar frá og með 1. september 1987: Leiklistar- og bókmenntaráðunautur (Dramaturg). Þetta starf er nýtt við Þjóðleikhúsið. Leiklistar- og bókmenntaráðunautur annast m.a. könnun leikrita og annars bókmenntaefnis sem að verkefnum leikhússins lýtur og er þjóðleikhússtjóra til aðstoðar við samningu starfsáætlunar. Tónlistarráðunautur (1/3 hluti starfs). Hér er einnig um að ræða nýtt starf við leikhúsið. Tónlistarstjóri er leikhússtjóra og leikhússtjórn til ráðuneytis um allan tónlistarflutning í leikhúsinu og annast ýmis önnur skyld störf. Listdansstjóri, annast m.a. þjálfun íslenska dans- flokksins og er þjóðleikhússtjóra til ráðuneytis um verkefnaval, svo og önnur atriði er að listdansi lúta. Framkvæmdastjóri íslenska dansflokksins. i þetta starf er ráðið til eins leikárs í senn. Framkvæmdastjóri starf- ar í nánum tengslum við stjórn Islenska dansflokksins, listdansstjóra og yfirstjórn Þjóðleikhússins. Nauðsyn- legt er að viðkomandi geti starfað sjálfstætt og hafi nokkra þekkingu á listdansi og leiklistarstörfum. Starfsmaður á trésmíðaverkstæði. Starfið felur í sér smíði leikmynda og leikmuna svo og aðra trésmíða- vinnu í Þjóðleikhúsinu eftir því sem aðstæður leyfa. Iðnaðarmenntun í húsgagnasmíði áskilin. Um verksvið og skyldur vísast ennfremur til laga og reglugerðar um Þjóðleikhús svo og laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Ráðningarkjör eru samkvæmt kjarasamningi SFR og fjármálaráðherra. Nánari upplýsingar eru veittar í Þjóðleikhúsinu, Hverf- isgötu 19, sími 1 12 04. Umsókn um starf ber að skila til Þjóðleikhússins á sérstökum eyðublöðum, sem þarfást, fyrir 9. júní nk. Þjóðleikhússtjóri. AUGLÝSENDUR, ATHUGIÐ! AKUREYRARBLAÐ fylgir helgarblaði DV laugardaginn 23. mai nk. Þetta veróur í sjöunda sinn sem sérstakt AKUREYRAR- BLAÐ DV kemur út. Blaðinu verður dreift sérstaklega á AKUREYRI og næsta nágrenni og er því kjörinn auglýs- ingavettvangur fyrir þá sem þurfa að koma skilaboðum til norðanmanna. DV-AKUREYRARBLAÐ SKILAFRESTUR með auglýsingar er til föstudags 15. maí og þætti okkur vænt um að heyra frá ykkur hið fyrsta ef áhugi er á að auglýsa í AKUREYRARBLAÐI. AUGLYSINGAR, ÞVERHOLTI 11 - SÍMI 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.