Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 36
V 36 FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987.., Sviðsljós Ólyginn sagði... Brigitte Stallone ber til baka allar sögusagnir um að hún hafi í huga að yfirgefa sinn ástkæra Rambó. Og fregnir um að þau haldist ekki til lengdar á heimavígstöðvum eru rakin lygi, að sögn Ijóskunnar. Yfirleitt hangi þau heima al- sæl hvort með annað, horfi á sjónvarp eða fari saman í sturtu. Svo kitlar Rambó Gitte sína af og til þannig að hún hljóðar þar til húsið ætlar að tifna frá grunninum. Þetta er vístdeginum sann- ara og sögurtnj^fylgir stað- hæfing þessa fagra Bauna að hún hefði gifst Rambó þótt hann hefði verið götu- sópari - og myndi fela hann eftir morð á tólf manns í einni bunu. Ekki svo margt sem sá góði maður þarf að láta á móti sér að dómi Gitte svo það er bara að bretta upp ermarnar sértu hinn eini sanni Rambó Stallone. Julian Lennon kom öllum á óvart með því að mæta í samkvæmi í henni Hollí með Kate Wagner und- ir arminn. Þau eiga bæði fræga feður og ættu því að skilja hvort annað en ein- hverjir vildu vita hvar Kate geymdi kærastann, Dweezil Zappa, þessa dagana. Julian og Kate þóttu hið fegursta par saman og til mikils sóma fyrir karlana - John Lennon og Robert Wagner. Ekkir spillir að Julian er svo söngvinn mjög en Kate á það til að leika við hvurn sinn fingur. Sybill Shepherd kom vinum sínum rækilega á óvart þegar hún bauð til brúðkaups síns og doktors- ins Bruce Oppenheim. Vígslan fór fram í heimahúsi og við inngönguna að húll- umhæinu beið sjö ára dóttir hennar og hirti gesti sam- viskusamlega úr skónum. Þeim var síðan vísað til sæt- is á púðum sem þöktu öll gólf íbúðarinnar. Þar sagðist Sybill gera ráð fyrir að þetta hjónaband dygði það sem eftir væri ævinnar og lét það fljóta með í lágum hljóðum að stærstu fréttirnar yrðu að teljast væntanleg koma af- kvæma í þennan heim - þau hjónin væntu tvíbura á næstu mánuðum. Skríbent- ar Moonlightingþáttanna drifu í sig tebollann og kampavínið en hentust síð- an að skrifborðunum til þess að skrifa staðreyndirnar á þægilegan máta inn í þátta- röðina. Tvær stelpur umkringdar Það voru höfð hröð handtök hjá laganna vörðum þegar upplýsingar bárust um að harðsnúið hjólagengi væri að spæna upp svæðið í kringum Stýrimanna- skólann. Staðurinn var umkringdur í snatri en lítið höfðu löggurnar upp úr krafsinu. Gengið reyndist samanstanda af tveimur stelpum sem óku á fjórhjóli sér til skemmtunar og var önnur þeirra með fullgild réttindi til slíks aksturs. Hlegið var dátt að öllu saman og engum stungið bak við lás og slá að þessu sinni. DV-mynd SÞ Um sióustu helgi var haldin sýning á nýrri tegund hannyrða sem notast við taulitspenna sem hægt er að teikna með myndir og mynstur á bómull, flauel, rúskinn, tré og silki. Munirnir á sýningunni komu frá fólki viðs vegar af landinu á aldrinum tíu til áttatíu og fimm ára, en aldraðir hafa í auknum mæli spreytt sig á þessari tómstundaiðju. Það voru þær Sólveig Péturs- dóttir og Þórdís Jónsdóttir frá Föndurstofunni Keflavík sem stóðu fyrir sýningunni. Guðmundur Jónsson, eða Gussi eins og hann er kallaður af íslendingum, við afgreiðsluborðið á nýja barnum í Torremolinos. íslendingur opnar bar í Torremolinos Islenskur maður, Guðmundur Jónsson, hefur opnað bar í Torremol- inos á Costa del Sol á Spáni og má segja að „Gussabar", eins og hann heitir, sé orðinn miðstöð þeirra fjöl- mörgu íslendinga sem sækja Torre- molinos heim á hverju sumri. Guðmundur, eða Gussi eins og hann er kallaður, opnaði barinn sinn í fyrrasumar og leið ekki á löngu þar til landinn gerði hann að miðstöð sinni. „Gussabar“ er alveg í hjarta bæjarins Torremolinos, við götu sem heitir Caje Casablanca. Guðmundur hefur dvalið í Torre- molinos síðan 1974 og hefur unnið sem þjónn á ýmsum veitingastöðum og börum þar syðra uns draumurinn um eigin bar rættist í fyrra. Gussi sagði að það væri greinilegt að Is- lendingum þætti þægilegt að hafa þjón sem talaði íslensku og því mættu menn gjarnan á kvöldin áður en þeir færu á diskótek eða aðra dansstaði. Hann sagði að barinn hefði lítið verið opinn i vetur en hann opnaði um páska um leið og fyrstu hóparnir komu frá íslandi og barinn verður opinn fram í nóvember í haust. -S.dór Matthías Bjarnason samgönguráðherra klippir borðann og opnar þar með formlega brúna á Leiruveginum nýja, „Borgarfjarðarbrú Eyfirð- inga“. DV-mynd JGH Bjarnason og borðinn Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: Matthías Bjarnason opnaði form- lega á dögunum nýju brúna á Leiruveginum við Akureyri. Akur- eyringar hafa stundum rætt um þetta sem sína Borgarfjarðarbrú þar sem Leiruvegurinn liggur þvert yfir Eyjafjörðinn norðan flug- brautarinnar. Brúin er dágott mannvirki og leysir gömlu brýrnar þrjár sunnan flugbrautarinnar af hólmi. Bjarnason óskaði að sjálf- sögðu íbúum Norðurlands til hamingju með brúna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.