Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Page 9
I
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987.
7
Bylting á
Fijieyjum í nótt
Stjórnarbylting varð á Fijieyjum í
nótt þegar tíu menn úr her eyjanna
réðust inn i þinghús landsins undir
forystu þriðja æðsta manns hersins
og tóku höndum Timoci Bavadra
forsætisráðherra og ríkisstjóm hans.
Fiji-eyjar em klasi liðlega þrjú
húndmð eyja, um tvö þúsund kíló-
metra norður af Nýja-Sjálandi.
Eyjamar eru hluti af breska sam-
veldinu en hlutu sjálfstæði árið 1970.
Undanfarna mánuði hefur spenna
milli tveggja helstu kynþátta á eyj-
unum farið vaxandi. Ibúar af ind-
verskum uppruna, sem fluttust til
eyjanna meðan þær lutu yfirráðum
Breta, mynda nauman meirihluta og
hefur gætt mikillar óánægju meðal
Fijimanna, sem em í minnihluta,
með stjóm þeirra.
í tilkynningu frá upplýsingaráðu-
neyti Fiji-eyja í morgun segir að her
landsins hafi tekið ríkisstjómina í
sínar hendui- til þess að koma í veg
fyrir frekari óróa og blóðsúthelling-
ar í landinu.
Leiðtogi byltingarmanna, Sitiveni
Rabuka, sem er þriðji æðsti maður
hersins, leitast nú eftir því að fá rík-
isstjórn hersins viðurkennda sem
réttmæta. Hann fór þess í morgun á
leit við íbúa Fiji-eyja að þeir héldu
ró sinni.
Timoci Bavadra, forsætisráðherra Fijieyja, er nýliði i stjórnmálum sem
hefur helgað sig læknisfræðinni mestallt líf sitt. Hann er nú i haldi byltingar-
manna. Simamynd Reuter
_________________Úflönd
356 gallar á
kjarnaofnum
Snorri Vaisson, DV, Vin;
Austurríki er eitt þeirra landa sem
samþykkt hafa að nýta ekki kjamorku
til orkuöflunar. Hafði þegar verið reist
eitt kjarnorkuver er þessi samþykkt
var gerð og stendur það nú hálfkarað
og ónotað.
En það er ekki nóg að afneita kjam-
orkunni í eigin landi þegar nágrann-
amir gera ekki slíkt hið sama.
Við rannsókn sovéskra sérfræðinga
á tékkneskum kjamorkuverum nú
nýverið kom í ljós að skipulagi og
öryggismálum er þar mjög ábátavant.
Til að mynda voru gerðar 356 athuga-
semdir við þau tvö kjamorkuver sem
standa næst austurrísku landamæmn-
um en þau em í aðeins um 90 kíló-
metra Qarlægð frá Vín.
I nýúkominni skýrslu Grænfriðunga
um kjamorkuver í Tékkóslóvakíu er
gerð úttekt á hvaða afleiðingar alvar-
legt kjamorkuslys gæti haft fyrir Vín
og nágrenni hennar. Kemur þar í ljós
að í hægri norðanátt gæti geislavirkn-
in náð til Vínar á um það bil sex
klukkustundum.
Talað er um í samkomulagi Tékka
og Austurríkismanna að ef til slíks
komi verði tafarlaust send aðvömn til
Austurríkis en það liggur í augum
uppi að tíminn er alltof naumur til
raunhæfra aðgerða. Til dæmis tæki
flutningur fólks frá Vín mun lengri
tíma.
Tékkneskir ráðamenn hafa þegar
svarað þessum athugasemdiun og
dregið mjög úr bæði göllunum og af-
leiðingum mögulegs slvss. Hins vegar
sé alltaf einhver áhætta fyrir hendi en
henni sé auðvitað haldið i algjöru lág-
marki.
Heræfingamar
í Honduras
hófust í gær
Sameiginlegar heræfingar Banda- í Honduras, á lendingarprömmum.
ríkjamanna og herja Mið-Ameríkurík- Heræfingar þessar hafa verið nefnd-
isins Honduras em hafnar. í gær óku ar „Solid Shield“ eða heilsteyptur
fyrstu bandarísku hermennimir á land skjöldur.
Fyrstu bandarisku hermennirnir lenda á strönd Honduras, komnir til æfinga.
9
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:....91-31815/686915
AKUREYRI:......96-21715/23515
BORGARNES:............93-7618
BLÖNDUÓS:........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:......95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:........96-71489
HÚSAVÍK: ......96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:..........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI:.......97-8303
interRent
Lagerhillur
og rekkar
^BBBBBB
Eigum á lager og útvegum með
stuttum fyrirvara allar gerðir af
vörurekkum og lagerkerfum.
Veitum fúslega allar nánari
Smraumisr
BiLDSHÖFÐA 16 SiMI.6724 44
Spurðir álHs
um framhjáhald
Ólafur Amaison, DV, New York:
I kjölfar falls Gary Harts hafa aðr-
ir vonbiðlar um forsetaembættið úr
báðum flokkum verið mjög tregir til
að svara spurningum um það hvort
framhjáhald frambjóðenda eigi að
vera kosningamál.
Aðeins einn frambjóðandi, séra Pat
Robertson, sem er repúblikani, hefur
lýst yfir þeirri skoðun sinni að slík
umræða sé réttmæt. Aðrir hafa lýst
áhyggjum sínum yfir að slík umræða
muni draga stjórnmál niður á óæðra
svið. Sumir hafa algerlega neitað að
tjá sig um málið.
Það var stórblaðið The New York
Times sem lagði spurningar um þetta
efni fyrir frambjóðendur. Virðist
greinilegt að einhver taugatitringur
hefur brotist upp á yfirborðið meðal
stjórnmálamanna eftir ófarir Harts
og eru menn mjög varir um sig þegar
rætt er um þessi mál. Ef til vill er
ekki vanþörf á því svo virðist sem
fjölmiðlar fylgist nú mjög náið með
orðum og gjörðum manna, sem eru
í fremstu víglínu bandarískra stjórn-
mála, í leit að misfellum.
Þess má svo geta að Gary Hart hóf
í gær störf á lögfræðiskrifstofu þeirri
í Denver í Colorado sem hann starf-
aði á í tvö ár áður en hann varð
forsetaframbjóðandi.
GLÆSIVAGNAR
Glæsilegur sportblll.
Subaru 1800 coupé TURBO 4x4 árgerö
1987, ekinn 7 þus. km, sjálfskiptur,
vökvastýri, rafmagn I rúöum og spegl-
um, sóllúga, lifur hvitur, útvarp/segul-
band, skipti koma til greina á ódýrari
bifreið. Verð 790 þús.
Mercedes Bens 190 E árgerð 1985, ALVÖRU JEPPI.
ekinn 52 þús. km, sjálfskiptur. vökva-
stýri, sóllúga, litað gler, útvarp/segul-
band, litur grænn metallic, skipti koma
til greina á ódýrari bifreið. Verð 950
þús.
Nissan Patrol Turbo High Roof Diesel
árgerð 1985, björgunarsveitarútgáfan,
ekinn aðeins 15 þús. km, 6 cylindra, 5
gira, vökvastýri, útvarp/segulband,
gangbretti, brettakantar, spil 4ra tonna,
silfurlitaöur, skipti koma til greina á
ódýrari bifreið. Verö 1200 þús.
Mitsubishi Pajero, styttri gerð, árgerð
1985, bensínvél, ekinn 52 þús., vökva-
stýri, breið dekk, white spoke felgur,
allur klæddur og teppalagður að innan
frá Ragnari Valssyni, útvarp/segul-
band, litur blár, skipti koma til greina
á ódýrari bifreið. Verð 580 þús.
CHEVROLET pickup yfirbyggður 4x4
árgerö 1979, með original disilvél, ek-
inn 15 þús. km á vél, DANA 20 drif,
fjótandi hásingar, 8 cylindra, sjálfskipt-
ur, vökvastýri, útvarp/segulband, skipti
koma til greina á ódýrari bifreið. Verð
690 þús. Góð kjör, ath. skuldabréf.
Toyota Hilux yfirbyggður árgerð 1981,
ekinn 5 þús. km á vél sem hefur verið
yfirfarin, bensínvél, white spoke felgur,
vel útlitandi, skipti koma til greina á
ódýrari bifreið. Verð 490 þús.
Mazda 929 station árgerð 1984, ekinn
aðeins 38 þús. km, sjálfskiptur, vökva-
stýri, útvarp/segulband, sumar- og
vetrardekk, litur drapp, skipti koma til
greina á ódýrari bifreið.
Verð 450 þús.
KAUPENDUR/SELJENDUR, ATHUGIÐ:
MIKIÐ ÚRVAL BIFREIÐA OG GREIÐSLUKJÖR VIÐ
FLESTRA HÆFI:
CHEVROLET SCOTTSDALE yfirbyggð-
ur 4x4 árgerð 1979, ekinn 10 þús. km
á vél sem er nýupptekin, 8 cylindra,
sjálfskiptur, vökvastýri, útvarp/segul-
band, skipti á ódýrari bifreið koma til
greina, einnig greiðsla með skulda-
bréfi. Verð 590 þús.
KAUPENDUR/SELJENDUR, ATHUGIÐ:
MIKIÐ ÚRVAL BIFREIÐA OG GREIÐSLUKJÖR VIÐ
FLESTRA HÆFI: