Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Page 17
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987.
17
írska lagið var langt frá því að vera I „toppklassa" en fékk vinninginn vegna þess að það var sungið af hinum fræga
Johnny Logan sem var útnefndur sigurvegari af fréttamannaklíkunni löngu áöur en keppnin fór fram.
Eurovision:
Urslitin ráðin fyrir-
fram með auglýsingaskrumi
G.H. Jónsson skrifar:
Ég leyfi mér hér með að leggja orð
í belg um hin dæmalausu úrslit í
söngvakeppninni og byggi ummæli
mín á því að ég hef yndi af góðri tón-
list og er þar af auki kominn af mjög
músíkölsku fólki.
Greinilegt virtist að írska lagið, sem
var langt frá því að vera í „topp-
klassa“, nánast miðlungsgott popplag,
fékk vinninginn vegna þess að það var
sungið af hinum fræga JohnnyLogan
sem var útnefndur sigurvegari af
fréttamannaklíkunni löngu áður en
keppnin fór fram.
Að mínu mati voru tvö lög í sér-
flokki í keppninni, það þýska og
júgóslavneska, það var i reynd ógem-
ingur að gera upp á milli þeirra. Svo
var t.d. danska lagið mjög gott líka.
Mér finnst að Eurovisionkeppninni
hafa farið mjög aftur þegar svo er
komið að fréttamannaklíkan og aug-
lýsingaskrum getur hreinlega ákveðið
úrslitin fyrirfram þannig að bestu lög-
in vinna ekki. Þetta er fyrir neðan
allar hellur og skömm að því.
íslenska lagið naut sín því miður
ekki sem skyldi vegna þess að það var
greinilega svo gott sem enginn hljóm-
burður í keppnissalnum. Þess vegna
gat Halla Margrét ekki borið lagið
uppi eins og hún arrnars gerði svo fiá-
bærlega hér heima. Eins og margir
segja er sennilega þetta ljúfa skemmti-
lega lag hreinlega of gott til að verða
ofarlega í þessari keppni.
Tónlistarfólkið okkar stóð sig mjög
vel við erfiðar aðstæður og á bæði
hrós og þakkir skildar fyrir frammi-
stöðu sína. Enda er sagt að tónlistar-
menn keppnishljómsveitarinnar hefðu
viljað að íslenska lagið ynni, það segir
greinilega sína sögu um gæði lagsins
og það ekki litla!
Fleiri tónleika með Gypsi
„Gypsi er fvimælalaust eitt það besta sem komið hefur fram í islensku tónlistarlifi svo lengi sem elstu menn muna.“
6176-8696 skrifar:
Eiga Islendingar nokkum tíma eftir
að læra af reynslunni? Eiga þeir nokk-
um tímann eftir að skilja að íslensk
framleiðsla er fyllilega sambærileg við
erlenda? Ef svo er væri nafn hljóm-
sveitarinnar Gypsi á hvers manns
vömm og tónlist hennar í hvers manns
eyrum. Reynið að líta ykkur nær. Því
að vera eltast við útlenda fimmaura-
rokkara þegar við höfum þúsundkall-
ana hér heima?
Tilefni þessara skrifa eru hreint
kynngimagnaðir tónleikar sem Gypsi
hélt á Hótel Borg ásamt Bláa bílskúrs-
bandinu og Exist sem samanstendur
af reyndum mönnum og miklum köpp-
um eins og Eiríki Haukssyni og
Guðlaugi Falk.
Þeir sem húktu heima geta nagað
sig í handarbökin því að fólk missti
af alveg einstakri skemmtun sem ekki
býðst á hverjum degi. Þama var val-
inn maður við hvert hljóðfæri og eigi
færri en þrír stórsöngvarar létu í sér
heyra, þeir Eiríkur Hauksson og bræð-
urnir Jóhannes og Eiður Öm Eiðssyn-
ir sem tóku þama raddblöndun saman
og sungu dúett við mikinn fögnuð við-
staddra.
Gypsi er tvímælalaust eitt það besta
sem komið hefur fram í íslensku tón-
listarlífi svo lengi sem elstu menn
muna. Ég hreinlega neita að trúa því
að þetta ár ætli að líða án þess að hún
gefi út plötu. Og hvar em útsendarar
allra þessara fjölmiðla eiginlega með
augun og eymn? Ég vil að lokum
benda fólki á að gera sjálfu sér þann
greiða að mæta á næstu Gypsitónleika
sem verða vonandi sem fyrst. Við sem
vorum á borginni fyrmefnt fimmtu-
dagskvöld komum ömgglega aftur.
AÐALFUNDUR
Húseigendafélagsins verður haldinn föstudaginn 22.
maí á skrifstofu félagsins, Bergstaðastræti 11A, kl.
17.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning stjórnar
3. Önnur mál.
VZS4
KREDIDKOR TAÞJONUS TA
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTfG 29.
Opið á laugardögum
PANTANIR
SÍMI13010
NÁKVÆMNI - DUGNAÐUR
Við leitum að stundvísri, líflegri stúlku, 20-25 ára, með
þægilegt viðmót og góða íslensku- og vélritunarkunn-
áttu.
Vinnutími kl. 13-17.
Við bjóðum bjartan og góðan vinnustað og góðan
starfsanda.
Skriflegar umsóknir sendist auglýsingadeild DV fyrir
þriðjudaginn 19. maí merkt „FRAMTÍÐ - DUGNAÐ-
UR 232".
LUKKUDAGAR
VINNINGASKRA
FYRIR APRÍL 1987
1. apríl 34935 17. apríl 50601
2. april 59190 18. apríl 27093
3. apríl 9568 19. apríl 38251
4. apríl 57305 20. apríl 9643 j
5. apríl 75511 21. apríl 36290
6. apríl 7176 22. april 14868
7. apríl 63281 23. apríl 77977
8. apríl 20239 24. apríl 35092
9. apríl 21103 25. apríl 68280
10. apríl 9230 26. apríl 16194
11. apríl 20890 27. apríl 1369
12. apríl 41917 28. apríl 65047
13. apríl 44230 29. apríl 71080
14. apríl 1577 30. apríl 57010
15. apríl 25816
16. apríl 52394 Upplýsingar í síma 91-82580.
V Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður
\ '• færð á kortið.
) Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar
/ og ganga frá öllu i sama símtalið
/Hámark kortaúftektar i síma er kr. 4.00Ö,,-
/Nafn - heimilisfang
/ og gildistima og áð
Hafið tilbúið:
- síma - nafnnúmer -kortnúmer
sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.
7