Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Síða 21
20
FIMMTUDAGUR 14. MAI 1987.
Iþróttir
• Tony Knapp brosir breitt þessa
dagana enda liö hans, Brann, i
efsta sæti.
Úrýmsum
áttum
Framtíð Jesper Olsen hjá Manc-
hester United virðist vera nokkuð
örugg. Nú liggur frammi samning-
ur á Old Traford sem trvggir litla
Dananum 24 milljónir króna í laun
á næstu tveim árum - og er það
fvrir utan bónusgreiðslur. Síðan
Alex Ferguson kom til liðsins hef-
ur birt vfir framtíð Olsen sem átti
þar orðið heldur auma ævi undir
stjóm Ron Atkinson.
• Brasilíumaðurinn Julio Cesar
Silva hjá franska liðinu Brest er á
(örum frá liðinu. Fer hann jafnvel
til Benfica í Portúgal en nokkur
frönsk lið hala áhuga á kappanum
sem þótti einn besti vamarmaður
HM í Mexíkó.
• Bjami Sigurðsson er nú hæst-
ur í stigagjöf knattspyrnumanna
hjá Dagbladet í Noregi. Bjarni er
með 10 stig eftir tvær umferðir
ásamt þrem öðrum leikmönnum
en Bjami fékk 4 í einkunn nú um
helgina þegar Brann sigraði Lille-
ström eftir vítaspyrnukeppni þar
sem Bjarni varði tvær spyrnur.
Gunnar Gíslason er með 6 stig en
hann fékk aðeins tvo í einkunn
nú um helgina.
Brann og Moss em nú efst í
norsku 1. deildinni með 5 stig.
• Jesper Olsen fær 24.000.000.
• Markahæstu menn á ítalíu
em:
Pietro P. Virdis, Milano....17
Alessandro Altobelli, Inter.11
Gianluca Vialli, Sarapdoria.11
Diego Maradona, Napoli......10
Ramon Diaz, Fiorentina......10
• Daninn John Eriksen hefúr ve-
rið í miklum ham með Servette í
Sviss. Hann skoraði tvö mörk nú
í vikunni þegar Servette sigraði
Sion, 3-1. þar með hefúr hann
skorað 26 mörk í vetur og er lang-
markahæstur í Sviss. Svíinn Steen
Thychosen er í 2. sæti með 20 mörk.
• Stangarstökk kvenna er ekki
útbreidd íþrótt en þó munu þær
konur vera til sem leggja þessa
íþrótt fyrir sig og fer þeim að sögn
fjölgandi. Þetta er mest stundað í
V-Þýskalandi og þar hafa þær
bestu náð að stökkva yfir 3,5 m.
Því er spáð að konur nái fljótlega,
með betri tækni, að stökkva yfir 4
metra. Þess má gera að Banda-
ríkjamaðurinn Marc Wright var
fyrstur karlmanna til að stökkva
yfir 4 metra og það gerði hann
1912. -SMJ
• Marco Van Basten lyftir hér höndum fagnandi eftir aö hafa skorað sigurmark Ajax á 21. mínútu Símamynd Reuter
Ajax aftur á toppinn
sigraði Leipzig 1-0 í slökum úrslitaleik í Aþenu
Ajax Amsterdam er aftur komið á topp-
inn í evrópskri knattspymu. Þrátt fyrir
heldur dapra frammistöðu þeirra blóma-
ræktenda í gærkvöldi dugði mark frá
Marco Van Basten til þess að tryggja
liðinu 1-0 sigur yfir a-þýsku bikarmeistur-
unum Lokomotiv Leipzig á hálftómum
ólypíuleikvanginum í Aþenu. Þetta er í
fyrsta skipti sem Ajax sigrar í Evrópu-
keppni bikarhafa en 1971, 1972 og 1973
sigraði liðið í Evrópukeppni meistara-
liða. Þá lék Johan Cruyff með liðinu en
hann er nú framkvæmdarstjóri liðsins.
Leikurinn var þó líklega minnistæðast-
ur fyrir Amold Múhren sem nú hefur
unnið í öllum þrem Evrópukeppnunum.
Hann kom inná sem varamaður 1972 og
1973 þegar þeir unnu meistarakeppnina
og síðan sigraði hann í UEFA keppninni
með Ipswich 1981. Einstætt afrek hjá
þessum 35 ára gamla leikmanni sem lék
ágætlega í gær þrátt fyrir að hann hefði
átt við nokkur meiðsli að stríða.
Leikmenn Ajax komu mun ákveðnari
til leiks í gærkvöldi og sýndu strax að
þeir stóðu Þjóðverjunum mun framar í
tækni og snerpu. Á 21. mínútu kom síðan
eina mark leiksins þegar Basten skallaði
glæsilega inn góða fyrirgjöf frá bakverð-
inum Silooy. Eftir markið drógu leik-
menn Ajax sig til baka og þyngdist sókn
Þjóðverja mjög í seinni hálfleik. En inn
vildi boltinn ekki þó að bæði lið fengu
ágæt tækifæri. Bestir hjá Ajax voru Van
Basten, sem er frábær leikmaður þrátt
fyrir að vera aðeins 22 ára. Verður fróð-
legt að fylgjast með honum hjá AC Mílan.
Þá var Frank Rijkaard einnig mjög góð-
ur á miðjunni og markvörðurinn Stanley
Menzo var mjög öruggur. Lið Þjóðverja
sem var þama að leika sinn fyrsta úrslita-
leik var ekki sannfærandi og hálf furðu-
legt að það skildi komast þetta langt.
Annars var leikurinn hálf daufur á að
horfa og lítil skemmtun miðað við úr-
slitaleikinn í fyrra þegar Dynamo Kiev
rúllaði Atletico Madríd upp.
„Lékum vel“
Johan Cruyff var að vonum ánægður
með sigurínn eftir leikinn þegar hann
ræddi við fréttamenn. „Við lékum góða
knattspymu og ég er ánægður með það.
Ég vonast til þess að okkur takist að
gera knattspymu aftur á ný heillandi
fyrir áhorfendur eins og hún var í gamla
daga. - Og ekki síst að leikur okkar sýni
að ekki er þörf á að leika gróft til að ná
árangri. Ég var sérstakleg ánægður með
vamarmenn okkar sem gáfú sóknar-
mönnum Leipzig aldrei stundarfrið,'1
sagði Cruyff sem nú stendur á fertugu.
-SMJ
Bæjarkeppnin
hófst með
markaregni
Bæjarkeppni HSl og RUV hófst í Eins og tölumar í þessum rimmum
gærkvöldi. gefa til kynna voru vamir liðanna
Selfyssingar tóku þá á móti Akur- jafiian sem hrip. Mestur þungi var
eyringum og töpuðu, 26-40. Þó lágu enda lagður í sóknina - gamninu var
Seltimingar fyrir Garðbæingum á skipað i öndvegi.
Nesinu. Gerðu heimamenn 35 mörk I undanúrslitasleikjum bæjarkeppn-
en gestimir 40. innar, sem fara fram á fóstudag,
Þá töpuðu Keflvíkingar fyrir Hafn- mætast þessi lið:
firðingum á heimavelli sínum, 22-27. Akureyri - Garðabær
Njarðvíkingamirbiðusömuleiðslægri Reykjavik - Hafnarfjörður
hlut í sinni viðureign og það í sjálfri Þess má geta að á Selfossi vom ung-
Ljónagryfjunni. Þeir Njarðvíkingar mennafélagi staðarins veitt verðlaun
glímdu við liðsmenn Reykvíkinga og fyrir sigur í þriðju deild íslandsmótsins
gerðu 16 mörk en Reykjavíkurúrvalið i handknattleik.
33. Betra seint en aldrei. -JÖG
• Markahríð ógurleg brast á í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi er bæjarfélag staðarins
glímdi viö Garðbæinga í handknattleik. 75 mörk voru skoruð í leiknum -geri aðrir betur.
DV-mynd GS
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987.
21 .
íþróttir
Lárus til Kaiserslautem
fyrir „IWar“ 15 mllUónir
„Þetta gengur allt kraftaverki næst,“ segir Lárus
Lárus Guðmundsson, knattspymu-
kappi hjá Bayer Uerdingen í V-þýska-
landi, Var í gær seldur til Kaiserslaut-
em, hins heimsþekkta knattspymufé-
lags þar í landi.
Kaupverðið var litlar 15 milljónir
krónur eða rúm 700 þúsund v-þýsk
mörk.
í spjalli við DV í gærkvöldi kvaðst
Lárus mjög ánægður með farsælan
endi þessara félagaskipta.
„Ég er í sjöunda himni," sagði hann,
„þetta gengur allt kraftaverki næst.
Sérstaklega þó ef hliðsjón er höfð af
yfirstandandi leiktímabili sem hefur
verið mér mjög þungt í skauti. Meiðsl
hafa ráðið miklu um mína hagi í vetur
og því er ótrúlegt að komast að hjá
jafnsterku liði og Kaiserslautem
óneitanlega er. Ég lék til að mynda
ekkert opinberlega í heila ellefu mán-
uði vegna meiðslanna."
Lárus hefur átt góða leiki í vor
Samkvæmt heimildarmönnum
blaðsins í V-Þýskalandi kemur þessi
sala meðal annars til vegna ágætrar
frammistöðu Lámsar nú í vor. Þótt
kappinn hafi ekki gert nema eitt mark
hefur hann engu að síður verið spræk-
ur og skæður í framlínunni hjá
Uerdingen.
Þess má að lokum geta að samning-
ur Lárusar við það félag rennur ekki
út fyrr en 30. júní. Hann mun því ekki
hefja störf eða leika með Kaiserslaut-
em fyrr en í upphafi næsta keppnis-
misseris.
-JÖG
Bæjarkeppni
- fýrir hvem?
- Seltirningar óhressir með bæjarkeppnina
„Það kom okkur mjög á óvart að fá
ekki að nota þessa stráka - við hér á
Seltjamanesi héldum að hér væri um
bæjarkeppni að ræða en nú finnst
okkur mesti glansinn farinn af keppn-
inni. Við höfðum látið gera sérbúninga
út af keppninni og mikil stemmning
ríkti í liðinu," sagði Ásgerður Hall-
dórsdóttir, stjómarmaður hjá hand-
knattleiksdeild Gróttu.
Mikil óánægja er nú á Seltjamar-
nesi með framkvæmd á bæjarkeppni
HSÍ og RUV. Þeir Seltimingar höfðu
ætlað sér að nota þá Áma Friðleifs-
son, Víkingi, Júlíus Jónasson, Val, og
Þorsteinn Guðjónsson, KR, í liðinu
hjá sér enda em þeir allir búsettir á
Nesinu og með lögheimili þar. Þeir
Þorsteinn og Júlíus höfðu mætt á æf-
ingar með liðinu og var mikil hugur
í þeim Seltimingum enda hefðu þre-
menningamir styrkt liðið mjög og gert
þessa keppni jafnari og skemmtilegri.
„Þegar við komum niður í HSÍ á
þriðjudag og gáfum upp okkar lið
fréttum við að Reykjavíkurliðið ætlaði
að nota þá. Við mótmæltum því að
sjálfsögðu en fengum að heyra að það
þýddi ekkert. Þessar fréttir komu okk-
ur mjög á óvart enda höfðum við þær
einu upplýsingar að hér væri um þæj-
arkeppni að ræða og aldrei fengið
neina tilkynningu um hvaða menn
megi nota. Ég efast um að við hefðum
tekið þátt í þessu móti ef við hefðum
vitað af þessu fyrirfram því þetta
tryggir Reykjavík algera yfirburði.
Þetta mót er bara félagakeppni og ég
sé ekki betur en að Grótta og Stjaman
Careca á
200 miiljónir
Landsliðsframheiji þeirra Brasilíu-
manna, hann Careca, hefúr nú sett
nýtt met í heimalandi sínu. Met þetta
kemur knattspymunni sjálfri litið við
en hins vegar tengslum knattspymu-
mannsins við íþróttafélagið sem
stofnun eða fyrirtæki.
Málum er þannig varið að Careca
var seldur frá brasilíska liðinu Sao
Paulo, fyrir 208 milljónir króna, til ít-
ölsku landsmeistaranna í Napoli.
Careca fær sjálfur ríflegt skotsilfur
í sinn hlut, eða um 40 milljónir. Síðan
fær hann 24 milljónir á ári fyrir að
sparka tuðmnni hjá þeim ítölsku.
Careca verður kynntur áhangendum
Napoliliðsins með mikilli viðhöfn þar
sem komið verður á sýningarleik milli
liðsins og Sao Paulo seint í júnímán-
uði. Mun kempan leika sinn hálfleik-
inn með hvom liði. -JÖG
hafi verið að keppa í gærkvöldi," sagði
Ásgerður.
Hjá HSÍ fengust þau svör að vissu-
lega hefðu verið um þetta skiptar
skoðanir en ákveðið að láta það ráða
hvaða bæjarfélagi menn hefðu leik-
heimild hjá. Þetta hefði öllum átt að
vera ljóst en hugsanlegt væri að þessu
yrði breytt næsta ár. -SMJ
• Lárus Guömundsson getur nú hengt Uerdingenskyrtuna á snaga. Hann
mun nefnilega leika i herklæðum Kaiserslautern á næsta keppnistímabili.
Félagið reiddi fram 15 miiljónir fyrir krafta hans.
• Fritz Walter, sem hér sést
fyrir miðri mynd, leikur með
Stuttgart á næsta ári.
Nýir miðherjar
hjá Stuttgart og
Bayern Miinchen
Bayem Múnchen hefur náð sam-
komulagi við Schalke um kaup á
Júrgen Wegman og mun greiða
fyrir hann 1.15 milljónir marka -
24 milljónir króna. Wegman er
miðherji og áður hafði Bayem
keypt annan miðheija. Uwe Tschi-
skale. frá Wattenscheid í 2. deild.
Dieter Hoeness. miðherji Bavem.
hefur tilkynnt að hann hætti
knattspvrnu eftir leiktímabilið.
Úrslitaleikurinn í Evrópubikarn-
um við Porto 27. maí verður síðasti
leikur hans með Bavem.
I dag mun Stuttgart kaupa Fritz
Walter frá Waldhof Mannheim.
Kaupverð hefur ekki verið gefið
upp en Walter. sem er 26 ára. hefur
skorað 20 mörk á leiktímabilinu.
-hsím
Guðmundarnir á heimleið?
- Möguleiki á því að Gummi Torfa og Gummi Steins leiki með Fram í sumar
„Það fer einfaldlega eftir þvi hvort
við forum upp eða ekki hvort ég
verð áfram hjá Offenbach," sagði
Guðmundur Steinsson knattspymu-
kappi er hann var spurður um
möguleika á þvi að hann kæmi heim
í sumar og aðstoðaði Framara við
að veija meistaratitilinn. Framarar
eru nú búnir að tapa einum af þeim
titlum sem þeir unnu til í fyiTa og
hefur sést á vorleikjum liðsins að
það þarf að skerpa sóknina töluvert
ef fylgja á eftir hinum góða árangri
liðsins þá. Svo gæti farið að þeir
Raípiar Margeirsson, Guðmundur
Steinsson og Guðmundur Torfason
komi leiki með liðinu í sumar og
þarf ekki að lýsa því hve rnikill
styrkur yrði í þeim félögum.
„Ég tel góðar líkur á því að við
förum upp og þá vonast ég eftir
áframhaldandi samningi. Ef það
gengur ekki kem ég heim og leik
með Fram síðari hluta mótsins."
sagði Guðmundur Steinsson. Lik-
lega \töí Guðmundur löglegm- með
Fram í upphafi seinni umferðarinnar
og ætti því að geta leikið gegn Þór
á Akureyri í 10. imiferð sunnudaginn
19. júlí. Það kom fram í samtali við
Halldór B. Jónsson. formann Fram.
að Guðmundur. sem er aðeins bund-
inn Offenbach með leigusamningi.
leikur sinn síðasta leik fyrir liðið i
úrslitakeppninni á milli 16. og 20.
júní og yrðu þá félagaskipti hans
send samstundis inn.
Guðmundur hefur ekki náð að
sýna sitt rétta andlit hjá Offenbach
og játaði hann að hlutmrir hefðu
ekki gengið upp eins og hann_hafði
vonast til. Hann hefur átt við veik-
indi að stríða og ekki fengið að leika
sína stöðu hjá liðinu. Hann sagðist
þó vera bjartsýnn á áframhaldandi
veru sína en þjálfari Mannheim.
Klaus Slappner. verður ráðinn til
Offenbach ef liðið kemst í atvinnu-
mannadeildina.
Gummi Torfa heim í maílok?
Það virðist allt vera á huldu með
samningstíma Guðmundm- Torfa-
sonar hjá Beveren. Guðmmidm-
sjálfiir telur að hann hafi gert 2 1 -
árs samning hjá liðinu en ritari fé-
lagsins hefm- margofl lýst því yfir
að aðeins hafi verið mn revns-
lusamning að ræða sem renni út í
maílok. Verði Guðmundur þá látinn
fara frá félaginu enda hafi hann
ekki uppfyllt þær vonir sem gerðar
voni til hans. Þetta skýtm- dálitið
skökku við því varla er hægt að
segja að Guðmundur hafi fengið
sanngjamt tækifæri hjá liðinu.
Hann hefur rétt fengið að koma inn
á í lok leikja. ef hann hefur vfirleitt
verið á bekkmmi.
„Það hefm- ekkert komið fram sem
bendir til þess að Guðmundur Torfa-
son sé á heimleið." var það eina sem
Halldór B. Jónsson vildi segja um
þetta mál. Ef Guðmundur losnar frá
Beveren i maílok gæti hann orðið
löglegur fyrii- mjög mikilvægan leik
gegn Val i 7. umferð þriðjudaginn
30. júní.
Raggi með út sumarið?
Áður hefúi' því verið velt upp hér
á DV að verið geti að Ragnar Mar-
geirsson sé á útleið aftur. Það er }xS
Ijóst að ef Ragnm- nær að leika með
Fram gegn ÍA í 2. umferð laugai-dag-
inn 30. maí leikur hann hér á landi
út tímabilið. Lög KSÍ um félaga-
skipti mæla svo fyrir. Halldór stað-
* festi þetta.
-SMJ
' Ragnar Margeirsson.
i Guðmundur Steinsson sést hér (agna marki með lelkmönnum Oflenbach. • Guðmundur Torfason.