Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987.
„Við erum ekki allar ákveðnar í
því að setja upp gistiþjónustu að
námskeiði loknu en flestar ætla að
gera það. Og okkur, sem erum
hérna á námskeiðinu, langar að
stofna samtök svo við getum unnið
að þessu í sameiningu.“ Það er
Gréta sem hefur orðið og hinar
samþykkja ákveðið. Stofnun sam-
taka á greinilega talsverðan
hljómgrunn með hópnum - þykir
snjöll hugmynd.
Flestar eru húsmæður en með
undantekningum - forstöðumaður
gistiheimilis ÍSI segist alls ekki
vera húsmóðir og varla koma heim
til sín nema helst á nóttunni. Önn-
ur er í Myndlista- og handíðaskól-
anum. Námskeiðið eru þær
hæstánægðar með og vilja helst
ekki hætta.
Fíflar, hundasúrur og
sóleyjar
í næsta tíma eru blómaskreyting-
ar og kennarinn, Hjördís Jóns-
góðri konu sem ætlaði að slökkva
eld í feiti í potti sem stóð á elda-
vél. Hún vissi vel að ekki skyldi
nota vatn við slíkar aðstæður en
þegar ekkert annað var við hönd-
ina lét hún bara vatnið vaða. Og
ekki þurfti að spyrja að afleiðing-
unum.
Tær túrismans
„Námskeiðið er haldið á vegum
atvinnumálanefndar Kópavogs,"
segir Steinunn Harðardóttir.
„Von manna er sú að með þessu
móti muni túrisminn tylla niður
tánum í Kópavogi. Menntaskólinn
lánar húsnæðið, Námsflokkar
Kópavogs aðstoða íjárhagslega og
Fræðslumiðstöð iðnaðarins sér um
útgáfu námsefnis.
Þetta var ákveðið í lok janúar
og þá hafðar hraðar hendur við að
fylgja því eftir. Enskir námsflokkar
eru notaðir sem grunnhugmynd og
þrátt fyrir að þar sé um fjar-
kennsluefni að ræða hefur það sýnt
sig að það nýtist ótrúlega vel á slík-
„Við hugsum okkur að þetta eigi að verða eins konar blómagarður,"
sagði Hjördís og nemendurnir eru greinilega ákveðnir i að læra réttu
handtökin.
33
Tídarandiim
Morgunverðarborðið er mikilvægt i heimagistiþjónustunni. Guðríður Haraldsdóttir sá um að kenna þá hlið
málanna.
um námskeiðum. Að vísu var sumt
staðfært og lagað til á ýmsan máta
- til dæmis bætt inn efni um mann-
leg samskipti."
Enska ef vill
Liðnar eru þrjár vikur af nám-
skeiðinu sem tekur fimm vikur. Að
auki er ein vika í enskunámi fyrir
þær sem þurfa á þvi að halda.
Kennt er fjóra daga í viku og kom-
ið inn á mörg svið ferðaiðnaðarins.
A stundaskránni eru greinar eins
og markaðssetning, gerð auglýs-
inga, samvinna í ferðaþjónustu.
menning og tjáskipti, lög um gisti-
þjónustu, heilbrigðiseftirlit. bruna-
varnir, litir og hönnun, aðkoma og
umhverfi, blómaskrevtingar. gesta-
bókanir, gjaldmiðlar, fyrirtækja-
rekstur, bókhald, kostnaðaráætl-
anir og svo mætti lengi telja.
Námskeið af þessu tagi eru ekki
algeng hérlendis og aðsóknin
reyndist framar öllum vonum.
Gisting í Kópavogi
Hugmyndin að gera Kópavog að
ferðamannastað telur Steinunn að
„Námskeiðið er sett upp af bæjar-
félaginu í þeirri von að túrisminn
tylli niður tánum í Kópavogi."
Steinunn Haröardóttir, forstöðu-
maður námskeiðsins.
sé alls ekki svo fráleit en játar í
leiðinni að fólk eigi það til að brosa
þegar hún minnist á það í upphafí.
..Sjálf hef ég reynslu af því hvern-
ig er að vera leiðsögumaður og
þurfa að sækja ferðamenn á stórum
rútum niður í miðbæ á háanna-
tímanum. Það er næstum ógerlegt
og þar sem Kópavogur er ekki
lengra frá miðbæ Reykjavíkur en
mörg úthverfm ætti fátt að vera
því til fvrirstöðu að koma á ferða-
iðnaði hérna. Og í Kópavogi er
margt að skoða sem útlendingum
finnst mjög merkilegt - Álfhóllinn
er gott dæmi um það."
Það er hress hópur sem kveður
að spjalli loknu og kaffikonan í
hópnum - Anna Kristjánsdóttir -
segist hafa lært heilmikið.
..Bókstaflega allt er vel gert á
námskeiðinu og vel skipulagt hjá
Steinunni. Það er margt sem maður
vissi ekki um þótt maður væri bú-
inn að vinna hótelstörf í tuttugu
ár. „Þetta er svo lifandi og
skemmtilegt og alveg dásamlegt
framtak að gera þetta hérna í bæj-
arfélaginu."
dóttir, kemur með fangið fullt af
efni úr blómabúð en tekur það fram
að ekki þurfi að kaupa allt blóma-
skreytingaefni í verslunum
garðurinn heima hafi oft heilmikið
að geyma af efnivið. Jafnvel gras,
hundasúrur og fíflar geta reynst
hinar fegurstu skrautjurtir með
réttum handtökum.
„Eins og þið sjáið eru skreytingar
misjafnlega byggðar upp - þessi er
til dæmis gerð með bara eina hlið
í huga. Hugmyndin að henni er
eins og lítill garður þannig að
blómin koma upp eins og þau
vaxa.“
Ýmsar spurningar vakna og í
svörunum kemur meðal annars
fram að íslenski grávíðirinn er upp-
lagður til slíkra nota, það er að
segja blómaskreytinga. Hann
stendur vel og það er hægt að setja
með honum allt mögulegt úr garð-
inum.
Fleira en blómaskreytingar og
efnismeðferð hefur verið á dagskrá
og þær hlæja hressilega þegar
minnst er á brunaæfínguna.
„Við voru ekkert eldhúslegar þá.
Kveikt bál hérna á miðju gólfi og
okkur var ekki sleppt fyrr en við
gátum slökkt eldinn. Og tæmdist
eitt slökkvitæki var bara náð í það
næsta. Hann ætlaði greinlega ekki
að sleppa okkur fyrr en við kynnum
örugglega að slökkva eld með tækj-
unum.“ Eftir heimsóknina eru
brunavarnir á hreinu og þær
skemmta sér vel yfir sögu af einni
L______:
„Komið í kaffi, stelpur. Ég er með rjóma núna.“ Anna Kristjánsdóttir sá námskeiössystrunum fyrir tiu dropunum ómissandi. Hún hafði tuttugu
ára reynslu af hótelstörfum - tuttugu ár að baki hjá Hótel Loftleiðum.