Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1987, Page 40
%t*,r
F R E T T
K O T I
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987.
Svavar Gestsson:
Meira en að
skipta um föt
„Ég á síður von á því,“ sagði Sva-
var Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, er DV spurði í morgun
hvort menn gætu búist við einhverj-
um árangri ef viðræður um nýsköp-
unarstjórn yrðu reyndar næstu daga.
„Annars snýst þetta auðvitað allt
um málefhi. Spumingin er um það
frá okkar bæjardyrum séð hvort aðr-
ir flokkar eru tilbúnir til að taka
undir okkar kröfur varðandi breyt-
ingar á ríkisfjármálum, félagslegri
þjónustu, byggðastefnu, utanríki-.
spólitík. Mér finnst nú menn tala
dálitið um þessi stjómarmyndunar-
mál eins og þeir séu að ræða um það
að skipta um föt. En málið er rneira,"
sagði Svavar.
-KMU
Bandaríkin:
Hvalveiðar
okkar
aftur
komnar í
sviðsljósið
1 Bandaríkjunum fer þrýstingur á
stjómvöld nú vaxandi um refsiað-
gerðir gegn Islendingum vegna
hvalveiða okkai-. Sagði Lee Webb-
ing, framkvæmdastjóri bandaríska
fiskveiðiráðsins, þetta á hádegis-
verðarfúndi íslensk-ameríska versl-
unarráðsins fyrr í þessari viku.
Webbing sagði að þetta væri mál
sem íslendingar þyrftu að hafa
áhyggjur af, svo mikill og vaxandi
værí þessi þrýstingur. Hann taldi
ekki að sá tollur, sem talað er um
að setja á innflutning frá þeim þjóð-
um sem em í viðskiptahalla við
Bandaríkin, myndi snerta okkur.
Aftur á móti gæti nýgerður frísversl-
unarsamningur milli Bandaríkjanna
og Kanada haft áhrif á og skaðað
fisksölu íslendinga tíl Bandaríkj-
-S.dór
LOKI
Það er sama gamla sag-
an, Steini vill ekki stólinn!
Stjómarmyndunartílraunir:
Þorsteinn
fékk ekki
umboðið i morgun
Þorsteini Pálssyni, formanni Sjálf-
stæðisflokksins, var ekki veitt umboð
til stjómarmyndunar í morgun þegar
hann gekk á fund forseta íslands.
Vigdís Finnbogadóttir forseti átti
viðræður við formenn Sjálfetæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags í gær. Á þeim fúndum var
rætt hverjir væm líklegustu mögu-
leikar á stjómarmyndun og í fram-
haldi af þeim boðaði forsetinn
Þorstein Pálsson á sinn fúnd í morgun.
Samkvæmt heimildum DV mun
Þorsteinn hafa verið frekar tregur til
að taka við umboði til stjómarmynd-
unar á þessu stigi.
„Við höfúm eklá verið að sækjast
eftir umboðinu Það stafar einfaldlega
af þvf að \dð sjáum engan augljósan
kost á borðinu," sagði Þoisteinn Páls-
son um þetta í morgun.
Samkvæmt heimildum DV kjósa
sjálfstæðismenn helst að Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins, fái umboðið f>Tst. Þá myndi
hann ganga á Kvennalistann og fá
upp á borðið hvcr skilyrði kvennanna
séu þannig að merrn geti séð hvort
ríkisstjóm með Kvennabsta sé yfir-
leitt möguleiki scm þurfi að hafá í
huga.
Þegar því værí lokið gæti Þomteinn
ffekar tokið við stjómtaumunum og
reynt myndun stjórnar með Alþýðu-
flokki og Alþýðubandalagi eða
Alþýðuflokki og Kvennalista ef kon-
umar- væm fýsilegur kostur.
-ES
Sigurvegarinn í Elitekeppninni verður krýndur á Broadway í kvöld. Tímaritið Nýtt líf stendur fyrir keppninni
á íslandi og mun sjá um að greiða götuna erlendis. Að þessu sinni eru það þrettán stúlkur sem keppa til
úrslita. Meðfylgjandi DV-mynd tók KAE á æfingu hópsins í gærkvöldi og í miðju situr Trudy Tapscott, fram-
kvæmdastjóri New Faces - Elite - í New York. Sú hlutskarpasta heldur síðan til Sikileyjar í ágúst - september
þar sem Elitekeppnin fyrir vinningshafa allra landa verður haldin þetta árið. Leiðin til fyrirsætustarfa eriendis
er opin með þessa tvo titla í farteskinu. -baj/DV-mynd KAE
Veðrið á morgun:
Suðvestan-
átt með
skúrum
sunnan- og
vestanlands
Á föstudaginn verður suðvestanátt
með skúrum eða rigningu sunnan-
og vestanlands en þurrt í öðrum
landshlutum. Hiti verður á bilinu
2-10 stig.
Sturia Kristjánsson:
Krefst 6
milljóna
í skaðabætur
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Sturla ’ Kristjánsson, fyrrverandi
fræðslustjóri, fer fram á 6 milljónir
króna í skaðabætur úr ríkissjóði fyrir
það að hafa verið vikið úr starfi
fræðslustjóra í vetur. Þetta kom fram
hjá lögmanni Sturlu, Jónatani Sveins-
syni, við DV í morgun.
Jónatán sagði að staða málsins væri
sú að dómari tæki málið líklegast fyr-
ir áður en réttarhlé hæfist en endan-
legur dómur yrði líklega kveðinn upp
í haust. „Við lögmennirnir vonum þó
að sættir takist og að hægt-verði að
semja um málið.“
Þráinn Þórisson, formaður fræðslu-
ráðs, sagði við DV í morgun að
fr æðsluráð myndi ákveða það á mánu-
daginn með hvaða umsækjanda það
myndi mæla í starf fræðslustjóra en
umsóknir liggja nú fyrir hjá ráðinu.
i
i
i
t
t
Frávisun í Hafskipsmáli:!
Hallvarður
t
neitar að
bera vitni
Hluti frávísunarkröfu í Hafskips-
málinu svokallaða var tekinn fyrir í
Sakadómi Reykjavíkur í morgun og
var þess þar krafist að Hallvarður
Einvarðsson ríkissaksóknari yrði með
dómsúrskurði skyldaður til þess að
mæta fyrir dóminum og bera vitni þar
en svo sem kunnugt er byggist frávís-
unarkrafan á meintu vanhæfi Hall-
varðs í málinu.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
hefur aflað sér, hefur Hallvarður neit-
að að bera vitni fyrir Sakadómi í
frávisunarmálinu en verjendur
ákærðra í Hafskipsmálinu telja nauð-
synlegt að leggja ýmsar spurningar
fyrir Hallvarð. Þá var í Sakadómi í
morgun einnig lögð fram krafa um að
fjármálaráðherra verði úrskurðað
skylt að upplýsa ákveðin atriði sem
varða lánveitingar íjármálaráðherra
til Hallvarðs Einvarðssonar úr Lífeyr-
issjóði starfsmanna ríkisins en svo sem
kunnugt er fékk Hallvarður tvö lán
úr sjóðnum í kringum áramótin
1984/1985 samkvæmt lánakvóta sem
fjármálaráðherra hafði yfir að ráða á
þeim tíma. Ennfi-emur var þess krafist
að Albert Guðmundssyni, fyrrverandi
ijármálaráðherra, yrði gert skylt að
mæta fyrir dóminum og svara þar
spumingum en lánveitingamar áttu
sér stað í íjármálaráðherratíð hans.
-ój
Íslandsmetí
rækjuveiðum
Jón G. Hauksson, DV, Akureyit
Togarínn Margrét frá Akureyri
gerði fyrir skömmu’ mettúr á rækju
þegar hann kom til hafnar með 180
tonn. Margréti hefur gengið óhemju-
vel á rækju frá áramótum og veitt alls
um 660 tonn af rækju. Það er útgerðar-
félagið Samherji sem á Margréti en
sem kunnugt er á fyrirtækið líka ann-
an mettogara, Akureyrina. Sturla
Einarsson er skipstjóri á Margréti.
Togarinn hefúr aðallega veitt rækjuna
við Kolbeinsey.