Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Side 15
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
15
wfl y.
Tegundimar sem við létum fitusýrumæla hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins.
DV-mynd GVA
Ótrúleg ónákvæmni í
merkingum á viðbiti
Traust er það sem af mörgum er
talið einna mikilvægast í samskiptum
manna á meðal. A það ekki einungis
við þegar um er að ræða persónuleg
samskipti manna heldur ekki síður
þegar viðskiptasambönd eru annars
vegar. Það ríður á miklu að viðskipta-
vinimir geti treyst þeim sem þeir eiga
viðskipti við og þannig verið vissir um
að þeir eru að fá það sem þeir eru að
greiða fyrir.
Margsinnis hefur komið í ljós í okk-
ar litla þjóðfélagi að þetta traust er
misnotað. Komið hafa upp stórmál í
þessu sambandi.
Á neytendasíðunni hefur áður verið
bent á ýmsar framleiðsluvörur sem eru
merktar með innihaldslýsingu sem er
ekki í nákvæmu samræmi við raun-
verulegt innihald vörunnar. Þama er
átt við ýmsar drykkjarvörur sem em
á markaðinum.
Ekki samræmi í merkingu á
viðbitinu
Að þessu sinni létum við athuga
hvort merking á fitusýrum á umbúðum
nokkurra viðbitstegunda væri í sam-
ræmi við raunverulegt innihald. Svo
reyndist ekki og það meira að segja
langt frá. í sumum tilfellunum var
merkingin „verri“ heldur en mælingin.
Þannig segir t.d. merking á smjörv-
aumbúðum að í honum séu 55% af
mettuðum fitusýrum en mælingin
sýndi 18,7%. Mettaðar fitusýrur eru
óhollar mannslíkamanum og því ætti
að vera keppikefli viðbitsframleiðanda
að hafa sem minnst af þeim í fram-
leiðslu sinni.
Margar fjölómettuðu sýrumar eru
lífsnauðsynlegar og þvi best að þær
séu sem hæstar. Á smjörvanum er
merkingin 15% fjölómettaðar en
mældust 25,1%. Einómettuðu fitu-
sýmar reyndust 56,2% en vom
merktar 30% á smjörvanum.
Okkur er tjáð að þetta geti þýtt að
notað sé minna smjör í smjörvann en
upphaflega mælingin segir til um.
Þannig verður hann „hollari", en er
réttlætanlegt að selja okkur smjörlíki
á smjörverði?
Ósamræmi á smjörlíkinu
Auk smjörvans létum við gera fitu-
sýrumælingar á þremur tegundum af
borðsmjörlíki, Akrablóma, Sólblóma
og Alpa.
Þar kemur einnig fram ótrúlega
mikið ósamræmi í merkingu og mæl-
ingu. Fjölómettuðu fitusýrumar í
Akrablóma eru sagðar á umbúðunum
36% en reyndust 48,6%, sem sagt voru
mun „betri“ en merkingin sagði til um.
Hins vegar voru mettuðu fitusýrumar
28,2% í mælingunni en merkingin
sagði 26%.
Þá vom fjölómettuðu fitusýrumar
mun meiri en merkingin sagði til um
eða 41,9%, merkingin sagði 33%.
Mettuðu fitusýrumar reyndust mun
hærri en merkingin gaf til kvnna. Þær
mældust 38,3% en merkingin sagði
28%.
Fjölómettaðar fitusýnu í Alpa
smjörlíki mældust 27,9% en mælingin
var upp á 19%. M'ettuðu fitusýrumar
mældust 30,9% en mælingin sagði
52%.
Þetta er alveg ótrúleg ónákvæmni á
milli merkinga á umbúðunum og þess
sem mælist raunvemlega í vömnni.
Mælingar þessar vom gerðar hjá
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins.
Matvælaframleiðendur ættu að gera
Svörtu súlurnar sýna mælinguna en Ijósu súlurnar það sem merkt er á umbúðirnar. Mikið ósamræmi er þarna á milli.
■ mslt
S merkt
50-
40 -
30-
20
0
Sólblóml
■ melt
S merkt
Neytendur
DV
Ll A M N A R:
sér grein fyrir því að það er ekki nóg
að hafa „innihaldslýsingu" prentaða á
umbúðimar. Upplýsingamar verða að
vera i samræmi við raunvemlegt ir.ni-
hald. Sérfræðingur okkar i fituxýmm
sagði að þama munaði alltof miklu til
þess að hægt væri að sætta sig við
það, þama væri ekki um nein smá-
vægileg skekkjumörk að ræða. Þetta
er ótrúleg niðurstaða. -A.BJ.
MARGVERÐLAUNAÐUR
Danmðrk 1982
Gullverðlaun
ísland 1982
Gullverðlaun
Daninörk 1985
Gullverðlaun
' ísland 19Q5
‘
Gullverðlaun
Bandaríkin 1906
98 stig af 100
■Sfttlö*
TILBOÐ TIL 23. MAÍ
25% VERÐIÆKKUN
KÍLÓVERÐ ÁÐHR KR.
m KR. 296,20. -