Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Blaðsíða 30
42
Xí
sM4
®*ofv>*
DRAUMUR VIKUNNAR
JOHNNY HATES JAZZ -
SHATTERED DREAMS
(VIRGIN)
Nöfn hljómsveita verða æ
furðulegri enda Ijóst að vel
heppnað nafn getur eitt og
sér vakið athygli á viðkom-
andi hljómsveit. Hér er ein
með skondið nafn en hún
hefur meira til brunns að
bera en nafnið því þetta lag
að minnsta kosti er þræl-
gott; létt og vandað popp
sem lætur vel í eyrum.
AÐRIR ÞOKKALEGIR
DRAUMAR
WHITNEY HOUSTON - I
WANNA DANCE WITH
SOMEBODY (WHO LOVES
ME) (ARISTA)
Eftir þessari plötu hafa
margir beðið með mikilli
eftirvæntingu enda spenn-
andi að vita hvernig stór-
stjörnunni Whitney
Houston tækist að fylgja
fyrri stórsigrum eftir. Og
af þessu lagi að dæma ætlar
henni ekki að mistakast,
þetta er vissulega ekkert
meiriháttar lag en vel yfir
meðallagi, gott soul-rokk
sem bæði er auðvelt að
dansa og syngja við. Pott-
þétt formúla.
PSEUDO ECHO - FUNKY
TOWN (RCA)
Ástralíumenn eru sífellt að
sækja í sig veðrið í popp-
heiminum og hér er hljóm-
sveit frá Ástralíu sem vakið
hefur athygli vestanhafs.
Hún tekur hér fyrir gamlan
smell, Funky Town, sem
Lipps Incorporated gerðu
frægan fyrir nokkrum
árum og notast við svipaða
útsetningu svo útkoman er
eiginlega gamla lagið uppá
nýtt. En þetta var líka
skemmtilegur smellur.
WESTWORLD - BA-NA-NA-
BAMBO (RCA)
Kraftmikið nútímarokk
sem kemur öllu á hreyf-
ingu. Lagið mjög einfalt í
allri uppbyggingu, meira
og minna bein lína sem
sjálft viðlagið brýtur upp
stöku sinnum.
SPEAR OF DESTINY -
NEVER TAKE ME ALIVE
(TEN)
Magnað lag sem fer rólega
af stað en stígandin eykst
eftir því sem líður á það.
Jafnframt þyngist hljóð-
færaleikurinn og söngur-
inn verður að nokkurs
konar fjöldasöng. Grípandi
lag.
EIN MARTRÖÐ
TOM JONES-A BOY FROM
NOWHERE (EPIC)
Þetta er tímaskekkja!
-SþS-
Whitesnake -1987:
The Blow Monkeys - She Was A Grocer’s Daughter
Meistarastykki Coverdale
Óneitanlega koma öll sterkustu lýs-
ingarorð heilabúsins fram á tungu-
broddinn þegar hlustað er á nýjustu
plötu Whitesnake. Slík eru gæði henn-
ar að ég minnist þess ekki lengi að
hafa heyrt jafnstórkostlega plötu úr
þungarokksdeildinni. Þetta er tónlist
sem Europe/Bon Jovi-skríllinn (ný
Kiss-kynslóð í raun) ætti að hlusta á.
Þetta er hið eina sanna þungarokk,
hitt er hégómi. Þetta er David Cover-
dale í sínum allra besta ham, betri en
nokkru sinni, svei mér þá.
Sannast sagna var maður farinn að
örvænta um að heyra frá Coverdale á
plötu á ný eftir þriggja ára hlé frá plöt-
unni Slide it in. Sú var býsna góð en
bliknar gersamlega í samanburði við
nýjasta framlag Coverdale til þunga-
rokkssögunnar. Nýja platan er svo góð
að meira að segja skríbentar Billboard
hafa fengið vitrun og lofað hana í
hástert. Vonandi er þetta aðeins upp-
hafið að löngu verðskuldaðri athygli
þessa besta söngvara þungarokksins í
Bandaríkjunum.
Gæðagripurinn langþráði heitir ein-
faldlega 1987. Ekki aðeins virðist
Coverdale sjálfur hafa endumýjast
mjög í „útlegðinni" heldur fara með-
spilarar hans á kostum. Enginn þó
eins og John Sykes, sem ber nafri með
rentu. „Sjúkur" gítarleikari sem af-
greiðir flesta bestu gítarleikara
þungarokkssögunnar á einu bretti
með stimplinum „næstbestur". Ayns-
ley Dunbar, sá gamalreyndi tiymbill,
skilar sínu af öryggi og sömu sögu er
að segja um Neil Murray á bassanum.
Af sextettinum, sem stóð að Slide it
ir. 1984, er enginn eftir að Coverdale
sjálfum undanskildum en Murray
starfaði reyndar með Whitesnake áð-
ur.
Fyrri hlið „Whitesnake" er eitt
meistarastykki. Hún hefst á afar „
zeppelínsku" lagi, Still of the Night,
en á eftir fylgja tvö gæðarokklög með
Coverdale-stimplinum á. Lokalag A-
hælana í þeim efrium. Hraðinn er svo
aukinn að nýju i lokakafla plötunnar,
sem lýkur á „klassa“-lagi, Children of
the Night.
Platan 1987 er að mínu viti dæmi
um glæsilegt „come-back“ þungarokk-
ara, sem menn töldu af. David Cover-
dale sýnir hér ekki aðeins snilldartil-
þrif í söng heldur kórónar hann feril
sinn sem lagasmiður. Verst er að þre-
menningamir, sem léku inn á plötuna
með honum, em allir á bak og burt
en mannavandræði hafa alla tíð fylgt
Coverdale. Ég á ekki von á öðm en
að hann hristi þau af sér og hói saman
í sveit til að fylgja þessu meistara-
stykki sínu eftir um allan heim.
Sigurður Sverrisson.
hliðarinnar er kaflaskipt og býður upp
á mögnuð tilþrif.
Síðari hliðin er kannski ekki alveg
eins heilsteypt en þar er að finna eina
bestu ballöðu Coverdale til þessa dags
og komast þó ekki margir þungarokk-
arar með tæmar þar sem hann hefur
■
i
NÝJAR
PLÖTUR
og kemur víða við þótt áhrifin frá soul-
tónlist séu yfirgnæfandi.
Ef eitthvað er þá er She Was Only
A Grocer’s Daughter öllu þyngri en
Animal Farm og er ég ekki frá því að
sumum mislíki hin agressíva rödd Dr.
Roberts því stundum er eins og hann
sletti orðunum beint framan í hlust-
endur.
Platan inniheldur ellefu lög sem að
sjálfsögðu em öll eftir Dr. Robert, lög
og textar. Ekki er hægt að segja að
mikil breyting sé á ferðinni frá Ani-
mal Farm. Fyrri hliðin er svo til beint
framhald og em þar þau lög sem helst
munu heyrast á öldum Ijósvakans og
hafa heyrst. It Doesn’t Have To Be
This Way hefur notið nokkurra vin-
sælda, enda skemmtilegt lag og vel
flutt. Þá má nefna Out With Her og
Man At The End Of His Tether, annað
í rólegra kantinum, hitt hressilegt so-
ullag.
Á seinni hliðinni fer Dr. Robert að-
eins út í þyngri sálma. þrátt fyrir að
soultónlist sé megininntak er meira
lagt í útsetningar og lög og heyrist
þar að Neville Henry er ábyggilega
hinn besti saxófónleikari ef hann fengi
almennilega að sýna hvað í honum
býr. Til að undirstrika souláhrifin þá
syngur Curtis Mayfield dúett með Dr.
Robert í The Day After You. Eitt lag
sker sig úr heildinni, það er Dont Give
It Up, sérkennilegt rap-lag, þar sem
ég bendi á skemmtilegan texta Dr.
Robert er sýnir að húmorinn er í lagi
hjá pilti.
í heild er She was Only A Grocer’s
Daughter hin áheyrilegasta og það er
enginn vafi að minnsta kosti Dr. Ro-
bert á eftir að láta að sér kveða enn
meir í framtíðinni.
HK
leikarinn Neville Henry, Tony Kiley
ber húðimar og Mick Anker leikur á
bassa.
Nú hefur litið dagsins ljós ný plata
frá þessari ágætu sveit og ber hún
nafhið She Was Only A Grocer’s
Daughter, sérkennilegt nafh þegar
haft er í huga að ekkert lag á plöt-
unni ber þetta nafh. Hvað um það,
platan mun ábyggilega ekki valda
þeim vonbrigðum sem hrifust af Ani-
mal farm. Dr. Robert er í miklum ham
Einhver hressilegasta og um leið
skemmtileg plata sem komst í hendur
undirritaðs í fyrra var plata The Blow
Monkeys Animal Farm. Kenndi þar
margra grasa og var ekki um að vill-
ast að hér var á ferðinni eftirtektar-
verð hljómsveit sem að vísu, eins og
margar aðrar hljómsveitir, er aðeins
umgjörð utan um einn mann, í þessu
tilfelli söngvara, gítarleikara og laga-
höfund The Blow Monkeys, Dr.
Robert. Aðrir meðlimir eru saxófón-
Dr. Robert í ham
FÖSTUDAGUR 22. MAl 1987.
PÖPP
SMÆLKI
Sæl nú!...PIata Bon Jovi,
Slippery When Wet, hefur
selst eins og heitar iummur
siðan hún kom út í október
siðastliðnum og á dögunum
náði hún sjö milljóna mark-
inu og hefur þar með skipað
sér sess sem önnur fljótseld-
asta plata sögunnar. Sú sem
á metið er plata Prince,
Purple Rain, en hún náði
átta milljón eintaka sölu á
aðeins fjórum mánuðun. a
sinurn tima...Paul Butter-
field, sem eitt sinn gerði
garðinn frægan sem blús-
munnhörpuleikari og söngv-
ari, fannst látinn á heimili
sinu i Hollywood á dögun-
um. Butterfield, sem var44
ára gamall, varupp á sitt
besta á árunum fyrir 1970
og hélt þá úti hljómsveitinni
Paul Butterfield Blues Band,
en meðal liðsmanna hennar
var gitaristinn Mike Bloom-
field, en hann lést af of-
neyslu eiturlyfja 1981 .„Lew
Lewis, sem eittsinn vari
hljómsveitinni EddieAnd
The Hot Rods, var á dögun-
um dæmdur i sjö ára
fangelsi fyrir að ræna póst-
hús. Ránið framdi hann með
vatnsbyssu...'lþróttafólk og
íþróttafélög eru eins og
kunnugt er meira og minna
á samningum hjá framleið-
endum iþróttafatnaðar. Og
nú eru poppararnir næstir
því fyrir skemmstu undirrit-
uðu strákarnir i Run-O.M.C.
samning við Adidas! þess
efnis að þeir kæmu eingöngu
fram í skóm og öðrum fatn-
aði frá fyrirtækinu...Run-
D.M.C. eru annars á leið til
Bretlands til tónleikahalds
og i för með þeim verða
Beastie Boys. Ekki eru allir
jafn hrifnir af þvi að fá
Beastie drengina til Bret-
lands þvi einn þingmanna
Ihaldsflokksins hefursagt
opinberlega að svona rusl-
aralýður sé stórhættulegur
breskum ungmennum, hann
prediki frjálsar ástir og eit-
urlyf og ætti því að bannast
með öllu!...Billy Joel mun
halda sex tónleika i Sovét-
ríkjunum í sumar og er Billy
Joel fyrstur ameriskra popp-
ara til að halda tónleika
austan megin við járntjald-
ið...0avid Crosby, eitt sinn
liðsmaður Crosby, Stills,
Nash & Young, er nú kominn
úr fangelsinu þar sem hann
hefur dvalið um hrið vegna
eiturlyfjamáls og hefur Cros-
by nú gert hljómplötusamn-
ing við fyrirtæki Herb
Alberts, A&M. Stefnt er að
plötuútgáfu fyrir áramót...
John Mellancamp hefur
ákveðið að losa sig við milli-
nafnið Cougarog kemur
fyrsta plata hans eftir þessa
breytingu út I ágúst næst-
komandi...sjáumst... -SþS-