Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1987, Page 36
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Bitstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1987.
Steinj*rímur Hermannsson:
Oska þeim
góðsgengis
Steingrímur Hermannsson, form-
aður Framsóknarflokksins, var í
morgun spurður hvemig honum lit-
ist á þær stjómarmyndunarviðræður
sem nú em hafnar.
„Ég óska þeim bara góðs gengis.
Ég geri engar sérstakar athuga-
semdir við þessa tilraun. Ég vona
bara að ef svona ríkisstjóm verður
mynduð þá muni hún standa sig sem
best í efnahagsmálum. Það er mikil-
vægast.“
Steingrímur var á sínum tíma til-
búinn í viðræður við Sjálfstæðis-
flokk og Kvennalista en sjálfstæðis-
merrn vildu það ekki. Nú hefur
Þorsteinn Pálsson h 'ns vegar hafið
viðræður í svipuðu mynstri þar sem
Framsóknarflokknum hefur verið
skipt út fyrir Alþýðuflokkinn. Stein-
grímur var spurður álits á þessu.
„Það leynir sér ekki að Þorsteinn
vill greinilega frekar starfa með Al-
þýðuflokknum en Framsóknar-
flokknum og ég ætla ekkert að
gagnrýna hann fyrir það. Hver mað-
ur verður að hafa sinn draum. -ES
Svavar Gestsson:
Best að segja
sem fæst
„Ætli það sé ekki best að segja sem
fæst og sjá hveiju frarn vindur,"
sagði Svavar Gestsson, formaður
Alþýðubandalagsins, um stjómar-
myndunarviðræður Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Kvenna-
lista.
„Allar spár núna af minni hálfú
eða annarra á þessu stigi em út í
loftið,“ sagði Svavar. -KMU
Akureyrarblað
Á morgun, laugardag, verður
Helgarblað DV með myndar-
legra móti, samtals 80 síður, þar
af 20 síður eingöngu með efrii frá
Akureyri.
LOKI
Dugar ekki zetuverkfall?
Fiskverðið verður
ekki gefið frjálst
vegna þess að tveir fulttrúar í verðiagsráði eni því andvígir
Nú hggur ljóst fyrir að fiskverð arfúnd hjá Sölumiðstöðinni í fyrra- fúndar Sölumiðstöðvarinnar. stöðu sína. Nú liggur fyrir að hann
mun ekki verða gefið frjálst um dag liggur fyrir að annar af tveim Ámi Benediktsson sagði í samtali, fær engin rök frá Sölumiðstöðinni
nasstu manaðamot erns og sumir fúlltrúum hennar í verðlagsráði er sem birtist í DV í gær, að ef hann og allir í Veiðlagsráði verða að vera
hofðu spað. Arm Benedikteson, full- andvígur frjálsu fiskverði. fengi haldbær rök frá þeira Sölumið- því samþykkir að gefa verðið fijálst
trui fiskvmnslufyrirtækja Sam- Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumið- stöðvarmönnum um að betra væri og því verður gamla lagið á öllu
bandsins, hefur lýst sig andvígan þvi stöðvar hraðfiystihúsanna, upplýsti að gefa verðið frjálst en hafa fast saman áfram.
að gefa verðið fijálst og eftir stjóm- DV um þessa niðurstöðu stjómar- , verð myndi hann endurskoða af- -S.dór
Ljósmyndari DV greip þá heldur belur í bólinu, þessa ungu verkamenn sem unnu garðyrkjustörf við
Reykjavíkurflugvöll. í stað þess að láta hendur standa fram úr ermum hafa þeir lagst á kviðinn og láta
fara vel um sig. Svona er að vera ungur og dreyminn eða voru þeir kannski að skemmta sér kvöldið áður?
____________________ DV-mynd KAE
Ganga út af fræðsluskrifstofunni
Jón G. Hauksscm, DV, Akureyir
„Nei, Ólafur var ekki kosningastjóri
minn en hann var ritstjóri blaðs okkar
sjálfstæðismanna á Austurlandi,
Þingmúla,“ sagði Sverrir Hermanns-
son við DV þegar hann var spurður
hvort nýsettur fræðslustjóri í Norður-
landi vestra, Ólafur Guðmundsson,
væri fyrrverandi kosningastjóri hans.
„Ólafur kom til mín og lýsti áhuga
sínum á starfinu og mér er það engin
launung að ég hvatti hann þá til að
sækja um.“
- Er það rétt að hann hafi sett það sem
skilyrði að konan hans yrði ráðin?
„Nei, hann setti engin skilyrði. En
hann spyr hvort honum verði gert
kleift að ráða konuna sína ef til
kæmi,“ sagði Sverrir og bætti við: „Og
ekki veitir af, því mér skilst að allir,
nema sálfræðingamir, ætli að ganga
út af fræðsluskrifstofunni fyrir norðan
í kjölfar þessarar ráðningar."
Már Magnússon, starfsmaður á
fræðsluskrifstofunni, sagði í morgun
að starfsfólk skrifstofunnar myndi að
líkindum fúnda í dag og þar yrðu hóp-
uppsagnir væntanlega raeddar.
Albert Guðmundsson:
Bíð eftir
hrærígrautnum
„Mér þykir það heldur ólíklegt,"
sagði Albert Guðmundsson, formaður
þingflokks Borgaraflokksins, er DV
spurði hvort hann héldi að viðræður
Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og
Kvennalista leiddu til myndunar ríkis-
stjómar þeirra.
„Ég bíð eftir að sjá hvaða stefnu
Sjálfstæðisflokkurinn býður sínum
kjósendum upp á þegar þessi kokk-
teill er kominn saman, hrærigrautur,
blanda úr stefnu þeirra allra, og hvem-
ig ríkissjóður lítur út á eftir,“ sagði
Albert. -KMU
Hannes Hlrfar
einn efstur fyrir
síðustu umferðina
Hannes Hlífar Stefánsson er einn
efstur með 8,5 vinninga á heimsmeist-
aramóti unglinga í skák í Innsbruck
í Austurríki þegar aðeins ein umferð
er eftir. Adams frá Englandi er í 2.
sæti með 8 vinninga. I síðustu um-
ferðinni, sem tefld verður á morgun,
laugardag, teflir Hannes gegn Frakk-
anum De Graeve en sá hefur 7 vinn-
inga á mótinu. Adams mætir öðrum
Frakka, Lautier, sem tapaði fyrir
Hannesi í 8. umferð.
Að sögn Guðmundar Sigurjónssonar
stórmeistara, aðstoðarmanns Hannes-
ar, liggur ekki alveg ljóst fyrir hvor
þeirra Hannesar eða Adams telst sig-
urvegari ef þeir verða jafiiir að vinn-
ingum. Ef innbyrðisviðureign þeirra
ræður þá sigrar Hannes vegna þess
að hann vann Adams þegar þeir tefldu
saman.
Ef stig í mótinu verða látin ráða
stendur Hannes höllum fæti vegna
þess að hann tefldi í fyrstu umferðun-
um við menn sem hafa færri vinninga
en þeir sem Adams tefldi við. Guð-
mundur sagðist myndi kynna sér þetta
mál ofan í kjölinn í dag.
„Annars þarf strákurinn bara að
vinna síðustu skákina, þá er þetta á
hreinu,“ sagði Guðmundur.
Guðfríður Lilja tapaði í gær og er í
11. sæti með 5,5 vinninga. -S.dór
Slys við löndun
Þegar verið var að vinna við löndun
úr rækjutogaranum Bjama Ólafssyni
AK í Akraneshöfn í gær varð það
óhapp að einn verkamannanna féll
niður um lúgu og niður í lest. Fallið
var um átta metrar. Maðurinn lær-
brotnaði og liggur hann á sjúkrahús-
inu á Akranesi.
Veðrið á morgun:
Hægviðri
um mest-
allt landið
Á laugardaginn verður hægviðri
um mestallt landið og víða bjart-
viðri, þó gæti orðið þokuslæðingur
við suður- og vesturströndina. Hiti
allt að 20 stig norðanlands og austan
en 8-14 stig á Suður- og Vesturlandi.
-sme