Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987.
5
Fréttir
Flateyrarsaga á
fjörutíu þúsund
Um 150 fefkílómetra Qórhjólasvæði
Verður undir
eftirliti
- Qölmennt á bókauppboði
„Það sem langdýrast fór á þessu
uppboði var mikið safri bréfa og skjala
sem varða atvinnusögu Flateyrar við
Önundaríjörð, þar eru m.a. heimildir
um þá ráðagerð erlends eldspýtufram-
leiðanda, Ivars Kreuger, að reisa
eldspýtnaverksmiðju á staðnum. Þetta
fór á fjörutíu þúsund krónur og var
keypt af aðilum á Flateyri," sagði
Bragi Kristjónsson í Bókavörðunni í
Reykjavík en hann stóð fyrir fjöl-
breyttu bókauppboði í Iðnó á sunnu-
daginn þar sem boðin var upp 161 bók
og skjalasafri.
Uppboðsskráin var fjölbreytt, þar
mátti m.a. finna allan Helgarpóstinn
frá upphafi, hundruð ljóðabóka, frum-
útgáfu eftir Maxím Gorkí, gamlar
Hólabækur frá því fyrir 1700 og kafla
úr Jarðarbók Áma Magnússonar.
Elsta bókin, sem boðin var upp, var
hluti af Passio Christi frá árinu 1678.
Fór hún á aðeins fimmtán hundruð
krónur. Verð flestra bókanna var frá
2000-6000 króna.
„Uppboðið var óvenjuíjölmennt, yfir
hundrað manns þegar mest var,“ sagði
Bragi. „Ég held slík uppboð þegar
mikið hefur safnast upp hjá mér, að
minnsta kosti einu sinni á ári. Það eru
mikið sömu andlitin sem láta sig aldr-
ei vanta á þau.“
-BTH
„Hver býður hæst?“ Haraldur Blöndal stjómaði uppboði Bókavörðunnar á sunnudaglnn og áhugasamir bókasafnarar
létu sig ekki vanta. DV-mynd KAE
Fáskrúðsfjörður:
Guðbjórg Lind með
myndlistarsýningu
Ægir Kiistinssan, DV, FáskniðárðL-
Fáskrúðsfirðingum gafst í vikunni
tækifæri til að sækja myndlistarsýn-
ingu sem haldin var í anddyri leik-
skólans,(gamla bamaskólans) á
staðnum. Þar sýndi Guðbjörg Lind
Jónsdóttir frá ísafirði 14 myndverk,
ellefú vatnslitamyndir, tvær akrýl-
og eina olíumynd.
Guðbjörg Lind útskrifaðist úr mál-
aradeild Myndlista- og handíðaskól-
ans 1985, var þar áður í kennaradeild
skólans. Fyrsta einkasýning Guð-
bjargar var í Slunkaríki á ísafirði
1985. Hún hefur tekið þátt í samsýn-
ingum, m.a. Nart-sýningunni sl.
sumar. Þar átti hún tvö myndverk.
Myndlistarkonan Guðbjörg Lind við eitt verka sinna sem ber nafniö Reisn.
DV-mynd Ægir Kristinsson
Fjölskyldan í tjaldinu:
Fékk inni á gisti-
heimili í fáeina daga
Fjölskyldan, sem dvalið hefur í tjaldi
fyrir ofan Hafnarfjörð að undanfömu,
hefiir nú fengið inni á gistiheimili til
bráðabirgða.Sú vist mun þó aðeins
vara í nokkra daga. Fjölskyldan er því
í engu minni vandræðum en fyrr.
Eins og DV greindi frá neyddu fjár-
hagsástæður fjölskylduna til að hafast
við í tjaldi fyrir ofan Hafnarfjörð. Vistin
var slæm og e.t.v. þeim mun verri fyrir
þær sakir að konan er 100% öryrki.
Um skeið leit þó út fyrir að rætast
myndi úr hjá hjónunum og bömum
þeirra, þegar maður í Hveragerði hafði
samband og kvaðst vilja bjóða þeim
frítt húsnæði á staðnum. Þegar til átti
að taka reyndist maðurinn alls ekki
geta staðið við boð sitt þannig að ekk-
ert varð úr búferlaflutningum.
Hjónin fá að dvelja á gistiheimilinu
umrædda um nokkurra daga skeið, en
verða síðan að flytja í tjald sitt aftur,
rætist ekki úr fyrir þeim í millitíðinni.
-sme
„Fjórhjólin verða á afinörkuðu
svæði á Mýrdals8andi. Landið er í
einkaeign og við höfúm fengið leyfi
frá eigendum þess,“ sagði PáU Pét-
ursson sem situr í undirbúnings-
nefiid Víkurhátíðar 1987.
Um verslunarmannahelgina verð-
ur áðumefixd fjölskylduhátíð haldin
í Vík í Mýrdal. PáU sagói að svasð-
ið, sem um væri að ræða, væri 150
ferkílómetrar að stærð og næði frá
Mýrdalsjökli í norðri að Atlantshafi
í suðri og væri afinarkað af Múla-
kvisl að vestan og sauðfjárveikigirð-
ingu í austri. „Þeir verða því að
halda sig inni á svæðinu en annars
verður eftirlit með því að enginn
fari út fyrir. Þama er alls kyns lands-
lag, sandöldur og hólar og engin
hætta á náttúruskemmdum," sagði
PálL
Páll sagði að ekki hefði verið rætt
um það í fullri alvöru aö gera þetta
að framtíðarleiksvæði fyrir fjór-
hjólamenn en vel mætti athuga það.
Um fjórhjólaleigu á svæðinu sagði
Páll að það hefði ekki verið kannað,
fá fjórhjól væm á svæðinu en það
væri visaulega möguleiki sem vert
væri að athuga.
„Við værum ekki að auglýsa þetta
ef við treystum okkur ekki til að
taka á móti þeim. Einhvers staðar
verða þessir menn að vera og mér
finnst ágætt að bjóða þeim hingað,"
sagði Hafsteinn Jóhannesson, sveit-
arstjóri í Vík í Mýrdal.
Hafsteinn sagði að landið væri í
einkaeign og heyrði því ekki undir
hreppinn að neinu leyti, eftirht yrði
haft með því að þeir fæm ekki út
af svæðinu og á meðan öllum reglum
væri fylgt væri ekkert að óttast.
Varðandi frambúðarsvæði sagði
Hafsteinn að hann myndi gjaman
vilja það og væri þess vegna tilbúinn
að leggja til land ef hreppurinn ættí
eitthvað sem hentaði. -JFJ
Mál kynferðisglæpamanna:
Erfttt að fá upplýs-
ingar um meðferð
Þau em fiögur málin um meinta
kynferðisglæpi sem DV hefur fjallað
um undanfamar vikur. Erfitt er að
afla upplýsinga hvemig rannsókn og
dómsmeðferð þessara mála gengur.
Fyrsta máhð af þeim fiórum sem
reifúð hafa verið í DV er mál hjóna í
Hafharfirði þar sem hjónin bæði hafa
verið kærð vegna meintra kynferðisaf-
brota á stúlkubömum. Maðurinn
hefur setið í gæsluvarðhaldi um tíma
og rennur gæsluvarðhaldsúrskurður
yfir manninum út á miðvikudag. DV
reyndi ítrekað að spyrjast fyrir hvort
krafist yrði framlengingar á gæslu-
varðhaldinu eða ekki og eins hvort
krafist yrði gæsluvarðhalds yfir konu
mannsins. Þrátt fyrir mjög örar hring-
ingar til Rannsóknarlögreglu ríkisins
náðist aldrei í neinn sem gat svarað
til um þetta mál.
Við höfum sagt frá máli þar sem
maður á sjötugsaldri er grunaður um
að hafa nauðgað ungum dreng. Það
mál býður meðferðar Sakadóms
Reykjavíkur. Dómarinn, sem hefur
með það mál að gera, er í sumarfríi
og verður ekkert aðhafst í málinu fyrr
en hann kemur aftur til vinnu. Mál
þetta kom til Sakadóms 6. nóvember
síðastliðinn. Gunnlaugur Briem yfir-
dómari sagði í gær að hann gæti
ekkert sagt um hvenær það mál kæmi
fyrir dóm, hann vissi ekkert hvað
væri búið að vinna í þessu máli. Gunn-
laugur sagði að Sakadómur yrði með
hálfum afköstum fram til 1. september
vegna sumarleyfa starfsmanna.
Maður situr í gæsluvarðhaldi vegna
gruns um að hafa diýgt kynferðisglæp
á dóttur sinni. Hann hefur setið lengi
í gæsluvarðhaldi og mun verða þar til
í október. Mál hans er nú hjá ríkissak-
sóknara. Itrekað var reynt að ná í
þann fulltrúa sem hefur með málið að
gera, en það var með öllu árangurs-
laust.
Mál, sem er búið að veltast í kerfinu
vel á fimmta ár, er þar enn og óvíst
er hvenær því verður lokið. Ríkissak-
sóknari hefur nýverið sent málið aftur
til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Eng-
ar upplýsingar var hægt að fá þar á
hvaða stígi málið er nú. Móðir bams-
ins, sem er fómarlamb í þessu máli,
segir að hún hafi eftír rannsóknarlög-
reglu að sjaldan eða aldrei hafi
framburður geranda og þolanda verið
eins samhljóma og í þessu máli, en
þrátt fyrir að svo sé hefur málið nú
þvælst fram og til baka á fimmta ár.
-sme
Fyrstu 5 mánuðir ársins:
Mikil
aukning í
innflutningi
- sprenging í bifreiðakaupum vegur þungt
íýrstu 5 mánuði ársins 1987 jókst
vöruinnflutningur íslendinga um
tæpan fjórðung frá sama tíma í fyrra,
eða um 23%. Eitt af þeim atriðum
sem vega þungt í auknum innflutn-
ingi er sú sprenging sem orðið hefúr
i bifreiðainnflutningi.
Því miður jókst vöruútflutningur-
inn ekki að sama skapi Þar var um
11% aukningu að ræða fyrstu fimm
mánuði 1987, miðað við sömu mán-
uði fyrra árs.
Vöruskiptajöfnuður ársins 1986 í
heild var óhagstæður um tæpan 1
milljarð króna á verðlagi þess árs.
Því má búast við að vöruskiptajöfh-
uðurinn 1987 verði mjög óhagstæður
haldi áfram að síga á ógæfúhliðina
á þennan hátt
-ES