Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 40
</> '‘V Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 HannesHlífarog Þröstur töpuðu í annarri umferð íslensku þátttakendunum á heims- meistaramóti unglinga 20 ára og yngri á Manila á Filippseyjum, gekk ekki eins vel í annarri umferð móts- ins og í þeirri fyrstu. { fyrstu umferð unnu þeir báðir skákir sínar, en í annarri uniferð sem tefld var í gær töpuðu þeir hins vegar báðir. Þröst- ur Þórhallsson tapaði þá fyrir Klinger frá Austurriki og Hannes Hlífar tapaði fyrir Blatny frá Tékkó- slóvakíu. í dag verður svo tefld þriðja umferð mótsins. KGK Skákþing Norðurianda: Þrefaldur ís- lenskur sigur Helgi, Margeir og Jón unnu allir skákir sínar í gær og voru þeir allir með svart. Helgi vann Schneider frá Svíþjóð, Margeir vann Ziska frá Færeyjum og Jón L. Ámason vann Tisdsdl frá Noregi. Nú, þegar níu umferðum er lokið af ellefu, er Erling Mortensen frá Danmörku einn efstur með sex og hálfan vinning. Helgi og Margeir eru í öðru til fjórða sæti, ásamt Curt Hansen frá Danmörku, en hann varð að láta sér nægja jafntefli í dag eftir fimm sigurskákir í röð. Þeir eru með sex vinninga. Þessir tveir Danir og tveir Islend- ingar munu því heyja baráttuna um efsta sætið í síðustu tveimur um- ferðunum. Tíuuua umferðin verður tefld á morgun en á miðvikudaginn fá keppendur kærkomið fri fyrir síð- ustu umferðina sem tefld verður á fimmtudaginn. KGK Reykjavík: Mikið um árekstra Fimmtán árekstrar urðu á þremur tímum í gærdag. Það var frá klukk- an þrjú til klukkan sex. Þar af urðu ellefu árekstrar á einum tíma, frá klukkan þrjú til fjögur. Flestir árekstranna voru minni háttar. Ekki varð mikið um slys á fólki. ÓVENJU LÁGT VERÐ 0PIÐ TIL KL. 16.00 Á LAUGARDÖGUM Smiðjuvegi 2, Kópavogi. Simar 79866, 79494. LOKI Þetta verða hvalafullar viðræður í Washington Þrotabú Húseininga hf. Kröfuraðupp- Frjalst,ohaö dagblaö 21. JULI 1987 ÞRIÐJUDAGUR hæð 73 millj ónir króna Heildarkröfur í þrotabú Húsein- inga hf. á Siglufirði eru að upphæð um 73 milljónir króna en frestur til að lýsa kröfúm í búið rann út 15. júlí. Fyrirtækið var lýst gjaldþrota 4. maí sl. Að sögn Áma Pálssonar bústjóra er stærsti kröfúhafinn Út- vegsbanki íslands á Siglufirði með kröfúr að upphæð 14,5 milljónir króna. Kröfúr ríkissjóðs á búið nema um 10 milljónum króna og kröfúr Iðnþróunarsjóðs rúmlega 5 milljón- lun króna. Eimskip kemur á eftir þessum aðihun varðandi upphæð krafha. Alls lýstu 75 kröfúhafar 84 kröfúm I búið og á skiptafúndi á föstudaginn verða ræddar þær kröfúr sem ekki fengust samþykktar. Sagði Ámi að töluvert væri um að mikið væri af kröfum frá einstaklingum sem áttu viðskipti við fyrirtækið. Á skipta- fúndinum verður einnig tekin ákvörðun um hvaða eignir fyrirtæk- isins verða settar á uppboð til þess að náist upp í kröfumar en upphæð þeirra sagði hann svipaða og menn hefðu búist við. Hugsanlegt er síðan að annar skiptafúndur verði haldinn til þess aðjafna allan ágreining áður en endanleg úthlutun fer fram. -BTH Veikir eftír kjúklingaát Einn af mörgum árekstrum gærdagsins. Þessi varð laust fyrir klukkan fjögur við Breiðhöfða. Veðrið á morgun: Bjart nyrðra og eystra Á morgun verður vestan- og suð- vestanátt, víðast gola eða kaldi, bjart veður um norðan- og austanvert landið en skýjað og smáskúrir sunn- an- og vestanlands. Þannig að bjartara verður yfir fyrir norðan og austan og hitinn frá tíu og upp í átján stig. „Fólk er orðið mjög á varðbergi um þessar mundir og við vitum ekki ennþá um hvað er að ræða. Þetta getur verið einhver umgangspest en gæti einnig tengst kjúklingunum. Það er ekkert hægt að staðfesta fyrr en sýni úr þess- um einstaklingum hafa verð ræktuð,“ sagði Þórhallur Halldórsson, forstjóri hollustuvemdar Heilbrigðiseftirlits ríkisins. Tveir aðilar, er neytt höfðu grillaðra kjúklinga frá verslun á höfúðborgar- svæðinu, urðu veikir á eftir. Tekin hafa verið sýni úr sjúklingunum, úr afgöngum og hráefni í versluninni. Verða þessi sýni rannsökuð og leitað eftir því hvort hér er um einhvers konar matareitrun að ræða. JFJ Blaðburðarstúlka: A Varð fyrir kyn- jfP ferðislegri áreitni Ellefu ára gömul blaðburðarstúlka sem var að bera út í Einholt og Meðal- holt síðastliðinn laugardagsmorgun, varð fyrir kynferðislegri áreitni svart- klædds manns. Maðurinn kom gangandi niður Stór- holt en stúlkan var þá stödd á mótum Einholts og Meðalholts. Maðurinn þröngvaði stúlkunni inn í húsasund við Einholt, eftir að hafa gefið sig á tal við hana. Maðurinn leitaði á stúlk- una og þuklaði hana og skipaði henni að þukla sig. Maðurinn hafði hótunum við stúlkuna og kvað hana hafa verra af svo og fjölskyldu hennar léti hún ekki að vilja hans. Samdægurs var málið kært til Rann- sóknarlögreglu ríkisins. Stúlkan hefur gefið lýsingu á manninum. Hann var svartklæddur, skolhærður með stutt alskegg. Hann var langleitur með há- rið greitt frá enninu. Vínlykt var af manninum. Stúlkan telur að hann hafi verið á aldrinum tuttugu og fimm til þrjátíu ára. Rannsóknarlögregla ríkisins biður þá sem geta gefið upplýsingar um manninn að hafa samband við Rann- sóknarlögregluna sem fyrst. ■aiiic Deitt við Biöndu | - vericfall boðað á miðnætti DV-mynd JAK Verkamenn og iðnaðarmenn við Blönduvirkjun hefja verkfall á mið- nætti í kvöld hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. í gær funduðu deiluaðilar sleitulaust í hálfan sólarhring, frá hádegi og fram yfir miðnætti, án þess að samningar tækjust. Annar fundur hefur verið boðaður kl. 15 í dag hjá ríkissáttasemj- ara og verður þar reynt til þrautar að ná samkomulagi. í gær var einnig fúndað í deilu ráðu- nauta og Búnaðarfélags íslands. Ekki náðist samkomulag eii ráðunautamir hefja verkfall 5. ágúst hafi ekki samist fyrir þann tíma. -ES Strand í Viðey „Það er mikið um það nú um þessar mundir að farið sé út í flóann og smá- bátar aðstoðaðir. í gærkvöldi var okkur tilkynnt að örk RE 122 væri með bilaða vél og ræki upp í Viðey,“ sagði Hannes Hafstein, framkvæmda- stjóri Slysavamafélagsins. Björgunarbáturinn Jón E. Berg- sveinsson dró Örkina á flot og inn í Sundahöfn og gekk allt saman vel, að sögn Hannesar, um 30 mínútur hefðu hðið frá því að tilkynnt var um bilun- ina og þar til báturinn var kominn í tog. -JFJ A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.