Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987. Fréttir oBUOSÖIUBÖR^ Seljið Komið á afgreiðsluna* — Þverholti 11 um hádegi virka daga. SfMI 27022 Jón Magnússon, úlgerðarmaður á Patreksfirði og eigandi Garðars: „Skammar- iegt að við íslendingar, sem lifum á sjávarútvegi, skulum ekki geyma eldri skip og aðrar minjar.“ Vinningstölurnar 18. júlí 1987. Heildarvinningsupphæð: 3.569.905,- 1. vinningur var kr. 1.789.354,- aðeins einn þátttakandi var með fimm tölur réttar. 2. vinningur var kr. 535.743,- og skiptist hann á 247 vinningshafa, kr. 2.169,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.244.808,- og skiptist á 6.102 vinningshafa sem fá 204 krónur hver. Upplýsingasími: 685111. A elsta stalskip a Islandi „Hann hefði getað verið áratug á sjó í viðbót en siglingamálastofnun og fleirum fannst ekki nógu hagstætt að gamalt skip gæti flotið. Ég var ekki stöðvaður en það borgaði sig ekki að leggja út í þær endurbætur sem hægt hefði verið að krefjast," sagði Jón Magnússon, útgerðarmaður á Pat- reksfirði, en í hans eigu er elsta stálskip á Islandi, Garðar, smíðað í Noregi árið 1912. Jón var skipstjóri í langan tíma og ^eftir síldarárin 1967 keypti hann 100 tonna bát og setti fljótlega á fót út- gerðarfyrirtækið Odda h/f og hætti á sjó. Þegar Jón fékk svo ekki skipstjóra sem fiskaði tók hann sjálfúr við skip- stjóm, seldi gamla skipið og keypti annað, 250 tonna, Vestra. „Ég fór aftur í land og yngsti bróðir minn varð skip- stjóri en mér fannst of lítið fyrir verkunina að hafa bara einn bát og keypti því þennan gamla bát árið 1973 sem ég gat lagt yfir sumarmánuðina. Hann kostaði 15 milljónir króna sem var lítið verð og þið sjáið að Vestri kostaði 26 milljónir en Garðar er 180 tonna bátur,“ sagði Jón. Sigldi Garðari upp á land Þegar Jón ákvað að leggja Garðari fyrir 6 árum vildi hann ekki að skipið ónýttist og gleymdist. Hann var ekk- ert að tvínóna við hlutina heldur sigldi Garðari á land í mynni Patreksfjarð- ar. „Ég fékk leyfi byggingamefiidar og það var auðsótt. Auk þess á ég jörð- ina þannig að öllum fannst eðlilegt að ég gæti haft þar minn bát í hróf. Annars er almenn ánægja með að hafa bátinn þama og sérstaklega finnst krökkunum gaman að koma um borð,“ sagði Jón. Hann lét grafa skurð sem hann sigldi Garðari upp í og síðan var mokað að og skipið fest. Jón reynir að dytta að skipinu eins og tími gefst til, mála og þess háttar en segir að einstaklingur geti aldrei haldið þessu við, smám saman hljóti skipið að ryðga. „Ég gæti þó ennþá gangsett hann og farið að gera út með lítilli fyrirhöfii," segir Jón. Varðveisla útvegsminja Jón hefur ákveðnar skoðanir um varðveislu útvegsminja og segir þær tæpitungulaust: „Það er skömm að því að við íslendingar sem lifum á sjávar- útvegi skulum ekki geyma eldri skip eða aðrar minjar. Svo em einhverjar hobby-útgerðarþjóðir sem eiga þessi fínu skipasöfn. Þetta er svona dæmi um þá lensku að margt eldra fólk vill ekki kannast við fortíðina, eymdina fyrir stríð. Sjómenn hafa bara ekki tíma til að sinna svona hlutum, við höfum ekki haft málsvara til þess og því hafa gömlu skipin horfið og ekki verið varðveitt." Jón segir að ekkert skip sé með sama byggingarlagi og Garðar hérlendis. Skipið sé hnoðað en ekki rafsoðið. Það sé því safngripur. Annars gekk vel að Garðar er 180 tonna stálskip, smíðaður árið 1912 í Noregi og því elstur sinnar tegundar á Islandi. Hann hefur nú feng- ið heiðursstað í mynni Patreksfjarðar. DV-myndir KAE fiska á bátinn og þegar einhveijir vom að gera lítið úr því að fiska á svona gamlan bát sagði Jón, snöggur upp á lagið: „Þið fiskið nú ekki á harðvið- inn,“ og meinti með því að það væri áhöfnin sem skipti máli, ekki ytri umbúðir. Óhress með kvótann Jón er óhress með útfærslu kvótans og segir hann koma ójafnt niður á útgerðum og stöðum, hann hafi þurft að stoppa á vetuma vegna þessa. „Ég vil stjómun en tel skrapdagakerfið hafa reynst betur. Auðvitað vom á því gallar en það hefði átt að endurbæta það. Þá græddi enginn á því að gefa ekki upp fisk eða kasta afla, allt skil- aði sér sem kom í veiðarfærin. Neikvæðu hliðamar em mun fleiri en jákvæðu hliðamar á þessu kerfi en það virðist vera búið að kýfa inn í höfuðið á mönnum að þetta reddi öllu og lítið talað við þá sem em á önd- verðri skoðun." Að öðm leyti finnst Jóni Magnús- syni bjartara yfir útgerð nú en hefur verið síðustu ár. „Það hefúr verið skárra að gera út síðustu 2 árin en áður en okkur á staðnum vantar fleiri skip,“ sagði Jón. -JFJ Heimilisleg veHingastofa Við Eyrargötu á Patreksfirði, rétt við Hafnarsvæðið, var fyrir nokkr- um mánuðum opnuð ný veitinga- stofa sem kölluð hefur verið grillið við Eyrargötu. Hjónin Steindór Ög- mundsson og Unnur Sigurðardóttir hafa tekið húsnæðið á leigu og sjá um reksturinn. „Við bjóðum upp á hefðbundinn grillmat alla daga, auk þess sem í hádeginu og á kvöldin er boðið upp á einhvers konar heimilismat. Um helgar er hér 2-3 rétta matseðill, salurinn skreyttur og reynt að hafa svolítið fínt,“ segir Steindór. Hann segir að nokkur kaffivagnsstemmn- ing hafi myndast í kaffitímunum á veitingastofunni, hana sæki menn úr öllum stéttum og sé þá margt skrafað og skeggrætt. „Reksturinn gengur vel og þetta stendur alveg undir sér,“ segir Steindór en hann hefúr bæði for- kaupsrétt og forkaupsleigurétt og ætlar að reyna að eignast húsnæðið ef vel gengur og segist þá munu gefa stofunni eitthvert nafii og hugsan- legá breyta eitthvað húsnæðinu. Gera ef til vill fínni sal uppi á lofti en þar er nú lítill salur sem notaður er fyrir ýmsa félagastarfsemi. „Heimamenn hafa verið duglegir að koma hingað og núna eru ferðamenn byijaðir að koma og vonandi eykst ferðamannastraumurinn með nýrri Breiðafjarðarferju," sagði Steindór Ögmundsson veitingamaður. -JFJ Unnur Sigurðardóttir og Steindór Ögmundsson reka veitingastofuna við Eyrargötu þar sem boðið er upp á heimil- islegan mat. DV-mynd KAE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.