Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 18
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987. 18 Erlend myndsjá I kjolfar Kristófers Kólumbusar Hópur ævintýramanna er nú að byggja eftirlíkingu af flaggskipi Kristofers Kólumbusar, Santa Maria, og hyggjast sigla þvi yfir Atlantshafið í sumar, sömu leið og þessi merki landkönnuður fór. Skipasmíðamar standa í Alvarado á Veracruz í Mexíkó. I hópnum. sem fer í siglinguna. em seytján einstaklingar, fimmtán menn, hundur og köttur. Ekki er þess getið hvenær ætlunin er að sigla áleiðis frá Mexíkóflóa. Stærsta sjónvarp í heimi í samkeppni er barist um að hafa sína framleiðslu stærsta, jafnframt því að hún sé best og ódýmst. Jap- anska fyrirtækið Matsushita Corp- oration hefui’ nú framleitt sjónvarps- tæki sem þeir segja að sé hið stærsta í heimi. Það er hið stærsta sem not- ar myndlampa. Sjónvarpsskermur- inn er einar íjömtíu og þrjár tommur. Jafnframt þvi að vera stærst er tæki þetta líka með þeim dýmstu. Það kemur til með að kosta liðlega þrettán þúsund dollara eða góða hálfa milljón íslenskra króna. Af ástum bama og dýra Oft er vitnað til þeirra ásta sem takast milli barna og dýra. Þykir það rnjög jákvæður þáttur í uppeldi bams ef tilfinningasamband skapast milli þess og einstaklings af annarri dýrategund. Flestir huga þó í þeim efnum að köttum eða hundum eða öðrum spendýrum. Móður hennar Jennifer Sproill var því ef til vill vorkunn að vilja ekki heimila dótturinni að taka „ástvminn" með heim. Hún Jennifer var þó yfir sig hrifin af kyrkislöng- unni sem hún hitti í dýragarðinum í Singapore. Sá hún ekkert athuga- vert við að ættleiða þessa vinkonu sína þótt blóðið í henni væri í kald- ara lagi. En Jennifer er ekki nema þriggja ára svo að mamma réð. Ef til vill getur hún Jennifer þó fengið sér kyrkislöngu sjálf seinna, þegar hún er orðin of stór til að þurfa að sinna einstrengingshætti gömlu konunnar. Enda greinilegt af meðfylgjandi m>md að vel fór á með þeim stöllum. Grátið af gleði eða svefnþórf? Hæstiréttur í Tokýo felldi nýlega þann dóm að japanska ríkinu bæri að greiða íbúum hverfa í grennd við bækistöðvar bandaríska hersins í borginni skaðabæt- ur sem nema 750 þúsund Bandaríkjadölum. Bæturnar eru vegna hávaða sem kom í veg fyrir eðlilegan svefn þeirra. Konurnar á myndinni eru meðal fómar- dýra þessa ameríska hávaða en hvort þær gráta þama af gleði yfir skyndilegu ríkidæmi sínu eða af svefnþörf einni saman fylgir ekki sögunni. Litríkir í mótmælastaifsemi Margir Israelsmenn telja óhæfu að ísraelsríki hafi nokkur samskipti við Sovét- ríkin fyrr en þau hafa látið af ætluðum mannréttindabrotum sínum gegn gyðingum. Þeir nota nú tækifærið, þegar óopinber sendinefnd frá Sovét er í Tel Aviv, til að koma skoðunum sínum og kröfum á ffamfæri. Leggjast þeir á götur, fyrir framan biffeiðir sovésku sendimannanna, íklæddir fangabúningum, og hafa uppi hið skrautlegasta látæði. í ísrael takmarka þeir sig ekki við að ganga lúpulegir um götu og þylja; „herinn...nei, fyrirgefið, Rússana burt!“ Umsjón: Halldór Valdimarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.