Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987. 21 i skjóta boltanum framhjá stönginni af eigin marklínu DV-mynd Brynjar Gauti i og Jafntefli iarendavelli i jöfh á Hlíðarenda, gerði hvort lið eitt mark sóttu Valsmenn nánast án afláts og rak þá hvert færið annað. í raun var ótrúlegt að sjá hversu mörg opin tækifæri brugð- ust heimamönnum í leiknum. Annað af tvennu gerðist þegar þeir litu markið og markvörðinn framundan, skotin geiguðu ellegar Gísh Heiðarsson varði. Á 27. mínútu jaihar þó Magni Blöndal eftir þunga sókn, fær boltann í upplögðu skotfæri, lætur vaða og boltinn syngur í netinu. Vegalengdin um tuttugu metrar og fögnuður áhorfenda þvi eðlilega mikill. Þótt ótrúíegt sé frá að segja sat þar við því þrátt fyrir ágæt færi fór boltinn ávallt annað en í marknetið. Á 30. mínútu þrumar til að mynda Magni boltanum öðru sinni en í það skip- tið framhjá stönginni. Á þeirri 34. skýtur Guðni Bergsson yfir úr góðu færi utan úr teig. Á 40. mínútu á Sævar Jónsson þrumu- fleyg úr aukaspymu en Gísli ver með stórmerkjum. Á 44 mínútu bjarga Valsmenn á línu eftir skyndisókn gestanna. Á þeirri 48. fellur það hins vegar í hlut Garðspilta að bjarga á línu eftir mikil átök í víta- og markteig þeirra. Á 52. mínútu skýtur Jón Grétar yfir frá markteigslínu Víðsmanna með allt opið framundan. - Svona mætti í raun lengi telja. Víðismenn börðust mjög vel í þessum leik og var vörnin þétt þegar mest lá við, - undir lokin þegar sókn Valsmanna var með þyngsta og ákafasta móti. Þótt Gísli Heiðarsson, markvörður Víð- ismanna, héldi ekki ávallt rennvotum knettinum verður hann að teljast bestur í liði Víðismanna ásamt félaga sínum Daníel Einarssyni. Sævar Jónsson átti góðan dag með Valsliðinu og Guðni Bergsson var einnig frískur með sama lagi og Þorgrímur Þrá- insson. Miðju- og sóknarmenn liðsins hafa margsinnis gert betur. Þó verður að segjast sem er að Jón Grétar les vel leik og er ósjaldan í færum þótt honum takist ekki að nýta þau sem skyldi, - enn sem komið er. Maður leiksins: Gísli Heiðarsson, Víði. Dómari var Eyjólfúr Ólafsson, gerði hann mistök en engin afdrifarík. -JÖG samdi lerlecht Ekki höfðu belgískir blaðamenn á réttu á standa því Nóri tognaði á æftngu hjá Val hér heima. Skammt var því að leita orsa- kanna fyrir fjarveru hans. í spjalli við DV sagðist Amór ætla að fá sig góðan af meiðslum áður en hann tæki á að fullu á nýjan leik. Skrifaði undir í gær Amór skrifaði undir samning við And- erlecht í gær og er samningurinn til eins árs. Forráðamenn félagsins gengu að öllum kröfum Amórs og er hann í kjölfarið einn tekjuhæsti knattspymumaður í Belgíu, - ef ekki sá tekjuhæsti. -JÖG. Staðan Valur- Víðir.... ....... 1-1 KR ...10 5 4 1 18-6 19 Valur ...10 5 4 1 18-7 19 ÞórAk... ...10 6 0 4 20-16 18 Akranes. ...10 5 1 4 14-13 16 Fram 9 4 2 3 11-11 14 Völsungur..9 3 3 3 10-10 12 KA ...10 3 2 .5 7-10 11 Keflavik ...10 3 2 5 15-21 11 FH ...10 2 1 7 9-20 7 Víðir ,..10 0 7 3 5-13 7 Markhæstu menn: Pétur Pétursson, KR............6 Bjöm Rafhsson, KR,.............6 Hlynur Birgisson, Þór,.........5 Jónas Róbertsson, Þór,.........5 íþróttir Keeling fékk að taka pokann sinn Ifldegt að Kjartan Másson og Karl Hermannsson taki við ÍBK Þá hefúr fyrsti þjálfarinn í 1. deild fengið að taka pokann sinn. Peter Keeling, hinn enski þjálfari Keflvík- inga, var látinn hætta hjá liðinu í gær en hann réðist til liðsins í vor. „Það má segja að það hafi orðið að samkomulagsatriði milli okkar og Keelings að hann hætti hjá liðinu,“ sagði Kristján Ingi Helgason, formað- ur knattspymudeildar ÍBK. „Við teljum að við séum ekki á þeim stað sem við eigum að vera í deildinni, Keflavíkurliðið á að vera á allt öðrum stað þar. Við höfum þegar rætt við tvo menn um að þeir taki við liðinu en það em þeir Kjartan Másson og Karl Hermannsson. Það er mikið til komið upp á velvilja Sandgerðinga hvort við faum Kjartan lánaðan en hann þjálfar þá nú.“ Kristján Ingi sagði að Keeling yrði hér á landi fram í ágúst en hann ætl- aði að dvelja hér í fríi með konu sinni eftir að knattspymuskyldum hans lyki. Þá sagði Kristján Ingi að Peter Farell, sem hefur leikið með liðinu í sumar, yrði áfram hjá liðinu enda væri almenn ánægja með hans vem. En skyldu Keflvíkingar hafa orðið fyr- ir einhverjum kostnaði vegna vem Keelings hér? „Auðvitað kostar þetta okkur eitt- hvað en það þýðir ekki að vera horfa í það. Dæmið gekk ekki upp með Keel- ing en við teljum mikið eftir af mótinu og eins og úrslitin hafa verið fram að þessu er staðan fljót að breytast. • Peter Keeling er nú hættur hjá Keflavík. Það kom fram í samtalinu við Krist- ján Inga að það var Keeling sem hafði fyrst samband við Keflvíkinga og bauð fram krafta sína. Þeir reyndu að fá upplýsingar um hann og störf hans erlendis en nú hljóta menn að spyrja sig hvort að þeir hafi ekki keypt kött- inn í sekknum. En hvað skyldi Keeling segja um þessa brottvikningu? „Fyrsti brottreksturinn á 20 ára ferli“ „Ég er mjög vonsvikinn út af þess- ari ákvörðun. Þetta er fyrsti brott- reksturinn á 20 ára ferli mínum sem þjálfari," sagði Peter Keeling en hann vildi lítið láta eftir sér hafa um þessa brottvikningu, greinilegt að hann var mjög vonsvikinn. Hann sagðist hafa fengið tilboð frá Portúgal fyrir mánuði síðan sem hann hefði hafnað vegna * skuldbindinga sinna við Keflvíkinga. Þá sagðist hann hafa fengið tilboð frá Noregi og Svíþjóð þannig að hann hefði að nógu að hverfa. „Ég hef kynnst mörgu góðu fólki hér á landi og hafði góða von um að dvelj- ast hér um tíma. Það ætlar því miður ekki að rætast," sagði Peter Keeling. -SMJ Unnar kastaði 69,68 metra Á innanfélagsmóti KR síðasthðinn fimmtudag náði Unnar Garðarsson HSK að kasta 69,68 m í spjótkasti sem er fjórða besta kast íslendings. Unnar keppir á nokkrum mótum í Danmörku með liði UMFÍ í vik- unni og verður fróðlegt að sjá hvort hann kasti ekki yfir 70 m í ferðinni. -ÓU • Unnar er fjölhæfur kastari en hér sést hann keppa i kúluvarpi á lands- móti UMFÍ. Metsölu- bækur á ensku vikulega í flugi. titlar af tímaritum frá USA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.