Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987. Utlönd Srféltt erfiðara að leysa búsetu- vanda flóttafólks í Thailandi Dr. Haing Ngor, læknirinn sem tókst að flýja rauðu khmerana í Kambód- íu og síðar varð kvikmyndastjarna með leik sínum í „The Kiiling Fields", hyggst nú beita sér fyrir aðstoð við landa sína sem búa í flóttamannabúð- um i Thailandi. Hann vinnur nú að fjársöfnun til byggingar á sjúkrahúsi sem á að þjóna flóttafólkinu á landamærasvæðum Kambódíu og Thai- lands. Simamynd Rcuter Æ erfiðara reynist nú að leysa búsetuvanda þeirra sem búa í flóttamannabúðum í Thailandi. Talið er að nær þrjú hundruð þús- und manns dvelji nú í búðunum og hafa flestir þeirra verið í þeim um nokkurra ára skeið. Fólk þetta á margt ekki afturkvæmt til síns heimalands og uppfyllir ekki þau skilyrði sem önnur ríki setja til þess að þvi séu veittar heimildir til að leita sér að nýju heimalandi. Flóttamannabúðirnar eru stjóm- völdum í Thailandi nokkur þyrnir í augum, enda telja þau sig greina ýmis merki þess að flóttamanna- vandamál taki engan enda þótt töluvert hafi úr þeim dregið. Flóttamannabúðirnar eru dreifðar eftir um átta hundruð kílómetra löngum landamærum. Langtímadvöl I ágústmánuði síðasta árs voru opinberlega skráðir liðlega eitt hundrað tuttugu og fimm þúsund flóttamenn frá löndum Suðaustur- Asíu í Thailandi. Um þrjátíu þús- und voru frá Kambódíu, níutíu þúsund frá Laos, liðlega sex þúsund frá Víetnam. Af þessum flóttamönnum hafði nær helmingur, eða yfir fimmtíu og átta þúsund, dvalist í flótta- mannabúðunum meira en íjögur ár. Flest þetta fólk kom til Thailands í þeirri trú að þaðan væri leiðin tiltölulega greið til annarra landa. í viðtölum hefúr ítrekað komið fram að flestir bjuggust við eins eða tveggja ára dvöl í flóttamannabúð- um, en töldu víst að innan þess tíma fengju þeir dvalarleyfi í vestrænum ríkjum eða annars staðar þar sem þeir gætu séð sér og sínum far- borða. Raunin hefur þó orðið önnur, því af þeim sem skráðir voru í flótta- mannabúðunum á síðasta ári höfðu tæplega tíu þúsund dvalið þar 2-3 ár, liðlega sjö þúsund 3-4 ár og, eins og fyrr segir, fimmtíu og átta þúsund meira en fjögur ár. Liðlega sjötíu og fimm þúsund hafa því dvalist í búðunum lengur en flestir töldu að yrði hámark tímans þar. Sífellt tregari Þau ríki, sem flóttamenn sækjast eftir að komast til, verða sífellt tregari til að taka við þeim. í upphafi flóttamannastraumsins frá Kambódíu heimiluðu engin ríki innflutning þeirra frá Thailandi. Þessu var síðan brey tt og á árunum 1975 til 1986 fengu um tvö hundruð og ellefu þúsund Kambódíumenn landvistarleyfi í þriðja landi, af þeim sem komu til buðanna í Khao -I-Dang og annarra söfnunarstaða sem starfa undir umsjón Flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna. Síðustu ár hefúr gengið erfiðlega að fá slík landvistarleyfi fyrir Kambódíumenn. Árið 1984 komust um tuttugu og eitt þúsund þeirra til þriðja lands, 1985 fækkaði heim- ildum í nítján þúsund og fimm hundruð og 1986 urðu þær aðeins um sex þúsund. Margir þeirra sem enn sitja í flóttamannabúðunum hafa reynt ítrekað að fá landvistarleyfi annars staðar en verið neitað. Þar sem þeim tekst ekki að uppfylla þau skilyrði sem sett eru af hálfu við- tökuríkjanna er talið ólíklegt að þeir fái nokkru sinni landvistar- heimildir. Thailensk yfirvöld standa því frammi fyrir því að velja milli þess að senda fólkið til síns heima eða festa flóttamannabúð- irnar endanlega í sessi. Misjöfnu vanir Þótt hugsanlega leynist meðal flóttamanna í Thailandi einstakl- ingar sem þangað eru komnir annaðhvort af ævintýraþrá eða eru á flótta vegna eigin afbrota eru þeir taldir sárafáir. Margir hafa flúið heimaland sitt af öryggisá- stæðum, aðrir beinlínis til að komast áfram til annarra landa þar sem þeir töldu að þeirra biðu betri tækifæri. Aðstæður þær, sem þeir flúðu frá, voru að sjálfsögðu misjafnar, og ef til vill eru það Kambódíumenn sem höfðu mestar ástæður til að flytja sig um set. Undanfama áratugi hefur kambódíska þjóðin þurft að þola mikið. Ríkisstjóm Lon Nol, sem Bandaríkjamenn studdu á sínum tíma, var gerspillt og styrjaldar- ástand hafði ríkt í landinu um nokkurt árabil þegar rauðu khmer- arnir náðu loks undirtökunum og komust til valda. Kambódíumenn fögnuðu khmerunum, því með sigri þeirra tóku loftárásir bandaríska flughersins á landið enda, en þær voru gífurlegar á tímabili. Fljótlega eftir valdatöku sína hófu rauðu khmeramir hins vegar umfangsmikla hermdarverkastarf- semi í landinu. Talið er að þeir hafi myrt hundmð þúsunda, jafn- vel milljónir Kambódíumanna, í morðæði sem vart á sinn líka í ver- aldarsögunni. Opinberar áætlanir telja að fórnarlömb þeirra hafi ver- ið að minnsta kosti hálf milljón manna. Aðrir telja þau hafa verið mun fleiri og nefna tölur allt að fjórum milljónum, sem ýmist vom myrtir eða dóu úr hungri. Þar sem Kambódíumenn vom taldir um sjö milljónir má sjá að khmemnum hefur tekist að útrýma að minnsta kosti tíunda hverju mannsbami í landinu. Það er því ekki að undra þótt áralöng dvöl í flóttamannabúðum virðist Kambódíumönnum væn- legri kostur en að snúa aftur heim. Búðum lokað Thailensk yfirvöld vilja hins veg- ar að þeir sem mögulega geta hverfi nú aftur til síns heimalands. Þeir hafa á undanfömum árum lokað nokkrum flóttamannabúðum, þar á meðal búðunum í Khao-I-Dang, og flutningar á íbúum þar til landa- mæra Thailands og Kambódíu eru hafnir. í byrjun marsmánaðar þessa árs voru liðlega tvö hundmð Kambód- íumenn, sem voru í hópi þeirra sem taldir em ólöglega komnir til flóttamannabúða í Thailandi, send- ir aftur inn á einskismannsland við landamæri ríkjanna. Stjómvöld telja margt hníga að því að loka beri flóttamannabúð- um. í fyrsta lagi kemur þar til eindreginn vilji þeirra til að fækka búðunum. I öðm lagi hversu illa gengur að finna samastað fyrir þá sem eftir em í þeim. í þriðja lagi telja talsmenn thailensku stjómar- innar að flóttamenn eigi ekki lengur vísa samúð almennings sem sé orðinn langþreyttur á vanda- málum þeirra. Loks telja stjómvöld að búðimar virki sem aðdráttarafl á þá sem búa skammt frá landa- mærum ríkjanna og leiði til afbrota og glundroða meðal þeirra. Mikið hjálparstarf Undanfarin ár hefúr mikið hjálp- arstarf verið unnið fyrir flóttamenn í Thailandi. Fjölmargar hjálpar- stofrianir hafa unnið umfangsmikið starf þar og gera enn. í skýrslu Alþjóðaráðs Rauða krossins kemur fram að árið 1986 var varið liðlega þrettán milljónum svissneskra franka til starfs Rauða krossins á svæðinu, eða um þrjú hundruð og fimmtíu milljónum ís- lenskra króna. íslenski Rauði krossinn lagði fram liðlega 1,2 milljónir króna af því fé. Áætlað er að hjálparstarf Alþjóða Rauða krossins í Thailandi muni kosta tæplega ellefu milljónir svissneskra franka á þessu ári, eða nær þrjú hundmð milljónir ís- lenskra króna. íslenski Rauði krossinn hefúr undanfarin ár sent starfsfólk til þessa hjálparstarfs og hafa nú sam- tals farið um tuttugu manns sem starfað hafa um hálfs árs skeið hver. Mikil þörf Að sögn Pálínu Ásgeirsdóttur hjúkrunarfræðings, sem á síðasta ári vann við hjálparstarf í Thai- landi, er þörfin á slíku starfi mjög mikil. Fyrst og fremst eru það landlægir hitabeltissjúkdómar, vandamál sem fylgja miklu þéttbýli og þeir áverkar, sem fylgja hemaðarátök- um, sem við er að glíma. „Það er komið upp nokkuð gott eftirlit með langtímafólkinu," sagði Pálína í viðtali við DV, „en engu að síður er alltaf að koma inn nýtt fólk í mismundandi ástandi og áverkar af völdum hemaðarins em alltaf töluverðir, til dæmis þeg- ar fólk er að ganga á jarðsprengj- ur.“ Pálína taldi heilbrigðisástand í flóttamannabúðunum eins gott og hægt væri við þær aðstæður sem þar ríkja. Alltaf mætti þó betur gera. Óvæntur liðsauki Hjálparstofriunum í Thailandi er um þessar mundir að berast óvænt- ur liðsauki. Dr. Haing Ngor, læknir frá Kambödíu, sem tókst að flýja undan rauðu khmemnum, gengst nú fyrir fjársöfnun til byggingar á sjúkrahúsi við landamæri Thai- lands og Kambódíu og er ætlun hans að sjúkrahúsið þjóni íbúum landamærasvæðanna. Ngor öðlaðist heimsfrægð fyrir leik sinn í kvikmyndinni „The Kill- ing Fields", en hún var byggð á lífsreynslu hans sjálfs. Hann er um þessar mundir að vinna að gerð annarrar kvikmyndar en hefúr jafnframt ákveðið að láta landa sína njóta ávaxtanna af velgengni sinni, eftir því sem hann getur. Ngor ætlar sjúkrahúsi þessu að sjá um þjálfun á starfsfólki sem unnt verður að senda út í flótta- mannabúðimar. Einir fjömtíu læknar hafa þegar boðið sig fram til starfa við sjúkrahúsið. Ef til vill er þetta framtak dr. Ngor upphafið að lausn vanda flóttafólksins. Ngor segist sjálfur ekki bitur í garð rauðu khmeranna þótt þeir hafi myrt foreldra hans og unnustu. Hann segir nauðsyn- legt að gleyma fortíðinni, lifa fyrir framtíðina, og vill aðstoða landa sína til þess að þeir geti komist inn á sömu braut. Vonast margir til að framlag Ngor verði til þess að aðr- ir kambódískir flóttamenn, sem hafa komist í álnir í nýjum heima- löndum, feti í fótspor hans og með því kunni að skapast grundvöllur til nýs lífs fyrir þær tugþúsundir kambódískra flóttamanna sem í dag virðast ekki eiga sér fram- tíð. í flóttamannabúðum í Thailandi er nú talið að búi hátt á þríðja hundrað þúsund manns. Opinberar töíur herma að Kambódíumenn séu þar um þrjátíu þúsund. Erfitt er að koma þessu fólki fyrir, einkum þar sem önnur ríki verða sifellt tregari til aö heimila þeim landvist hjá sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.