Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987. í gærkvöldi Ámi Emilsson útibússtjórí „Stórfiéttir úr skákheiminum Sjónvarpið er alveg hreint ág- ætt. Alla vega svo gott að ég þarf ekkert frekar að vera að glápa á það. Það er náttúrlega stór kostur. Ég horfi alltaf á fréttimar, af þeim vil ég alls ekki missa. Stundum kíki ég á fréttir á Stöð 2 en ég vil ekki gera upp á milli fréttatímanna tveggja. Annars er ein stöð alveg nóg fyrir mig og við erum ekki með afruglara. Það er þó ágætt að geta fengið fréttir frá þessum mismun- andi aðilum. Við fengum aldeilis stórfréttir í gærkveldi af Héðni Steingrímssyni, skákmanni okkar. Það er allt útlit fyrir að við séum að eignast nýjan heimsmeistara. Þetta er frábær ár- angur hjá ekki eldri strák. Hann á eftir að standa sig vel, enda alveg bráðskarpur strákur. Eftir fréttim- ar horfði ég á þátt frá menningar- hátíðinni á ísafirði sem var merkisatburður á landsbyggðinni. Árni Emilsson. Þar vom viðtöl m.a. við Sverri Hermannsson sem var að vanda glaðbeittur og ódeigur í tilsvörum. Ég held mikið upp á Sverri og sé eftir honum úr ráðherrastól. Framhaldsþætti horfi ég aldrei á og er því blessunarlega laus við að eiga einhverja uppáhaldsþætti í sjónvarpinu. Það sem ég horfi aðal- lega á eru t.d. skákviðburðir, sem ég fylgist alltaf með. Svo hef ég gaman af þáttum utan af lands- byggðinni, pólitík og íþróttum. Það er helst að ég hlusti á útvarp í bílnum og þá alltaf á gamla ríkis- útvarpið. Fréttirnar þar em mjög góðar. Annars hlusta ég aldrei á þessar nýju rásir. Þar er eintóm graðhestamúsík sem drepur hvern meðalmann. Ég enda kvöldin alltaf á því að lesa og í gær brá ég ekki út af þeirri venju og las í Kristni- haldi undir Jökli um Jón prímus og félaga. Vanhæfi ríkissaksóknara: Malinu hugsanlega hraðað í Hæstarétti Andlát Þorsteinn Þorbjörnsson bókari lést 13. júlí sl. Hann var fæddur í Reykjavík 1. nóvember 1915. For- eldrar hans voru hjónin Þorbjörn Þorsteinsson og Sigríður M. Niku- lásdóttir. Þorsteinn starfaði sem skrifstofustjóri Sameinaðra verk- taka á Keflarvíkurflugvelli þar til byggingardeild Sameinaðra verk- taka, Dverghamrar sf., var stofnað þá var hann skipaður forstöðumaður Dverghamra og starfaði þar til dauðadags. Eftirlifandi eiginkona hans er Guðný Jóhannsdóttir. Útför Þorsteins verður gerð frá Fríkirkj- unni í Reykjavík í dag kl. 15. Óskar Valdimarsson lést 13. júlí sl. Hann var Austfirðingur að ætt og uppruna, fæddur á Streiti í Breiðdal hinn 26. júlí 1918. Hann ólst upp á Fáskrúðsfirði og hóf ungur sjómennsku, fyrst á heimaslóðum, síðar í Vestmannaeyjum og víðar en settist svo að a riöfn í Hornafirði. Eftirlifandi eiginkona hans er Maren Júlíusdóttir. Þeim hjónum varð þriggja dætra auðið. Útför Óskars verður gerð frá Hafnarkirkju, Höfn Homarfirði í dag kl. 14. Jean Jóhann Le Sage De Font- enay, Útgörðum, Hvolshreppi, verður jarðsunginn frá Stórólfs- kirkju fimmtudaginn 23. júlí kl. 14. Jóhannes F. Jónsson kennari, Grænukinn 22, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnaríjarðarkirkju föstudaginn 24. júlí kl. 13.30. Þorleifur Jónsson loftskeytamaður lést 3. júlí sl. Hann fæddist í Hafnar- firði 6. janúar 1909. Foreldrar hans voru hjónin Guðlaug Oddsdóttir og Jón Þorleifsson. Eftirlifandi eigin- kona hans er Dagbjört Guðmunds- dóttir. Þau hjónin eignuðust eina dóttur. Einnig ól Þorleifur upp son Dagbjartar og þau hjónin dótturson sinn. Útför Þorleifs verður gerð frá Garðakirkju í dag kl. 13.30. Jónína (Jóna) Þorkelsdóttir, Snorrabraut 58, Droplaugarstöðum, áður Bergþórugötu 20, verður jarðs- ungin frá Langholtskirkju miðviku- daginn 22. júlí kl . 13.30. Þórunn L. Sturlaugsdóttir, Brekkutanga 16, Mosfellssveit, verð- ur jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag 21. júlí kl. 15. Marinó Sigurðsson, Bakka, Bakkafirði, verður jarðsunginn frá Skeggjastaðakirkju í dag 21. júlí kl. 14. Einar G. Bjarnason sem lést í Sví- þjóð 7. júlí, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, 21. júlí, kl. 13.30. Kristín G. Níelsen, Dalbraut 27, lést í Landakotsspítala 10. júlí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Árni Garðar Kristinsson, Mela- braut 55, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 23. júlí kl. 13.30. Stefán Sigurðsson frá Strýtu, verð- ur jarðsunginn frá Djúpavogskirkju í dag, 21. júlí, kl. 14. Tilkyimingar Rit um ættarnöfn og erlend mannanöfn í íslensku. Út er komið ritið Um ættamöfn og erlend mannanöfn í íslensku eftir Ingólf Pálma- son, eand.mag., fyrrverandi lektor við Kennaraháskóla Islands. Ritið sem er 52 bls. að stærð fjallar einkum um beygingu eða beygingarleysi ættarnafna og erlendra mannanafna í íslensku á síðari árum. Ri- tið er leiðbeiningakver um góða meðferð móðurmálsins en jafnframt fræðileg grein- argerð um uppkomu og notkun ættamafna á lslandi. „Þegar öll málsskjöl hafa borist mun ég kalla hæstaréttardómarana til fundar um hvort kærumál á frávísun- ardómi Sakadóms um vanhæfi ríkis- saksóknara í Hafskipsmálinu verði flutt í Hæstarétti þrátt fyrir að réttar- hlé standi þar yfir til 16. september samkvæmt reglugerð," sagði Magnús Thoroddsen, forseti Hæstaréttar, en á fimmtudaginn dæmdi Sakadómur Reykjavíkur ríkissaksóknara van- hæfan í máli þessu vegna setu bróður hans, Jóhanns Einvarðssonar, í bank- aráði Útvegsbankans hluta þess tímabils sem um ræðir. „Það er venjan að einungis séu tekn- ar fyrir kærur vegna gæsluvarðhalda í Hséstarétti á meðan á réttarhléi stendur og man ég ekki eftir fráviki frá því. Það er þó möguleiki að kom- ist verði að þeirri niðurstöðu núna í stað þess að málið sé látið bíða. Mál þetta verður flutt skriflega og geri ég ráð fyrir að fimm hæstaréttardómarar dæmi í því vegna þess hve umfangsm- ikið það er, en venjulega dæma þrír í kærumálum. Núna bíðum við eftir að fá greinargerðir frá verjendum ákærðu, þær koma líklega í þessari viku. Fyrr getum við ekki tekið ák- vörðun um hvort kærumál þetta verður flutt áður en réttarhléinu lýk- ur,“ sagði Magnús. -BTH Spakmælid Mesta hollustan, sem vér getum sýnt sannleikanum, er sú aö fylgja honum. Emerson Finnur aðstoðarmaður Guðmundar Finnur Ingólfsson hefur verið ráð- inn aðstoðarmaður Guðmundar Bjamasonar, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra. Finnur hefur verið aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegs- ráðherra undanfarin fjögur ár en samkomulag náðist milli Finns, Guð- mundar og Halldórs um að Finnur flytti sig yfir í heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið. Finnur er við- skiptafræðingur frá Háskóla íslands. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra hefur ekki ákveðið hvem hann fær sér til aðstoðar í stað Finns. -ES „Bátur í sólsetri", verk eftir einn húsbyggjanda á Dalvík. DV-mynd JGH Þeir skreyta húsin á Dalvík Jón G. Haukssan, DV, Akureyii; „Bátur í sólsetri" er líklegast nafnið á þessari mynd sem er á einu margra fallegra húsa á Dalvík. Það hefur færst nokkuð í vöxt á staðnum að skreyta húsin með myndum sem þessari. Ekki vitum við hvað arkitektamir segja, hvað þá burðarþolsmenn, en víst er að víða leynast kúnstnerar. Skemmti- legur myndarskapur þetta. SMÁ-AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN. Smáauglýsingadeild sími 27022. Grímsey: Sex lottóraðir á hvem íbúa Grímseyingar vom duglegir að kaupa lottómiða fyrstu heilu vikuna sem lottókassi var í gangi í eynni, hvorki meira né minna en 130 sölur urðu yfir alla vikuna en íbúar á eynni em 116 alls. Það þýðir að hver íbúi gerði sér 1,12 sinnum far með miða í kassann. í heildina seldust miðar fyrir 17.825 krónur sem þýðir 713 raðir. Það em rúmar sex raðir á hvem eyjar- skeggja eða um 153 krónur. Bjami Bjamason, sölustjóri hjá ís- lenskri getspá, sagði að salan hefði farið langt fram úr því sem búist var við en Grímseyingar hefðu samt sem áður misst af stóra vinningnum sem var að þessu sinni um 1,7 milljónir króna. -BTH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.