Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987. Frjálst.óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 550 kr. Verð i lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Hugmynd á frumstigi - svona mynd Sama hugmynd, svolitið meira unn- geta allir gert. in. Enn sama hugmynd en útfærð þannig að fleiri geti gert sér grein fyrir því við hvað er átt. Vernduð þjóðfélög tapa Fulltrúar íslands eru nú í Washington að reyna að fá bandarísk stjórnvöld til að hætta við að beita okkur viðskiptaþvingunum vegna hvalveiðanna, sem við köll- um vísindaveiðar og stundum enn í trássi við heilbrigða skynsemi og hagsmuni okkar í utanríkisviðskiptum. Hingað til hafa Bandaríkjamenn verið hinir þverustu og vísað til laga, sem skylda stjórnvöld til að beita okkur viðskiptaþvingunum vegna þessa leiðindamáls. Er nú svo komið, að lagakrókar og orðhengilsháttur vísindaveiða duga okkur tæpast lengur í vörninni. Hvalveiðikárínur okkar eru dæmi um, hvernig þrýsti- hópar geta stjórnað viðskiptastefnu voldugra ríkja. Þar vestra ráða ferðinni tiltölulega fámennir en afar hávær- ir hópar róttækra náttúru- og dýravina, alveg eins og hér stjórna afar þröngir eiginhagsmunir Hvals hf. Fleira getur orðið okkur að harmi en hin mikla og síðbúna vísindahugsjón. Við gerum okkur vonir um að geta selt mikið af eldislaxi til Bandaríkjanna. Sá út- flutningur mun rekast á þrönga hagsmuni bandarískra laxeldismanna, svo sem Norðmenn hafa fundið fyrir. Matvæla- og lyfj aeftirlit Bandaríkjanna hefur hótað innflutningsbanni á norskan eldislax á þeim forsendum, að laxinn sé fóðraður á rækjuskel, sem geti haft að geyma skaðleg efni. Rækjuskel er einmitt fóðrið, sem íslendingar nota til að gera laxinn rauðan og girnilegan. Skaðsemi rækjuskeljar er yfirskin. Matvælaeftirlitið bandaríska er notað þar á svipaðan hátt og embætti yfirdýralæknis hér á landi til að vernda innlenda hags- muni. Hér er bannað að flytja inn kjöt til að vernda landbúnaðinn, en ekki til að varðveita heilsu neytenda. Við getum ekki kvartað um höft í Bandaríkjunum og öðrum löndum, þegar við sjálf bönnum að flytja til landsins kjöt og smjör, osta og stundum grænmeti. Við erum sjálf á fullu í sjálfseyðingarstefnu haftanna. Við tökum þátt í leik, sem heitir: Allir gegn öllum. Þegar sérhagsmunir ríkja, verða almannahagsmunir að víkja. Haftastefnan er rekin á kostnað neytenda. í Bretlandi var nýlega reiknað út, að verndun innlendrar framleiðslu á skóm úr gerviefnum kostaði brezkt þjóð- félag tólf sinnum meira en fríverzlun mundi gera. íslenzkir neytendur borga íslenzka haftastefnu með því að greiða miklu meira og í sumum tilvikum marg- falt meira en þeir þyrftu fyrir kjöt og smjör, osta og grænmeti. Við gætum öðlazt glæsileg lífskjör með því einu að leyfa frjálsa milliríkjaverzlun þessara vara. Ef Bandaríkjamenn refsa okkur fyrir hvalveiðar með því að leggja stein í götu íslenzks freðfisks, eru þeir um leið að þrengja samkeppnina og hækka vöruverð í landinu. Hið sama er að segja, ef þeir reyna að koma í veg fyrir innflutning á norskum og íslenzkum eldislaxi. Því miður blása haftavindar í Bandaríkjunum. Fyrir þinginu í Washington liggja nokkur hundruð þing- mannafrumvörp, sem stefna að varðveizlu þröngra hagsmuna gegn innflutningi. Smám saman er þannig verið að smíða efnahagslífinu verndað umhverfi. Fáar þjóðir eru eins háðar utanríkisviðskiptum og íslendingar eru. Við ættum því að hafa forustu um að afnema eigin höft á viðskiptum milli landa og beita okkur af alefli á alþjóðlegum vettvangi fyrir eins mik- illi fækkun slíkra hafta og frekast er unnt. Allir tapa í leiknum: Allir gegn öllum. En mest tapa þeir, sem ekki telja sig þola vinda erlendrar samkeppni og búa sér, með höftum, verndað umhverfi sérhagsmuna. Jónas Kristjánsson Samband við almenning við gerð skipulags: Yfiivarp eða alvara Einn mikilvægasti hluti skipulags- vinnu er að komið sé á ákveðinni samvinnu og samskiptum þeirra að- ila sem tengjast þessari vinnu. Vitneskja um og samræming við aðra skipulagsvinnu, aðstæður og framkvæmdir á viðkomandi svæði eru oft grundvallaratriði sem skera úr um það hvort viðkomandi skipu- lagsvinna tekst vel eða illa. Ef skipulag tekur ekki tillit til þessara atriða verður það yfirleitt ekki ann- að en óraunhæf lýsing á því sem um er fjallað eða óskadraumur sem leið- ir til villandi ábendinga. Ef skipulag á einhveiju sviði er þannig úr tengsl- um við skipulagsvinnu eða ákvarð- anatöku, sem á sér stað á öðrum vettvangi, er hugsanlegt að endan- legar tillögur verði óframkvæman- legar og að endurskoða þurfi skipulagið frá grunni. Óframkvæm- anleg skipulagsáætlun verður oft til vegna skorts á yfirsýn og þar sem viðkomandi aðilar gera sér ekki grein fyrir öllum atriðum eða heild- arsamhengi málsins. Þetta er samt hægara sagt en gert og kemur margt til. Þau mál, sem verið er að fást við með skipulagi, eru alltaf að verða flóknari og flókn- ari, samskipti okkar við aðrar þjóðir eru stöðugt að aukast og sá tími að styttast sem við höfum til þess að ráða fram úr málum. Til þess að draga úr hættu á mistökum í skipu- lagi er nauðsynlegt að skipuleggj- endur kanni rækilega hvað áður hefúr verið gert á viðkomandi sviði og hvaða atriði sé verið að skipu- leggja eða hverju sé verið að breyta sem geti haft áhrif á þessa vinnu. Þetta er ekki eins auðvelt og virðast kann við fyrstu sýn, því að oft taka allmargir aðilar þátt í mismunandi skipulagsvinnu á sama svæði. Mikla áherslu verður að leggja á þessi sam- skipti ef vel á að vera og hér þarf meira til en orðin tóm. Það er því nauðsynlegt við alla skipulagsvinnu að hún sé í traustum tengslum við þá skipulagsvinnu sem hefur verið unnin og verið er að vinna. Skipulagsáætlun í hverju sveitar- félagi þarf þannig að samræma og bera undir fjölmarga aðila: viðkom- andi skipulagsyfirvöld, ýmsar ríkis- stofhanir, önnur sveitarfélög sem framkvæmdin hefúr áhrif á, fyrir- tæki sem málið varðar og hópa og félög sem hafa áhuga á málinu. Auk þess kemur hér til almenn kynning. Skipulagsvinna þarf einnig að vera í fullu samræmi við ýmis lög og reglugerðir ríkis og sveitarfélaga. Samband við almenning órofa hluti Hér á landi er um fjölmarga aðila að ræða, sem nauðsynlegt eða æski- legt er að hafa samráð við í sambandi við þessi mál. Samráð við almenning er þó mikilvægast í öllu samstarfi að skipulagsmálum. Þetta samband við almenning er órofa hluti af skipulagsvinnu, ekki einungis vegna þess að þetta er víða skylda lögum samkvæmt, heldur einnig til þess að tryggja að hægt sé að framkvæma viðkomandi skipulagsáætlun. Þeir sem skipuleggja mega ekki missa sjónar á því að skipulag er gert fyrir fólk og við skipulagsvinnuna verður að taka tillit til þarfa og óska þeirra sem vinna og búa á svæðinu. í reglugerð um gerð skipulagsáætl- ana frá 1985 er að finna ákvæði þess KjaUaiinn Gestur Ólafsson skipulagsfræðingur og arkitekt efnis að sveitarstjóm skuli kynna skipulag í vinnslu og efna til al- mennra borgarafunda áður en hún tekur endanlega afstöðu til þess og er það vel. I skipulagslögunum, sem em allar götur frá 1964, er hins veg- ar ekkert slíkt ákvæði að finna. Sérstakt hverfaskipulag, sem Reykjavíkurborg hefur nýverið inn- leitt, fyrst sveitarfélaga á íslandi, getur komið hér að góðu gagni, en því aðeins að það takist að virkja fólk til samstarfs um þessi mál. Hug- myndin með öllu þessu sambandi og samstarfi er nefnilega sú að fleiri hugmyndir en einungis þeirra sem skipuleggja fái notið sín. - Betur sjá augu en auga. Stefriumörkun ráðuneyta og fjár- hags- og framkvæmdaáætlanir sveitarfélaga em önnur tegund af skipulagi sem líka er sjálfsagt að kynna og ræða mun betur en nú er gert. Maraþonnæturfundir um þessi mál, sem útiloka meirihluta fólks frá þátttöku, ættu líka að vera óþarfir í nútímaþjóðfélagi. Hugmyndir manna um það hvemig þessu sam- bandi við fólk skuli vera háttað hafa breyst mjög mikið undanfama ára- tugi. Rétt er að reyna ekki að einfalda um of þetta samband við fólk. Hér er um meira að ræða en það að halda einn borgarafund og vona að fólk mæti, en þeir sem skipu- leggja bera óumdeilanlega ábyrgð á því að almenningur taki þátt í þess- ari vinnu á virkan hátt. Ólík skilgreining á vandamál- um og gildismati Mikill fjöldi af fyrirhuguðum fram- kvæmdum, skipulagsáætlunum, framkvæmdaáætlunum og stefnu- mörkun stjómmálaflokka dynur sífellt á almenningi. Þeir sem skipu- leggja bera ábyrgð á því að hjálpa almenningi til þess að skilja þessi mál og víðara samhengi þeirra. Kostir og gallar viðkomandi skipu- lags eða framkvæmda em oft ekki augljósir og almenningur á oft erfitt með að gera sér fyllilega grein fyrir afleiðingum hvers kostar. Það er afar mikilvægt að almenningur skilji að sérhver kostur - líka sá að gera ekki neitt - í nær öllum fyrirhuguð- um framkvæmdum, hefúr jákvæð eða neikvæð áhrif á einhverja. Hluti af markvissu skipulagi er að gera sér grein fyrir þessu í tíma og gera viðhlítandi ráðstafanir til þess að hjálpa fólki til að skilja þau mál- efni sem um ræðir. Mjög mikilvægt er að þeir sem skipuleggja gerist hér ekki talsmenn ákveðinnar stefnu eða hugmyndafræði, eins og því mið- ur er alltof algengt. Samráð við almenning er heldur ekki eingöngu fólgið í því að upplýsa fólk um þessi mál. Orðið samráð bendir til samstarfs við fólk. Það er ekki hægt að hugsa sér mörg mál- efni þar sem þeir sem skipuleg^j.. geti skilið þau til hlítar án slíks samráðs við hlutaðeigandi aðila, enda er hér á mörgum sviðum um mjög ólíka skilgreiningu á vanda- málum og gildismat að ræða. Samt sem áður er unnt að fást við ýmiss konar vandamál og ástand mjög opinskátt og á fullnægjandi hátt ef slíkt samráð er haft á fyrstu stigum skipulagsvinnunnar, í stað þess að vænta þess að almenningur sam- þykki ákveðinn kost á síðustu stigum þessarar vinnu. Gestur Ólafsson „Þeir sem skipuleggja mega ekki missa sjónar á því að skipulag er gert fyrir fólk og við skipulagsvinnu verður að taka tillit til þarfa og óska þeirra sem vinna og búa á svæðinu.“ I dag þurfa menn ekki að vera sprenglærðir skipulagsfræðingar til þess að koma hugmyndum á framfæri. Alls konar ódýrar aðferðir standa til boða. Aðalatriðið er að hafa hugmynd eða skoðun - og þora.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.