Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Síða 31
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987.
31
i>v Sandkom
•■í'v
Af þessum tveimur mœtti nú ná í drjúgan skildingínn i ríkissjóö.
Gúrka ársins
Þjóðviljinn hefiir tekið upp á
nýstárlegum sið í hveiju blaði.
Um þriðjungur annarrar síðu
er lagður undir það sem þeir
kalla „gúrka dagsins". Hyggj-
ast Þjóðviljamenn veita „koll-
egum“ sinumþessi verðlaun
fyrir hugmyndaauðgi við að
fylla fréttasíðumar á svoköll-
uðum gúrkutima en þá þykir
lítið um að vera sem fréttnæmt
getur talist. Reyndir fjöl-
miðlahaukar hafa þó séð í
gegnum þessa íléttu Þjóðvilj-
ans sem vissulega er snjöll og
verðskuldar titilinn „gúrka
ársins". Þjóðviljamenn ná
sjálfir að fylla gott pláss á
aðalfréttasíðunni hjá sér með
engu en láta líta út fyrir það
í leiðinni að keppinautamir
hafi'frá engu að segj a - snilld-
arbragð.
Ávartsinn
líka
Ráðherrabíllinn, sem Þor-
steinn Pálsson forsætisráð-
herra ekur um á, er um margt
athyglisverður og þá einkum
og sér í lagi þar sem hann á
vart sinn líka hériendis. Bíll-
inn er af gerðinni Audi 200
Turbo og munu einungis vera
2 þeirrar tegundar hérlendis.
Bílinn er fyrrverandi for-
stjórabíll, þjónaði áður undir
Ingimund Sigfússon, forstjóra
Heklu. Þegar Þorsteinn var
fjármálaráðherra mun hann
hafa keypt bílinn notaðan og
látið gamla ráðherrabílinn
fara upp í skiptin en sagan
segir að afgangnum hafi verið
snarað út á borðið.
Hvaðsegja
reglumar?
Talandi um ráðherrabíla þá
er kannski ekki úr vegi að
minnast á það að á miðviku-
daginn birti DV myndir af 6
ráðherrabílum. Þó að mynd-
imar láti ekki mikið yfir sér
í fyrstu hafa glöggir menn þó
tekið eftir einu athyglisverðu.
Aðeins einn bílanna, bíll for-
sætisráðherra, var merktur
sem ríkisbifreið. Hinir vom
allir ómerktir. Þykjast þessir
glöggu menn muna eftir reglu-
gerð sem sett var einhvem
tímann í fymdinni og kveður
á um að ríkisbifreiðir, allt frá
ráðherrabíl niður í snjóplóg,
eigi að vera merktar. Ráð-
herramir hljóta þá að hafa
gleymt reglugerðinni, ef satt
er, enda önnum kafhir.
Allsherjar-
lausnin
1 fsafj arðarblaðinu Bæjar-
ins besta er orðuð hugsanleg
leið til tekjuöflunar fyrir rík-
issjóð - það er að setja kílóa-
skatt á einstaklinga, alveg
eins og nú á að gera við bíla.
Þegar þessi hugmynd er út-
færð kemur í ljós að hugmynd-
in hefur ekki eingöngu í för
með sér tekjur heldur einnig
mntalsverðan spamað. Ef
reiknað er með því að íslend-
ingar séu 250.000 og meðal-
þyngdin sé 45 kíló em
tekjumar um 45 millj ónir ef
skatturinn er 4 krónur á kílóið
eins og á að leggja á bifreiðir.
Spamaðurinn verður síðan í
heilbrigðiskerfinu sem tekur
til sín rúman þriðjung út-
gjalda ríkisins. Auðvitað mun
heilsufar fólks batna þegar
allir reyna að halda sér í kjör-
þyngd. Þannig verður fólk
nátengt ríkiskassanum og
tekjustofninn mundi sýna vel-
megun þjóðarinnar betur en
nokkurvísitala.
Geimvamir
Gamansamiu- lesandi hafði
ákveðnar skoðanir á aðgerð-
um orlofshúsaeigenda í
Húsafelli en þeir vilja ekki að
haldin verði þar útihátíð.
Vildi hann meina að aðgerðir
þeirra ætti að kalla, geim-
vamir þvi þeir vildu jú vama
þvi að í Húsafelli yrði villt
geim.
Kynlífsáhugi
Tímans
Tíminn, málsvari frjálslynd-
is, samvinnu og félagshyggju,
mddist fram á ritvöllinn með
látum á fimmtudaginn og tók
þátt í umfjöllun um kynferðis-
mál. Tíminnleggur forsíðuna
og heila innsiðu undir um-
fjöllun bandaríska tímaritsins
Newsweek um kynlífssýki.
Það sem vekur einna mesta
eftirtekt er að á forsíðunni er
birt mynd af fyrirsögnum þar
sem verið er að segja frá kyn-
ferðismálum ýmiss konar og
em þær allar teknar úr öðrum
blöðum.
Umsjón:
Jónas Friörik
Ráóherrabill Þorsteins á sér vart sinn lika, bsði hvað varðar tegund
og merkingu ráðherrabila.
Guðmundur Salómonsson sýndi besta árangurinn á Húsavík og náði öðru sætinu yfir landið.
Ökuleikni BFÖ og DV:
Ágætis þátttaka í ökuleikni
Þó vantar fleira kvenfolk
Ökuleiknin hér á Húsavík var mjög
lifandi og skemmtileg, bæði fyrir kepp-
endur og áhorfendur. Margir af bestu
ökusnillingum bæjarins voru mættir
til að sýna sig og getu sína í ökuleikni.
Hjólreiðakeppnin var haldin á með-
an ökumenn voru í spumingum og
skiptu bræður með sér fyrstu sætunum
í eldri og yngri riðli. I eldri riðli urðu
úrsbt þannig að í fyrsta sæti lenti Sig-
urður A. Hrafnkelsson, 13 ára, með
76 refsistig, í öðru sæti lenti Víðir
Egilsson, 14 ára, með 84 refsistig og í
þriðja sæti lenti Heiðar S. Þorvalds-
son, 13 ára, með 87 refsistig. í yngri
riðli urðu úrslit þannig að í fyrsta
sæti lenti Gunnlaugur Hrafiikelsson,
10 ára, með 136 refsistig, í öðru sæti
lenti Bjöm Halldórsson, 9 ára, með
150 refsistig og í þriðja sæti lenti Ag-
nes Ýr Guðmundsdóttir, 10 ára, með
157 refsistig.
í ökuleikni urðu úrslit þannig í
kvennariðli að í fyrsta sæti lenti Mar-
ía Elísdóttir með 285 refsistig, í öðm
sæti lenti Stella Jónsdóttir með 445
refsistig og í þriðja sæti lenti Anna
Jónsdóttir með 470 refsistig. Karlarið-
ilinn var meira spennandi því í honum
gekk keppnin út á það að reyna að
slá út Guðmund Salómonsson, sem
lenti í fyrsta sæti með 131 refsistig sem
er annað sætið yfir landið, en það tókst
ekki. Þeir sem komust næst því vom
þeir Jónas Kristjánsson sem ók á Wil-
lys og lenti í öðm sæti með 150 refsi-
stig, sem er 10. sæti yfir landið, og svo
Hermann Jóhannsson, sjúkrabílstjóri
Húsavíkur, en hann keppti á vinnu-
bílnum og lenti í þriðja sæti með 173
refsistig. Hebningurinn af öllum kepp-
endum, sem vom alls 13 í karlariðli,
vom með undir 200 refsistig sem er
mjög góður árángur.
-EG
SPORTSKÓR
BLABAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú á fullri ferð
Skilafrestur í bílagetraun
er til fimmtudags.
Nauðungaruppboð
annað og siðara á eigninni Vallarbarði 19, Hafnarfirði, þingl. eign Krisins
G. Jónssonar, fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnar-
firði, föstudaginn 24. júli 1987 kl. 13.30.
________________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 81. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Hjallabraut 43, 2. hæð t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Kristínar Hallgrims-
dóttur, fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs og Tryggingastofnunar ríkisins
á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaginn 24. júlí
1987 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 76., 81. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Breiðvangi 13, 1. hæð t.v„ Hafnarfirði, þingl. eign Margrétar Gunnars-
dóttur, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka íslands á skrifstofu embættisins að
Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaginn 24. júlí 1987 kl. 14.15.
______________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 150. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 og 2. og 10. tölu-
blaði þess 1987 á eigninni Leirutanga 33, Mosfellshreppi, þingl. eign Sigurðar
Ragnarssonar, fer fram eftir kröfu Lúðviks Emils Kaaber hdl. og Reynis Karls-
sonar hdl. á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaqinn
24. júlí 1987 kl. 15.30.
_________________________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 150. tölublaði Lögbirtingablaéteins 1986 og 2. og 10. tölu-
blaði þess 1987 á eigninni Litlagerði, Mosfellshreppi, þingl. eign Stefáns
Valdimarssonar, fer fram eftir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl. á skrifstofu
embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaginn 24. júli 1987 kl. 16.15.
_________________ Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.