Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Linda Grey er búin að finna hinn eina og sanna JR. Hún er byrjuð með 40 ára bisnessmanni frá Texas að nafni And Bechtol „Hann hefur allar góðu hliðarnar sem JR hefur en er alveg laus við þessar vondu," segir Linda og er alveg í skýjunum. „Hann er reglulegur karlmaður, ábyrgð- arfullur, þroskaður og fullur umhyggju og hlýju." Þessi fullkomni maður, And, er ekki síður hrifinn af Lindu og svifa þau um, útblásin af ást og hamingju. Gordon Thomson, býr nú í Englandi en flýgur um hverja helgi til Mílanó á italíu til að sjá sitt 10 mánaða gamla barn sem hann á með hinni ítölsku Lory Del Santo. Lory hefur alltaf verið dauðhrædd um að Eric muni reyna að fá yfirráðarétt yfir barninu og fara með það til Englands. En nú er Eric skilinn við konu sína Patti og þvi eru minni mögu- leikar á því að hann fái barnið til sín. Lory getur því farið að anda léttar. sem er miklu betur þekktur sem Adam í Dynasty-þáttunum, framdi frækna hetjudáð á dög- unum. Hann var staddur í mikilli veislu í Hollývúd þegar allt í einu i miðjum gleðskapn- um varð einn gesturinn fyrir því óhappi í græðgi sinni að festa matarbita í hálsinum. Gordon sá á augabragði hvað var að gerast, spratt upp úr stól sínum, snaraðist að hinum óheppna gesti og rak honum bylmingshögg á bakið. Gest- urinn hóstaði matarbitanum upp, ræskti sig og þakkaði Gordon með virktum fyrir lif- gjöfina. Eric Clapton í Hóvamálum segir að heimskt sé heimaalið barn. Með þessi fornu spakmæli að leiðarljósi brugðu félag- ar í Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta, undir sig betri fætinum og skruppu á honum í árlega sumarferð félagsins. Ferðin var í senn fræðslu- og skemmtiferð og kynntu menn sér höfuðatvinnugreinar þjóðarinnar. Farið var með Akraborginni upp á Skipaskaga og eftir að hafa kynnst sjómennskunni var ekið til Borgar- ness. Þaðan lá leiðin í Húsafell með viðkomu hjá Bamafossum og svo við landbúnaðarkynningu en Vöku- menn skelltu sér á hestbak og höfðu mikið gaman af. Einnig var rætt við mjólkurkúna Musku um vandamál landbúnaðarins. I Húsafelli var slegið upp tjaldborg og grillað hið mesta góðgæti sem ferðalangamir drógu upp úr mal sín- um. Er allir voru mettir var blandað Menn skelltu sér á þarfasta þjóninn og létu vel yfir þjónustulund hans. Hellar og hestar - heilluðu Vökumerm geði við aðra Húsafellsgesti við feiknamikinn varðeld sem kveiktur hafði verið. Höfðu menn síðan hið mesta gaman framundir dögun. Surtshellir skoðaður Á sunnudeginum voru sólböð og önnur böð stunduð af kappi. Þegar dagur var að kveldi kominn var hald- ið af stað heimleiðis. Áður höfðu Stefánshellir og Surtshellir verið skoðaðir undir leiðsögn Stefáns Kal- manssonar fró Kalmanstungu. Ekki varð vart við Surt hinn ógurlega en sagan segir að draugur með því nafni hafi haft búsetu í hellinum. Megnió af Vökumönnunum, sem skelltu sér i sumarferðina, á bæjarhlaðinu í Kalmanstungu. Setið að snæðingi í Húsafelli. Ljóst var að sumir höfðu keypt sér mun meira en þeir gátu torgað i það skiptið. Wm bJVvi mig mðri a strönd Það væri ekki gott að týna mömmu sinni á ströndinni sem myndin sýnir eða að reyna að finna vini og kunn- ingja sem ætluðu að koma „rétt á eftir“. Myndin kallarupp í hugann hugtök eins og mauraþúfa og síld í tunnu. Það er svo troðið að það sést ekki einu sinni í sandinn. Þetta fyrir- bæri er mjög fræg strönd í Brasilíu, rétt hjá Rio de Janeiro, að nafni Ipa- nema ströndin. Ekki veit ég hvort Islendingum myndi geðjast að þess- ari mannmergð enda vanir fámenn- inu á skerinu. En það er örugglega alltaf nóg að gerast þarna og, það sem mörgum finnst nú fyrir mestu, nóg að horfa á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.