Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1987, Side 37
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987.
37
Hmkraftmikla
Madoima
Tónlistarmaðurinn og kvikmyndaleikarinn Madonna hefur afrekað ótrú-
lega mikið á ekki lengri ævi. Hún hefur gert hverja metsöluplötuna á fætur
annarri og þar að auki leikið í tveimur kvikmyndum. Madonna var sögð
vera Marilyn Monroe upprisin en nú ber hún allar sögusagnir um hina nýju
Marilyn til baka og segir likinguna einungis stafa af háralitnum. Madonna
lauk heljarmiklu tónleikaferðalagi sl. laugardag í Laugardalshöll Ana-
heimbúa í útborg Los Angeles.
Stjömulíf
Joan Collins og nýi kærastinn hennar, Bill Wiggins, eyða nú sumarleyfi
sínu á frönsku Rivierunni, nánar tiltekið í stjörnubænum St. Tropez. Joan
veitir víst ekki af fríi frá kærum Peter Holm, fyrrverandi eiginmanni sínum.
Peter veitir Joan harða baráttu og vill fá húseign og framfærslueyri en hún
er aldeilis ekki á þeim buxunum.
Þessi 54 ára gamla leikkona hefur nú enn á ný fundið ástina og sá eini sanni
er í þetta skiptið hinn 39 ára gamli Bill Wiggins. Joan, sem hefur gifst fimm
sinnum og skilið jafnoft, segist vera staðráðin í að gera ekki sömu vitleysuna
í sjötta skiptið. „Mér og Bill líður vel saman eins og sambandið er. Það er
algjör óþarfi að ana út í giftingu, allavega ekki í bráð.“ Kunnugir segja að
Bill sé alveg rétti maðurinn fyrir Joan. „Hann er ekki glanslegur glaumgosi
eins og Peter Holm var að rembast við að vera heldur bara huggulegt karl-
menni frá Kent sem hefur engan áhuga á peningum og finnst gott að taka
það rólega."
Simamynd Reuter
Fflapóló
Þeim fannst þetta aðeins öðruvísi og erfiðara en venjulega, köppunum
sem hér slást um boltann í fílapólóleik rétt fyrir utan Lundúni í keppni
sem er hluti af aldarafmælishátíð tímaritsins Herald Tribune. Það er
víst örugglega ekki mikið um spennu og hlaup í þessum pólóleik því langt
er síðan þessir fílar hlupu um frumskóga Afríku. Þeir eru vafalítið orðn-
ir stirðir af áralangri dvöl í dýragörðum Englands. Venjulega eru hestar,
sem óneitanlega fara hraðar yfir, notaðir í leikinn.
Joan og Bill á vappi I St. Tropez meö ungum og óþekktum aðdáanda.
Simamynd Reuter
Sfmamynd Reuter
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Demi Moore
er aðeins 25 ára en hefur lent í
ýmsu um ævina. Þegar hún var
16 ára flutti hún inn til hljóm-
sveitargæja og giftist honum 18
ára gömuí. Þá þegar var hún að
verða fræg fyrir leik sinn i ýms-
um kvikmyndum og ungur aldur
og tímaleysi gerðu út af við
hjónabandið. Demi og Emilio
Estevez urðu ástfangin þegar
þau léku saman i kvikmyndinni
St. Elmo's Fire og ætluðu þau
að gifta sig í desember sl. Á síð-
ustu stundu var þó öllu húllum-
hæinu aflýst. Ástæðan? Þau
höfðu hreinlega ekki tíma. Þau
voru þá bæði að leika i kvik-
myndinni Wisdom og Demi er
staðráðin í að láta þetta sam-
band ekki lognast út af vegna
vanrækslu. Brúðkaupið verður
því að bíða betri tíma.
Judd Nelson,
sem leikið hefur m.a.í kvikmynd-
inni Breakfast club, á mjög
virðulega fjölskyldu sem vænti
þess að annaðhvort yrði hann
læknir eða lögfræðingur. Judd
var hins vegar aldrei neitt að
hugsa um álit fjölskyldunnar og
var að læra heimspeki i háskóla
áður en hann datt niður á það
að verða leikari. „Ég byrjaði að
leika vegna þess að mér fannst
það hreinlega gaman. Svo einn
daginn uppgötvaði ég að ég
gæti eytt ævinni í að gera þessa
skemmtilegu hluti, þ.e. að leika.
Ákvörðunin um að verða leikari
var því mjög eðlileg."
Joan Collins
hefur nú hannað eigin undir-
fatalínu og selur grimmt.
„Blúndur og silkisatin er það
eina sem ég ber næst mér," seg-
ir Dynasty- stjarnan. „Smekkleg
og falleg undirföt skipta mjög
miklu máli og gera stóra hluti
fyrir konur. Ég veit hvað ég er
að tala um," segir hún, „Ég hef
reynsluna."