Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1987, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987.
5
Fréttir
Hér að ofan eru talin upp ýmis fyrirtæki sem samvinnuhreyfingin á og stjórnar. Þá eru tengsl fyrirtækjanna innbyrðis sýnd með strikum. Þannig eiga t.d.
Framleiðni sf. og Samvinnusjóðurinn hf. fyrirtækið Marel hf. og Marel á Marel Equipment Inc. Dótturfyrirtæki KEA eru hér tekin sem dæmi um dótturfyrir-
tæki einstakra kaupfélaga en ekki er gerð tilraun til að sýna dótturfyrirtæki fleiri kaupfélaga. Hvert kaupfélaganna 41 á í rekstri á ýmsum sviðum og því má gera
ráð fyrir að mikils fjölda fyrirtækja sé hér ógetið.
Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra um Utvegsbankaáföllin:
Mun engu leyna um hvaða
skuldir lenda á ríkinu
Albert Guðmundsson alþingis-
maður spyr í DV i gær hvers vegna
ekki séu birt nöfn þeirra einstakl-
inga og fyrirtækja, annarra en
Hafckips hf., sem skulda Útvegs-
bankanum stórfé. Þessi spuming
Alberts var borin undir Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra.
„Því er til að svara að ef og þegar
ég hef undir höndum upplýsingar til
skattborgaranna um það hverjir
þetta em mun ég ekki liggja á þeim.
Ég hef engu að leyna í þeim efrium.
Ég hef þessar upplýsingar ekki enda
liggja þær ekki fyrir enn sem komið
er,“ sagði Jón Baldvin.
Hann sagði að fyrri ríkisstjóm
hefði skipað 3ja manna nefnd til að
fara yfir uppgjör gamla Útvegs-
bankans. Þeirri úttekt á að vera
lokið 15. september næstkomandi en
nefridin hefur svo tíma til áramóta
til að skila af sér. Jón sagði að þeir
nafnar í fjármála- og viðskiptaráðu-
neyti hefðu skipað sinn manninn
hvor til að annast hagsmunagæslu
fyrir ríkissjóð í þessu uppgjöri.
Jón Baldvin sagði að enn væri
ekki ljóst hvað af þessum skuldum
væri hægt að innheimta. Eins væm
sumir af þeim sem skulduðu mikið
í gamla bankanum enn í viðskiptum
við Útvegsbankann og það væri
bankaráðs nýja bankans að meta
það hvort þeir yrðu áfram í viðskipt-
um og ráðstafanir þá gerðar til að
bæta fjárhag þeirra.
„Allt mun þetta skýrast þegar líður
á haustið en af minni hálfu verður
engum upplýsingum haldið leynd-
um,“ sagði Jón Baldvin fjármálaráð-
herra.
-S.dór