Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1987, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987.
9
UtLönd
Hvetja til tafarlausra
aðgerða gegn írönum
Bandalag arabaríkja hætti við að
slíta stjómmálasambandi við íran
og hvetur í staðinn Sameinuðu þjóð-
imar til þess að grípa tafarlaust til
aðgerða gegn íran ef það verður
ekki við tilmælum öryggisráðsins
um vopnahlé. Stjómmálaslitin verða
rædd á næsta fundi bandalagsins
sem haldinn verður þann 20. sept-
ember næstkomandi.
Það vom Saudi Arabar sem hvað
mest studdu stjórnmálaslit við íran
en Alsír, Sýrland og Líbýa vom því
mótfallin. Einnig Oman og Bahrain
sem ekki mega sín mikils gagnvart
Iran.
Heldur slaknaði á spennunni á
Persflóasvæðinu í gær eftir að íranir
lýstu því yfir að þeir myndu forðast
árekstra við bandarísk herskip sem
em reiðubúin að vemda nýja skipa-
lest gegnum flóann. Slæmt veður
tafði ferð skipanna og vegna þeirrar
leyndar sem hvílir yfir ferð þeirra
var erfitt að segja hvar þau væm
stödd.
Tilkynnt var í breska sjónvarpinu
í gær að eitt flutningaskip í viðbót
frá Kuwait myndi sigla undir bresk-
um fána til að geta notið vemdar
breska flotans í suðurhluta flóans.
Vamarmálaráðherra ítala, Va-
lerio Zanone, kvartaði undan því í
gær að samstöðu vantaði í Evrópu
varðandi kreppuna á Persaflóa og
gagnrýndi Breta og Frakka fyrir að
senda tundurduflaslæðara til svæð-
isins. Sjálfir segjast Italir aðeins
senda tundurdufluslæðara sem lið í
sameiginlegri evrópskri aðgerð eða
fyrir tilstilli Sameinuðu þjóðanna.
Franskur tundurduflaslæðari siglir gegnum Súezskurð á leið til Persaflóa-
svæðisins. Símamynd Reuter
Atkvæðagreiðsla
um nýtt tilboð
Um þrjú hundmð þúsund námu-
verkamenn greiða í dag atkvæði um
tillögur sem geta bundið enda á við-
tækasta og kostnaðarsamasta verk-
fallið í sögu Suður-Afríku.
Samtök námuverkamanna tilkynntu
í gær að haldnir yrðu fjöldafundir um
allt landið til þess að ræða nýtt tilboð
sem vinnuveitendur lögðu á borðið í
gær í fyrstu samningaviðræðunum frá
því að verkfallið hófst fyrir sautján
dögum.
Leiðtogi samtakanna vildi í gær ekki
segja hvemig hann byggist við að at-
kvæðin féllu en hann tók fram að ef
námumenn tækju þá ákvörðun að
halda verkfallinu áfram mætti búast
við að önnur verkalýðssamtök
blökkumanna boðuðu til samúðar-
verkfalla.
Námueigendur buðu í gær ýmis fríð-
indi en vildu ekki fara hærra í
launatilboði sínu en þeir hafa hingað
til gert. Þeir urðu við kröfunum um
hærri orlofsgreiðslur og dánarbætur
til fjölskyldna þeirra námumanna sem
látast af völdum slysa. Hins vegar
vildu námueigendur ekki borga
áhættuþóknun eða hækka launin um
meira en þau 23,4 prósent sem þeir Námuverkamenn fengu sólarhrings-
þegar hafa boðið. Námuverkamenn frest til að ræða tilboðið sem verður
krefjast 30 prósent launahækkunar. dregið til baka ef því verður hafnað.
Skrifstofumenn viö námufélagið Anglo American efndu í gær til setuverkfalls
í miðborg Jóhannesarborgar til stuðnings námuverkamönnum við fyrirtækið
sem verið hafa í verkfalli i rúmar tvær vikur. Simamynd Reuter
Tillögu Gorbatsjovs hafnað
Bandaríkin hafa hafiiað tillögu ríkisráðimeytinu var tillögunni ekki aðengintengslværumilliafvopmm-
leiðtoga Sovétríkjanna, Mikhail einungishafhaðheldurvargagnrýnt ar og þróunaraðstoðar.
Gorbatsjovs, um að leiðtogar hcims- hveframlagSovétríkjannatilþróun- TillagaGorbatsjovsvarfluttáráð-
ins haldi fúnd þar sem rædd yrði arlanda væri lítið. Einnig voru stefnu Sameinuðu þjóðanna sem
fjármögnun aðstoðar við þróunar- Sovétríkin gagnrýnd fyrir íhlutun í fjallar einmitt um sama málefni.
löndin fjrír fé það sem sparaðist við innanríkisdeilur eins og í Afganist- Bandaríska utanríkisráðuneytið
afvopnun. an. Aðstoð Bandaríkjanna til kvaðst hafa óttast að svo gæti farið
í tilkynningu frá bandaríska utan- þróunarlanda var varin og sagt var að ráðstefiian snerist upp í að verða
áróður fyrir þá sem halda því fram
að efnahagsvandræði þróunarlanda
stafi af þvi mikla fé sem iðnvædd
lönd veiji til vamarmála.
Ekki er búist við að Reagan for-
seti réifi málið í ræðu um utanríkis-
mál á hádegisverðarfúndi sem
haldinn verður í dag þar sem litið
er á tillögu Gorbatsjovs sem áróður.
Reagan mun hins vegar fjalla um
samskipti austurs og vesturs á fúnd-
inum með leiðtogum viðskiptalifeins
og borgaralegum leiðtogum í Los
Angeles. Einnig mun hann fjalla um
málefiú Mið-Ameríku á hádegisverð-
arfundinum.
SKEIFUNNI KJÖRGARÐI AKUREYRI NJARÐVÍK