Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1987, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987.
25
dv Fó]k í fréttum
Kríslján Ragnarsson
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri LÍU, hefur verið í
fréttum DV vegna umræðna um sölu
Útvegsbankans.
Kristján Ólafur Ragnarsson er
fæddur 22. júní 1938 á Flateyri í
Önundarfirði og brautskráðist frá
Verslunarskóla íslands 1957. Hann
var fulltrúi hjá Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna 1958-1969 og
framkvæmdastjóri LÍÚ frá 1969.
Kristján hefur verið í verðlagsráði
sjávarútvegsins frá 1964 og í stjóm
verðjöfnunarsjóðs sjávarútvegsins
frá 1969. Hann hefur átt sæti í fjölda
'stjómskipaðra nefrida er íjallað hafa
um málefni sjávarútvegsins. Kristj-
án hefúr verið í stjóm og fram-
kvæmdastjóm Vinnuveitendasam-
bands íslands frá 1971 og í stjóm
Atvinnuleysistryggingasjóðs frá
1972.
Kona Kristjáns er Kristín Möller,
dóttir Williams Thomasar Möller,
fyrrv. póst- og símstjóra í Stykkis-
hólmi, og konu hans, Margrétar
Jónsdóttur Möller.
Böm þeirra em Tómas viðskipta-
fræðinemi, Margrét Vala laganemi,
gift Sæmundi Sæmundssyni, for-
stjóra í Rvík, Stefánssonar, og
Hildur Ragna verslunarskólanemi.
Systkini Kristjáns em Jóhann Jón,
hrl. í Rvík, en hann lést 23. septemb-
er 1973, var kvæntur Sigríði Ólafs-
dóttur, Ámi, kaupmaður í
Hljóðfærahúsi Reykjavíkur, kvænt-
ur Guðfinnu Halldórsdóttur, og
Kristinn Guðlaugur Rósinkrans,
byggingameistari í Rvík, kvæntur
Elínu Jóhannsdóttur
Foreldrar þeirra vom Ragnar Guð-
laugur Rósinkrans, útgerðarmaður á
Flateyri við Önundarfjörð, síðar for-
stjóri í Rvík, og kona hans, Margrét
Jónsdóttir kennari.
Faðir Kristjáns, Ragnar, er sonur
Jakobs Áma Ingimars, trésmiðs og
utanbúðarmanns á Flateyri, Guð-
mundssonar, b. og hreppstjóra í
Æðey á Isafjarðardjúpi, Rósinkars-
sonar, b. í Æðey, Ámasonar,
umboðsmanns í Vatnsfirði, Jónsson-
ar, sýslumanns í Reykjarfirði,
Amórssonar, sýslumanns í Belgs-
holti, Jónssonar. Systir Jóns í
Reykjarfirði var Sigríður, móðir
Amórs Jónssonar, prófasts í Vatns-
firði, langafa Hannibals Valdimars-
sonar, föður Jóns Baldvins, og
Auðuns, prests á Stóm-Völlum á
Landi, föður Jóns á Eyri, afa Jóns
Baldvinssonar, alþingismanns og
fyrsta formanns Alþýðuflokksins.
Jón á Eyri var einnig langafi Auðar
Auðuns, fyiTV. ráðherra. Móðir Guð-
mundar í Æðey var Elísabet Rósink-
ar Guðmundsdóttir, b. og hrepp-
stjóra í Amardal í ísafjarðardjúpi,
Bárðarsonar, b. þar, Illugasonar,
sem Amardalsættin er kennd við.
Kristján er fimmmenningur við
Kristínu Ingimundardóttur, konu
Matthíasar Bjamasonar alþingis-
manns, frá Áma í Vatnsfirði
Meðal afkomenda Sigríðar, systur
Rósinkars í Æðey, í fimmta lið er
Þorstein Pálsson forsætisráðherra.
Kristján er þremenningur við Ás-
laugu Brynjólfsdóttur, fræðslustjóra
í Rvík.
Langamma Kristjáns í föðurætt
var Guðrún Jónsdóttir, b. í Fremri-
Amardal, Halldórssonar, sem einnig
var af Amardalsætt. Guðrún var
systir Halldórs í Neðri-Amardal,
langafa Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra, og er Kristján
fjórmenningur við Jón Sigurðsson.
Föðuramma Kristjáns var Kristín
Rósinkransdóttir, b. í Tröð í Önund-
arfirði, Kjartanssonar. Bræður
Kristínar vom Júlíus, kaupfélags-
stjóri á Flateyri, faðir Jóns, deildar-
stjóra í viðskiptaráðuneytinu, og
Rósinkranz, faðir Guðlaugs Rósin-
kranz þjóðleikhússtjóra.
Móðir Kristjáns Ragnarssonar,
Margrét, var dóttir Jóns, b. og báta-
smiðs á Eyri í Seyðisfirði, Jakobs-
sonar, b. á Nesi í Grunnavík,
Tómassonar. Móðir Margrétar var
Kristjana Hinriks Kristjánsdóttir,
b. á Kollsá í Grunnavíkurhreppi,
Jónssonar.
Kristján Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri LÍÚ.
Helgi Hróbjartsson
Séra Helgi Hróbjartsson, trúboði
og fynrv. sóknarprestur í Hrísey, er
fimmtugur í dag. Helgi fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp hjá foreld-
rum sínum og systkinum. Menntun
séra Helga er sérstaklega fjöbreyti-
leg enda er hann óvenjufjölhæfúr
maður. Eftir bama- og gagnfræða-
skólanám hóf hann nám við
Myndlista- og handíðaskólann og
lauk kennaraprófi í handavinnu árið
1957. Hann var við biblíuskólanám
í Osló 1957-58 og 1960 lauk hann
prófi frá teiknikennaradeild Mynd-
lista- og handíðaskólans. Sumarið
1960 var hann við biblíuskólanám í
Chicago en jafhframt stundaði hann
kennslu og þá m.a. við Gagnfræða-
skólann við Lindargötu og við
Iðnskólann í Reykjavík. Hann er
með almenn kennararéttindi frá KÍ
frá 1965. Helgi tók próf f uppeldis-
fræði við Norsk Lærerakademi 1976
og hóf að því loknu nám í guðfræði-
deild HÍ. Hann lauk svo guðfræði-
prófi frá Háskólanum árið 1984.
Helgi hefur starfað mikið að kristni-
boðsstarfi bæði hérlendis og erlendis
og tekið virkan þátt í starfi KFUM.
Hann var í þjónustu Norsk-lúterska
kristniboðssambandsins frá 1966-78
og hann var við kristniboðsstörf í
Eþíópíu frá 1967-75. I tengslum við
kristniboðsstarfið hefur hann verið
skólastjóri grunnskólans í Waddera
en hann hefúr auk þess séð um upp-
byggingu fjörutíu lestrarskóla í
Suður-Eþíópíu. Á árunum 1964-67
starfaði Helgi m.a. við fangahjálpina
í Reykjavík. Áður en Helgi hóf störf
sem kristniboði í Eþíópíu tók hann
flugmannspróf sem hefur komið hon-
um að miklum notum við trúboðs-
og hjálparstarfið í Afríku.
Árið 1984 fékk séra Helgi Hríseyj-
arprestakall sem hann þjónaði um
tveggja ára skeið. Helgi er maður
tónelskur og spilar vel á píanó, org-
el, dragspil og gítar en af þeim sökum
hefur hann verið söngstjóri kirkj-
unnar í Hrísey og reyndar einnig
organisti þegar svo ber við. Auk
þess hefúr hann kennt við bama-
skólann í Hrísey eftir því sem þörf
er á hverju sinni. Þess má svo til
gamans geta að Helgi er manna lipr-
astur á seglbrettum og vann hann
keppni á slíkum brettum þar sem
kappsiglt var frá Árskógsströnd til
Hríseyjar.
Helgi hefur nú enn snúið sér að
trúboðsstarfínu og starfar nú í
Senegal á vesturströnd Afriku. Fyrir
þá ferð brá hann sér þó til Frakk-
lands að læra frönsku en hún er
töluð á þessum slóðum.
Eiginkona Helga var Unnur
Wenche Næss, hjúkrunarkona frá
Noregi, en þau hafa slitið samvist-
um. Helgi og Unnur eignuðust þrjú
böm sem nú em í Noregi hjá móður
sinni en hafa þó verið mikið hér á
landi hjá föður sínum. Þau em
Hjalti, f. 1966, stúdent, nú í norska
hemum, Hanna María, f. 1967, sem
hefur verið í húsmæðraskóla og er
í klæðskeranámi, og Ingibjörg
Margrét, f. 1972, nemi.
Séra Helgi Hróbjartsson, trúboði og
fyrrv. sóknarprestur í Hrísey.
Helgi á fimm systkini. Þau em
Margrét hjúkrunarkona, f. 1934, gift
Benedikt Jasonarsyni, Helga Stein-
unn kennari, f. 1936, gift Karli
Sævari Benediktssyni, Ami mark-
aðsfræðingur, f. 1938, giftur Krist-
rúnu Ólafsdóttur, Friðrik, forstjóri
Burstagerðarinnar, f. 1940, giftur
Bám Böðvarsdóttur, og séra Jón
Dalbú sóknarprestur, f. 1947, giftur
Ingu Þóm Geirlaugsdóttur.
Faðir séra Helga var Hróbjartur,
stofriandi og forstjóri Burstagerðar-
innar, f. 1897, d. 1953, Ámason, b. á
Áshóli í Hreppum, Runólfssonar.
Bróðir Hróbjarts var Sigurbergur,
forstjóri og framkvæmdastjóri íjölda
fyrirtækja, en hann lést í þessum
mánuði. Móðir séra Helga er Ingi-
björg húsmóðir, f. 1909, Þorsteins-
dóttir, b. í Langholti í Flóa,
Sigurðssonar.
90 ára
Sigurlaug Kristjánsdóttir, Hátúni
8, Reykjavík, er 90 ára í dag.
80 ára
Ágústa I. Thomassen, Skúlagötu
80, Reykjavík, er 80 ára í dag.
60 ára
Hólmfríður Guðmundsdóttir,
Langholtsvegi 23, Reykjavík, er 60
ára í dag.
50 ára
Anna Halldórsdóttir, Kambagerði
6, Akureyri, er 50 ára í dag.
40 ára
Guðbjörg Friðriksdóttir, Túngötu
31, Tálknafirði, er 40 ára í dag.
Erna Hauksdóttir, Kvistalandi 11,
Reykjavík, er 40 ára í dag.
Elínborg Loftsdóttir, Stapasíðu 9,
Akureyri, er 40 ára í dag.
Anna Harðardóttir, Mýrarási 14,
Reykjavík, er 40 ára í dag.
Andlát
Gróa Stefanía Guðjónsdóttir frá
Stafnnesi, Miðneshreppi, an-
daðist 12. ágúst. Jarðarförin
hefur farið fram.
Þorvaldur Teitsson frá Viði-
dalstungu, til heimilis að
Framnesvegi 58B, Reykjavík,
lést í Landsspítalanum að
kvöldi 23. ágúst.
Vilhjálmur Sveinsson, Jórufelli
4, Reykjavík, lést í Borgarspít-
alanum sunnudaginn 23. ágúst
sl.
62 • 25 t 25
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist
eða er notað í DV, greiðast
1.500
krónur. Fyrir besta frétta-
skotið í hverri viku greiðast
4.500 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum
við fréttaskotum allan sólar-
hringinn.
___________________Afmæli
Þorsteinn Thorarensen
Þorsteinn Thorarensen, blaða-
maður, rithöfundur og bókaútgef-
andi, Njörvasundi 15A, Reykjavík,
er sextugur í dag. Þorsteinn fædd-
ist á Móeiðarhvoli á Hvolsvelli þar
sem faðir hans stundaði búskap en
flutti ungur með fjöldskyldu sinni
til Reykjavíkur. Eftir mennta-
skólanám lagði Þorsteinn stund á
lögfræðinám við Hí og lauk prófi
þaðan 1953.
Þorsteinn hóf langan blaða-
mannaferil sinn á Morgunblaðinu
meðan hann var enn við nám.
Hann starfaði á Morgunblaðinu í
fimmtán ár og var síðan frétta-
stjóri á Vísi i átta ár. Þegar hann
hætti á Vísi stofnaði hann bóka-
útgáfuna Fjölva og hefur nú gefið
þar út u.þ.b. þrjú hundruð titla á
sl. tuttugu árum. Þorsteinn hélt þó
áfram að skrifa sínar frægu föstu-
dagsgreinar í Vísi en þær voru á
sínum tíma einhver vinsælustu og
nafnkunnustu blaðaskrif hér á
landi.
Þorsteinn hefur lagt af mörkum
drjúgan skerf til íslenskrar sagn-
fræði eins og best sést á ritverkum
hans ýmsum og útgáfustarfsemi.
Einhver þekktustu ritverk hans
fjalla einmitt um íslenska stjórn-
málasögu í lok nítjándu aldar og
við upphaf þeirrar tuttugustu en
hann hefur einnig verið að gefa út
veraldarsögu og eru nú komin út
átta bindi af tuttugu í þeirri ritröð.
Nú þessa dagana er Þorsteinn að
hefjast handa við viðamikið verk
sem er saga Keflavíkur og á morg-
un mun hefjast í útvarpinu lestur
hans á hinni upprunalegu barna-
sögu um Gosa eftir ítalska rithöf-
undinn Collodi en Þorsteinn hefur
þýtt söguna úr frummálinu.
Eiginkona Þorsteins er Sigur-
laug Bjarnadóttir, kennari og
fyrrv. alþingismaður. Þau giftu sig
árið 1954. Faðir hennar var Bjarni
Sigurðsson, b. í Vigur, og kona
hans, Björg Björnsdóttir.
Þorsteinn og Sigurlaug eiga þrjú
börn. Ingunni, sem er frönskukenn-
ari við Flensborgarskólann í
Hafnarfirði, Björn, sem er tölvu-
fræðingur, og Björgu sem stundar
laganám við HÍ en hefur starfað á
sumrin sem blaðamaður hjá DV.
Systkini Þorsteins voru sex. Elst-
ur er Eggert, forstjóri á BSR, þá
Guðrún, starfsmaður borgarfógeta.
Skúli lögfræðingur kom næstur í
röðinni en hann er nú látinn. Skúli
var fulltrúi bæjarfógeta í Hafiiar-
firði. Þá Oddur, fv. prestur á
Hofsósi, og Sólveig menntaskóla-
kennari. Yngst er svo Ásta Guðrún,
starfsmaður tollstjórans í Reykja-
vík.
Foreldrar Þorsteins voru óskar
Þorsteinn Thorarensen, blaða-
maður, rithöfundur og bókaútgef-
andi.
Thorarensen, forstjóri í Rvík, og
kona hans, Ingunn Eggertsdóttir.
Faðir Þorsteins, Óskar, var sonur
Þorsteins Thorarensen, b. á Móeið-
arhvoli í Hvolhreppi, Skúlasonar
Thorarensen, læknis á Móeiðar-
hvoli, Vigfússonar, sýslumanns á
Hlíðarenda í Fljótshlíð, Þórarins-
sonar, sýslumanns á Grund í
Eyjafirði, Jónssonar sem Thorar-
ensen ættin er kennd við. Móðir
Skúla læknis var Steinunn Bjama-
dóttir, landlæknis í Nesi við Sel-
tjöm, Pálssonar og konu hans,
Rannveig Skúladóttir, landfógeta í
Viðey, Magnússonar. Langamma
Þorsteins, móðir Þorsteins á Mó-
eiðarhvoli, var Ragnheiður Þor-
steinsdóttir, prests í Reykholti,
Helgasonar, og Sigríðar Pálsdótt-
ur, sýslumanns á Hallfreðarstöð-
um, Guðmundssonar.
Föðuramma Þorsteins, móðir
Óskars, var, Solveig Guðmunds-
dóttir, b. f Austurhlíð í Biskups-
tungum, Eyjólfssonar og konu
hans, Guðrúnar Magnúsdóttur, al-
þingismanns f Bráðræði í Rvík,
Jónssonar, og Guðrúnar Jónsdótt-
ur Hjaltalín.
Móðir Þorsteins var Ingunn Egg-
ertsdóttir, prófasts og alþingis-
manns á Breiðabólstað í Fljótshlíð,
Pálssonar, b. og gullsmiðs á Sogni
í Kjós, Einarssonar, prests á Reyni-
völlum í Kjós, Pálssonar, bróður-
sonar Jóns Þorlákssonar, prests og
skálds á Bægisá, en móðir Einars
var Sigrfður Stefánsdóttir, sonar-
dóttir Presta-Högna. Móðir Páls
gullsmiðs varRagnhildur Magnús-
dóttir, lögmanns á Meðalfelli í
Kjós, bróðir Eggerts Ólafssonar
skálds og tengdasonur Finns Jóns-
sonar biskups. Móðir Eggerts á
Breiðabólstað var Guðrún Magn-
úsdóttir Waage, b. og hreppstjóra
á Stóru Vogum, en móðuramma
Þorsteins var Guðrún Hermanns-
dóttir, Johnsens, sýslumanns á
Velli í Hvolhreppi, og Ingunnar
Halldórsdóttur, b. á Álfhólum í
Landeyjum, Þorvaldssonar.