Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1987, Blaðsíða 32
Útvegsbankamálið:
TVö ólík
^ lögfræði-
' álrt tefja
málið enn
frekar
„Það er margt sem þarfnast enn
frekari athugunar varðandi þetta
mál og ekki er það til að flýta af-
greiðslu þess að komin eru fram tvö
gjörólík lögfræðiálit í málinu. Ég get
því ekki á þessari stundu sagt til um
hvort tekst að afgreiða það í þessari
viku,“ sagði Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra um Útvegsbanka-
málið í morgun.
I gær kom fram lögfræðiálit Jóns
Finnssonar lögmanns þess efais að
Sambandið teldist vera búið að
kaupa Útvegsbankann en fyrir var
annað lögfræðiálit sem Jón Sigurðs-
son viðskiptaráðherra leitaði eftir á
sínum tíma sem sagði hendur ráð-
herra óbundnar gagnvart tilboðun-
um tveimur.
„Ég skal játa að okkur óraði ekki
fyrir þessari töf þegar við gerðum
•^tilboð okkar í hlutabréf Útvegs-
bankans og við lítum svo á að við
höfum þegar keypt bankann," sagði
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sam-
bandsins, í morgun.
Samkvæmt heimildum DV mun sú
hugmynd hafa komið fram á stjóm-
arfundi Sambandsins í gær að fái
Sambandið ekki Útvegsbankann
skuli farið lagaleiðina í málinu og
það alveg á enda. Þessu hafnaði
Guðjón B. Ólafsson í morgun og
sagði að ekkert slíkt hefði komið
fram á fundinum í gær.
Einn heimildarmanna DV sagði í
morgun að Útvegsbankamálið væri
i algerri biðstöðu sem stendur. Enn
væri verið að skoða allar þær leiðir
...^ sem nefndar hafa verið til lausnar
þeirri pólitísku kreppu sem málið
hefur leitt til, engri þeirra hefði í
raun verið hafnað.
-S.dór
Veðrið á morgun:
Áframhald-
andi rigning
sunnan- og
vestanlands
Það er lægð á leiðinni norður
yfir land og hefur hún í för með
sér sunnan- og suðvestanátt um
land allt. Rigning eða súld verður
á Suður- og Vestur-
landi en þurrt að mestu á Norður-
og Austurlandi. Hiti verður á bil-
inu 10 til 14 stig, hlýjast á Norður-
landi.
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27Ö22
Búist er við því að ákvörðun verði
tekin um hvert framhald hvalveiða
Islendinga verður á ríkisstjómarfundi
á morgun, samkvæmt upplýsingum
sem DV fékk hjá Halldóri Asgrímssyni
sjávarútvegsráðherra í morgun.
Ekkert var rætt um hvalamálið á
ríkisstjómarfundi í gær. Ef málið kem-
ur til kasta ríkisstjómarinnar á
morgun má gera ráð fyrir því að utan-
ríkismálanefhd fjalli um það í fram-
haldi af ríkisstjómarfundinum.
-ój
Aflraunamaðurinn Hjalti „Ursus“ Árnason og júdómaðurinn Gísli Þorsteins-
son eigast hér við í glímu eins og keppt verður í á Víkingaleikunum. Það
er greinilega ekkert gefið eftir. DV-mynd JAK
Víkingasveitin
lemur á Skotum
„Við förum fimmtán Islendingar til
Larges og þar verður komist að því
hverjir hefðu unnið síðustu víkinga-
orrustuna á Bretlandi hefði hún farið
fram í dag,“ sagði Hjalti Ámason afl-
raunamaður en hann fer á Víkinga-
leikana í Skotlandi á morgun ásamt
fjórtán öðrum sterkum íslendingum.
Víkingaleikamir fara fram í bænum
Larges, sem er um 40 kílómetra suð-
austur af Glasgow. Leikamir em
haldnir í minningu síðustu víkingaorr-
ustunnar í Bretlandi sem var einmitt
háð í Larges.
Á víkingaleikana fara bestu glímu-
og júdómenn landsins, stór hluti vík-
ingasveitar lögreglunnar og svo afl-
raunamennimir Hjalti „Ursus“
Amason, Magnús Ver Magnússon og
Jón Páll Sigmarsson.
„Það verður keppt í glímu eða
wrestling, kraftaþrautum sem á ein-
hvem hátt tengjast hinni fomu
orrustu. Þar eiga keppendur að kasta
Þórshamri, reyna sig við aflrauna-
steina, fara í grjótkast og draga
víkingaskip. Leikamir enda svo með
því að liðin keppa um hverjir em fljót-
astir að bera víkingaskip einhverja
vissa vegalengd - það á sem sagt að
komast að því hverjir hefðu unnið síð-
ustu víkingaorrustuna hefði hún farið
fram í dag.“
Þess má geta að Skotar unnu þessa
sögufrægu orrustu og þeir hafa í
hyggju að halda uppi heiðri forfeðra
sinna því á leikana mæta allir mestu
aflraunamenn Breta, svo sem Capes
og Higgins.
En íslendingamir hafa líka fomra
harma að hefna og hefúr íslenska liðið
æft stíft síðustu þrjá mánuði og mætir
sterkt til leiks. Það kemur aftur heim
á þriðjudag. ATA
Lloyds skákmótið:
Hannes og Þröstur unnu
Tveir íslensku skákmannana sem
tefla á skákmóti Lloyds bankans í
London, þeir Hannes Hlífar Stefáns-
son og Þröstur Þórhallsson, unnu
skákir sínar í gær, en Jón G. Viðars-
son gerði jafntefli og Amþór Einars-
son tapaði sinni skák.
Þeir Hannes Hlífar og Þröstur tefldu
gegn frekar léttum andstæðingum frá
Englandi í gær að sögn Þrastar. Jón
G. gerði síðan jafhtefli við alþjóðlegan
Akvörðun um hval-
veiðar á morgun?
enskan meistara, en Amþór tapaði
fyrir Svíanum Emst.
Efstur á mótinu er breski stórmeist-
arinn Chandler með 4 vininga eftir
jafnmargar umferðir, en síðan kemur
hópur skákmanna með 3,5 vinninga.
Þeir Hannes Hlífar, Þröstur og Jón
em með 2,5 vinninga, en Amþór er
með 1,5 vinning. Ein umferð er tefld á
mótinu á hveijum degi og fara skák-
imar fram á Park Lane hótelinu þar
sem þeir Kasparov og Karpov leiddu
saman hesta sína í heimsmeistaraein-
vígi sællar minningar.
Í
i
i
i
i
i
i
LOKI
Bara þeir lemji ekki á
skosku löggunni!
MIÐVIKUDAGUR 26. AGUST 1987.
Islensk kona situr
' fangelsi á Spáni
- getur búist við þungum dómi fyrir að slasa lögregiuþjón
Fyrir nokkru lentu íslensk hjón í
útistöðum við hótelstjóra á hóteli
því er þau bjuggu á í Torremolinos
á Spáni. Höföu þau brotið og braml-
að flest í fbúðinni sem þau höföu og
var þeim vísað á dyr. Þeim var síðan
vfsað heim tii Islands en þau létu sig
hverfa og fóm hvergi.
Þegar svo kom að því þau fæm
heim komu þau á hótelið að sækja
farangur sinn sem var þar í geymslu.
Þá sló í brýnu milli hjónanna og
hótelstjórans.
Lögreglan var kölluð til að skakka
leikinn en þá réðst konan að einum
lögreglumanni og sparkaði í hann
þannig að hnéskel hans brotnaði
Var konan þegar handtekin og færð
í fangelai en maðurinn fékk að fara
til íslanda.
I fyrstu leit út fyrir að meiðsli lög-
reglumannsins væm þannig að hann
fengi staurfót og þá heföi margra ára
fangelaisdómur beðið konunnar.
Sem betur fór vom meiðsli hans
rninni en á horfðist en samt er Ijóst
að konan hlýtur dóm og er talað um
að það verði ekki minna en eins ára
fangelai.
íalenski konsúllinn f Malaga, Mar-
fn de Crévecoeur, sagði f aamtali við
DV að mál konunnar yrði ekki tekið
fyrir fyrr en í september þar sem
allt væri lokað vegna sumarfría í
ágústmánuði á Spáni. Vegna þess
hefði aér einnig gengið illa að útvega
konunni lögfræðing en hún sagðist
vonast til að úr því rættist strax í
byijun september.
-S.dór
I