Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
Viðskipti_________________________
Góð tíðindi af olíumarkaði
Bensindælan munduð. Þau góðu tíðindi berast núna af olíumarkaðnum að
verð á tunnunni af hráolíu hafi lækkað að undanförnu og útlit sé fyrir meiri
lækkun á næsta ári vegna fyrirsjáanlegs offramboðs á markaðnum.
skýrslu frá Alþjóða-orkustofnuninni,
en þar segir að umframframleiðsla
OPEC-ríkjanna á þessu ári hafi hjálp-
aö ríkjum OECD aö auka birgðir
sínar um 450 milljónir tonna. Birgðir
OECD-ríkjanna eru núna 14 milljón-
um tonna meiri en þær voru í lok
ársins 1985, skömmu áður en verð-
fall varö á olíunni.
„Olíumarkaðurinn hefur skyndi-
lega vaknað upp við það að mikið
offramboð verður hugsanlega á hon-
um allan fyrri hluta næsta árs,“ segir
The Economist.
Eftir olíukreppuna 1973 og 1979
gripu OECD-ríkin til átaks í orku-
sparnaöi með þeim árangri að eftir-
spurn eftir olíu minnkaði árlega um
Peningamarkaður
Tunnan af hráolíu, tegundin Brent
úr Norðursjónum, á Rotterdam-
markaöi hefur brotið 18 dollara
múrinn og er komin niður í 17,80
dollara. Þegar verðfallið í Wall Street
varö mánudaginn 19. október, eða
fyrir nákvæmlega mánuöi, var hrá-
olíutunnan um 19 dollarar. En það
sem meira er, lækkunin á hráolíu
nú er ekki stundarfyrirbrigöi heldur
er búist við enn meiri lækkun í vetur
og á næsta ári vegna offramboðs á
markaönum. Þessar upplýsingar
komu fram í nýjasta hefti The Ec-
onomist fyrir nokkrum dögum, eða
14. nóvember.
OPEC-ríkin framleiða núna um 19
milljónir tunna af hráolíu á dag, eða
um 2,4 milljónum íleiri tunna á dag
en þau hafa komið sér saman um.
Samþykktur dagskvóti þeirra er
núna 16,6 milljónir tunna. Þegar
OPEC-ríkin koma saman á fundi
þann 9. desember spá menn því að
þau samþykki nýjan kvóta upp á 17,5
milljónir tunna á dag. Sum ríkin
munu jafnvel fara fram á enn meiri
framleiðslu, segir The Economist.
Blaðið bendir ennfremur á nýja
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15
ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæöur
þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra
16 ára. 65 ára og eldri geta losað innstæöur
sínar meö 3ja mánaöa fyrirvara. Reikningarnir
eru verótryggöir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru meö hvert inn-
legg bundiö í tvö ár, verótryggt og meö 9%
nafnvöxtum.
Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lifeyris-
sjóöum eöa almannatryggingum. Innstæöur eru
óbundnar og óverötryggöar. Nafnvextir eru 23%
og ársávöxtun 23%.
Sérbók. Viö innlegg eru nafnvextir 18% en 3%
bætast við eftir hverja þrjá mánuöi án úttektar
upp í 27%. Hvert innlegg er meðhöndlaö sérs-
taklega. Áunniö vaxtastig helst óbreytt óháö
úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán-
uöi ef innleggið er snert. Á þriggja mánaöa
fresti er gerður samanburöur viö ávöxtun þriggja
mánaða verötryggöra reikninga, nú meö 2%
vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færö á
höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö
vaxtatímabil hpfur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin meö 27%
nafnvöxtum og 28,8% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun verðtryggös reiknings
meö 3,5% vöxtum reyriist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxtaleiörétt-
ingu. Vextir færast hálfsárslega.
Metbók er meö hvert innlegg bundiö í 18 mán-
uöi á 28,5% nafnvöxtum og 30,5% ársávöxtun,
eöa ávöxtun verðtryggðs reiknings meö 3,5%
vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust
aö 18 mánuöum liðnum. Vextir eru færóir hálfs-
árslega.
Iðnaöarbankinn: Bónusrelkningur er óverð-
tryggður reikningur meó 30% nafnvöxtum og
32,2% ársávöxtun. Verötryggö bónuskjör eru
3%. Á sex mánaöa fresti eru borin saman verö-
tryggó og óverðtryggð kjör og gilda þau sem
hærri eru. Heimilt er aö taka út tvisvar á hverju
sex mánaöa tímabili. Vextir færast misserislega
á höfuðstól.
18 mánaða bundinn reikningur er meö 31%
nafnvöxtum og 31% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin meö 29%
nafnvöxtum og 31,1% ársávöxtun. Af óhreyfð-
um hluta innstæöu frá síöustu áramótum eða
stofndegi reiknings síöar greiöast 30,4% nafn-
vextir (ársávöxtun 32,7%) eftir 16 mánuöi og
31% eftir 24 mánuöi (ársávöxtun 33,4%). Á
þriggja mánaöa fresti er geróur samanburður á
ávöxtun 6 mánaöa verðtryggðra reikninga og
gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast
0,8% í svonefnda vaxtaleiöréttingu. Vextir fær-
ast tvisvar á ári á höfuðstól. Vextina má taka
út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta-
tímabil á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur
stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3
mánuðina 19%, eftir 3 mánuði 22%, eftir 6
mánuöi 28%, eftir 24 mánuöi 30% eöa ársávöxt-
un 32,3%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaöa verö-
tryggðum reikningum gildir hún um hávaxta-
reikninginn. Vextir færast á höfuöstól 30.6. og
31.12.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 29% nafn-
vexti og 31,1% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæöu. Ef ávöxtun 6 mánaöa verðtryggðs
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast
misserislega. Af útttekinni upphæö reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt-
um siöustu 12 mánaða.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverötryggöra reikninga í bankanum,
nú 29,96% (ársávöxtun 31,51%), eöa ávöxtun
3ja mánaöa verðtryggðs reiknings, sem reiknuö
er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman-
buröur er geröur mánaðarlega og vaxtaábótinni
bætt viö höfuóstól, en vextir færöir i árslok. Sé
tekiö út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóösvextir, 20%, þano mánuö. Heimilt er aö
taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan
án þess aö ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki
er tekiö út af reikningnum í 18-36 mánuÓi tek-
ur hann á sig kjör sérstaks lotusparnaðar meö
hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun kemst þá
í 31,96-33,93%, samkvæmt gildandi vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Megin-
reglan er aö innistæða. sem er óhreyfö í heilan
ársfjóróung, ber 27,5% nafnvexti, kaskóvexti,
sem gefur 30,47% ársávöxtun, eóa nýtur kjara
6 mánaöa verðtryggðs reiknings, nú meö 4%
vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir
þann ársfjóröung.
Vextir og veröbætur færast á höfuöstól í lok
hvers ársfjóröungs, hafi reikningur notiö þess-
ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör,
þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem
færöar hafa veriö á undangengnu og yfirstand-
andi ári. Úttektir umfram þaö breyta kjörunum
sem hér segir:
Viö eina úttekt í ársfjóröungi reiknast almennir
sparisjóösvextir af úttekinni fjárhæö, en kaskó-
kjör af eftirstöðvum. Viö fleiri úttektir fær öll
innistæða reikningsins sparisjóösbókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan
dag ársfjóröungs, fær innistæðan kaskókjör ef
hún stendur óhreyfö út fjórðunginn. Reikning-
ur, sem stofnaöur er síðar fær til bráöabirgöa
almenna sparisjóösbókavexti en getur áunniö
sér kaskókjör frá stofndegi aö uppfylltum skil-
yröum.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verðtryggóur
og meö ávöxtun 6 mánaöa reikninga meö 3,5%
nafnvöxtum. Sé reikningur oröinn 3ja mánaða
er geröur samanburöur á ávöxtun meö svoköll-
uöum trompvöxtum, sem eru nú 30% og gefa
32,90% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
inn. Hreyföar innstæður innan mánaöar bera
trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða,
annars almenna sparisjóösvexti, 21,5%. Vextir
færast misserislega.
12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóöi vélstjóra
er meö innstæöu bundna í 12 mánuði, óverö-
tryggða, en á 34% nafnvöxtum. Misserislega
er ávöxtun 6 mánaöa verðtryggðs reiknings, nú
með 3,5% vöxtum, borin saman viö óverö-
tryggöa ávöxtun, og ræöur sú sem meira gefur.
Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóöa er meö innstæöu
bundna í 18 mánuöi óverðtryggða á 32% nafn-
vöxtum og 35,3% ársávöxtun eöa á kjörum 6
mánaða verótryggðs reiknings, nú með 3,5%
vöxtum. Vextir færast á höfuöstól misserislega
og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatíma-
bili á eftir. Sparisjóöirnir í Keflavík, Hafnarfiröi,
Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfiröi,
Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Neskaupstað,
Patreksfiröi og Sparisjóöur Reykjavíkur og ná-
grennis bjóöa þessa reikninga.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggö veröbréf eru til sölu hjá verö-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggö meö veöi
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf-
in eru ýmist verötryggð eða óverötryggö og
meö mismunandi nafnvöxtum. Algengustu
vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna
fasteignaviöskipta eru 20% eöa meðalvextir
bankaskuldabréfa. Þau eru seld meö afföllum
og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð-
tryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá húsnæöisstofnun ríkisins
getur numið 2.755.000 krónum á 4. ársfjórö-
ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúö á
síðustu þrem árum, annars 1.929.000 krónum.
Út á eldra húsnæöi getur lán numið 1.929.000
krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúö á sl. þrem
árum, annars 1.350.000 krónum.
Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru
' hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna.
Lánin eru til 40 ára og verðtryggð. Vextir eru
3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aöeins verðbætur
og vextir, síöan hefjast afborganir af lánunum
jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður
ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæöir,
vexti og lánstíma. Stysti tími aö lánsrétti er
30-60 mánuðir. Sumir sjóöir bjóða aukinn láns-
rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru
mjög mishá eftir sjóöum, starfstíma og stigum.
Lánin eru verðtryggð og meö 5-9% vöxtum,
algengastir eru meöalvextir, nú 8,1%. Lánstími
er 15-42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er að færa lánsrétt viö flutning milli sjóða eóa
safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í einu
lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagö-
ir viö höfuöstól oftar á ári verða til vaxtavextir
og ársávöxtunin veröur þá hærri en nafnvextirn-
ir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuöi á 10%
nafnvöxtum veröur innstæðan í lok tímabilsins
1100 krónur. Ársávöxtunin veröur því 10%. Sé
innstæðan óverötryggð í verðbólgu dregur úr
raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn-
vel oröiö neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 4- 6 mánuöi á 10%
nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán-
uöi. Þá verður upphæöin 1050 krónur og ofan
á þá upphæö leggjast 5% vextir seinni 6 mánuó-
ina. Á endanum veröur innstaeöan því 1.102,50
og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,8% á mánuöi eöa 45,6% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í nóvember 1987 er 1841
stig en var 1797 stig í október. Miðað er viö
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvisitala fyrir nóvember 1987 er 341
stig á grunninum 100 frá 1983, en 106,5 á
grunni 100 frá júlí 1987.
Húsaleiguvisitala hækkaöi um 5% 1. okt. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem
viö hana er miðað sérstaklega í samningum
leigusala og leigjenda. Hækkun vísitölunnar
miöast viö meöaltalshækkun launa næstu þrjá
mánuði á undan.
2,2 prósent á árunum 1980 til 1985. Á
síðasta ári, 1986, jókst eftirspurnin
hins vegar aftur. Fyrr á yfirstand-
andi ári spáðu menn 700 til 900
þúsund tunna aukningu á dag, en
nú ganga spárnar út á aukningu upp
á 200 til 500 þúsund tunnur á dag.
Gangi þetta eftir sjá menn núna
fram á alvarleg vandræði hjá OPEC-
ríkjunum á miðju næsta ári. Þaö
veikir stöðu ríkjanna líka ennþá
meira að raunverð olíu hefur lækk-
að, þar sem dollarinn hefur lækkað
að undanfórnu gagnvart flestum
myntum í hinum vestræna heimi.
Olía er dollaravara. Það þarf núna
færri ensk sterlingspund, franska
franka og japönsk yen til að greiða
fyrir olíutunnuna - og reyndar líka
færri íslenskar krónur.
Vegna lækkandi gengis dollars og
verðbólgu hafa Vestur-Þjóðverjar
séð raunverð olíunnar lækka um 15
prósent á þessu ári, Frakkar um 14
prósent og Englendingar um 20 pró-
sent, svo nokkur dæmi séu tekin.
Það berast núna greinilega góð tíð-
indi af olíumarkaðnum - og fleiri eru
í vændum. -JGH
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 19-21,5 Sp
Sparireikningar
3ja mán, uppsögn 19-23 Ab
6mán. uppsögn 20-25 Ab
12mán. uppsögn 22-28 Úb
18mán. uppsögn 31 Ib
Tékkareikningar.alm. 6-12 Sp
Sértékkareikningar 8-20,5 Sp
Innlán verötryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb
Innlán meðsérkjör- 19-34 Sp vél.
um Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 6,5-8 Ab
Sterlingspund 8,5-9 Ab,Úb, Vb.Sb
Vestur-þýskmörk 3-4 Ab
Danskar krónur 8,5-10 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 31-33 Sb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 33-36 eða kaupgengi
Almennskuldabréf 31-35 Sb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 33-36 Lb, Bb
Utlánverðtryggö
Skuldabréf 9-9,5 Úb.Sb, Sb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 29,5-31 Sb
SDR 8,25-9,25 Sp
Bandaríkjadalir 9,25-10,75 Sp
Sterlingspund 11,50-12 Vb.Bb
Vestur-þýskmörk 5,75-6,75 Sp
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 45,6 3,8 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverötr. nóv. 87 31,5
Verðtr. nóv. 87 9,1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 1841 stig
Byggingavísitalanóv. 341 stig
Byggingavisitala nóv. 106,5 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði5%1.okt
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,3079
Einingabréf 1 2,426
Einingabréf 2 1,421
Einingabréf 3 1,503
Fjölþjóðabréf 1,060
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,420
Lífeyrisbréf 1 220
Markbréf 1,239
Sjóðsbréf 1 1,178
Sjóðsbréf 2 1,135
Tekjubréf 1.268
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119 kr.
Iðnaðarbankinn 143 kr.
Skagstrendingurhf, 182 kr.
Verslunarbankinn 126 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Hraður
akstur veldur oft
alvarlegum slysum
UMFERÐAR
RÁÐ
DV
Verð á eriendum
mörkuðum
Bensín og olía
Verð í Rotterdam, fob., 17. nóv.
Bensín, venjul..161,50$ tonnið
eða um......4,57 ísl. kr. lítrinn
Bensín, súper...180,50$ tonnið
eða um......5,07 ísl. kr. lítrinn
Gasolía.........159,50$ tonnið
eða um......5,04 ísl. kr. tonnið
Hráolía
Verð í Rotterdam, fob., 17. nóv.
Um........17,80 doliarar tunnan
eða um.......662 ísl. kr. tunnan
Gull
Verð í London 18. nóv.
Um..........464 dollarar únsan
eða um......17.261 ísl. kr. únsan
Ál
Verð á áli í London 17. nóv.
Um....975 sterhngspund tonnið
eöa um.....63.960 ísl. kr. tonnið
Ull
Verð í Sidney, Ástralíu
Um................890 cent kílóið
eða um............331 ísl. kr. kílóið
Bómull
Verð á bómull í New York
Um...............69 cent pundið
eða um..........56 ísl. kr. kílóið
Hrásykur
Verð i London
Um..............191 dollar tonnið
eða um.......7.105 ísl. kr. tonnið
Sojamjöl
Verð í Chicago
Um..........202 dollarar tonnið
eða um......7.514 ísl. kr. tonnið
Um............116 cent pundið
eöa um......2,55 dollarar kílóið
eða um..........95 ísl. kr. kílóið