Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Blaðsíða 20
20
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
Dægradvöl
Pílukast eða „dart“ er nýog Irtt þekkt íþróttagrein á íslandi:
Er vinsælla en bæði
knattspyma og
ballskák í Englandi
Flestir hafa einhvern tíma kastaö
pílu í spjald og margir hafa jafnvel
hitt spjaldið. Að fordæmi Hróa
hattar hafa íslendingar reynt að
hitta sem næst miðju spjaldsins og
lítið velt fyrir sér reglum og hefð-
um að öðru leyti.
Píluspil hafa verið vinsælar gjafir
til unglinga og stálpaðra krakka.
Krakkarnir hafa gatað spjaldið og
harðviðarhurðina sem það hefur
verið hengt upp á í nokkra daga
eða vikur en síðan hefur spjaldið
verið tekið niður og því ásamt píl-
unum veriö komið fyrir í geymslu-
hirslum heimihsins eöa ruslaíot-
um.
Fæstir hafa gert sér grein fyrir
þvi að pílukast er flókin íþrótt eða
leikur og flrnavinsæl. Milljónir
manna um allan heim iðka pílu-
kast, í íþróttinni er fjöldi atvinnu-
manna og þeir sem skara fram úr
eru með best launuðu íþrótta-
mönnum heims og er þá langt til
jafnað. Pílukast er feikivinsælt
sjónvarpsefni og í Bretlandi, sem
er höfuðvígi pílukastsíþróttarinn-
ar, er hún vinsælla sjónvarpsefni
en bæði knattspyrna og ballskák
(biljarð). Þegar helstu pílukasts-
keppnimar í Bretlandi, heims-
meistarakeppnin og British Open,
fara fram horfa milljónir manna á
beina útsendingu frá mótunum þó
útsendingarnar standi jafnvel yfir
í sextán klukkutíma samfleytt.
í pílukasti reynir mjög á ná-
kvæmni, útsjónarsemi og reikni-
kunnáttu, stöðugar æfingar og
síðast en ekki síst stáltaugar. At-
vinnumenn í íþróttinni æfa á
hveijum degi þetta 4-6 klukkutíma
og er lögð mikil áhersla á góðan
stíl; að kastsveiflan sé söm og jöfn.
Vinsældir íþróttarinnar eru þó
kannski ekki síst í bjórkrám í Eng-
landi en þar sötra menn bjór
jafnhliða því sem þeir kasta. Þó er
vissara að ofnota ekki veigarnar
því minnsta ónákvæmni getur
kostað sigur í spennandi leik.
Pílukast á íslandi er mjög ung
íþróttagrein en aðeins eru liðin um
tvö ár frá stofnun íslenska pílu-
kastsfélagsins. En þróunin hefur
verið mjög ör hér á landi og bestu
pílukastaramir okkar gætu velgt
atvinnumönnunum verulega undir
uggum. Því til sönnunar er ágætur
árangur íslendinga á þeim fáu al-
þjóðlegu mótum sem þeir hafa
tekið þátt í. Þá er áhugi almennings
á íþróttinni sérlega ört vaxandi
enda er hér um leik að ræða sem
auðvelt er að stunda í heimahúsum
eða í dauðum tímum í vinnunni og
er reyndar vinsæll vinnustaðaleik-
ur um allan heim. Þá er þetta ódýr
íþrótt sem ekki útheimtir mikla og
sérhæfða aðstöðu.
Til stuðnings þeirri staðhæfingu
að áhugi á pílukasti fari vaxandi
má miimast Islandsmótsins í grein-
inni. Áhugi fjölmiðlanna hefur
aldrei verið meiri né umfjöllun
plássfrekari í sjónvarpi. Það er líka
mikill hugur í pílukastsmönnum
sem gera ráð fyrir mikilli út-
breiöslu íþróttarinnar hér á landi
á næstu árum.
-ATA
Þægileg og
ódýr íþrótt
segir fyrsti íslandsmeistarinn í pílukasti
„Ahuginn á pílukasti er almennt
að aukast enda er þetta þægileg og
ódýr íþrótt. Það er auðvelt að grípa
í piíumar þegar rólegt er heima eða
í vinnunni og spjald og pílur kosta
ekki mikið,“ sagði Ægir Ágústsson,
lögregluvarðstjóri í Grindavík.
Hann varð fyrsti íslandsmeistarinn
í pílukasti í fyrra og hélt titlinum
í öðru íslandsmótinu sem lauk um
helgina.
„Pílukast er mikið iökað innan
lögreglunnar. Við erum með sveit
héma í Grindavík sem tekur viku-
lega þátt í keppni uppi á Keflavík-
urflugvelli þar sem mætast sveitir
okkar, íslensku lögreglunnar á
Keflavíkurflugvelli, lögreglunnar í
Keflavík, Reykjavík, Rannsóknar-
lögreglunnar, lögreglu bandaríska
hersins og fleiri sveitir. Þarna fáum
við góða æfingu og keppnisreynslu
fyrir utan nú hvað þetta er gaman. ‘ ‘
Ægir segist hafa iðkað pílukast í
þrjú ár og hafi hann byijað að æfa
þegar til stóð að lið frá lögreglunni
tæki þátt í keppni á Keflavíkurflug-
velli.
„Mig langaði til að taka þátt í
keppninni og þar sem við erum
ekki margir í lögreglunni hér í
Grindavík fór ég að æfa til að kom-
ast í liðið. Ég hafði óskaplega
gaman af þessu og hóf reglubundn-
ar æfmgar. Ég æfi mest á lögreglu-
stöðinni þegar rólegt er á
vöktunum, eins og til dæmis á
næturvöktum. Ég hef þó ekki æft
eins vel og fyrir íslandsmótiö í
fyrra og er því ekki í jafngóðu formi
en síðustu vikurnar hef ég þó æft
mjög vel.“
Ægir sagði að æfingin væri höf-
uðatriðið í pílukasti enda æfðu
atviimumenn upp í sex tíma á dag.
Þá væri nauðsynlegt að taugarnar
væra í góöu lagi.
„Þetta er taugaíþrótt. í hita leiks-
ins verður spennan gífurleg og því
er nauðsynlegt að vera rólegur,
annars getur illa farið. Þaö er
kannski ástæðan tíl þess að margir
erlendir pílukastarar drekka bjór
meðan á keppni stendur. Með því
róa þeir taugarnar. Fari þeir hins
vegar að flnna á sér af bjórnum er
einbeitingin farin og um leið leik-
urinn.“
Ægir sagðist mæla eindregið með
pílukasti því íþróttin þroskaði ekki
einungis einbeitingarhæfileika og
taugar heldur einnig hugsun og
reiknikunnáttu. Leikurinn sem
keppt er í er yfirleitt kallaður 501.
Keppendur byija með þá tölu og
kasta sig síðan niður, ef svo má að
orði komast. Þegar þeir enda þurfa
þeir að vera með nákvæmlega núll
stig og tekur það oft á taugamar
að hala inn síðustu stigin.
„Við höfum verið að kynna pílu-
kast víðs vegar um landið. í
Borgarfirði kynntum við íþróttina
til dæmis í einum skóla og eftir að
hafa fylgst með okkur sagði skóla-
stjórinn að pílukastkeppni ætti að
vera í hveijum stærðfræðitíma því
í pílukastinu þyrfti að beita hag-
nýtri stærðfræðikunnáttu.
Ég vona bara að pílukastsáhug-
inn blási út hér á landi eins og alls
staðar annars staðar og ég er í
rauninni ekki í vafa um að svo
verður, maður finnur áhugann allt
í kringum sig,“ sagði Ægir.
-ATA
fyrir undankeppni íslandsmótsins í pilukasti en undankeppnin fór fram
í veitingahúsinu Evrópu. Ægir bar sigur úr býtum í úrslitakeppni íslands-
mótsins sem fram fór á Stöð 2 um helgina. DV-mynd KAE
Misskilningur að
diykkja þurfi að
fyigja pflukasti
- seglr Pétur Hauksson sem er með pfludelluna
„Það má segja að ég hafi byrjað aö
æfa pílukast í janúar síðasthðnum.
Þá fékk ég líka ótrúlega mikinn
áhuga og hef verið á fullu síðan,“
sagði Pétur Hauksson, ungur Grind-
víkingur og efnilegur pílukastari,
sem starfar sem hlaðmaður hjá Flug-
leiðum á Keflavíkurflugvelli.
„Ég greip reyndar aðeins í pílu í
fyrrasumar en hafði ekkert gaman
af því þá en eftir að ég fékk delluna
í janúar hef ég reynt aö æfa á hverj-
um degi. Ég get æft mig á dauðum
tímum í vinnunni og svo er ég með
spjald heima og kasta oft þar, til
dæmis á meðan aðrir em að horfa á
sjónvarp. Ég er alger dellukarl. Þegar
ég fæ áhuga á einhveiju stunda ég
það af krafti. Nú er það pílukastið
en áöur var það til dæmis skyttirí."
Pétur þykir með allra efnilegustu
pílukösturum landsins þótt hann
hafi ekki stundað æfingar nema í
rúmlega hálft ár. Frammistaða hans
í mótum að undanfornu hefur sann-
aö að hann gefur lítið eftir bestu
erlendu píluköstumnum, jafnvel at-
vinnumönnum í íþróttinni.
„Við emm meö nokkra mjög fram-
bærilega pílukastara hér á landi en
okkur skortir keppnisreynslu. Þegar
út í stórkeppni er komið vegur
reynslan og gott jafnvægi þungt.
Þetta stendur allt til bóta og við ætl-
um að reyna að taka þátt í eins
mörgum stórmótum og fjárhagurinn
leyfir.“
POukast er mikið stundað á krám
erlendis og var Pétur spurður að því
hvort íþróttinni fylgdi mikil drykkja.
„Þegar við tókum þátt í heims-
meistaramóti flugfélaga í pílukasti
nýlega spurðu írsku þátttakendurnir
okkur hvemig hægt væri að stunda
pílukast á íslandi þar sem bjór væri
bannvara. Það er rétt að víða erlend-
is drekka margir pílukastarar tölu-
vert af bjór en þeir sem taka íþróttina
alvarlega og keppa í henni drekka
mjög takmarkað magn, rétt svona til
að slaka á taugunum. En menn mega
alls ekki fmna á sér því þá hverfur
Pétur Hauksson er einn efnilegasti
pílukastari landsins þótt hann hafi
aðeins æft iþróttina í rúmlega hálft
ár. DV-mynd KAE
einbeitingin og nákvæmnin sem er
aðalatriðið í pílukasti ásamt mikilli
æfingu, góðum taugum og útsjónar-
semi.
Það er algér misskilningur aö
drykkja þuríí að fylgja pílukasti. Það
orð fer bara af íþróttinni vegna þess
að pílukast er vinsælt tómstunda-
gaman á krám erlendis. Ég held að
það hafi hjálpað íslenskum píluköst-
urum mikið að þeir eru ekki að sulla
í bjór og víni á meðan þeir eru aö
keppa.“ -ATA