Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Side 21
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
21
Dægradvöl
„Ég leik sjálfur ekki oft, til þess er
of mikið að gera í stjórnunarstörfum.
Menn gera áér enga grein fyrir því
hvað það er erfltt að koma upp nýrri
íþróttagrein hér á landi. Við höfum
verið að spá í að ganga 1ÍSÍ en sem
stendur sjáum við ekki fram á aö þaö
hjálpi íþróttinni mikið. Svo er erfitt
að koma fréttum og upplýsingum af
pílukasti til skila á íþróttasíðum
blaðanna en sjónvarpsstöðvarnar
hafa tekið mun betur við sér,“ sagði
Óðinn Helgi Jónsson, formaður ís-
lenska pílukastsfélagsins.
„Menn hafa verið að kasta pílum
árum saman hér á landi, aðallega
böm og unglingar, en þá yfirleitt
ekki farið eftir neinum viðurkennd-
um reglum og pflukastið fremur
verið stundað sem afþreying en
íþrótt. Það var ekki fyrr en með
stofnun félagsins árið 1985 að farið
var að keppa i pflukasti þannig að
íþróttin er mjög ung hér á landi.“
Óðinn sagði að iðkendur pflukasts
væru ekki alls kostar ánægðir með
orðið „pflukast". Á erlendum málum
væri þetta ætíð kallað „dart“ og ís-
lenskufræðingar hefðu lent í erfið-
leikum með að finna þjált og þægilegt
nafn. Svo lengi sem það fyndist ekki
yrði að notast við „pílukast“ eöa
„pílu“.
„Pflukast á geysilega mikla framtíð
fyrir sér. Þetta er ódýr íþrótt sem
hægt er að leika hvar sem er þvi hún
krefst engrar sérstakrar aðstöðu
nema þá kannski góðrar lýsingar.
Við höfum líka orðið varir við sívax-
andi áhuga almennings á íþróttinni
og í fjölda sveitarfélaga hafa verið
stofnaðir klúbbar. Þetta er einnig
með allra vinsælustu iþróttum víða
erlendis og er til að mynda vinsæl-
asta sjónvarpsefnið sem boðið er upp
á í Bretlandi, slær knattspymunni
og ballskák algerlega við.
Pflukastsáhuginn barst með
bandarískum hermönnum á Kefla-
víkurflugvelli og tók sér fyrst ból-
Oðinn Helgi Jónsson, formaður Islenska pílukastsfélagsins, hefur sleppt hendinni af pilu sem er á leið í þrefaldan tuttugu.
festu á Suðumesjum. En áhuginn
hefur breiðst hratt út og nú eru á
annað hundrað keppnismenn í
íþróttinni um allt land, fyrir utan
alla þá sem dunda við þetta í heima-
húsum án þess að keppa.“
Óðinn sagði að íslenskir pílukast-
arar hefðu í fyrsta sinn tekið þátt í
sterku móti erlendis um áramótin
síðustu. Þá fóm tveir keppendur á
„British Open“ sem er eitt fjölmenn-
asta pílukastsmót sem haldið er í
heiminum.
„Miðað við reynsluleysi okkar
manna gekk þeim mjög vel og ætlun-
DV-mynd KAE
in er að senda 3-5 keppendur á þetta legu móti hér á landi á næsta ári og inn verður að ráða hvort úr því getur
mót nú um áramótin. Svo er stóri fá til keppni einhverja af fremstu orðið,“ sagði Óðinn Helgi Jónsson.
draumurinn að standa fyrir alþjóð- pílukösturum heims. En fjárhagur- -ATA
Undirstöðureglur
í pðukastskeppni
Á flestum pfluspjöldum eru tvær
ólíkar hliöar, önnur með skot-
marki, líkt þvi sem notað er í skot-
og bogfimi, og á hinni hhðinni skot-
mark meö reitum merktum frá
1-20. Þessi hlið er ævinlega notuð
í keppni og þegar spilaðir eru leikir
eins og 501.
í 501 byrja menn með 501 stig og
eiga síðan að telja sig niður í slétt
núll. Fyrir að hitta í reit merktan
1 fær maður eitt stig, fyrir að hitta
í reit merktan 20 fær maöur tuttugu
stig. Með því að hitta í ferhyrning-
inn yst á reitnum tvöfaldast talan
og ef hitt er í ferhyrninginn í miðj-
um reitnum þrefaldast talan. Hæst
er því hægt að fá 60 með einni pílu.
Hitti maður í rauða reitinn á miðju
spjaldsins fær maöur 50 en 25 fyrir
að hitta í svörtu ræmuna umhverf-
is miödepilinn.
Sá sem fyrst nær sléttu núlh
sigrar f keppninni. Fari keppandi
niður fyrir núll er hann talinn
sprunginn, síðasta kast hans er
ógilt og í næstu atrennu hefur hann
sömu tölu og áður.
Eitt það erfiöasta viö 501 er aö
leiknum verður að ljúka með því
að keppandi hitti í tvöfaldan reit,
það er ysta ferhyrainginn á spjald-
inu. Eigi hann til dæmis eftir 20
þarf hann að hittai tvöfalda tiu til
að „fá útgang“ eins og það er kall-
að. Þar með er leiknum lokið.
Keppendur kasta þremur pflum í
hverri lotu og er því hæsti mögu-
legi stigaljöldi í einni atrennu lSO
(þrjár pílur í þrefaldan 20). Til gam-
ans má geta þess að samkvæmt
alþjóðareglum skal miöja pílu-
borðsins vera 173 sentímetra frá
gólflleti og fjarlægð keppenda frá
borðinu 237 sentlmetrar.
-ATA
&
KULULJOS
Kr. 1.386,-
Kr. 2.223,-
Kr. 4.302,-
15 cm, kr. 882,-
20 cm, kr. 1.125,-
25 cm, kr. 1.602,-
KORT
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600
Rafdeild, 2. haeð. Beinn simi 62-27-32
- segir Óðinn Helgi Jónsson, formaður íslenska pílukastsfélagsins
Stefnum að því að halda
alþjóðlegt mót á næsta ári