Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987. Iþróttir Danir töpuðu - í undankeppni OL Haukur Hauksson, DV, Danmórku: Danska ólympíuliðið í knatt- spyrnu, sem stóð meö pálmann í höndunum að komast í úrslita- keppnina í Seoul, tapaöi óvænt fyrir Vestur-Þjóðverjum, 0-1, í , Arósum í gærkvöldi. Ósigurinn gerir þaö að verkum aö nú eiga Þjóðveijarnir mestu möguleika að komast áfram en ennþá eru nokkrir leikir eftir í riölinum svo allt getur gerst. 22 þúsimd áhorfendur fylgdust með leiknum sem var mjög vel leikinn en að sama skapi mjög grófur og þá sérstaklega undir lok leiksins þegar leikmönnum fór að hitna í hamsi. Danir sýndu framan af írábæra knattspyrnu enþýska vörnin varðist vel. Þjóð- verjar komust síðan smám saman meirainn í leikinn. Staöan í hálfleik var 0-0. Þegar fimmtán mínútur voru liðnar af síðari hálfleik skoraði Wolfram Wuttke frá Kaiserslaut- em fyrir Þjóðveija sem reyndist vera sigurmark leiksins. Danska liðið sótti samt sem áður án af- láts eftir markið en allt kom fyrir ekki. Danir voru með unninn riöil fyrir hálfum mánuði en sigur- leikur þeirra gegn Pólverjum var dæmdur tapaður eftir að kom í Ijós að Danir notuðu ólöglegan leikmann í leiknum, Per Fri- mann. . • Danir og Vestur-Þjóðveijar eru efstir í riðlinum með 6 stig en Danir hafa leikið einum leik meira eða fimm leiki. Þessar tvær þjóðir eru þær einu sem raun- hæfa möguleika eiga að komast áfram í keppninni. • OL-lið Itala og A-Þjóðverja léku í Róm í gærkvöldi og varð jafntefli, 1-1. Doll skoraði mark Þjóðverja á 7. mínútu en Pacione jafnaöi á 13. mínútu. A-Þjóðverjar eru efstir með 7 stig eftir 6 leiki en ítalir koma næstir með 6 stig eftir 4 leiki. • Tveir OL-leikir að auki fóru fram í gærkvcldi. írar sigruðu Frakka, 3-0, og Spánverjar sigr- uöu Ungverja, 1-0. -JKS Jafntefli í Búdapest Sigurður Bjömsson, DV, Þýskalandi: Ungveijaland og Vestur-Þýska- land gerðu jafntefli í vináttuleik í knattspymu í Búdapest í gær- kvöldi. Ekkert mark var skorað og leikurinn heldur daufúr. Þjóð- vetjar réðu gangi leiksins í fyrri hálfleik og þá átti Lothar Matthe- aus skot í stöng. Það var það næsta sem leikmenn komust að skora í leiknum. i síðari hálf- leiknum höfðu Ungveijar undir- tökin en sköpuðu sér ekki færi. Eike Immel, landsliðsmarkvörð- ur hjá Stuttgart, þurfti varla aö veija skot í leiknum. -hsím • Emilio Butragueno, i dökkri peysu, sést hér kljást um knöttinn við einn leikmanna albanska liðsins. Spánverjar höfðu mikla yfirburði og sigruðu með 5 mörkum gegn engu. Símamynd/Reuter Spánn hlaut sjö- unda EM-sætið - sigraði Albaníu 5-0 í Sevilla Spánn varð í gær sjöunda þjóðin til að tryggja sér sæti í úrslitum Evr- ópukeppninnar í knattspyrnu í Vestur-Þýskalandi næsta sumar. Spánn sigraði þá Albaníu, 5-0, í 1. riðli á sigurvelli sínum í Sevilla en á sama tíma gerðu Austurríki og Rúm- enía jafnteíli, 0-0, í sama riðli. Það þýddi að Spánverjar komust upp fyr- ir Rúmeníu í riðlinum. Hlutu 10 stig en Rúmenar 9 en með sigri í Vínar- borg hefðu Rúmenar komist í úrslit. Með betra markahlutfall en Spánn. Úrslit hafa nú fengist í öllum riðl- unum nema einum, þeim fimmta. Þar eiga Grikkland og Holland eftir að leika í Aþenu og þurfa Hollending- ar stig úr leiknum til að komast í úrslit. Auk Spánveija og gestgjaf- anna, Vestur-Þjóðverja, leika ítalir, Sovétmenn, Englendingar, Danir og írar í úrslitum. í Sevilla í gær náðu Spánverjar strax yfirhöndinni gegn Albaníu. Jose Bakero skoraði fyrsta mark leiksins á fimmtu mín., bætti tveim- ur öðrum við á 31. og 74. mín. Hin tvö mörkin skoruðu Michael Gonza- les úr vítaspyrnu á 36. mín. og Francisco Lorente á 67. mín. Þetta var 50. landsleikur Spánverja undir stjórn Miguel Munoz, sem Tony Knapp rak eitt sinn af Laugardals- velli þegar hann ætlaði að fylgjast með landsliðsæfmgu hjá íslending- um. í leiknum í Vínarborg sóttu Rúmenar mjög en tókst ekki aö brjóta sterka vörn heimamanna á bak aftur. Klaus Lindenberger átti einnig snjallan' leik í austurríska markinu. -hsím FIRMA- OG FÉLAGSHÓPAKEPPNI í innanhússknattspyrnu verður haldin í Breiðholts- skóla dagana 21., 22., 28. og 29. nóv. Þátttaka tilkynnist í síma 75013 eftir kl. 13 í síðasta lagi 19. nóv. Þátttökugjald kr. 5.000,- • Lekbelo, markvörður Albana, sýnir hér mikil tilþrif i leik Albana og Spán- verja í gærkvöldi. Simamynd/Reuter Megson rekinn af velli en samt sigraði Sheff. Wed. - Man. Utd í basli Sheffield Wed. tryggði sér sæti í átta liða úrslitum enska deilda^ bikarsins í gærkvöldi þegar liðið sigraði Aston Villa, 2-1, á Villa Park í Birmingham. Óvænt það því að á 37. mín. var Gary Megson rekinn af velli og leikmenn Shelf. Wed. því einum færri það sem eftir liföi leiks. Lee Chapman og Cohn West skoruðu mörk hösins. Man. Utd lenti í bash með 3. deildar lið Bury og þó var leikið á Old Trafford, ekki í Bury eins og vera átti samkvæmt drættin- um. Jamie Hoyland náöi forustu fyrir Bury á 52. min. Bryan Rob- son, fyrirhði United, sem leikið liafði sem miövöröur, var þá færður fram í sína venjulegu stööu á miöjunni. Það gaf strax árangur og United jafnaöi. Nor- man Whiteside skallaöi í mark eftir fyrirgjöf Gordon Strachan. Þaö var á 54. mín. og á 58. mín. skoraði Brian McClair sigur- markið. Robson fékk sendingu frá Strachan, lék á Simon Fam- worth, markvörö Bury, áður en hann sendi knöttinn á McClair og eftirleikurinn var auöveldur. Oxford hélt meti sínu í deilda- bikarnum. Sigraði Wimbledon, 2-1, og hefur aldrei tapað leik í keppninni á litla Óðalsvelhnum. Dean Sauders skoraði fyrsta mark leiksins snemma leiks en Alan Cork jafnaði. Eftir mistök Brian Gayle skoraði Les Phillips sigurmark Oxford á 75. mín. I fjórða leiknum í keppninni í gær gerðu Reading og Bradford jafntefli, (W), og verða því að leika á ný í Bradford. Tveir leikir voru í skosku úr- valsdeildinni í gærkvöld. Hearts sigraði Dundee Utd., 3-0, í Dundee og Hibernian og Morton gerðu jafntefh', 0-0. -hsím Bikarsigur Anderlecht á 3. deildar liði Kristján Bemburg, Belgíu: Anderlecht sigraði 3. deildar hð Jong Lede, 2-0, á útivelli í 16 liöa úrslitum; belgísku bikarkeppn- innar í gærkvöldi. Belgíski landsliðsbakvörðurinn Grun skoraði bæði mörkín í fyrri hálf- leik í heldur slökum leik. Amór Guðjohnsen lék með Anderlecht. Þetta var fýxri leikur hðanna, síö- ari leikirnir í 16 liða úrshtum verða 16. desember. Önnur úrslit urðu þau að Standard vann Harelbeke, 2-1, FC Brugge tapaöi óvænt á heima- vehi fyrir Mechelen, 1-2. Sama má segja um úrshtin í leik St. Tuiden og Eeklo, 1-2. Þá vann Lierse Berschot, 2-1. Jafntefli gerðu Esden-Charleroi, 2-2, Kortrijk-Seraing, 1-1, og FC Li- ege-Beveren, 0-0. -hsím j ÞJálfiari Wintevslag var rekinn Kristján Bemburg, Bekjíu: Þjálfari Winterslag, Briganti, var rekinn frá félaginu í gær og mun aðstoðarþjálfarinn sjá um hðið þar tll nýr þjálfari hefur verið ráðinn. Ekki er gott að segja hvaða áhrif þetta hefur fyrir Guðmund Torfa- I son hjá félaginu en það kemur í ljós I næstu daga. Briganti var honum 1 alltaf hliðhollur. | i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.