Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Side 36
36
Meiming
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
KVÖLDVAKTIR - BÝTIBÚR
Óskum eftir starfsmanni á kvöldvaktir í býtibúr.
Vinnutími frá kl. 16.30-21.00. Unnið er í 7 daga í
senn og frí í 7 daga. Upplýsingar gefur ræstingar-
stjóri í síma 19600-259 frá kl. 10-14 daglega.
Reykjavík 18. nóv. 1987.
Kjararannsóknanefnd
opinberra starfsmanna óskar eftir að ráða
mann til starfa fyrir nefndina.
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun eða reynslu
á sviði hagfræði, viðskiptafræði, tölfræði eða talna-
vinnslu.
Um getur orðið aö ræða ráðningu í hlutastarf eða
fullt starf. Umsóknarfrestur er til 24. nóvember nk.
Umsóknum skal skilað til:
Kjararannsóknanefnd opinberra starfsmanna
b/t. fjármálaráðuneytið
Arnarhvoli
Reykjavík.
/ Hi \
w
*'/fl s\^
TIL SÖLU ÞÖNGLABAKKI 6, REYKJAVÍK
Kauptilboð óskast í byrjunarframkvæmdir ásamt lóð-
arréttindum eignarhluta ríkissjóðs í fasteigninni
Þönglabakka 6, Reykjavík. Sökklar hafa verið steypt-
ir að um 800 fm grunni.
Kaupandi er skuldbundinn á sama hátt og fyrri lóðar-
hafar af öllum bygginga- og skipulagsskilmálum,
sem um lóðina gilda, þar með talin þátttaka í sameig-
inlegum framkvæmdum með öðrum lóðarhöfum í
Mjódd.
Skrifleg kauptilboð, er greini kaupverð og greiðslu-
skilmála, berist skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja-
vík, fyrir kl. 11.30 f.h. fimmtudaginn 26. nóv. nk.,
en þá verða kauptilboð opnuð.
IIMNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK _
n
IÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLÆNDS
VÖRUÞRÓUN
MARKAÐSSÓKN
Á tímum harðnandi samkeppni er fátt mikilvægara í rekstri fyrirtæk-
is en að koma fram með nýjar og endurbættar vörur á réttum tíma
inn á markaðinn.
Rekstrardeild ITl gengst fyrir námskeiði í vöruþróun. Markmiðið
með námskeiðinu er að nemendur læri kerfisbundin vinnubrögð
við vöruþróun - frá hugmynd til markaðar - til þess að koma í
veg fyrir ónauðsynleg útgjöld.
EFNI: Ferli til vöruþróunar.
Mat á getu fyrirtækis til að standast samkeppni.
Hvernig fá menn hugmyndir! Fjármögnun?
STAÐUR: Holiday Inn.
TÍMI: 23. til 25. nóv. kl. 8.30-12.00 alla dagana.
Verð kr. 11.900.
Veitingar og námsefni innifalið. 25% afsláttur fyrir fleiri en einn
frá sama fyrirtæki.
SKRÁNING: Sími 887000.
ATH. takmarkaður fjöldi. ATH. Nýja bókin um vöruþróun
innifalin.
REKSTRART ÆKNIDEILD
DV
lifið er alls staðar
Steinunn Eyjólfsdóttir
Bókin utan vegar
Bókrún, 1986
Bókin utan vegar, eins og segir í
fyrsta ljóði hennar, er ekki hugsuð
handa þeim sem ganga greitt um lífs-
ins veg, glaðbeittir og athafnasamir,
heldur er hún ætluð þeim sem dauð-
inn hefur ýtt út af, hafna utan vegar.
Sú er reynsla höfundar, Steinunnar
Eyjólfsdóttur, sem hafnar samt ekki
í dimmu tómi en hittir á hliðarveg
ljóðsins þar sem líf og dauði ferðast
saman og eiga hljóðar viðræður, sá
vegur þar sem hin innri hugsýn ferð-
ast frjáls.
Móðir missir son sinn skyndilega
og situr eftir í sárum. Hún rifjar upp
horfnar samverustundir, hlýju
þeirra og gleði, ærsl og tiltektir
barns. En þrátt fyrir eftirsjá er það
fremur lífið sem situr í höfundi en
dauðinn. Og sonurinn, sem heitir
Dagur, tengist birtu og lífsmagni sem
áfram mun lýsa.
Eins og ljós í stóru dimmu húsi
eða viti á fjarlægri strönd
lýsir sá dagur nú út í minning-
una.
Ljós, eitt af mörgum
ljós
ljósaflóð
birta
dagur.
Var það þá ekki tilviljun
nafnið þitt?
En sorgin vekur að sönnu áleitnar
spurningar og órósamar um líf og
ekki líf.
Lífið.
Lífið.
Allt ber það í sér.
Öllu ööru er það dýrmætara.
Öll bókasöfn og vísindaskrár
heimsins
eru eins og rusl af hlöðugólfi
sem sópað er út til hænsnanna
borið saman við eitt mannslíf.
Steinunn Eyjólfsdóttir.
Bókmenntir
Berglind Gunnarsdóttir
Það hefur jafnan verið hlutverk
kvenna að hlúa að lífi og þeim er lík-
lega ljósast hvað í húfi er. Þess vegna
getur líf í bók virst lítilfjörlegt miðað
við líf barns sem vex og deyr alltof
fljótt en þó getur ein ljóðabók utan
vegar verið ákveðin leið til að bera
sorgina með reisn, jafnvel sættast við
hana, og raunar hnígur hugsun höf-
undar í þá átt. Manneskjunni er
ofviða að stjórna lífi og dauða en hún
er þess umkomin að snúa dauða í líf
með ljóðum sínum. Og það kann að
vera nokkur huggun.
Ljóð Steinunnar tjá því ekki fyrst
og fremst örvæntingu heldur hjart-
sýni og einlæga trúarvon. í þeim
leitast hún við að draga fram hið
fagra og góða og barnslega í tilver-
unni og blasir víða við ef menn vilja
stjá.
Það er einlægur og góður tónn í
þessari bók en ekki hefði sakað að
þétta ljóðin betur og skilja eftir meira
rúm fyrir lesendur að fylla í.
Að ytra útliti er Bókin utan vegar
falleg og einnig prýða hana teikning-
ar eftir Guðrúnu Svövu Svavars-
dóttur.
Fuglar og fiðrildi
Sýning Rúnu Gísladóttur að Kjawalsstöðum
Einu sinni settu skynsamar konur
upp snúð þegar karlmenn voguðu
sér að tala um kvennalist, þó svo
að með því væru þeir engan veginn
að lasta hstsköpun kvenna heldur
einungis að velta fyrir sér tíðri
notkun kvenna í listamannastétt á
sérstakri tegund myndmáls og
myndbyggingar.
Síðan hættu konur að líta á hug-
takið „kvennalist“‘sem hnjóðsyrði
og hófu beinlínis að leggja áherslu
á „kvenlegt“ myndmál sem hluta
af herferð sem miðaði meðal ann-
ars að því að auka sjálfstraust
listakvenna.
Ekki veit ég hvaða pól kvenna-
fræðingar taka í hæðina í dag og
vil ég þess vegna hætta á að lýsa
því yfir að myndir Rúnu Gísladótt-
ur, sem nú sýnir að Kjarvalsstöð-
um, eru mjög í anda þeirrar listar
sem áður var nefnd - já, og upp-
nefnd - „kvennalist".
í myndum hennar er nefnilega
afskaplega mikið um fugla, fiörildi,
liljur vallarins og annan gróður
sem er út af fyrir sig í stakasta lagi
nema hvað listakonunni er ekki
lagið að bæta neinu við það sem
áöur hefur verið sagt, ritað og mál-
að um þessi fyrirbæri.
Þau eru sem sagt orðin að nokk-
urs konar klisjum þegar þau
loksins eru komin á strigann hjá
henni.
Líkast til er ástæðan sú að lista-
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
konan hefur mun minni áhuga á
fuglum og fiðrildum sem slíkum en
því sem hún getur raðað utan um
þau. Frumlög mynda Rúnu, hvort
sem þau eru úr jurtaríkinu, steina-
ríkinu eða dýraríkinu, eru beinlín-
is að drukkna í alls kyns
myndbyggingalegum effektum:
þverstrikum og skástrikum, fern-
ingum og þríhymingum sem ekki
gefa neitt til kynna um markmið
sín.
Litabruðl eykur enn á ruglinginn
í myndum Rúnu sem er raðað svo
þétt og óskipulega í austursal Kjar-
valsstaða að áhorfandinn kemur
nánast sjóntruflaður út af sýníngu
hennar.
Listakonan hefur fil að bera hæfi-
leika til listskreytinga, um þaö
votta smámyndir hennar en í
stærri myndum sínum þarf hún að
taka sér tak, hreinsa burt allt ill-
gresi og gera upp við sig hvað hún
ætlar að segja.
-ai